Morgunblaðið - 29.05.1991, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MAI 1991
Kvennalistinn:
Aukin áhersla á
ffrasrótarstarf
kvennahreyfingar
SAMTÖK um kvennalista héldu fund í Skálholti á laugardag og
sunnudag, þar sem farið var yfir stöðu Kvennalistans í kjölfar
kosninga. Á milli 50 og 60 konur sóttu fundinn. Að sögn Ingibjarg-
ar Sólrúnar Gísladóttur alþingiskonu var helsta niðurstaða fundar-
ins sú að beina starfi Kvennalistans úti á landi meira að almennu
grasrótarstarfi en þingstörfum.
Nýstúdentar frá Flensborgarskóla ásamt Kristjáni Bersa Ólafssyni skólameistara.
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði:
42 stúdentar brautskráðir
FLENSBORGARSKÓLANUM í
Hafnarfirði var slitið laugardag-
inn 25. mai og voru 42 stúdentar
brautskráðir frá skólanum og
tveir nemendur með verslunar-
próf.
Bestum námsárangri af stúdent-
unum náðu Birna Guðmundsdóttir
sem brautskráðist af tveimur braut-
um, málabraut og félagsfræðibraut,
og lauk alls 165 einingum og Rann-
veig Guðleifsdóttir af náttúrufræði-
braut sem lauk námi með 146 ein-
ingar. Hjá báðum var yfirgnæfandi
meirihluti einkunna ágætiseinkunn.
Fjölmenni var við skólaslitin, sem
„Þetta er vissulega bráða-
birgðaákvörðun sem framkvæma
þurfti í miklum hasti,“ segir Sigur-
jón. Hann segir næsta skref verða
að finna nýja lækna sem starfað
geta við hlið Jakobs. Jakob sjálfur
hefur ekki viljað tjá sig um þetta
mál við fréttamenn.
Þegar Sigurjón var spurður
hvort að það hafi komið til um-
ræðu að leysa Heilsuhælið alfarið
undan forsjá ríkisins og láta þá
sem hafa hug á að dveljast þar
greiða fullt gjald fyrir dvölina,
sagði hann svo vera. Þessi mögu-
leiki væri alveg inni í myndinni
Leiðrétting:
29 milljón-
ir í Bú-
setaíbúðir
í FRÉTT hér í blaðinu síðastlið-
inn sunnudag, þar sem sagt yar
frá tilboðum í smíði íbúða fyrir
Búseta í Bessastaðahreppi, var
vegna mistaka birt röng tala um
upphæð tilboðs í verkið.
Lægsta tilboðið átti Ásbyrgi hf.
og er upphæð þess um 29,7 milljón-
ir króna, en ekki 19,7 milljónir eins
og misritast hafði. Þetta leiðréttist
hér með um leið og beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
fóru fram í Hafnarborg, og þar á
meðal voru sjö úr hópi þeirra sem
luku gagnfræðaprófi frá skólanum
vorið 1921, eða fyrir réttum sjötíu
árum, og munu jafngamlir gagn-
fræðingar ekki hafa verið viðstadd-
ir skólaslit í skólanum áður.
Sólveig Kristinsdóttir talaði fyrir
hönd 15 ára stúdenta og færði skó-
lanum að gjöf safn geisladiska til
minningar um Berglindi Bjarna-
dóttur söngkonu, sem lauk stúd-
entsprófi frá skólanum árið 1976.
Einnig tók til máls fulltrúi nýstúd-
enta, Bjami K. Kristjánsson og
færði skólanum bókagjöf.
og hefði verið lauslega ræddur í
stjóm hælisins. „Það gæti vel kom-
ið til greina að hafa einhver tiltek-
in rúm á slíkum grunni en það
væri nokkur stór biti að láta það
gilda fyrir allt hælið. Þetta yrði
fólki mjög dýrt fengi það ekki
endurgreitt." Hann segir að út-
lendingum hafi verið seldur dagur-
inn í einbýli á 125 dollara.
