Morgunblaðið - 04.06.1991, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÐAGUR 4. JÚNÍ 1991
Blóðhöttur gengur aftur
eftir Þorvarð
Júlíusson
Er ei bóndans frelsi fórnað
fyrir þjónsins rétt
lægst á bekkinn lága stjórnað,
landsins óðalsstétt.
(E. Ben. 1901)
Kristleifur Þorsteinsson bóndi á
Stórakroppi og fræðimaður, segir
frá óskaplegum bitvargi, hvítum ref
sem Blóðhöttur var nefndur, vegna
þess að háls og haus var blóðlitað.
Hann beit kindurnar á barkann og
sundur hálsæðar. Því var vitað hver
> hafði verið þar að verki. Loks tókst
að skjóta þennan bitvarg.
Hvað ertu að segja frá þessu,
mun einhver spyija. Það er ekki til
að segja frá þó refur deyði nokkrar
kindur. En bíddu nú við. Blóðhöttur
gekk aftur, í Seglbúðagervi, og var
nú miklu óskaplegri en áður, eða
fyrir 100 árum. Nú gaf hann út
tilskipan svohljóðandi: Fækkið
bændum um 2.000 og skerið
245.000 ær.
Nú þótti bændum nóg að gert
því Blóðhöttur lét þá karla sem
höfðu þóst vera hagsmunagæslu-
menn bænda gera þetta. Nú birtist
Blóðhöttur í líki eins af húskörlum
Denna (hann er nú úti á haug) og
lagði til að fækka bændum um
1.200 og skera 70.000 ær. Næst
kom Blóðhöttur í gervi húskarls
Davíðs Oddssonar og hann gefur
út tilskipan, skera 55.000 ær og
koma þeim fyrir í fjöldagröf. Sjálfur
ætlar húskarlinn að standa yfir
gröfinni (í gervi Blóðhötts). Morg-
unblaðið 1. maí 1991.
Ekki er frá því sagt að Stalín
hafi staðið yfir fjöldagröfum sem
hann lét tilreiða fyrir bændur. Því
má segja að einn böðull komi öðrum
—meiri. Davíð Oddsson forsætisráð-
herra verður að gera viðeigandi
ráðstafanir gegn þessum húskarli,
láta klippa úr honum vígtennurnar
og hafa hann svo í teygju, eins og
„Það er kominn tími til
þess að bændur verði
leystir undan þeirri
kvöð að fóðra slíka
ómaga í gegnum svo-
nefnd sjóðagjöld sem
eru 13 eða 15.“
Eysteinn sagði, að þeir hefðu haft
það við Jónas, læriföður sinn.
Og nú er Halldór Blöndal tekinn
við landbúnaðarmálum. Þar mun
vera ógeðugt um að líta eftir þá
hálfkomma og kommúnista sem þar
hafa verið næstliðin 7-8 ár. Að
moka þann flór eftir þessa niður-
rifs- og eyðingarmenn, sem ekki
hafa séð nema eitt, skera, skera,
og biksvartan botninn.
Nú er að finna markað fyrir dilk-
akjöt, kjöt sem er hreint og ómeng-
að, máski það eina í heimi. Enda
hefir verið eftir því leitað að fá
héðan þetta kjöt, en SÍS hefir neit-
að, viljað bara grafa nokkur hundr-
uð tonn, og þetta forsmánarverk
hefir svarað ásamt þeim hroðalega
niðurskurði sem hálfkommar hafa
framkvæmt, kaupfélög á haus og
önnur á brauðfótum.
Svo er að hreinsa til, niðurrifs-
og eyðingaróráðið skal niður lagt.
Þá karla gæti svo Halldór reynt að
brúka til að planta skógi á Vaðla-
heiði næstu 10 árin. Það er kominn
tími til þess að bændur verði leyst-
ir undan þeirri kvöð að fóðra slíka
ómaga í gegnum svonefnd sjóða-
gjöld sem eru 13 eða 15.
Og virðisaukaskattur er ófor-
skammaður, um 1.500 krónur á
lamb. Þessu verður að breyta. Tilbú-
inn áburð á ríkið ekki að vera að
versla með, hér á frelsi að ráða.
Það að hækka áburð á hveiju ári
um 10-20 prósent verður að stöðva.
Það er sanngjarnt að setja virðis-
aukaskatt á svonefnd veiðileyfi sem
svonefndir sportmenn vilja kaupa,
FÉLAGSÚF
UTIVIST
GRÓFINNII • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606
Helgin 7.-9. júní
Eyjafjallajökull - Seljavallalaug.
