Morgunblaðið - 04.06.1991, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÐAGUR 4. JÚNÍ 1991
ai
Boeing-þotan sem fórst á Thailandi:
Tölvubilun talin
hafa valdið gagn-
verkan hreyfla
Seattle, Vínarborg. Reuter.
BOEING-flugvélaverksmiðjurnar hyggjast ekki selja þotur af gerðinni
Boeing-767 í flugbann þó austurrísk yfirvöld hafi fullyrt um helgina,
að Boeing 767-300 þota Lauda Air, sem fórst í Thailandi 26. maí, hafi
orðið stjórnlaus og hrapað til jarðar vegna bilunar i sljórntækjum
hennar.
Rudolf Streicher, samgönguráð-
herra Austurríkis, sagði í yfírlýsingu
sem hann sendi frá sér á sunnudag,
að allt benti til þess að bilun hefði
orðið í tölvubúnaði sem stjórnar flugi
þotunnar með þeim afleiðingum að
annar hreyfill hennar hefði skyndi-
lega unnið gegn hinum. Þotan hefði
orðið stjórnlaus, ofrisið og brotnað
í sundur er hún hrapaði tii jarðar.
Komi þetta fram á segulbandsupp-
töku af samtölum flugmanna þot-
unnar. Þar komi jafnframt í ljós að
flugmennirnir hefðu árangurslaust
reynt að ná stjórn á þotunni.
Að sögn Streichers skemmdist
flugritinn sem skráir upplýsingar um
starfsemi stjórnkerfa og vélbúnaðar
þotunnar á stálþráð. Er hann það
illa leikinn að ekki hefur reynst unnt
að ná úr honum neinum gögnum að
gagni.
Randy Harrison, talsmaður Bo-
eing, sagði að ekkert hefði enn kom-
ið fram við rannsókn á orsökum flug-
slyssins sem kallaði á nauðsyn þess
að setja þotur af þessari tegund í
flugbann. „Miðað við reynslu af
Boeing 767 þotum er ástæðulaust
að kyrrsetja þær,“ sagði Harrison
en þota Lauda Air er fyrsta Boeing-
767 þotan sem ferst.
Frakkar
undirrita
kjarnorku-
sáttmála
París. Reuter.
FRÖNSK stjórnvöld tilkynntu í
gær að þau myndu undirrita sátt-
mála sem setur skorður við upp-
söfnun kjarnorkuvopna. Kína
verður þá eina meiriháttar kjarn-
orkuveldið sem ekki hefur undir-
ritað sáttmálann.
Sáttmálinn var gerður árið 1968
en tók gildi tveimur árum síðar.
Nú hafa rúmlega 140 ríki undirritað
sáttmálann. Þar á meðal eru Sov-
étríkin, Bretland og Bandaríkin.
Ríki eins og Brasilía, Pakistan og
ísrael sem talin eru hafa kjarnorku-
vopn í vopnabúri sínu hafa ekki
undirritað sáttmálann fremur en
Kína. Samkvæmt mati Alþjóðaher-
málastofnunarinnar í London hefur
sáttmálinn skilað miklum árangri í
baráttunni gegn útbreiðslu kjam-
orkuvopna.
Frakkar kynntu jafnframt í gær
áætlun um afvopnun í heiminum
sem þeir boðuðu í síðustu viku. Þar
er hvatt til upprætingar efna-, og
sýklavopna og að kjarnorkuvopna-
birgðir verði minnkaðar svo sem
unnt er án þess að skerða fælingar-
mátt þeirra.
♦ ♦
Bandaríska flugmálastjórnin
(FAA) hefur að sögn Streichers held-
ur ekki gert ráðstafanir til að setja
flugbann á Boeing-767 þotur sem
búnar eru samskonar hreyflum og
þota Lauda Air en Pratt og Whitney
mótorverksmiðjurnar smíðuðu þá.
í upphafi var álitið að sprengja
hefði grandað þotunni. Hún var á
leið frá Bangkok til Vínarborgar
með 223 manns innanborðs og biðu
þeir allir bana.
Reuter
Mótmæli
í Albaníu
Um tíu þúsund manns efndu til mótmæla
í gær í Tirana höfuðborg Albaníu til stuðn-
ings verkfallsmönnum þar. Nú eru
350.000 verkamenn í verkfalli, þar af eru
100 námaverkamenn í hungurverkfalli á
um 120 metra dýpi í námu einni. Opin-
bera fréttastofan ATA hefur ekki fengist
til að staðfesta þessa frétt. Kröfur verk-
fallsmanna eru m.a. þær að aðbúnaður
verkamanna verði bættur og ríkisstjórn
landsins segi af sér. Að sögn heimildar-
manna innan albönsku stjórnarandstöð-
unnar á sunnudag mun ríkisstjórn lands-
ins fara frá og ný fjölflokkastjórn, sem
m.a. mun skipuleggja nýjar kosningar,
taka við. Heimildarmaðurinn sagði að
Kastriot Islami, forseti albanska þingsins,
þar sem kommúnistar eru í meirihluta,
hefði tilkynnt að þetta hefði verið sam-
þykkt á fundi með helstu stjórnmálaflokk-
um Albaníu. Núverandi ríkisstjórn tók við
í apríl sl. eftir fyrstu fjölflokka kosningar
í landinu í meira en 40 ár en hefur sætt
síaukinni gagnrýni og kröfur hafa orðið
æ háværari um að hún fari frá.