Stjórn Læknafélags íslands
fundaði í gær og fjallaði um tillög-
ur landlæknis til heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins um
skilyrði fyrir áframhaldandi
rekstrarleyfí fyrir Heilsuhæli
NLFÍ í Hveragerði. í fréttatilkynn-
ingu sem stjórn LI sendi frá sér
að loknum fundinum segir:
„Stjómin telur tillögur þessar
ófullnægjandi enda leysa þær ekki
þann vanda sem hefur verið í
rekstri stofnunarinnar mörg und-
anfarín ár.
Þá telur stjórn LÍ rétt að benda
á, að með ráðningu yfirlæknis er
eingöngu verið að fullnægja
formsatriðum, en einn læknir í
starfi á hælinu tryggir ekki lækn-
isfræðilega ummönnun 177 sjúkl-
inga.“
INNLENT
Kristján Bersi Ólafsson, skóla-
meistari flutti skólaslitaræðu og
afhenti prófskírteini. Nokkrir nem-
endur fengu einnig bókarviður-
kenningar fyrir góðan námsárangur
í heild eða í einstökum námsgrein-
um og vom þeir bæði úr hópi ný-
stúdenta og úr hópi yngri nemenda.
Kór Flensborgarskólans söng við
athöfnina undir stjóm Margrétar
J. Pálmadóttur, en kórinn er ný-
kominn heim úr söngför til Cuxha-
ven í Þýskalandi, vinabæjar Hafnar-
fjarðar, þar sem hann kom fram
við mjög góðar undirtektir.
„Við vorum að velta fyrir okkur
útkomunni í kosningunum og
stöðu Kvennalistans í þeim kjör-
dæmum sem ekki hafa þingkonu
núna og þá kannski sérstaklega
þar sem við misstum þingkonur.
Niðurstaðan varð sú að þetta ætti
ekki að hafa mikil áhrif. Starfið
yrði bara annars konar. Það myndi
ekki beinast eins mikið að Al-
þingi, heldur almennu grasrótar-
starfí, meira í ætt við kvenna-
hreyfíngu en pólitískan flokk,“
sagði Ingibjörg Sólrún í samtali
við Morgunblaðið.
Ingibjörg Sólrún sagði að
Kvennalistinn vildi vera tvennt:
Annars vegar þjóðmálaafl inni á
Alþingi og í sveitarstjórnum og
hins vegar kvennapólitísk hreyf-
ing, „sem vinnur úti á akrinum.
Það hefur náttúrlega farið óskap-
leg orka í það að fylgja eftir þing-
störfum. Það er kannski sérstak-
lega úti á landi, þar sem eru færri
virkar konur heldur en hér á höf-
uðborgarsvæðinu, sem þetta hefur
orðið þungamiðjan í starfinu. Nú
hyggjast þessar konur beita sér
öðra vísi en þær gerðu, sem er
kannski breyting af hinu góða,“
sagði Ingibjörg Sólrún.
Ingibjörg Sólrún sagði að á
fundinum um helgina hefði einnig
verið fjallað um Evrópubandalagið
og tengslin við Evrópska efna-
hagssvæðið. „Það sem var rætt
um í því sambandi, var hvernig
við gætum komið meira inn í þessa
umræðu, ekki endilega á Alþingi,
heldur í gegnum fræðslu um stöðu
kvenna innan Evrópubandalagsins
og hvaða vangaveltur eru uppi hjá
okkur um áhrif tengingarinnar við
Evrópska efnahagssvæðið á kon-
ur. Það sem við höfum mestar
áhyggjur af, er að þessi umræða
„pólariserist" mjög mikið. Annað
hvort ertu með eða móti. Við vilj-
um stefna að því að koma hér á
fræðslu og umræðu sem eigi sér
stað, áður en þetta „pólariserast“
um of,“ sagði Ingibjörg Sólrún.