Skemmtileg ganga upp úr Þórs-
— mörk eftir Hátindaleið yfir Eyja-
fjallajökul niður að Seljavöllum
þar sem farið verður í sund áður
en ekið verður til baka i Bása
með sólbrúna jöklafarana. Farar-
stjóri: Reynir Sigurðsson.
Básar á Goðalandi.
Þar er tilvalið að slappa af eftir
annríki vinnuvikunnar á þessum
friðsæla og fagra stað. Göngu-
ferðir við allra hæfi. Góð gistiað-
staða í Útivistarskálunum. Far-
arstjóri Fríða Hjálmarsdóttir. i
tengslum við þessa ferð gefst
kostur á að ganga yfir Fimm-
vörðuháls. Sjáumst.
Útivist.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Helgarferðir 7.-9. júní
1. Eyjafjallajökull-Selja-
vallalaug. Skemmtileg göngu-
leið yfir jökulinn. Sund i Selja-
vallalaug að lokinni göngu. Gist
í Þórsmörk.
2. Þórsmörk-Langidalur.
Frábær gistiaðstaða í Skag-
fjörðsskála, Langadal. Göngu-
ferðír. Þórsmerkurferðir verða
um hverja helgí fram í byrjun
október. Ennfremur verða dags-
ferðir á sunnudögum og mið-
vikudagsferðir hefjast siðari
hluta júní. Ódýr sumardvöl. Þátt-
takendur í Þórsmerkurferðum
Ferðafélagsins mun gefast
kostur á þátttöku í land-
græðsluátaki á Þórsmerkur-
svæðinu. Brottför í ferðirnar
er föstudagskvöld kl. 20. Far-
miðar og uppl. á skrifst. Öldu-
götu 3.
3. Vinnuferð í Þórsmörk-
landgræðsluátak. Eflum fé-
lagsstarfið með þátttöku i sjálf-
boðavinnu á vegum Ferðafé-
lagsins. Ýmis viðhaldsverkefni,
landgræðsla o.fl. Uppl. og skrán-
ing á skrifstofunni. Takmarkað
pláss. Ferðafélag íslands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTIJ 3 S: 11798 19533
Þriðjud. 4. júní kl. 20.00
Kvöldsigling að Lundey
- lundabyggð skoðuð
Brottför frá Sundahöfn (Viðeyj-
arbryggju). Siglt að Lundey,
lundabyggð með þúsundum
lunda. Gengið á land í Viðey
undir lok ferðar. Einstök ferð.
Hafið sjónauka meðferðis. Verð
700,- kr., frítt f. börn 15 ára og
yngri með foreldrum sinum.
Miðvikud. 5. júníkl. 20.00
Heiðmörk,
skógræktarferð
Fyrsta af þremur árlegum skóg-
ræktarferðum í Heiðmörk. Takið
þátt í grisjun og umhirðu hins
fallega skógarreitar Ferðafélags-
ins. Umsjónarmaður er Sveinn
Ólafsson. Ekkert þátttökugjald.
Allir velkomnir, félagar sem aðr-
ir. Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin.
Söguslóðir Njálu næst-
komandi laugardag, 8.
júní, kl. 9.00
Fjölskyldudagur í Heiðmörk
veðrur sunnudaginn 9. júnf kl.
13.00. Létt ‘jölskylduganga um
skógarstíga i skógarreit Ferðafé-
lagsins og nágr. Pyslulgrill og
leikir fyrir yngstu kynslóðina. Nú
lætur enginn sig vanta. Gerist
félagar í Ferðafélaginu.
Ferðafélag íslands.
Listahátíð í Hafnarfirði:
Virmustofa skúlptúrlista-
manna opin almenningi
Þorvarðui' Júlíusson
þeir virðast hafa mikla peninga. Svo
nefni ég það við þig Halldór land-
búnaðarráðherra að þú ómerkir
reglugerð sem forveri þinn í þessu
starfi bjó til 4. maí árið ’90 þar sem
hann gerir tilraun til eignarnáms á
silunganetlögum sjávaijarða, en
meira um það síðar.
Sauðkindinni er þannig launuð
þrautabjörgin.
Leggja fé til höfuðs henni,
hökusigin dusiimenni.
Höfundur er bóndi að Söndum í
Miðfirði.
eftir ÓskarD.
