Morgunblaðið - 04.06.1991, Side 21

Morgunblaðið - 04.06.1991, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJURDAGUR 4. JÚNÍ 1991 21 Gimnar Kvaran á fyrstu þriðjudagstónleikum Listasafns Sigurjóns Eitthvað vefst það fyrir þeim er þetta ritar hvers vegna heil- brigðisráðherra tók þá stefnu, varla búinn að ná áttum í nýju embætti, að beija þessar fáheyrðu flokkunarreglur í gegn með illu. Eg hygg að hann hefði betur eytt meiri tíma í að kynna sér þetta mál, að ekki sé minnst á þá sjálf- sögðu vinnureglu að ræða við aðila báðum megin borðsins áður en ákvörðun var tekin um að stöðva endurgreiðslur vegna tannrétt- inga. Þeir málsmetandi aðilar í í heilbrigðiskerfinu eru nefnilega ófáir, sem látið hafa í ljósi efa- semdir um að lög um flokkun tann- réttingasjúklinga og reglugerðin sem sett var til að framfylgja þeim muni leiða til þess sparnaðar sem þeim var upphaflega ætlað. Lánleysi þeirra embættismanna, sem upphaflega stóðu að téðum flokkunarlögum og undirbjuggu samþykkt þeirra á Alþingi í lok árs 1989, tneð upplýsingum sem flestar eða allar reyndust vera rangar, er fáheyrt. Þar áttu sér stað mistök, sem hafa verið dýru verði keypt af fórnarlömbum deil- unnar, þeim ört vaxandi hópi tann- réttingasjúklinga sem ekki fær lögboðna aðstoð sjúkratrygginga. Þessir sjúklingar voru gabbaðir með auglýsingu frá TR í janúar 1990 til að fresta því að fara í tannréttingar. Þeir sem hlýddu sitja enn með sárt ennið og skakk- ar tennur og bíða eftir lausn deil- unnar. Hinir, sem óhlýðnuðust, voru verðlaunaðir í febrúar sl. þeg- ar allur kostnaður vegna tannrétt- inga á árinu 1990 var greiddur til hálfs eftir eldri reglum. Þannig hafa heilbrigðisyfirvöld bætt gráu ofan á svart með því að draga skjólstæðinga sína á asnaeyrunum í þessu máli. Höfundur er tannlæknir og hefur lokið sémámi í tannréttingum. FYRSTU tónleikarnir í sumar- tónleikaröð Listasafns Siguijóns Ólafssonar verða í dag þriðju- daginn 4. júní nk. og hefjast þeir kl. 20.30. Þá mun Gunnar Kvaran sellóleikari leika tvær einleiks- svítur eftir Johann Sebastian Bach, nr. 1 í G-dúr og nr. 5 í c-moll og jafnframt rabba um verkin. Gunnar Kvaran nam hér heima hjá Heinz Edelstein og Einari Vig- fússyni. Framhaldsnám stundaði hann hjá Erlingi Blöndal Bengtsson í Kaupmannahöfn og Reine Flachot í Basel. Hann hefur komið fram sem ein- leikari og í kammertónlist á öllum Norðurlöndunum, Þýskalandi,_ Hol- landi, Frakklandi, Belgíu og Ítalíu, auk Bandaríkjanna, þar sem hann hefur starfað á þekktum tónlistar- hátíðum í Vermont-fylki bæði sem kennari og flytjandi. Gunnar starfar nú sem deildar- stjóri strengjadeildar Tónlistarskól- ans í Reykjavík og kennir þar selló- leik og kammertónlist. Tónleikarnir standa í um það bil Gunnar Kvaran, sellóleikari. klukkutíma og að þeim loknum geta gestir að venjú notið veitinga í kaffístofu safnsins. (Fréttatilkynning) Bíldudalur: Landsbankahlaupið á Bíldudal Bíldudal. EINS OG venja er var Lands- bankahlaupið haldið á Bíldudal laugardaginn 25. maí. Keppend- ur voru 20 talsins og var keppt í tveimur flokkum pilta og stúlkna. Þá kepptu fjórir grænlenskir grunnskólanemar sem gestir í lilaupinu. Að hlaupinu loknu af- henti Kjartan Haraldsson útibús- stjóri Landsbankans á Bíldudal keppendum verðlaun og viðurkenn- ingar fyrir þátttökuna. Úrslit birt- ust í Morgunblaðinu þriðjudaginn 28. maí. R. Schmidt - Hárlos - Kláði - Flasa - Litun - Permanent MAIMEX vítamín sérstaklega fyrir hár, húð og neglur. JónaBjörk Grétarsdóttir: Ég missti megnið af hár- inu 1987 vegna veikinda. Árið 1989 byrjaði hárið fyrst að vaxa aftur, en það var mjög lélegt; það var svo þurrt og dautt og vildi detta af. Síðan kynntist ég Manex hársnyrtilínunni og það urðu mjög snögg um- skipti á hári mínu til hins betra. Eftir 3ja mánaða notkun á Manex prótein- inu, vítamíninu og sjampóinu er hár mitt orðið gott og enn í dag finn ég nýtt hár vera að vaxa. Fæst í flestum apótekum hárgreiðslu- og rakara- stofum um land allt. MANEXsjampó MANEX næring Dreifing: S. 680630. rosia am RÆKTAÐU HUGANN — en gleymdu ekki undirstöðunni! g gefur auk þess zink, magníum, kalíum, A-vítamín og fleiri efni sem eru líkamanum nauðsynleg. MJÓLKURDAGSNEFND lUiúOI (Ii.iUJVIv, .O (Ju'uIJIj jjMl.oU lv IIUII .ivUlliú| Uc. IIIUj^U.i OI \ lUUll HVÍTA HÚSIÐ /SÍA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.