Morgunblaðið - 04.06.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1991
19
Siglufjarðarpistill
eftir Öla J. Blöndal
Sumarið og bjartsýnin
Sumarið er nú smámsaman að
þoka Vetri konungi til hliðar, þó
enn megi sjá snjóbreiður í fjöllum.
En veturinn er á undanhaldi, það
er augljóst. Frostið er á brott, birt-
an að aukast, glaðvær fuglasöngur
kveður við og græni liturinn er óð-
um að ná yfirhöndinni. Lækir farn-
ir að renna glaðhlakkalega niður
fjallshlíðarnar. Mannfólkið hendir
af sér vetrarflíkunum í ofvæni og
klæðist léttum og iitríkum sumar-
klæðnaði og jafnframt bjartsýni á
lífið og tilveruna. Bílarnir, sem
stundu undan keðjunum og nagl-
reknu dekkjunum, renna nú ljúflega
eftir vegunum, lausir við þennan
ófögnuð.
Og börnin, arftakar landsins,
fagna sumarkomunni og aldraðir
þakka guði fyrir að fá enn einu sinni
að upplifa þessi undur náttúrunnar.
Með sumrinu kemur funinn, fijáls-
ræðið og stórhugurinn. Siglfirðing-
ar, sem og aðrir landsmenn, horfa
með tilhlökkun til þessara árstíða-
skipta. Þó þeir vissulega þekki öll
tilbrigði hins íslenska veðurfars og
vita að dag skal að kveldi lofa.
Atvinnuleysisvofan
En það er ekki nóg að veðurfar
sé ákjósanlegt. Þess verður ekki
notið nema að menn séu heilbrigðir
á sál og líkama. Það er því sárt tii
þess að vita þegar heilbrigður mað-
ur horfir hugsjúkur fram á veginn
og kemur ekki auga á dásemdir
náttúrunnar. Hversvegna? Jú, það
er vegna þess að atvinnuleysisvofan
hefir læst krumlum sínum í hann
og fjölda annarra manna hér á Si-
glufirði. Þessir menn standa ráðala-
usir og hnípnir eigi þeir að vera hér
um kyrrt og lepja dauðann úr skel.
Selja hús sín, hverfa nauðugir á
brott með fjölskyldur sínar frá vin-
um og vandamönnum. Það er vissu-
lega erfítt að taka slíka ákvörðun
en hvernig hefir þetta borið að? Það
er kannski eðlilegt að menn spyrjí
svona. Voru ekki velflestir þessara
„Við höfum bæði ódýrt
íveru- og iðnaðarhús-
næði. Einnig lóðir fyrir
hverskonar iðnað. Við
höfum mjög góðar
flugsamgöngur til
Reykjavíkur og Akur-
eyrar. Hér er ein besta
höfn á Islandi og liggur
hvað best við fiskimið-
um norðanlands. Hér
eru og velþekkt þjón-
ustufyrirtæki fyrir út-
gerð og iðnað, skipuð
þrautþjálfuðu fólki og
þjónustulipru. Verslan-
ir af ótal gerðum. Hér
er Sparisjóður og Is-
landsbanki. Þá er öll
opinber þjónusta við
bæjarbúa með ágæt-
um.“
manna í starfi hjá Síldarverksmiðju
ríkisins, sem stofnsettar voru 1930
og hafa starfað hér æ síðan? Hvem-
ig má það vera að þetta fyrirtæki
skuli þurfa að grípa til slíkra ör-
þrifaráða þó að hráefni fáist ekki
í eitt ár, að segja upp helftinni af
starfsmönnum sínum? Já, hver hefði
trúað slíku. Þetta fyrirtæki, sem
menn í bjartsýni sinni héldu að aldr:
ei myndi grípa til slíkra úrræða. í
þeirra augum var SR eitthvað var-
anlegt, eitthvað óumbreytanlegt
eins og gangur himintunglanna. En
svo bregðast krosstré sem önnur
tré. Ríkið getur ekki frekar en ein-
staklingur rekið fyrirtæki með tapi,
er sagt.
Við treystum á síldina á sínum
tíma, síðan treystum við á ríkisvald-
ið, en nú vitum við að á hvorugt
er að treysta. Við höfum verið und-
anfarna áratugi að saga þær grein-
ar er við sitjum á.
Pelabörn ríkisins
Það er augljóst að við verðum
að hætta að vera pelabörn ríkisins,
þar er enga vætu að fá. Reyna
heldur að standa á okkar eigin fót-
um eins og forverar okkar gerðu.
Við þurfum ekki að halda að ráða-
menn landsins renni rauðum dregli
undir fætur okkar í hvert skipti er
við komum til þeirra með bónar-
væl. Við verðum að treysta á okkur
sjálf.
Vissulega eru til menn, sem ekk-
ert sjá nema ríkisforsjá í einhverri
mynd. Þetta viðhorf er að sjálfsögðu
þeirra mál og óþarfi að reyna að
uppræta slík sjónarmið, þau eru
dæmd til sjálfseyðingar þegar fram
líða stundir. Hitt er annað mál að
ríkisvaldinu ber að liðsinna því
byggðarlagi er verður fyrir skakka-
föllum af völdum náttúruafla eða
annarra hliðstæðra áfalla, saman-
ber SR-verksmiðjurnar.
