Morgunblaðið - 04.06.1991, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
123. tbl. 79. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 4. JUNI 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
EES:
Norðmenn
undir það bún-
ir að af þeim
verði krafist
meiri fórna
Eftir óhemju vætusaman og dimman maímánuð hafa íbúar Suður- og Yesturlands loksins fengið sumarið, sem beðið var eftir. Veðrið hefur leikið
við íbúa höfuðborgarsvæðisins frá því á laugardag og spáð er svipuðu veðri næstu daga. Þessi börn, sem voru að leik í Laugardalsgarðinum í
gær, kunnu greinilega að meta veðurblíðuna.
Sovéskur saksóknari telur bióðbaðið í Vllníus í janúar réttlætanlegt:
Landsbergis segir skýrsl-
una lygi frá upphafí tíl enda
EMBÆTTI ríkissaksóknara í Sov-
étríkjunum hefur komist að þeirri
niðurstöðu að beiting hersveita
hafi verið réttlætanleg þegar sjón-
varpsstöð í Vilníus, höfuðborg Lit-
háens, var tekin 13. janúar sl. og
til blóðugra átaka kom milli her-
manna og borgarbúa. í bráða-
birgðaskýrslu sem embættið gaf
út um atburðina í gær sagði að
engar sannanir væru fyrir því að
sovéskir hermenn hefðu drepið
þá 13 óbreyttu borgara sem fór-
ust í átökunum og að forsprakkar
sjálfstæðishreyfingarinnar í lýð-
veldinu bæru ábyrgð á dauða
þeirra. Vytautas Landsbergis, for-
seti Litháens, sagði í samtali við
Morgunbiaðið í gær að skýrslan
væri lygi frá upphafi til enda.
„Við höfum vitni frá fjölmörgum
löndum, atburðirnir voru teknir upp
á myndbönd, það voru fréttamenn
á staðnum frá Noregi, Japan, Bret-
Bandaríkin:
Sovétríkin undanþegiii tak-
mörkunum á viðskiptum
Washington, Lundúnum. Reuter, The Daily Telegraph.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti framlengdi í gær til eins árs
ákvörðun um að Sovétmenn væru undanþegnir takmörkunum á við-
skiptum við Bandaríkin. „Forsetinn tók þessa ákvörðun í ljósi þess
að sovéska stjórnin hefur dregið úr takmörkunum á flutningi Sovét-
manna úr landi," sagði talsmaður Bandaríkjaforseta.
Undanþága Bush dregur úr tak-
mörkunum á viðskiptum við Sovét-
menn samkvæmt svokölluðu Jack-
son-Vanik-ákvæði laga um utan-
ríkisviðskipti Bandaríkjamanna.
Þar er kveðið á um að ríki skuli
ekki njóta viðskiptaívilnana nema
íbúum þeirra sé tryggt frelsi til að
flytja úr landi.
Undanþágan er önnur af tveimur
forsendum þess að Bandaríkjastjórn
geti veitt Sovétmönnum hagstæð-
ustu viðskiptakjör og allt að 1,5
milljarða dala lán til kaupa á korni
frá Bandaríkjunum, sem Míkhaíl
Gorbatsjov Sovétforseti hefur farið
fram á. Hin forsendan er að fyrir
liggi viðskiptasamningur ríkjanna.
Bush og Gorbatsjov undirrituðu
slíkan samning fyrir ári en Banda-
ríkjastjóm frestaði því að leggja
hann fyrir þingið á meðan þess var
beðið að sovéska þingið samþykkti
lög, sem draga úr takmörkunum á
flutningi Sovétmanna úr landi. Þar
sem sovéska þingið hefur þegar
samþykkt þessi lög er búist við að
Bandaríkjastjórn ákveði bráðlega
að veita Sovétmönnum hagstæð-
ustu viðskiptakjör.
landi... við höfum hundruð vitna
- við höfum almenning. Allir vita
hvað gerðist í raun,“ sagði Lands-
bergis. „Þessi skýrsla er til skamm-
ar, hún er lygi. Sannleikurinn um
þessa skýrslu er sá, að hún er lygi.“
Aðspurður um það hver hann
héldi að viðbrögðin í Litháen við
skýrslunni yrðu, sagði Landsbergis
að þetta væri svosem ekkert nýtt
fyrir þjóð sína. „Við þekkjum ríkið
og embættismenn þess. Þeir eru
afkvæmi kerfisins, fulltrúar ríkis
sem drepur og lýgur svo. Þið þekk-
ið þá ekki, þið þekkið ekki kerfíð.“
Hann sagði einnig að stjórnarher-
menn væru enn í Vilníus og fyrir-
ætlanir Æðsta ráðsins um hlutverk
þeirra væru óþekktar.
