Morgunblaðið - 29.05.1991, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991
Sjávarútvegsráðherra:
1% nýting hvala-
stofna varfærin
HVALVEIÐAR íslendinga voru
til umræðu á ríkisstjórnarfundi í
gærmorgun. Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra fór yfir
stöðu málsins eins og hún er við
upphaf ráðstefnu Alþjóðahval-
veiðiráðsins. „Við höfum lagt þar
áherslu á tillögu okkar um að fá
að taka eitt prósent af hrefnu-
og langreyðarstofninum, sem
mjög varfærnislega tillögu og
byggða á mjög nákvæmum
vísindalegum athugunum og til-
lögum okkar manna,“ sagði sjáv-
arútvegsráðherra í samtali við
Morgunblaðið. Tillagan var ekki
rædd á fundi tækninefndar Al-
þjóðahvalveiðiráðsins í gær og
þykir því vonlítið að hún nái fram
að ganga.
Þorsteinn sagði að algjör sam-
staða væri innan ríkisstjórnarinnar
um þetta mál. Auk þess legði ríkis-
stjórnin áherslu á endurskoðun
stjómunarreglnanna. „Það er okkar
ætlan að meta stöðu okkar upp á
nýtt, að loknum þessum fundi. Ég
hef iagt á það áherslu að við verðum
að geta sannfært sjálf okkur og
aðra um að ráðið ætli að starfa í
samræmi við tilganginn sem kemur
fram í stofnsamþykktunum, þ.e.a.s.
að gera hvort tveggja að vernda
hvalastofnana og ákveða nýtingu,"
sagði sjávarútvegsráðherra.
A
Isafjörður:
Meirihlutasamstarfi
í bæjarstjórn slitið
Sjálfstæðismenn af í-lista leita sam-
starfs við A- og G-lista
FULLTRÚAR í-listans í bæjarstjórn á ísafirði ákváðu í gærkvöldi
að slíta meirihlutasamstarfi við D-listann og var það staðfest með
bréfi til formanns fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna á ísafirði. Þá
var ákveðið um leið að skrifa fulltrúum Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags og óska eftir viðræðum um myndun meirihluta og var
svars óskað um hádegi í dag.
í meirihlutasamningi aðila var
ákveðið að Haraldur L. Haraldsson
bæjarstjóri, sem var oddviti í-lista
sjálfstæðismanna, dragi sig út úr
bæjarstjóm, en fallist á að hann
héldi bæjarstjórastarfinu. Oddviti
D-lista sjálfstæðismanna, Ólafur
Helgi Kjartansson, samdi við bæjar-
stjórann um launakjör, en sá samn-
ipgur hefur ekki fengist staðfestur.
Á mánudag lagði Kolbrún Halldórs-
dóttir, forseti bæjarstjórnar af í-
lista, fram tillögu í bæjarráðinu um
staðfestingu á ráðningarsamningn-
um. Fulltrúi Framsóknarflokksins
og Hans Georg Bæringsson, oddviti
D-lista í fjarveru Ólafs Helga, felldu
tillöguna. í framhaldi af því sendi
I-listi Óla M. Lúðvíkssyni, formanni
fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins,
bréf um slit samstarfs í gærkvöldi.
Mikill ágreiningur hefur verið
meðal þeirra tveggja arma Sjálf-
stæðismanna á Ísafírði sem mynd-
uðu meirihluta í bæjarstjóm ísa-
fjarðar eftir síðustu kosningar. Aðal
ágreiningsmálið virðist hafa verið
ráðning bæjarstjóra, en Haraldur
L. Haraldsson bæjarstjóri leiddi
klofningsframboð Sjálfstæðis-
manna við síðustu bæjarstjómar-
kosningar og náði 2 mönnum í
bæjarstjórn, en D-listinn fékk 3.
Úlfar.
