Morgunblaðið - 29.05.1991, Page 40
FRAM TíÐARINNAR
HEITIR:
IBM AIX
- svo vel
sétryggt -jsO; *
SJOVÁOoALMENNAR
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1991
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Landleiðir
hætta ferðum
til Hafnar-
-*■ fjarðar 1. júlí
LANDLEIÐIR hf. hafa tilkynnt
samgönguráðuneytinu að fyrir-
tækið hyggist hætta rekstri á sér-
leyfisferðum milli Hafnarfjarðar
og Reykjavíkur, þann 1. júlí næst-
komandi, þrátt fyrir að sérleyfi
Landlciða hf. renni ekki út fyrr
en á næsta ári. Nýtt fyrirtæki
Almenningsvagnar bs., stefnir að
rekstri vagna á þessari leið þann
1. mars 1992. Bæjarráð Hafnar-
fjarðar hefur óskað eftir svari
samgönguráðuneytisins um
hvernig samgöngur verði tryggð-
ar frá 1. júli 1991 til 1. mars 1992.
Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar
» var samþykkt samhljóða bókun, þar
sem fram kemur að með ákvörðun
sinni hafi Landleiðir hf. ákveðið ein-
hliða að uppfylla ekki skyldur sínar
við Hafnfirðinga, sem það undir-
gekkst þegar því var veitt serleyfi
sem tryggði einkarétt á fólksflutn-
ingum á þessari leið. „Rétt er að
minna á að bæjarráð Hafnarfjarðar
hafði aðrar hugmyndir og lagðist
gegn veitingu sérleyfis á sínum
tíma.“
Lést í um-
ferðarslysi í
Lúxemborg
RÚMLEGA tvítug íslensk
stúlka beið bana í umferðar-
slysi í Lúxemborg í gærmorg-
un. Stúlkan varð fyrir tengi-
vagni aðvífandi vörubíls, þeg-
ar hún var að sópa gangstétt
fyrir utan gistiheimili sem
hún vann á.
Talið er að stúlkan hafi stað-
ið á gangstéttarbrúninni en
engu að síður hafi tengivagninn
slegist í hana þegar vörubílnum
var ekið hjá. Hún lést samstund-
is.
Ekki er unnt að greina frá
nafni stúlkunnar, sem var bú-
sett í Lúxemborg, að svo stöddu.
Picasso vinnur að kvikmynd um Serra
Morgunblaðið/Bjami
Claude Picasso, sonur listmálarans Pablo Picasso, er staddur hér á landi
ásamt Richard Serra myndhöggvara og er erindið að kvikmynda Serra
við listaverk það, sem hann gaf þjóðinni fyrir tveimur árum og sett var upp
í Viðey. Að sögn Gunnars Kvaran listráðunautar Kjarvalsstaða óskaði
Serra sérstaklega eftir því að listaverk hans í Viðey yrði haft með í kvik-
mynd um líf hans og list yfir tveggja ára tímabil, sem þeir Picasso og
Thierry Spitzer standa að. Á myndinni eru Picasso og Serra við tökur í
Viðey.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra:
Loðnuveiðar hefjist ekki
fyrr en í nóvemberlok
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra greindi frá því á
ríkisstjórnarfundi í gærmorgun
að fiskifræðingar mæli með því
að loðnuveiðar verði ekki leyfð-
ar á ný fyrr en að afloknum
rannsóknaíeiðangri í október
og nóvember i haust. Þorsteinn
sagðist í samtali við Morgun-
blaðið eiga von á því að taka
ákvörðun í þessari viku, í sam-
ræmi við tillögur fiskifræðing-
anna. „Ef engin loðnuveiði yrði
leyfð í haust, þá yrði hér um
skerðingu á útflutningstekjum
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra:
Tilbúnir í tvíhliða viðræður
jafnhliða EES-viðræðum
JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að íslendingar séu
augljóslega tilbúnir til þess að taka upp tvíhliða viðræður við Evrópu-
bandalagið (EB), sem óskað var eftir árið 1989, „en þær viðræður
koma ekki í staðinn fyrir þær viðræður sem við eigum við EB um
Evrópska efnahagssvæðið," sagði utanríkisráðherra í samtali við Morg-
unblaðið í gærkveldi þegar Morgunblaðið spurði liann hvert yrði svar
íslenskra stjórnvalda við þeirri yfirlýsingu Ilorst Krenzler aðalsamn-
ingamanns Evrópubandalagsins í EES-viðræðunum að EB væri reiðu-
búið að taka upp tvíhliða viðræður við Islendinga.