í skýrslunni segir: „Foringjar
hersveita sovéska innanríkisráðu-
neytisins gerðu viðeigandi ráðstaf-
anir til að tryggja lög og reglu, til
að koma í veg fyrir fjöldaóeirðir og
til að afvopna óeirðaseggi."
Mikil spenna var í Vilnius í gær
er sovéskir hermenn voru sendir til
mikilvægra staða í borginni. Þús-
undir Litháa söfnuðust saman við
þinghúsið eftir að Landsbergis hafði
varað við því að herinn kynni að
ráðast á það. Spennan minnkaði er
hermennirnir sneru aftur til búða
sinna.
NORSKA ríkisstjórnin er undir
það búin að Evrópubandalagið
krefjist hlutfallslega meiri fórna
af Norðmönnum en Islendingum
geg^n því að bandalagið veiti
tollaívilnanir fyrir sjávarafurðir
frá aðildarríkjum Fríverslunar-
bandalags Evrópu (EFTA). Kem-
ur þetta fram í frétt norsku
fréttastofunnar NTB af fundi
sem íslenskir og norskir ráða-
menn áttu sl. laugardag í Ósió
um samningana um Evrópska
efnahagssvæðið (EES).
Það sem Norðmenn þyrftu að
inna af hendi í ríkara mæli en ís-
lendingar væru að sögn NTB fram-
lög í þróunarsjóð EES sem kæmu
fátækari löndum EB til góða og
tilhliðranir í landbúnaði. Gro Harl-
em Brundtland, forsætisráðherra
Noregs, sagði hins vegar eftir fund-
inn að hún hefði enga trú á því að
EB legði fram tilboð í samningavið-
ræðunum sem mismunaði EFTA-
ríkjunum. NTB segir engu að síður
að líklegt sé að Noregur og ísland
þurfí að feta mismunandi leiðir í
þeim viðræðum sem hvort ríki um
sig eiga við EB á næstunni til þess
að knýja fram fríverslun með físk
innan EES.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagðist eftir fundinn með Brundt-
land telja að hvorki Noregur né
Island yrðu með í EES-samningi
ef Evrópubandalagið héldi til streitu
kröfunni um veiðiheimildir í skipt-
um fyrir bættan markaðsaðgang
fyrir sjávarafurðir. Svo rík sam-
staða landanna væri geysimikil-
væg.
Sjá fréttir á miðopnu og bak-
síðu.
----------------
Samkomulag
næst um hefð-
bundin vopn
Ósló, Brussel. Reuter.
JOHAN Jörgen Holst, varnar-
málaráðherra Noregs,, sagði í
gær að samkvæmt samkomulagi,
sem utanríkisráðherrar Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna náðu
á laugardag um fækkun hefð-
bundinna vopna í Evrópu, fengju
Sovétmenn að halda umdeildum
flotadeildum sínum, að því til-
skildu að þeir fækkuðu öðrum
herdeildum.
Ríki Atlantshafsbandalagsins og
Varsjárbandalagsins undirrftuðu
samning um fækkun hefðbundinna
vopna í Evrópu í nóvember en hann
hefur -ekki verið staðfestur vegna
ágreinings um túlkun hans. Sovét-
menn kröfðust þess að herdeildir,
sem þeir skilgreindu sem flotadeild-
ir eftir að samningurinn var gerð-
ur, yrðu undanskildar samningnum.
Aðildarríki NATO vildu ekki fallast
á þá kröfu. Flotadeildir eru að
mestu undanskildar samningnum.
Loksins kom sumarið
Morgunblaðið/Þorkell