Kjaramálaályktun 36. þings BSRB:
Borgarráð:
Dvalarheimili keypt
fyrir alzheimerssjúka
Morgunblaðið/Bjami
Laugardalslaug undirbúin fyrir sumarið
Sundlaugin í Laugardal hefur verið lokuð í þessari viku og hafa starfsmenn hennar unnið við að þrífa
laugina og laugarhúsið. Að sögn Ómars Einarssonar framkvæmdastjóra íþrótta- og tómstundaráðs, er einn-
ig verið að gera við það sem aflaga hefur farið og undirbúa þannig laugina undir aðsókn sumarsins. Stefnt
er að opnun hennar á laugardag.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
með fyrirvara, kaup á fasteign-
inni Laugarásvegi 66, er nýtt
verði sem dvalarheimili fyrir
tíu alzheimerssjúklinga. Kaup-
verð hússins er 22 milljónir en
auk þess mun borgarsjóður
leggja til 6 milljónir króna
vegna nauðsynlegra breytinga.
Að sögn Sigurðar H. Guð-
mundssonar stjórnarformanns
Skjóls, er rekur umönnunar- og
hjúkrunarheimili við Kleppsveg,
mun rekstur heimilisins verða í
þeirra höndum. „Samþykkt borg-
arráðs fyrir kaupunum er með
þeim fyrirvara að byggingarnefnd
samþykki nauðsynlegar breyting-
ar á húsnæðinu og að fram fari
grenndarkynning, þar sem leitað
er eftir samþykki nágrannanna,"
sagði Sigurður. „Þarna eiga að
geta dvalið tíu sjúklingar sem hafa
allgóða hreyfíferð en eru þó miklir
sjúklingar og geta ekki verið án
eftirlits. Við vorum áður búnir að
fá ádrátt um það hjá heilbirgðis-
ráðuneytinu um að leyfi yrði veitt
fyrir heimilinu ef Reykjavíkurborg
keypti húsnæðið. Ef kaupin ganga
ekki til baka og engin mótmæli
koma frá nágrönnunum þá ætti
heimilið að geta tekið til starfa í
haust.“
Ahersla á að kaupmáttur
taxtalauna verði stóraukinn
Tillaga um 70 þúsund króna lágmarkslaun á mánuði var felld
Sigurður sagði að um tilraun
væri að ræða. Þetta væri fyrsta
dvalarheimil fyrir alzheimerssjúkl-
inga hér á landi en heimili sem
þetta hefur verið rekið í Svíþjóð
með góðum árangri. Heimilið yrði
að reka í samvinnu við sjúkra-
stofnun sambærilegri við Skjól og
verða heimilismenn í daglegri
þjálfun þar.
ÞING Bandalags starfsmanna ríkis og bæja samþykkti um kvöldmat-
arleytið í gær kjaramálaályktun, þar sem lögð er áhersla á „að kaup-
máttur taxtalauna verði stóraukinn og hann rækilega tryggður svo
dagvinna dugi til framfærslu". Þá er lögð áhersla á stórhækkun
lægstu launa, sem sé forgangsverkefni næstu kjarasamninga. Hins
vegar var felld tillaga um að lágmarkslaun verði 70 þúsund krónur.
Samþykktar voru kröfur um að fæðingarorlof verði lengt i 12 mán-
uði á fullum launum og að vinnuvikan verði 36 stundir.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, sagði ekki rétt að binda
hendur aðildarfélaga BSRB með því
að nefna tölur um tiltekna upphæð
lágmarkslauna. Verkefni þingsins
væri að móta kjarastefnu BSRB til
næstu þriggja ára og það væri verk-
efnið á hausti komanda að útfæra
nákvæmari kröfugerð. Hann sagði
að sér fyndist það farið að einkenna
kjaramálaumræðuna að einblínt
væri á haustið. „Núna er maímán-
uður og það er verið að takast á
um tekjuskiptinguna í þjóðfélaginu.
Það er verið að hækka vexti, það
er verið að færa fjármagn til í þjóð-
félaginu. Það hefur komið fram að
skuldir heimilanna á íslandi eru 170
milljarðar og að eitt prósentustig
til eða frá þýða 1.700 milljónir sem
færðar eru úr einum vasa í annan.