■ TÓKÝÓ - Unzen-eldfjallið á
eynni Kyushu í Japan byrjaði
skyndilega að gjósa í gær með þeim
afleiðingum að japanskur lögreglu-
þjónn beið bana er bifreið hans
varð fyrir hraunstraumi. Að
minnsta kosti 20 manns til viðbótar
slösuðust og um 20 manna var
saknað, þar á meðal 10 erlendra
blaðamanna. Lítilsháttar eldgos
varð í fjallinu í nóvember sl. en þar
áður hafði gosvirkni legið þar niðri
í 200 ár.
-HA TIÐ
% afsláttur
við
í tilefni þess að á Islandi verður 25 ára í haust, höldum
hátíð og gefum 15 og 25% afmælisafslátt 4., 5., 6. og 7. júní.
WÉLEDA
WELEDA
eru lífrænt ræktaðar eðalvörur - breiðlína. IMatíiIíl notar einungis lífrænt ræktaðar jurtir í fram-
leiðsluna, sem er undir ströngu eftirliti lækna óg lyfjafræðinga. iMrtHiftl notar engin gervi-, litar- eða
geymsluvarnarefni. Engin dýrisk efni. Tilraunadýr eru ekki notuð. vörurnar eru ofnæmisprófaðar
á fólki við sérstakar aðstæður. Lhi/aHUilolíur og krem setjast ekki utaná húðina. Húðin tekur þau til sín.
25% afsláttur:
GIGTAROLÍA
NUDDOLÍA
HÁRLOS/FLASA
TANIMKREM
BARNAVÖRUR
SLITOLÍA
SÓLKREM
- Svartþyrniolía, arnika og olíur úr birkilaufi, rósmarin, lavandell. Ótrúleg verkan við gigt, verkjum og vöðvabólgu.
- Sítrónuilmur. Olía úr kalendula, kamómill, birkilaufi. Uppáhald þeirra sem stunda sund. Hindrar húðþurrkun klórvatns.
- Gegn hárlosi og flösu. Rosmarin hárvatn, shjampó, olía. Mettað af svavel, kísilsíru, blöndu af piparrótarbl. o.fl.
- Snefilefni sjáfar. Seyði af raranhiujurt, myrru, sláþyrnualdinum, kastaníuberki, freyðir ekki. Örvar lífeðlislega sjálfhreinsun tannanna.
- Krem, oliur, sápa. Kremundirstaða úr býflugnavaxi og völdum jurtaolium m.a. kamillu og kalendula. Þekkt frá alda öðli fyrir vermandi,
hreinsandi, græðandi og bólgueyðandi áhrif. Yndislega milt. Gott fyrir alla fjölskylduna.
- fyrir verðandi mæður. Fjölvirk og notaleg. Hefur sannað gildi sitt í 60 ár.
- vörn, brúnka, næring. UV filter. Vörn 3. Geymir valdar oiíur svo sem gulrótarolíu, lecetin, hamamelis o.fl.
15% afsláttur:
KREMLÍNAN - Rakakrem, næturkrem, dagkrem, colkrem, húðkrem, andlitsmöndluolía, hreinsimjólk, maskar, hreinsandi, nærandi og mjúkir. Baðolíur,
lotion, fótakiem gegn svita, pirringi og kulda, sápur, handáburður o.fl.
ÍÞRÓTTAFÓL'K - notar WELEDA með frábærum árangri. ASMA- og ofnæmissjúklingar nota WELEDA, enda ráðlagt af læknum.
Hulda
Jensdóttir,L
snyrtifræðingur/ljósmóðir,
kynnir WHHm og
gigtar-nuddtækið novafon
íbarnafata- og
snyrtivöruversluninni
Þumallínu.
Nú ertækifærið að kynnast þessum einstöku
eðalvörum.
Verðið á sér engan líka.
mmn} í samhljóman við náttúruna.
Einusinni alltaf W££H .
Nýr lífsstíll fyrir nútfmafólk, konur og karla.
ÞUMALINAl
Leifsgötu 32, opið kl. 11-18 virka daga.
Nægbílastæði. Póstsendum. Símar 12136 - 23141.