Morgunblaðið - 31.05.1991, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FQSTUDAGUR 31. MAÍ 1991
"/■
ISLANDSMOTIÐ l.DEILD
• •
SANDGRASVOLLURINN
I KOPAVOGI
Breiðablik - KA
kvöld kl. 20
i
BYKO
Mætum öll!
Aðkoma fyrir áhorfendur að sandgrasvellinum er sú
sama og að Kópavogsvelli. Bifreiðastæðí eru við Fífuhvamms-
veginn og miðasalan er við norðurhlið Kópavogsvallar.
Brunatæknifélagið
í alþjóðleg samtök
FYRIR skömmu var haldinn aðal-
fundur Brunatæknifélags íslands
í Viðeyjarstofu. Félagið hefur þeg-
ar starfað i eitt ár og að því ári
loknu var það viðurkennt form-
lega sem sérstök íslandsdeild í
Institution of Fire Engineers
(I.F.E.). Við þetta tækifæri kom
forseti I.F.E., John Pearson, til
Islands. Hann ávarpaði fundar-
gesti, rakti sögu og tilgang félags-
ins, færði íslandsdeildinni áritað
skjal og skjaldarmerki I.F.E.
Einnig voru viðstaddir formaður
og fyrrverandi formaður skosku
deildarinnar, Alan Sheach og Jim
Sinclair, en segja má að tengslin
við skosku deildina hafi orðið hvat-
inn að stofnun félagsins.
Institution of Fire Engineers var
stofnað árið 1918 af hópi slökkvi-
liðsstjóra, en hefur á síðari árum
breyst í þá veru að sameina í einu
félagi þá sem starfa á einn eða
annan hátt að brunamálum. Aðal-
stöðvar félagsins eru í Leicester í
Englandi. Deildir félagsins eru sex-
tíu í 32 löndum og meðlimir eru
rúmlega 10.000.
Markmið félagsins er að stuðla
að aukinni þekkingu á brunamálum
og bættum tengslum meðal félags-
manna sinna. I.F.E. stendur ásamt
öðrum samtökum að árlegum ráð-
stefnum samtímis sýningum og
verður sú næsta, þ.e. FIRE 91,
haldin í Torquay í Suður-Englandi
dagana 7.-10. október næstkom-
andi. Einnig gefur I.F.E. út tímarit
ársfjórðungslega sem allir félags-
menn fá.
Námskeið í
listþjálfun
UNNUR Óttarsdóttir heldur
námskeið fyrir börn, unglinga
og fullorðna í listþjálfun í sumar.
Unnur er kennari og listþjálfi
(arttherapisti) að mennt. Hún hefur
starfað við kennslu og listþjálfun
með börnum, unglingum og full-
orðnum. Á sumarnámskeiðum er
lögð áhersla á að hver einstaklingur
komist í snertingu við sköpunargáfu
sína og njóti þess að skapa.
Ymis listform eru notuð: teikn-
ingar, leir, málun, gips o.fl. Þátttak-
endur þurfa ekki að hafa „tækni-
lega færni“ í listum.
Hvert námskeið stendur í þijár
vikur. Upplýsingar og innritun hjá
Unni Óttarsdóttur, listþjálfa.
(Fréttatilkynning)
Félagsmenn í íslandsdeild
I.F.E./Brunatæknifélagi íslands
eru nú um 40 talsins og koma úr
flestum geirum brunamála.
Stjórn félagsins skipa nú: Inga
Hersteinsdóttir, VST, formaður,
Ásmundur Jóhannsson, Eldvarnar-
eftirliti Reykjavíkurborgar, Birgir
Ólafsson, Slökkviliði Reykjavíkur-
flugvallar, Guðmundur Gunnarsson,
Brunamálastofnun ríkisins, og Sva-
var Tryggvason, Slökkviliði Reykja-
víkur.
Þjóðarflokk-
ur og Flokkur
mannsíns ekki
sameinaðir
Á sameiginlegum fundi fulltrúa
Þ-listans, lista Þjóðarflokks-
Flokks mannsins, em haldinn var
25. maí, var ákveðið að ekki væri
grundvöllur fyrir sameiningu
flokkanna.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá Þjóðarflokknum. Þar segir
enn fremur, að flokkarnir muni
starfa áfram, hvor að sínum stefnu-
málum, en hafa samvinnu um þau
málk sem þurfa þykir hveiju sinni.
Þá er í tilkynningu Þjóðarflokksins
skýrt frá_ ályktun frambjóðenda
flokksins. í ályktuninni er ríkisstjóm
Davíðs Oddssonar vöruð við því „að
halda til streitu áformum um upp-
byggingu stóriðju á Keilisnesi. Stór-
felld skuldaaukning vegna virkjana-
framkvæmda, þensla í efnahagslífinu
og aukin verðbólga þjónar ekki hags-
munum fólksinsþí landinu," segir í
ályktuninni.
Söngskglinn í Reykjavik
Nemendaópera
Söngskólans í Reykjavík
Rita/Donizetti
Ráðskonuríki/
Pergolesi
Sýningar í íslensku óperunni
föstudag og laugardag kl. 20.
Aðeins þessar tvær sýningar
Miðasala í Söngskólanum frá kl. 12.00-17.00,
sími 27366 og í óperunni frá kl. 17, sími 11475
Laugav«gi 45 - s. 21255
í kvöld:
LOÐIN ROTTA
Laugardagskvöld:
GÓOKUNNINGJAR LÖGREGLUNNAR
targmtlftfifrifr
Meira en þú geturímyndad þér!
Fró svörtartu
frumjkógum
fifríku komu
Cluy Douglas &
kakkolokkarnlr
og donsa flFRO-
IflZZ regnduns.
16. ÁRfl flLDURSTflKMflRK
MIDfiVERÐ KR. 600.-
OPID 23“ Tll 03.”
Hépbrt
KLUBBURINN
g BORCARTUN IJ p RIVKJAVtK 0 SIMI 634S1S g