Morgunblaðið - 31.05.1991, Síða 4

Morgunblaðið - 31.05.1991, Síða 4
4 D MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1991 Tal & MstlptavHli Sjúklingur með heilabilun getur átt við tvenns konar boðskipta- vanda að stríða: hann getur ekki gert sig skiljanlegan, eða að hann skilur ekki það sem sagt er við hann. Vandinn aðtjá sig Það er undir séreinkennum sjúk- dómsins komið hversu alvarlegur þessi vandi er. Margir eiga stundum í erfiðleik- um með að finna tiltekin orð. Þeir eiga bágt með að muna hvað kunn- uglegir hlutir eða persónur heita. Svipuð orð eru sett í staðinn, „veg- ur“ getur orðið „vogur". Stundum eru notuð orð með svipaða merk- ingu, talað er um „hring" í staðinn fyrir „giftingu". Sjúklingurinn lýsir oft orðinu sem hann man ekki, talar um „það sem snýst“ í staðinn fyrir „hring“. Sumir eiga erfitt með að orða hugsanir sínar. Hannes reyndi að segja að hann hefði aldrei áður farið í taugarann- sókn. Hann sagði: „Ég hefeiginlega aldrei. . . hef ekki verið ... aiveg nýtt. . . Stundum lýsir vandinn sér í því að sjúklingurinn getur ekki tjáð alla hugsunina, aðeins hluta af henni. Jón langaði til að segja að hann væri hræddur um að koma of seint i rútuna heim. Honum tókst bara að segja: „Rútan, heim." Það kemur fyrir að sjúklingurinn talar heilmikið og af viti að því er viröist. En svo kemur í Ijós að hann er bara að raða saman kupnugleg- um setningum án þess að hann meini nokkuð með því. Þegar boðskiptavandi verður of mikill getur það valdið ofurvið- brögðum. Osjaldan tekst sjúklingnum að leyna vandanum. Ef læknirinn bendir á úrið sitt og spyr hvað þetta sé, svarar sjúklingurinn ef til vill. „Auðvitað veit ég það. Af hverju ertu að spyrja að því? Hvað ertu að angra mig með svona spurning- um?“ Sé talvandinn á háu stigi man sjúklingurinn aðeins örfá lykilorð — svo sem „nei“ — og notar þau við öll tækifæri. Loks hættir hann að geta talað, eftir eru aðeins einsat- kvæðisorð eða óskiljanleg hljóð. Þetta er oft þungbært fyrir aðstand- endur. Það útilokar skoðanaskipti við þá sem þeim þykir vænt um. Fólk óttast að hinn heilabilaði verði veikur eða finni til án þess að geta sagt frá því. Hjálpin sem hægt er að veita fer eftir því hvers eðlis vandinn er. Sjúklingar sem eiga við talerfiðleika að stríða eftir heilablóðfall þurfa að fá aðstoð talmeinafræðings sem fyrst. Ef sjúklingur á í erfiðleikum með að finna rétta orðið getur oft verið betra að fá hjálp frá öðrum en reyna árangurslaust að finna orðið sjálfur. Ef rangt orð er notað má reyna að ýja að rétta orðinu með varúð. Ef það leiðir til ofurviðbragða er betra að láta það eiga sig. Oft er hægt að giska á hvað sjúkl- ingnum liggur á hjarta. Þið skulið spyrja hvort þið hafið giskað á það rétta. Ykkur getur skjátlast. Rangar ályktanir geta aukið vanda sjúkl- ingsins. Þegar sjúklingur nær ekki lengur sambandi við umheiminn, verður að athuga reglulega hvort hann sé þjáður. Gætið þess að fötin þrengi ekki að honum, að honum sé nógu heitt, að hann sé ekki með sár eða útbrot og sé hvorki svangur né þreyttur. Vandinn að skilja hvað sagt er Sjúklingur með skerta heilastarf- semi á oft erfitt með að skilja hvað aðrir segja við hann. Þetta túlkar fjölskyldan stundum sem skort á samstarfsvilja. Fólk með heilabilun gleymir líka fljótt því sem hefur verið sagt við það. Þegar eitthvað er útskýrt ná- kvæmlega, er það oft búið að gleyma upphafinu áður en kemur að lokunum. Hæfileikarnir til að lesa og skilja það sem lesið er geta líka skerst. Margir með heilabilun geta lesið minnismiða en fara ekki eftir fyrir- mælunum af því að þeir skilja ekki það sem skrifað er. Éf þið skrifið: „Maturinn er í rauðu skálinni í kæliskápnum," get- ur meira en verið að sjúklingurinn lesi það sem stendur á miðanum en snerti ekki matinn. Þetta getur verið gremjulegt þangað til þið ge- rið ykkur Ijóst að þótt sjúklingurinn geti lesið er ekki endilega þar með sagt að hann skilji það sem hann les. Til eru margar leiðir til að bæta boðskiptin við sjúkling með heilabil- un. 1. Gangið úr skugga um að sjúkling- urinn heyri það sem sagt er. Flest gamalt fólk er með skerta heyrn. 