► Horst Krenzler sagði á blaða-
mannafundi að loknum viðræðum
samningamanna EB og EFTA í
Brussel í gær að hann teldi öruggt
að undirritaður yrði samningur um
EES. Fyrst yrðu EFTA-ríkin hins
vegar að gefa eftir hvað varðar
umferð flutningabíla og í sjávanít-
vegsmálum. EB legði ríka áherslu á
að EFTA-ríkin veittu EB-ríkjum ein-
hver veiðiréttindi. Væri bandalagið
reiðubúið að hefja tvíhliða viðræður
við Islendinga og Norðmenn um þessi
mál, þ.e. þau EFTA-ríki sem neituðu
að gefa eftir.
„Það sem haft er eftir Krenzler
er ekki að Noregur og ísland hafi
tekið sjávarútveginn út af EES-
samningaborðinu — alls ekki,“ sagði
Jón Baldvin, „heldur það að EB er
tilbúið til þess að ræða tvíhliða
ramtnasamning við ísland, jafnhliða
hinum viðræðunum".
Jón Baldvin sagði að tilboð Norð-
manna til EB um tvíhliða viðræður
mætti ekki misskilja. Það byggðist á
þeirri forsendu að Norðmenn hefðu
þegar frá árinu 1985 tvíhliða samn-
ing við Evrópubandalagið um fisk-
veiðimálefni. Þar á meðal um gagn-
kvæmar fiskveiðiheimildir.
„Að því er varðar okkur Islend-
inga, þá höfum við áréttað við EB
að okkar tilboð frá tíð fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra frá 1987 um
að vera tilbúnir til viðræðna um
rammasamning um fiskveiðimálefni
á grundvelli tvíhliða samskipta
standi," sagði Jón Baldvin, „endavar
um það samið þegar árið 1972 með
bókun sex að svo skyldi verða. Hing-
að til hefur EB ekki verið reiðubúið
til þess. Það sem Krenzler á nú við,
þegar hann segist tilbúinn til tvíhliða
viðræðna, eru viðræður um ramma-
samning á slíkum grundvelli. Það
kemur hins vegar ekki í staðinn fyr-
ir þá samninga sem nú fara fram
innan EES um sjávarútvegsmálefni."
Fundir með framkvæmdastjórn
Evrópubandalagsins og annars vegar
samningamönnum íslands og hins
vegar samningamönnum Noregs eru
fyrirhugaðir í næstu viku. Hannes
Hafstein, aðalsamningamaður Is-
lands í samningaviðræðunum um
Evrópskt efnahagssvæði, segir að-
spurður um hvað rætt verði á þessum
fundi, að í raun sé ekkert um að
semja. EB verði að falla frá kröfum
sínum um veiðiheimildir fyrir aðgang
að mörkuðum.
að ræða upp á einn milljarð
króna,“ sagði Þorsteinn.
„Þetta eru ráðleggingar fiski-
fræðinganna að veiðar hefjist ekki
fyrr en eftir haustleiðangur. Um
þetta hefur verið haft samráð við
fulltrúa útgerðarmanna og sjó-
manna og eins hefur bæði Norð-
mönnum og Grænlendingum verið
gerð grein fyrir þessu,“ sagði sjáv-
arútvegsráðherra. Þorsteinn sagði
að eitt ár væri eftir af samningnum
um loðnuveiðar við Norðmenn og
Grænlendinga og kvaðst hann gera
ráð fyrir því að þetta yrði ákveðið
athugasemdalaust af þeirra hálfu.
„Þó er verið að athuga málið nánar
hvað viðvíkur Grænlendingum, þar
sem þeir höfðu selt Evrópubanda-
laginu sinn hluta kvótans og það
er mikilvægt að niðurstaða í þeirri
athugun liggi fyrir áður en endan-
leg ákvörðun verður tekin,“ sagði
Þorsteinn.
Þegar hafa verið veiddar 200
þúsund lestir af loðnu á þessu ári,
en þjóðhagsáætlun þessa árs gerir
ráð fyrir að 350 þúsund lestir verði
veiddar á árinu. „Ef engin loðnu-
veiði yrði leyfð í haust, þá yrði hér
um skerðingu á útflutningstekjum
að ræða upp á einn milljarð króna,
en það er ekki ljóst að loðnuveiði
verði bönnuð í haust. Það verður
tekin ákvörðun á grundvelli þess
sem kemur út úr haustleiðangrin-
um,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra.