Morgunblaðið - 31.05.1991, Blaðsíða 26
iMmm
i:iiái±xxátdÉÉ&íáM3 iái if2Aéiá^.iÍ!s:ff.r*ájíJtJaíJt’aÉ.i»á'it*.5c-ri 'f.íf f.Æ r** *i.rr*>rf'rYs
_
Pltr0muMal>il>
Útgefandi Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
ÁgústlngiJónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, simi 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Stj ómarandstaðan
rökstyður viðbrögð
gegn þenslu og ríkis-
sjóðshalla
Menntaskólinn í Reykjavík:
Stúdentar frá
skólanum nálg-
ast tíu þúsund
MENNTASKÓLANUM í Reykjavík var slitið í 145. sinn við hátíðlega
athöfn í Háskólabiói í gær. Að þessu sinni voru 147 nýstúdentar út-
skrifaðir frá skólanum og eru stúdentar frá MR frá upphafi nú orðn-
ir 9.289 talsins.
Stærsti vandinn, sem blasir
við nýrri ríkisstjórn, er vöxt-
ur ríkisútgjalda næstliðin ár,
langt umfram efnahagslegar
forsendur í þjóðarbúskapnum.
Að óbreyttu stefndi halli ríkis-
sjóðs 1991 í rúma níu milljarða
króna, samkvæmt nýju mati
fjármálaráðuneytisins, lánsijár-
hallinn í rúma 13 milljarða og
heildarlánsfjárþörf opinberra að-
ila, m.a. ríkissjóðs og húsnæðis-
lánasjóða, í þijátíu og þijá til
þijátíu og fjóra milljarða króna.
Það bætti ekki úr skák að ýmis
augljós þenslumerki voru komin
í ljós í efnahagslífinu þegar ríkis-
stjórn Steingríms Hermannsson-
ar yfírgaf Stjórnarráðið fyrir
fáeinum vikum.
Steingrímur Hermannsson,
fyrrverandi forsætisráðherra, ýj-
ar að þessum erfíðu málum í
viðtali við Þjóðviljann 25. maí
sl. Þar segir hann orðrétt:
„Það fór ekkert á milli mála
að þenslumerki voru að koma í
ljós [þegar stjórnin fór frá]. Ég
sagði t.d. iðulega í minni kosn-
ingabaráttu: Það er alveg ljóst
að hvaða ríkisstjórn sem hefði
tekið við hefði orðið að taka á
þenslunni ... Ég tel jafnframt að
ríkisfjármálin hafí verið veikasta
hlið fyrrverandi ríkisstjómar
þegar þenslumerkin voru að
byija að sjást. Ég get tekið und-
ir það að margar samþykktir í
lánsfjárlögum rétt áður en Al-
þingi lauk hafí ekki verið skyn-
samlegar ...“
Már Guðmundsson efnahags-
ráðgjafí Ólafs Ragnars
Grímssonar, fjármálaráðherra í
fyrrverandi ríkisstjórn, tekur í
sama streng í grein hér í Morg-
unblaðinu í gær. Þar segir hann
orðrétt:
„í fyrri grein minni fullyrti
ég að hvaða ríkisstjórn sem hefði
tekið við eftir kosningar hefði
gripið til aðgerða til að draga
úr halla og lánsfjáreftirspum
ríkissjóðs og örva innlenda láns-
fjáröflun hans. Það er hins vegar
ljóst að sú spenna, sem verið
hefur á lánsfjármarkaðinum að
undanfömu, á mun víðtækari
rætur en í halla ríkissjóðs og þá
sérstaklega í mikilli eftirspurn
eftir fjármagni af hálfu húsnæð-
iskerfisins. Aðgerðir til að draga
úr þessari spennu hljóta því að
ná til fleiri þátta en tekjuhalla
ríkissjóðs.“
Fyrrverandi forsætisráðherra
og efnahagsráðgjafi fyrverandi
fjármálaráðherra tala mjög á
sama veg um þann mikla vanda,
sem ríkissjóðshallinn undanfarin
ár hefur skapað, með og ásamt
lánsfjárhungri ýmissa opinberra
sjóða, einkum byggingarsjóð-
anna. Þeir segja ekki berum orð-
um að hallinn á ríkisbúskapnum
og lánsíjárhungur hins opinbera
séu meginorsakir hárra vaxta í
landinu, en glöggur lesandi get-
ur lesið þann vemleika á milli
lína í máli þeirra. Forsætisráð-
herra viðurkennir og að „ríkis-
fjármálin hafí verið veikasta hlið
fyrrverandi ríkisstjórnar, þegar
þenslumerkin vom að byija að
sjást“ og að samþykktir lánsíjár-
laga ríkisstjórnar hans hafí „ekki
verið skynsamlegar“.