2. Reynið að tala í lágri tóntegund, há og skerandi rödd getur valdið óróleika. 3. Forðist truflandi hreyfingar eða hávaða. Það gerir illt verra fyrir hinn heyrnardaufa að heyra margt í senn. Þá er erfitt að greina hljóðin sundur. 4. Notið stutt orð og einfaldar setn- ingar. 5. Spyrjið bara um eitt í einu. Ef þið endurtakið spurninguna, no- tið þá nákvæmlega sömu orðin og í fyrra sinnið. Forðist til að mynda að segja: „Viltu epli eða appelsínu í ábæti eða viltu kannski grjónagraut?" 6. Gefið ein fyrirmæli í einu — ekki mörg. Það er erfitt fyrir sjúkling með heilabilun að muna það sem sagt er og átta sig á mörgum fyrirmælum í senn. 7. Talið hægt og skýrt, bíðið eftir svari áður en þið haldið áfram. Það getur tekið sinn tíma áður en sjúklingurinn bregst við. Einnig er hægt að bæta sam- bandið við sjúkling án þess að nota orð. Þetta gerum við daglega, við tjáum okkur án orða. Margir sjúkl- ingar með heilabilun skilja sem best slík skilaboð þótt þeir geti ekki tjáð sig með orðum. En orðlaus boðskipti geta líka valdið ringlun, kvíða æsingi hjá fólki með heilabilun. Gerið ykkur grein fyrir hvaða boð þið sendið frá ykkur með líkamanum. 1. Verið róleg, æðrulaus og reynið að vekja traust. 2. Brosið, haldið í höndina á sjúkl- ingnum, leggið arminn um herð- arnar á honum. 3. Horfið beint á hann. Aðgætið hvort hann fylgist með. Ef ykkur finnst hann ekki með á nótunum, reynið þá aftur eftir nokkrar mín- útur. 4. Notiþ önnur merki en orð; bend- ið, snertið og handfjatlið viðkom- andi hlut. Sýnið athöfn með höndunum, til að mynda tann- burstun. Oft nægir slíkt til að sjúklingurinn skilur hvað verið er að fara. Jafnvel þótt sjúklingur sé alvar- lega ringlaður og geti ekki tjáð sig, hefur hann engu að síður þörf fyrir ást og umhyggju. Líkamleg snerting sem felst í handtaki eða faðmlagi gefur til kynna ást og umhyggju- semi. ■ Ahrif á aðstandendur Sekt Algengt er að fólk í fjölskyldunni finni til sektar: sektarkenndar vegna fyrri framkomu við sjúkling- inn, sektarkenndar yfir því að. skammast sín fyrir hann, sektar- kenndar yfir að hafa látið reiðina hlaupa með sig í gönur, sektar- kenndar vegna þess að manni finnst hjúkrunin hræðileg byrði eða sektarkenndar vegna þess að maður vildi helst að sjúklingurinn færi á stofnun. Kannski fyllist þið sektarkennd ef þið farið stundarkorn að heim- an. Það er algengast þegar annar makinn þarf að annast hinn. Óljós og nagandi sektarkennd er alvanaleg. Maður veit ekki með vissu af hverju tilfinningin stafar. Sumum finnst sjúklingurinn vekja sektarkennd hjá öðrum. „Lofaðu því að senda mig aldrei á stofn- un.“ „Þú myndir ekki gera mér þetta ef þér þætti vænt um mig.“ Setningar af þessu tagi geta sem best valdið sektarkennd. Margir spyrja sjálfa sig hvort eitthvað sem þeir hafi gert eða vanrækt hafi valdið sjúkdómnum. Sumir finna til ábyrgðar þegar sjúk- dómurinn ágerist, þeir hefðu kannski getað komið í veg fyrir það með einhverjum hætti. Vandinn í sambandi við sektar- kennd er fyrst og fremst sá að meðan maður viðurkennir hana ekki eða tekur ekki eftir henni hef- ur hún áhrif á framkomu manns og ákvarðanir. Með því að gera sér grein fyrir þessari tilfinningu er oftast auðveldara að hafa stjórn á henni. Fyrsta skrefið er að viður- kenna að sektarkennd er vanda- mál, hún verður það ef hún hefur áhrif á gerðir ykkar. Ef