*
Olafsson
I stuttu máli, já! Þeir eru það
einfaldlega því þeir eru eðlilegur
hluti vistkerfisins. Þeir tilheyra lík-
ama sem er fæddur til að nota. Við
notum fæturna til að ganga, hjóla
og færa okkur til og frá þeirra staða
yfii'leitt sem þörf er að fara á, en
bíddu hæg(ur)! Það var svoleiðis en
hefur víst eitthvað breyst síðan
tæknibyltingin breytti lífi okkar.
Á árinu 1914 ferðaðist hinn vest-
ræni meðalmaður 2.640 km á ári
og 2.090 km af þessum 2.640, fót-
gangandi. í dag ferðumst við
13.000 km á ári og þar af notum
við fæturna við að fara 640 km á
ári. Þetta þýðir auðvitað minni
hreyfingu miðað við það sem var
áður og mun meiri orkueyðsla við
samgöngur og þá orkueyðsla sem
er oftar en ekki stórskaðleg um-
hverfinu eins og t.d. útblástur bif-
reiða.
Gervilausnir eru einskis virði!
Kostnaður við heilsugæslu hefur
aldrei verið meiri og oftar en ekki
er gervilausna leitað í formi lyfja.
Börn eru farin að mælast með bíý-
mengun í heila og er talað um hlut-
fall mældra blýmengaðra barna
muni vera um 1/10 í Kaupmanna-
höfn t.d. Hrörnunarsjúkdómar gera
æ meira vart við sig og líkur eru á
því að notkun álumbúða eigi hér
einhvern hlut að máli og má t.d.
nefna gosdrykkjadósirnar sem
dæmi.
Lengi má áfram telja um tengsl
umhverfisins og ástand þess við
heilsufar manna en kjarninn er
þessi: Við kaupum okkur ekki betra
líf, við finnum engan lífselexír án
þess að reka okkur aftur og aftur
á það að það er náttúran og um-
hverfi okkar sem á alltaf síðasta
orðið. Við verðum að bera virðingu
fyrir lífríki jarðar til þess einfald-
lega að halda lífi. Svo einfalt er það.
Fæturnir menga ekki
Og þar geta fæturnir á okkur
hjálpað mikið til. Með því að nota
fæturna til þess sem þeir eru til
skapaðir þá má eflaust fækka á
götunum eiturspúandi blikkbeljun-
um okkar, efla heilsuna og skynja
umhverfið. hreinlega. j. réttu Jjósi.
Listahátíð hófst um helgina í
Hafnarfirði og mun hún standa
til 13. júlí n.k. Hátíðin er fram-
tak einstaklinga í bænum í sam-
vinnu við Hafnarfjarðarbæ og
Listamiðstöðina í Straumi. Dag-
skrá Listahátíðarinnar verður
tvíþætt. Annars vegar verður
opin alþjóðleg vinnustofa
skúlptúrlistamanna dagana
1.-14. júní í Straumi og hins
vegar verða sýningar, tónleikar,
fyrirlestrar og fleira. Hátíðin
verður sett formlega þann 15.
júní n.k.
Til vinnustofunnar í Straumi
hefur verið boðið 14 listamönnum,
þar af tíu útlendingum, sem munu
búa til skúlptúra á meðan að vinnu-
stofan er opin. Verkin verða síðan
gefin til hins nýja Höggmynda-
garðs Hafnarljarðar. Almenningi
gefst kostur á að fylgjast með lista-
mönnunum við vinnu sína í
Straumi.
Hátíðin verður sett formlega
þann 15. júní n.k. með samkomu
í menningarmiðstöðinni Hafnar-
borg, myndlistarsýningu þar og
sýningu á skúlptúrum í miðbæ
„Og mundu það næst
þegar þú ætlar að fara
eitthvert hvort þetta
muni nú ekki í göngu-
fjarlægð eða á færi
þínu sem hjólreiða-
manns.“
Her má skírskota til ævaforns vís-
dóms indíánanna af sléttunni sem
urðu alltaf að staldra við öðru
hveiju á ferðalagi á hestbaki.
Ástæða þessarar tafar var einfald-
lega að bíða eftir sálinni, því ef of
geyst var farið varð sál manns bara
eftir. Athyglisverð arfleifð svona á
þotuöldinni.
En hvað þarf til þess að hægt
sé að nota fæturna? Þú þarft góða
skó til að ganga í, regnhelda úlpu
og góðan bakpoka til að geyma það
sem, annars hefði verið í sligandi
skjalatösku. Ef þú ert meira að flýta
þér og ferð lengri vegalengdir þá
er hjólið alveg úrvals kostur. T.d.
henta fjallahjól mjög vel á íslandi,
á þeim getur þú geymt töskur fyrir
farangur þinn og svo getur þú far-
ið í sturtu víða um bæinn í okkar
einstöku sundlaugum. Ekkert vand-
amál eða er það e.t.v. bara spurn-
ingin um að nenna?