Ingibjörg Sólrún var spurð
hvort Kvennalistinn hefði ekki ein-
mitt tekið mjög eindregna afstöðu
á móti, án þess að sú umræða og
fræðsla hefði farið fram sem hún
talaði um: „Við höfum verið mjög
gagnrýnar og gjöldum varhug við
þessu. Hins vegar viljum;við ekki
afgreiða þetta sem óalandi og
ófeijandi fyrirbæri, því það er
auðvitað ýmislegt að gerast hjá
Evrópubandalaginu sem er full
ástæða til þess að fylgjast með
og væri hægt að nýta sér, án þess
að maður beinlínis gangi þar inn.
Evrópubandalagið er ekki alveg
alvont. Það era ýmis lög sem þar
hafa verið sett og ýmsir dómar
sem þar hafa fallið varðandi konur
sem mætti nýta sér, án þess að
það séu einhver rök fyrir því að
ganga inn,“ sagði Ingibjörg Sólr-
úna Gísladóttir.
-----♦-»-«--
Leiklistarsam-
bandið:
Þjóðleikhús-
sqóri ráði
starfsliðinu
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Leiklist-
arsambandi Islands:
„Aðalfundur Leiklistarsambands
íslands, haldinn 24. maí 1991, lýsir
því yfir, að hann telur eðlilegt og
sjálfsagt, að listrænn leiðtogi leik-
húss ráði því hvaða listamenn starfi
við leikhúsið. Leiklistarsambandið
styður eindregið að Þjóðleikhús-
stjóri geri þær breytingar á starfs-
liði leikhússins sem hann telur því
fyrir bestu."
Að Leiklistarsambandi íslands
eiga aðild allar stofnanir og öll sam-
tök sem vinna að leiklistarmálum.
Meðal félaga eru Þjóðleikhúsið,
Leikfélag Reykjavíkur, Félag ís-
lenskra leikara, Ríkisútvarpið-
hljóðvarp, Ríkisútvarpið-sjónvarp,
Félag leikskálda, Félag leikstjóra á
íslandi, Félag íslenskra listdansara,
íslenski dansflokkurinn, Leikfélag
Akureyrar, Bandalag atvinnuhópa,
Leiklistarskóli íslands og Bandalag
íslenskra leikfélaga.
Formaður sambandsins er Sigrún
Valbergsdóttir.
Heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði:
*
Jakob Ulfarsson
ráðinn yfirlæknir
JAKOB Úlfarsson, læknir á Heilsuhæli Náttúrulækningafélags
íslands í Hveragerði, hefur verið ráðinn yfirlæknir hælisins. Fyrr-
um yfirlæknum, Gísla Einarsyni og Snorra Ingimarssyni, var sagt
upp störfum sl. laugardag. Sigurjón Skúlason, skrifstofustjóri
Heilsuhælisins, segir ráðningu Jakobs vera bráðabrigðalausn.
Níu myndlistarkvennanna sem sýna í Jónshúsi
Kaupmannahöfn:
Tólf listakonur sýna
verk sín í Jónshúsi
í JÓNSHÚSI í Kaupmanna-
höfn stendur nú yfir listsýning
tólf íslenskra myndlistar-
kvenna sem allar hafa verið
búsettar um langa hríð í Dan-
mörku. Sýningin var opnuð
þann 20. apríl eða sama dag
og Jónshús opnaði á ný eftir
gagngerðar endurbætur. Is-
lenskar konur í Danmörku
héldu slíka sýningu á kvenna-
ári 1975 í fyrsta sinn.
Á sýningunni eru um þijátíu
verk eftir þessar konur, Gunilla
Möller, tvö olíumálverk, María
S. Kjarval, fjögur olíumálverk,
Nína Björk Elíasson tvær colla-
gemyndir, Guðrún Sigurðardótt-
ir Urup, 2 collage myndir og eina
akryl, Nanna Buckert, ljósmynd-
ir, Björg Ingadóttir, tvær colla-
gemyndir, Guðbjörg Benedikts-
dóttir Malling grafík, Ásta Wej-
rsöe, tvær vatnslitamyndir, Elín
P. Bjamason, þijú oliuverk, Þó-
rann Guðmundsdóttir tvær
vatnslitamyndir og Pía Rakel
Sverrisdóttir, glerverk.
Listsýningin stendur út ma-
ímánuð. Verkin eru öll til sölu.