sektar- kenndin hefur áhrif á ykkur, eigið þið um tvo kosti að velja. Ætlið þið að halda áfram í sama víta- hringnum, eða ætlið þið að segja við ykkur sjálf: „Það er búið sem búið er“ og vinna ykkur síðan upp úr þessu? Engu verður breytt um fortíðina, hið liðna verður ekki aftur tekið. Þess í stað þarf að einbeita sér að líðandi stund og horfa fram á við. Dagnýju hafði aldrei samið vel við móður sína. Hún fluttist snemma að heiman og hafði lítið samband við fjölskylduna. Þegar móðirin veiktist afheilabilun fluttist hún til Dagnýjar. Ringluð konan spillti heimilisfriðnum, vakti fólkið á næturnar, gerði börnin hrædd og dóttirin gekk sér til húðar. Þeg- ar læknirinn tilkynnti að móðirin gæti fengið vist á sjúkrahúsi komst Dagný í uppnám. Hún gat ekki fengið af sér að samþykkja að móðirin færi á sjúkrahús þótt það væri greinilega besta lausnin fyrir alla aðila. Þegar sektarkennd i sambandi sem þessu er ekki viðurkennd, getur hún haft neikvæð áhrif á gerðir okkar. Við ráðum ekki sjálf hverja okkur líkar vel við og hverja ekki. Það skiptir mestu máli að gera sér þetta Ijóst og láta ekki ómeðvitað tilfinningar stjórna sér. Þegar sjúklingur með heilabilun segir til dæmis: „Ekki senda mig á stofnun," er mikilvægt að minn- ast þess að sjúklingurinn er ekki fær um að taka ákvarðanir sjálfur og að þið verðið að gera það fyrir hann. Ef þið eruð hrædd um að þið eigið einhverja sök á að sjúklingn- um hrakar, skuluð þið umfram allt ræða við lækni um eðli sjúkdómsins. Alzheimer-sjúkdómur er hrörn- unarsjúkdómur. Hvorki þið né læknirinn getið stöðvað þróun hans. Hið sama er að segja um mörg önnur afbrigði heilabilunar. Jafnvel þótt reynt sé að virkja sjúkl- inginn stöðvast þróunin ekki, það er aðeins verið að nýta getu hans sem best. Munið að þið þurfið líka á hvíld og afþreyingu að halda, ef þið sinnið þeim þörfum eigið þið auð- veldara með að annast sjúklinginn og hlynna að honum. Ef sektarkennd torveldar ykkur að taka ákvarðanir og leysa vanda, þurfið þið að ræða málin við aðra, ekki síst þá sem eiga við áþekk vandamál að stríða. Morgunblaðið/KGA Það er lítið mál að lífga upp á gamlan snjáðan stól með því að breiða yfir hann efni - og ekki skemmir fyrir að setja í hann gamlan og fallegan púða, eða þá að sauma púða í sama efni og ábreiðan. PUNTAÐ MEÐ PÚÐU Þennan bráðskemmtilega barnapúða rákumst við á í versl- uninni Z-brautir og gluggatjöld. Fleiri útgáfur af svona furðudýr- um má finna þar, en einnig má benda á að t.d. í Ikea má fá stóra gólfpúða án áklæðis og nota svo hugmyndaflugið til að breyta þeim í skemmtileg furðu- dýr. Af hverju ekki að setja skemmtilega pú bergið og jafnvel leyfa börnunum að ta uninni? A þennan barnapúða var teiki ers-taupennum, en einnig má nota Pe liti eða taumálningu til verksins. Fore teiknað útlínurnar með svörtum penna unum að fylla upp í eða bara látið þau sköpunina. Eftir að teiknað er með ta strauja yfir með heitu járni til að festa þvottekta. Athugið að fara eftir leiðbe pökkunum. V'E VERSACE Nýtt ilmvatn er komið á markaðinn frá Gianni Versace, ítalska tískuhönnuðinum ber það heitið V'E VERSACE. Heiðurinn af ilmnum eiga auk Gianni Versace, systir hans Donatella og Dr. Roberto Martone, sem er þekktur ilm- vatnsframleiðandi. Mikil ahersla var lögð á umbúðirnar, en ilmvatnið kemur í teningslaga flösku sem sækir fyrirmynd sína í Baccarat-kristal. BAÐLÍNAFR YSL Rive Gauche ilmurinn frá Yve Laurent hefur lengi verið á m aðnum, en nýlega bættist vií hönnuð baðlína með sama ilr um að ræða milt baðgél, rake mýkjandi krem, sápu og svitt einni tegundinni verið bætt v svokallað sturtugel, unnið m innihalda sölt og snefilefni oc innihalda vítamín, eggjahvíti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.