Pólitískur andapollur
Við Siglfirðingar höfum verið að
svamla í pólitískum andapolli, sem
hefir verið að drekkja allri sjálfs-
bjargarviðleitni okkar undanfama
áratugi. Ég tel að nú séu tímamót
og nú þurfi að heijast handa og
snúa bökum saman. Láta pólitíkina
lönd og leið, hún á enga samleið
með atvinnulífinu. Við þurfum sjálf-
ir að skapa okkur atvinnutækifæri.
Mér sýnist sem betur fer að nú séu
að koma hér fram menn, sem vilja
atvinnulega séð treysta á mátt sinn
og megin og er það vel og vonandi
á það sjónarmið eftir að festa rætur
í siglfirsku atvinnulífí. „Vilji er allt
sem þarf“ sagði þekktur stjórn-
málamaður og það á við í mörgum
tilfellum. Kjarkur og vilji eru mikils-
verðir eiginleikar í öllu athafnalífí
en fyrirhyggjan verður þó að fylgja
með.
Hvað er til ráða?
Við eigum að sjálfsögðu að aug-
lýsa Siglufjörð og telja upp hveijum
kostum hann er búinn umfram
Óli J. Blöndal
marga aðra staði. Við eigum að
hvetja duglega menn að setjast hér
að, alvöru athafnamenn. Menn sem
kunna að meta þá aðstöðu, sem hér
er í boði.
Við höfum bæði ódýrt íveru- og
iðnaðarhúsnæði. Einnig lóðir fyrir
hverskonar iðnað. Við höfum mjög
góðar flugsamgöngur til Reykjavík-
ur og Akureyrar. Hér er ein besta
höfn á íslandi og liggur hvað best
við fískimiðum norðanlands. Hér
eru og velþekkt þjónustufyrirtæki
fyrir útgerð og iðnað, skipuð þraut-
þjálfuðu fólki og þjónustulipru.
Verslanir af ótal gerðum. Hér er
Sparisjóður og Islandshanki. Þá er
Brids
Arnór Ragnarsson
Sumarbrids í Reykjavík
Agæt þátttaka var í Sumarbrids sl.
fimmtudag. 30 pör mættu til leiks.
Spilað var í 2 riðlum. Úrslit urðu (efstu
pör);
A).
Gróa Guðnadóttir — Þráinn Sigurðsson 259
Cecil Haraldsson — Jón Stefánsson 259
Jens Jensson—Jón Andrésson 252
Dröfn Guðmundsdóttir — Guðlaug Jónsd. 233
Grimur Guðmundss. — Pétur Matthíass. 231
Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Amórss. 225
öll opinber þjónusta við bæjarbúa
með ágætum.
Mikið félagslíf er hér á vetrum.
Hér eru óteljandi möguleikar fyrir
bæjarmenn sem og ferðamenn að
iðka inni- sem útiíþróttir. Skíða-
svæði sem stundum hefír verið kail-
að „siglfirsku alparnir“, golfvöllur,
fótboltavellir, íþróttahús og sund-
laug og heitur pottur. Sjóstanga-
veiði, silungsveiði og svona mætti
lengi telja.
Að þessari mjög svo ófullkomnu
upptalningu lokinni, má sjá að
svona staður hefír upp á margt að
bjóða og á að vera mjög ákjósan-
legt fyrir duglega menn að setjast
hér að með fjölskyldur og fyrir-
tæki. Bæjaryfírvöld munu vissulega
fagna hveijum þeim er hingað koma
en ekki viljum við neina bónbjargar-
menn, heldur þá er vilja efla bæinn
okkar með hverskonar starfsemi,
sem gæti gert þennan bæ eftirsótt-
an og áhugaverðan.
Bæjaryfírvöld geta með ýsmu
móti hlúð að slíkum fyrirtækjum,
þeim sem hér eru fyrir og þeim sem
hugsanlega kæmu hingað án þess
þó að vera þátttakandi í rekstri
þeirra. Ef þessar hugleiðingar
mínar ganga eftir sem ég vissulega
vona þá mun þessi bær verða
skemmtilegur bær, bær framfara
og iðjusemi. Bær þar sem mannlífið
er ekki eintómt nöldur, öfund og
óánægja heldur séu hinar jákvæðu
hliðar allsráðandi. Þá verður þetta
bær framtíðarinnar.
Höfundur er bókavörður við
bókasafnið íSiglufirði.
B)
Sveinn Sigurgeirsson - Þórður Sigfússon 190
Dúa Ólafsdóttir — Véný Viðarsdóttir 187
Erla Siguijónsdóttir— Óskar Karlsson 179
Rúnar Lárusson — Vaidimar Elíasson 171
Albert Þorsteinss. — Kristófer Magnúss. 170
Sumarbrids verður framhaldið í
Sigtúni í næstu viku; mánudaga kl.
18.30, þriðjudaga kl. 18.30, miðviku-
daga fyrir byijendur og fimmtudaga,
húsið opnað kl. 17. Allt spilaáhuga:
fólk velkomið. Uppl. á skrifstofu BSÍ
í síma 689360.
Kvennalistakonur
Kvennalistakonur spila brids á
mánudagskvöldum kl. 20.30 á
Laugavegi 17, annarri hæð.
OV1070
NISSAN KING CAB 4WD
Með aukavinning sem kemur að notum
Við bjóðum þér upp á aukavinning á nokkrum Nissan Kong Cab 2,4 4WD
Þú færð, án aukagjalds, sterkt og fallegt plasthús á pallinn og
plastklæðningu innan á allann pallinn að auki.
Allt á einungis kr. 1.386.000,- stgr.
Sýning laugardag og sunnudag kl. 1400-1T'00
Helgason hl
S. nvaf holða 2
ritmi hl (,/.)()()o