Forsætisráðherrann fyrrver-
andi og efnahagsráðgafí fyrrver-
andi fjármálaráðherra haga orð-
um sínum nánast eins um nauð-
syn viðbragða, það er „að hvaða
ríkisstjóm sem hefði tekið við
eftir kosningar hefði gripið til
aðgerða til að draga úr halla og
lánsfjáreftirspurn ríkissjóðs og
örva innlenda lánsíjáröflun
hans“, eins og efnahagsráðgjaf-
inn komst að orði. Það er ein-
mitt þetta þrennt, að draga úr
hrikalegum ríkissjóðshalla og
lánsfjárhungri hins opinbera og
sporna gegn augljósri þenslu,
sem fyrstu aðgerðir nýrrar ríkis-
stjómar hafa að inntaki og tak-
marki. Þetta er gert með niður-
skurði á áformuðum lántökum,
frestun og niðurskurði fram-
kvæmda, lægri Jjárveitingum til
ýmissa sjóða og rekstrarsviða
og vaxtahækkun, sem stjórnvöld
telja eins konar „arfleifð“ fyrri
ríkisstjómar, viðurkenningu á
því sem orðið var.
í ljósi þess að fyrstu viðbrögð
ríkisstjórnarinnar fela í raun í
sér aðgerðir, sem „hvaða ríkis-
stjóm sem hefði tekið við eftir
kosningar hefði gripið til, til að
draga úr halla og lánsfjáreftir-
spurn ríkissjóðs“, er ekki út í
hött að spyija: Er ekki sjálfgefið
og tímabært að stjómarandstað-
an axli ábyrgð með stuðningi við
þessar fyrstu aðgerðir nýrrar
ríkisstjórnar — og framhaldsað-
gerðir ef með þarf — til að
tryggja jöfnuð í ríkisbúskapnum,
stöðugleika í efnahagslífínu og
betra afkomu- og rekstrarum-
hverfí heimilanna og fyrirtækj-
anna í samfélaginu?
Kristín Friðgeirsdóttir, af eðlis-
fræðibraut, duxaði á stúdentsprófi,
hlaut 9,39 í einkunn. Edda Kristj-
ánsdóttir varð semidux með 9,15 í
meðaleinkunn, en hún var í nýmála-
deild. Hæstu einkunn í skólanum
var 9,67 og hlaut hana stúlka á
fyrsta ári.
í ræðu Guðna Guðmundssonar,
rektors, kom fram að stúdentar frá
Menntaskólanum í Reykjavík frá
árinu 1847 væru orðnir 9.289, og
þar af sagðist Guðni hafa útskrifað
3.781. Hann sagði að skólar væni
jafnan dæmdir eftir því hveijir
sæktu menntun sína í þá og sagði
að margar bestu dætur og synir
landsins hefðu lokið prófi frá MR.
Hann hvatti nýstúdenta til að gera
áfram sanngjarnar kröfur þannig
að það yrði áfram visst aðalsmerki
að vera stúdent frá MR.
Við upphafs skólaársins voru 859
nemendur innritaðir en þeim fækk-
aði nokkuð eins og venja er og alls
voru 821 skráðir í skólann í vor,
hafði fækkað um 38 frá haustinu.
Kennt var í 39 bekkjardeildum og
voru kennarar 68 þar af 37 fast-
ráðnir.
Rektor vék að þeim breytingum
sem hefðu orðið frá því fyrst var
útskrifað úr MR og nefndi sem
dæmi að þá hefði verið inntökupróf
í latínu en nú útskrifuðust aðeins
30 nemendur sem eitthvað hefðu
lært í latínu.
