Morgunblaðið - 23.05.1991, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1991
55
KNATTSPYRNA
Lárusí
aðalhlut-
verkinu
LÁRUS „kokkur," Loftsson,
aðstoðarmaður Bo Johansson,
landsliðsþjálfara íknattspyrnu,
verður í aðalhlutverki fyrstu
dagana í Albanfu. Hann sér um
að matreiða ofan í landsliðs-
mennina, en í fyrsta skipti er
nú tekið með matur í einhverj-
um mæli í keppnisferð lands-
liðsins.
Við erum með mikið af pasta,
súpum, sósum og allt í morg-
unmatinn; kex, brauð, mjólk, djús,
ost og marmelaði, - og þá erum við
með mikið af vatni með okkur,“
sagði Lárus við Morgunblaðið í
Ziirich í gær. Fyrir hádegi í dag á
svo að fara á ávaxtamarkað í borg-
inni og kaupa ávexti og grænmeti
til að fara með til Albaníu.
Það má segja að haldið sé út í
óvissuna þegar farið verður til Al-
baníu í dag. Frakkar og Tékkar,
sem leikið hafa í Albaníu nýlega,
hafa að vísu ráðlagt íslendingunum
ýmislegt; t.d. á hvaða hóteli þeir
ættu að fara fram á að gista og
þar fram eftir götunum. Þess má
geta að A-landsliðið kemur til með
að búa í hafnarborginni Durres, um
30 km frá Tirana, þar sem liðið
leikur, en yngra liðið, skipað leik-
mönnum 21. árs og yngri, á að búa
og Ieika í Elbasan, um 50 km sunn-
an við Tirana.
Leikur U-21 liðsins verður á
laugardag í Elbasan en A-liðið leik-
ur á sunnudag í Tirana.
Sigurður Grétarsson í landsleik.
Hann missir af mjög mikilvægum leik
í toppbaráttu svissnesku 1. deildar-
keppninnar á laugardag vegna lands-
liðsins.
Vildu að ég hætti
með landsliðinu
- segirSigurður Grétarsson um forráðamenn Grasshoppers
SIGURÐUR Grétarsson, leikmaður svissneska meistaraliðsins
Grasshoppers, fer með landsliðinu í dag til Albaníu - og missir
því af mjög mikilvægum leik í toppbaráttu svissnesku 1. deildar-
keppninnar á laugardag. Grasshoppers hefur eins stigs forskot
á toppi deildarinnar og á góða möguleika á að tryggja sér titilinn.
Grasshoppers leikur á heima-
velli gegn Young Boys á laug-
ardag og segir Sigurður að ef liðið
næði að sigra sé staða þess óneitan-
lega mjög góð.
Skapti Meiðsli hafa hrjáð
Hallgrímsson suma leikmenn
skhlarfrá Grasshoppers. und-
anfarið og þvi voru
forráðamenn félagsins ekki hrifnir
af því að Sigurður yrði ekki með í
leiknum. „Þeir töluðu um það við
mig hvort ég vildi ekki bara hætta
að leika með Iandsliðinu," sagði
Sigurður við Morgunblaðið. „En ég
tók auðvitað alls ekki undir það.
Mér finnst það reyndar óvirðing að
þeim skuli hafa dottið í hug að tala
um þetta, og málið var ekki meira
rætt þegar þeir sáu hvernig ég tók
í hugmyndina."
Sigurður ' segir liðin átta sem
keppa í úrslitakeppninni um svissn-
eska meistaratitilinn mjög jöfn að
getu og því geti allt gerst. „Við
eigum að vinna leikinn á laugardag-
inn, en keppnin er það jöfn að allt
getur farið úr böndunum ef menn
eiga slakan dag. Leikurinn er mjög
mikilvægur fyrir okkur, og ég sagði
forráðamönnum félagsins að þeim
væri guðvelkomið að tala við KSÍ
og reyna að fá mig lausan - ég
sagðist tilbúinn að spila hér á laug-
ardaginn ef KSÍ samþvkkti það.
En ég veit ekki hvort þeir reyndu
það. Ég heyrði að minnsta kosti
aldrei meira um þetta, og á ekki
von á að forráðamenn KSÍ hefðu
sleppt mér. Þeir hafa að minnsta
kosti verið mjög harðir í þessum
málum undanfarið - til dæmis þeg-
ar Guðni varð að koma í Spánarleik-
inn í fyrra haust.“
Farangur íslenska lands-
liðsins vó eitt og hálft tonn
LANDSLIÐIÐ kom mun seinna
til Zúrich í gær en áætlað var
því seinkun var á flugi frá Lon-
don. Flogið verðurfrá Zúrich
til Tirana um kl. 13 í dag að
svissneskum tíma, - kiukkan
11 að íslenskum tíma.
ópurinn kom ekki til Zurich
fyrr en um kl. 22 í gærkvöldi,
nema hvað Ólafur Þórðarson og
Gunnar Gíslason komu tólf klukku-
stundum áður, en þeir leika sem
kunnugt er í Noregi og Svíþjóð.
íslenski hópurinn var kominn út í
flugvél British Airways félagsins í
London, þegar í ljós kom að vélin
var biluð. Þar var svo setið og beðið
í tæpar þrjár klukkustundir áður
en lagt var í hann, menn fengu að
borða og höfðu það huggulegt.
Þess má geta að farangur
íslenska hópsins vó hvorki meira
né minna en eitt og hálft tonn, -
ogtaldi 101 tösku! Búningar, matur
og ýmislegt fleira sem tekið var
með vegur greinilega sitt.
Spilar
Arnór?
Arnór Guðjohnsen verður senni-
lega rneð landsliðinu gegn Al-
baníu eftir allt saman. Bo Johans-
son, landsliðsþjálfari, lagði hart að
honum og samkvæmt upplýsingum
frá KSÍ féllst Arnór að fara til Al-
baníu á laugardag, en leikurinn
verður á sunnudag. Arnór leikur
með Bordeaux í frönsku deildinni
annaðkvöld.
ÚRSLIT
Knattspyrna
Evrópukeppni félagsliða:
Seinni leikur í úrslitum.
AS Roma - Inter Milan.........1:0
Ruggiero Rizzitelli (80.).
Áhorfendur: 71.000.
• Milan vann fyrri leikinn 2:0 og sigraði
því samanlagt 2:1 og er Evrópumeistari
félagsliða.
Evrópukeppni landsliða:
4. riðill:
Austurríki - Færeyjar.........3:0
Heimo Pfeifenberger (13.), Michael Streiter
(47.), Arnold Wetl (64.).
Áhorfendur: 13.000
Staðan:
Júgóslavía............6 5 0 1 20 4 10
Danmörk...............4 2 1 1 7 5 5
Austurríki............4 1 1 2 4 5 3
Færeyjar..............5 113 3 15 3
N-írland.............5 0 3 2 3 8 3
2. riðill:
San Marínó - Búlgaría...............0:3
Ivanov (13.), Sirakov (20.), Penev (vsp. 59.).
Áhorfendur: 612.
Vináttulandsleikur:
írlaml - Chile.....................1:1
David Kelly (82.) - Fabian Estay (64.)
Ahorfendur: 32.230.
Frakkland:
Nice - Marseille....................1:0
Abedi Pele (42.). Áhorfendur: 20.000.
England:
Leikir um sæti (seinni leikir):
2. deild:
Millwall - Brighton.......1:2 (samanl. 2:6)
Notts County - Middlesbrough.....1:0 (2:1)
3. deild:
Bolton - Bury.........................1:0 (2:1)
Tranmere - Brentford..................1:0 (3:2)
4. deild:
Blackpool - Scunthorpe................2:1 (3:2)
Burnley - Torquay.......................0 (1:2)
Íshokkí
NHL-deildin:^
Úrslitakcppnin:
Minnesota North Stars-Pittsburgh..3:1
Minnesota North Stars-Pittsburgh..3:5
• Staðan er jöfn, 2:2. Minnesota hafði leik-
ið átta leiki heima í röð án þess að tapa
stigi. 5. leikurinn fer fram í Pittsburgh, 6.
í Minnesota og 7. ef þarf í Pittsburgh.
LOTTO
5 en ekki 4
Vinningsröðin í Lottóinu um
síðustu helgi var ekki rétt í íþrótta-
blaðinu í gær, þar sem 4 misrituð-
ust fyrir 5, en rétt röð er: 3, 5, 13,
15, 26 og bónustala 36.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI FELAGSLIÐA
Reuter
Andreas Brehme og Lothar Mattheus hampa sigurlaunum UEFA keppninnar. Mattheus lék vel í gærkvöldi en lítið bar
á Brehme sem fékk kvalastillandi sprautu og lék í sérsmíðuðum skóm vegna tábrots.
Inter meistari þrátt
fyrir tap í Rómaborg
INTER Milan varð í gærkvöldi
Evrópumeistari féiagsliða þrátt
fyrir tap gegn Roma 1:0 í Róm.
Fyrri leik liðanna í Mílanó lauk
með sigri Inter 2:0 og Mílanó-
liðið vann því samanlagt 2:1.
ið Roma sótti stíft allan leikinn
vel hvatt áfram af 71.000
áhorfendum en vörn Inter var fjöl-
menn frá fyrstu mínútu. Roma fékk
þó upplögð marktækifæri, Ruggiero
Rizzitelli var nálægt því að skora
strax á 7. mínútu er skot hans
hafnaði í stöng og Thomas Bert-
hoid fór illa með opið marktæki-
færi um miðjan síðari hálfleikinn.
Eina mark leiksins kom tíu mínút-
um fyrir leikslok þegar Rizzitelli
•skoraði með vinstrifótar skoti úr
þröngri stöðu. Roma lagði allt í
sölurnar á síðustu mínútunum en
allt kom fyrir ekki og leikmenn
Inter fögnuðu sínum fyreta Evrópu-
titli félagsliða.
KORFUBOLTI
NBA-deildin:
Chicago
byrjar vel
TVEIR leikir voru háðir á þriðju-
dagskvöld í úrslitakeppni
NBA-deildarinnar í körfuknatt-
leik. Á austurströndinni sigraði
Chicago Detroit á heimavelli
105:97 á þriðjudagskvöld og á
vesturströndinni sigraði Port-
land Lakers 109:98.
Gunnar
Valgeirsson
skrifarfrá
Bandaríkjunum
Chicago hefur 2:0 forystu í ein-
víginu við Detroit. Liðið hafði
yfirburði lengst af gegn Detroit og
náði um miðbik síðari hálfleiksins
átján stiga forystu.
Michael Jordan, sem
á mánudaginn var
kosinn besti leik-
maðurinn í NBA af
íþróttafréttamönnum var atkvæða-
mestur og skoraði 35 stig fyrir
Chicago. „Örbylgjuofninn,“ Winnie
Johnson skoraði 29 stig fyrir Detro-
it. Chicago leikur mjög vel um þess-
ar mundir og liðið hefur ekki enn
fengið á sig 100 stig í þeim tíu leikj-
um sem liðið hefur leikið í úrslita-
keppninni.
Portland Trailblazers, sem flestir
telja sigurstranglegast jafnaði met-
in 1:1, með sigri á Lakers í hnífjöfn-
um og skemmtilegum leik þar sem
úrslitin réðust á þremur síðustu
mínútunum. Það sem gerði útslagið
voi-u 51. frákast Portland í leiknum
gegn 28 fráköstum Lakers en einn-
ig voru leikmenn Lakers óheppnir
með vítaskot á síðustu mínútunum.
Clyde Drexler varð stigahæstur hjá
Portland með 29 stig.
Worthy á förum
James Worthy, einn besti leik-
maður Lakers er líklega á förum
til Charlotte Hornets í skiptum fyr-
ir fyrsta valrétt úr háskólaboltan-
um. Worthy er þrítugur og hann
hefur leikið með Lakers síðustu níu
ár.