Ég legg til að við höldum okkur
við nútíðina og tökum á þessum
málum og ályktum um þau,“ sagði
Ögmundur.
Ennfremur er í kjaramálaálykt-
uninni lögð áhersla á breytta og
jafnari tekjuskiptingu og að launa-
fólki verði tryggð aukin hlutdeild í
þjóðartekjum. Þess er krafist að
starfsmönnum verði ekki mismunað
í launum og að sömu laun verði
greidd fyrir sömu vinnu innan
hverrar stofnunar eða deildar. Hins
vegar var felld með þorra greiddra
atkvæða tillaga um að félagsmönn-
um innan BSRB verði ekki mismun-
að í launum og að sömu laun verði
greidd fyrir samsvarandi vinnu hjá
ríkisstofnunum og bæjarfélögum.
Þá voru samþykktar eftir tals-
verða umræðu kröfur um að fæð-
ingarorlof verði lengt í 12 mánuði
á fullum launum og að vinnuvikan
verði 36 stundir. Auk þess er hvatt
til endurskoðunar á samningsrétt-
arlögum opinberra starfsmanna og
lögð áhersla á að raunverulegt at-
vinnulýðræði verði eflt.
Miklar umræður um EES
Miklar umræður voru á þinginu
í gær um samningaviðræðurnar við
Evrópubandalagið um Evrópska
efnahagssvæðið og kom fram sú
almenna skoðun þingfulltrúa að
mjög varlega ætti að fara í viðræð-
unum. Tillaga frá Ragnari Stefáns-
syni og Ólafi Þ. Ragnarssyni um
að innganga í EES væri fyrsta
skre.fið til inngöngu í EB og erfitt
gæti orðið að snúa til baka var felld
með 9 atkvæða mun, 63 atkvæðum
gegn 54. Hins vegar var tillaga um
að samningarnir um Evrópskt efna-
hagssvæði yrðu bornir undir þjóðar-
atkvæði þegar þeir væru tilbúnir
samþykkt með þorra atkvæða.
í ályktun um Evrópumálin er það
gert að skilyrði fyrir viðræðum um
EES að í engu verði hvikað frá
sjálfsákvörðunarrétti íslendinga, né
yfirráðum þeirra yfir auðlindum
landsins og efnahagslögsögu. Þá
verði í engu skert ýmisleg félagsleg
réttindi sem náðst hafi íslensku
launafólki til handa. Lögð er áhersla
á að félagsmálin hafi ekki skipað
þann sess í umræðunni sem verka-
lýðshreyfingin hafi gert kröfu til.
Lífeyrisréttindi ekki skert
Þingið samþykkti einróma tillög-
ur lífeyrisnefndar, þar sem meðal
annars er lögð áhersla á að lífeyris-
réttindi félaga í BSRB verði í engu
skert. Þá er samþykkt að setja á
fót milliþinganefnd til að vinna að
nauðsynlegum breytingum á lögum
og reglugerðum um lífeyrisjóði
bæjar- og ríkisstarfsmannafélaga.
Ragnhildur Guðmundsdóttir, form-
aður Félags íslenskra símamanna,
sem var framsögumaður um tillög-
ur lífeyrismálanefndar, sagði að
hlutverk nefndarinnar væri að end-
urskoða í heild lífeyrisréttindi opin-
berra starfsmanna.
Samið við flug-
afgreiðslumenn:
Seinagang-
inum hætt
Keflavík.
SAMKOMULAG náðist í
vinnudeildu flugafgreiðslu-
manna í Leifstöð og atvinnu-
rekanda í gær og hafa þeir
nú hætt seinagangi við vinnu,
að sögn Kjartans Kjartans-
sonar trúnaðarmanns.
Kjartan sagði að samningar
væru ekki að fullu frágengnir,
en stefnt væri að ganga frá
samkomulaginu í dag, miðviku-
dag. Ákveðið hefði verið að
slíðra sverðin þar til samið hefði
verið.
-BB