Verum heilbrigð á sál
og líkama!
Auðvitað er ýmislegt sem má
bæta og aftur stórbæta. Þar má
nefna göngustígana sem eru látnir
mæta afgangi í gatnagerð. Það má
nefna algert sinnuleysi stjórnvalda
hvað varðar málefni hjólreiða-
manna sem þó ættu að fá sínar
hjólreiðagötur, þeir boi'ga þó alla-
vega skatt eins og allir þeir sem
aka um á bílum.
En til að ljúka þessu með uppörv-
un til þín sem einstaklings þá er
allt sem þú gerir til verndar um-
hverfinu mjög gott. Og mundu það
næst þegar þú ætlar að fara eitt-
hvert hvort þetta muni nú ekki vera
í gönguíjarlægð eða á fæt'i þínu sem
hjólreiðamanns. Þetta bæði hressir
og kætir, líkama og anda.
Höfundur er háskólanemi og
félagi í Hjólreiðaféiagi
Reykjnvíkur.
Listamaður við gerð listaverks í
Straumi
Hafnarfjarðar.
Tónieikar á vegum Listahátíðar
verða í Hafnarborg á sunnudögum
í júní, rokktónleikar heimsþekktra
þungarokksveita verða á Kapla-
krikavelli þann 16. júní og í veit-
ingahúsum bæjarins verða jazz-
og blúshljómleikar um helgar. Bók-
mennta- og tónlistardagskrá verð-
ur í Sjóminjasafninu og sérstök
myndlistarsýning í Hafnarborg
auk sérsýninga og smærri mynd-
listarsýninga í veitingahúsunum
A. Hansen og Fjörukránni.
Undirbúningsnefnd Listahátíðar
í Hafnarfirði 1991 væntir þess að
framhald verði á þessari starfsemi
annað hvert ár og þá með mismun-
andi áherslum á listgreinar.
í undirbúnings- og fram-
kvæmdanefnd Listahátíðar í Hafn-
arfirði eru Sverrir Ólafsson mynd-
listamaður, Þorgeir Ólafsson list-
fræðingur, Gunnar Gunnarsson
tónlistarmaður og Eiríkur Óskars-
son hái'greiðslumeistari.
Brids
Arnór Ragnarsson
Sumarbrids fyrir byrjendur
Fyrsta spilakvöld sumarsins var sl.
miðvikudagskvöld og var spilaður 20
para Mitchell. Úrslit urðu:
N/S riðill:
Sturla Snæbjörnss. - Einar Pálmi Amars. 151
Stefán Geirsson—Ólafur Oddsson 138
OÍfar Guðmundsson - Anna K. Úlfarsdóttir 127
A/V riðill:
SnorriSturluson-GrímurAtlason 156
Ásgeir Benediktss. - Hallgrimur Kristjánss. 138
Vilhjálmur Sigurðsson - Baldvin J. Sigurðsson 127
Nk. miðvikudag er næsta spilakvöld
sem ætlað er byrjendum og vegna
ljolda áskorana hefur verið ákveðið
að heija spilamennsku kl. 19.00. Von-
andi gefur það fleiri spilurum mögu-
leika á að vera með, þar sem nú gefst
heldur betri tími til að hafa sig til
eftir vinnudaginn. Takið eftir kl.
19.00.
Úrslit í sumarspilamennsku
þriðjudaginn 28. maí 1991. Spilaður
var tvímenningur með Mitchell-fyr-
irkomulagi og mættu 32 pör til
spilamennsku. Spiluð voru 30 spil
og efstu pör urðu sem hér segir:
N-S:
Jón Steinar Gunnlaugsson - Guðjón Sigurðsson
Magnús Aspelund - Steingrímur Jónasson
Unnur Sveinsdóttir - Jón Þór Karlsson
Ólafur Bergþórsson - Helgi Viborg
Sigurður Siguijónsson - Júlíus Snorrason
A-V:
Sigurður Steingrimsson - Gísli Steingrímsson
Jón Stefánsson - Cecil Haraldsson
Sigurður Óli Kolbeinsson - Tómas Sigurðsson
Ólefur Oddsson - Stefán Geirsson
Dúa Ólafsdóttir - Sæbjörg Jónasdóttir
Keppnisstjóri var Sveinn R.
Eiríksson.
Geta fætur verið
umhverfisvænir?