Hann rakti síðan inntökuskilyrði
í framhaldsskóla hér á landi og
þróunina síðustu ár frá því lands-
prófið var og hét. Eftir að það var
aflagt komu samræmdu prófin og
þeim hefur sífellt fækkað þannig
að nú er svo komið að aðeins eru
samræmt samræmd próf í tveimur
greinum. Guðni sagði að sér sýnd-
ist sem búið væri að loka hringnum
og nú yrði nemendur að taka inn-
tökupróf í latínu.
Næst gerði rektor húsnæðismál
skólans að umtalsefni og sagði að
miklar breytingar hefðu orðið til
hins betra á árinu með tilkomu
KFUM-hússins. Þrengslin eru engu
að síður mikil og sagði Guðni að
nú vantaði aðeins tvær lóðir og hús
til að stjómvöld stæðu við eldgam-
allt loforð.
Félagslíf í skólanum var með
svipuðu sniði og undanfarin ár. í
keppnum við aðra framhaldsskóla
hefði frammistaðan verið slök, ann-
að árið í röð. Guðni nefndi þó sér-
staklega góða frammistöðu MR-
inga í eðlisfræðikeppninni þar sem
þeir áttu 4 af 5 efstu mönnum.
Fjöldamargar viðurkenningar
voru veittar, bæði fyrir námsárang-
ur og eins fyrir embættisstörf við
skólann. Elstu verðlaunin eru úr
Legatssjóði dr. Jóns Þorkelssonar
rektors og eru veitt fyrir hæstu
einkunn á stúdentsprófí. Kristín
Friðgeirsdóttir hlaut þau ásamt sex
öðmm verðlaunum fyrir frábæran
árangur í skólanum.
Edda Kristjánsdóttir, semidux,
hlaut fimm viðurkenningar fyrir
námsárangur og m.a. frá Önnu
Bjarnadóttur, sem útskrifaðist 1916
og á því 75 ára stúdentsafmæli í
vor. Una Strand. úr máladeild, sem
var með 9,08 í aðaleinkunn, hlaut
sex viðurkenningar fyrir námsár-
angur auk þess sem hún var annar
hringjara skólans og hlaut viður-
kenningu fyrir það.
Guðni gat þess einnig að allir
nýstúdentar hefðu fengið eftir-
prentun af vatnslitamyndinni „Hver
er hún“ eftir Sigrúnu Gísladóttur
en hún gefur þær í minningu föður-
systur sinnar og nöfnu, Mössu í
Asi eins og hún var alltaf kölluð.
Hún lauk aðeins fyrsta bekk skól-
ans því hún lést af slysförum aðeins
17 ára gömul, en bekkjarsystkini
hennar fagna nú 50 ára stúdentsaf-
mæli.
Fulltrúar eldri stúdenta voru fjöl-
mennir í Háskólabíói og færðu þeir
árgangar sem áttu merkisafmæli
sem stúdentar, skólanum peninga-
gjafír, sem hugsaðir eru til eflingar
ýmsum sjóðum skólans. Stærsta
gjöfin var frá 25 ára stúdentum,
400.000 krónur sem renna eiga í
framkvæmdasjóð.
Stúdentspróf í MR eru að baki og 1
enta sem útskrifaðir voru frá skóla
Hef mjÖ£
að því að
- segir Kristín Friðg
DUXINN í Menntaskólanum í
Reykjavík segist alls ekki halda
til í herbergi sínu og læra allan
veturinn. Hún lærir helst ekki
um helgar en notar þær frekar
til að fara á skíði og skemmta
sér.
„Ég held að maður verði að
hafa gaman að því að læra til
þess að fá göðar einkunnir, og ég
hef mjög gaman af því að læra,“
sagði Kristín Friðgeirsdóttir úr
Reykjavik sem duxaði á stúdents-
Morgunblaðið/Július
Þær stóðu sig vel á stúdentsprófi. Edda Kristjánsdóttir, semidux, er lengst til vinstri. Duxinn Kristín
Friðgeirsdóttir er í miðið og Una Strand lengst til hægri.