Morgunblaðið - 04.06.1991, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJURDAGUR 4. JUNI 1991
47
Vegna þessa og aukinna skattaá-
lagna hafi stofnunin minna svigr-
úm til að endurnýja námsefni og
svara kröfum tímans.
Námsgagnastofnun er fjöregg
sem þarf að hlúa að og tekur undir-
ritaður heilshugar undir hvatningu
formanns Kennarasambands Is-
lands, Svanhildar Kaaber, þar að
lútandi í grein hennar í Mbl. 20.
september sl. Hins vegar verður
að horfast í augu við að núverandi
kerfi getur leitt námsgagnaútgáfu
fyrir grunnskóla í öngstræti.
Hugmyndir um leiðir til úrbóta
Hér verða settar fram nokkrar
hugmyndir um leiðir til að leysa
þann vanda sem steðjar að náms-
efnisútgáfu fyrir grunnskóla á ís-
landi. Vandinn er þó margþættur
og einhlítar lausnir vandfundnar.
1) Efla þarf innkaupaþátt
Námsgagnastofnunar og jafnframt
auka fjái-veitingar til stofnunarinn-
ar. Ríkisvaldið hlutist til um að
skilgreina hlutverk Námsgagna-
stofnunar sem innkaupastofnunar
upp á nýtt. Til dæmis gæti það
falist í því að stofnuninni verði
heimilt (eða skylt) að veija tilteknu
hlutfalli (25-30% eða meiru) af
veltu sinni eða fjárveitingum til
kaupa á efni frá almennum útgef-
endum eða kennurum. Þessu efni
geti stofnunin síðan úthlutað
ókeypis til skólanna samkvæmt
pöntunum þeirra. í stöðunni eins
og hún lítur út í dag getur þessi
tillaga þýtt um 20-50% aukningu
á fjárveitingum til stofnunarinnar.
Námsgagnastofnun ætti engu að
síður að halda uppi öflugri útgáfu-
starfsemi. Viðbótarfjármagn nýtt-
ist almennt til aukinnar útgáfu og
Námsgagnastofnun gæti betur
sinnt undirbúnings- og rannsóknar-
störfum.
2) Aukinn stuðningur við þá
sem vilja vinna að námsgagnagerð.
Almennir útgefendur og kennarar
geti sótt um styrki eða lán til þess
að vinna að tilteknum verkefnum
í námsefnisgerð. Samdar verði
reglur sem kveði á um gæðamat
sem tryggi að aðeins efni sem hljóti
viðurkenningu verði notað sem
námsefni í grunnskólum.
3) Meira frelsi skóla við val á
námsefni. Grunnskólum verði gefið
rýmra svigrúm til að nýta kvóta
sinn til kaupa á hvers kyns náms-
efni, án tillits til hver útgefandi
efnisins er. Viðurkenningarnefnd
fjalli um það efni sem nota skal
sem grunnnámsefni. Annað efni
eins og hliðarefni og myndbönd
verði á ábyrgð hvers skóla fyrir sig.
4) Skólarnir verði íjárhagslega
sjálfstæðir. Þá er hugsanlegt að
ganga enn lengra og veita fjár-
magni beint til skólanna og láta
Námsgagnastofnun og aðra útgef-
endur „selja“ þeim efni. Skólarnir
gætu síðan ákveðið í samræmi við
námsmarkmið sín hvaðan þeir
fengju námsefni, frá Námsgagna-
stofnun, frá almennum útgefend-
um eða notuðu heimatilbúið efni.
5) Fleiri aðilar en Námsgagna-
stofnun verði hvattir til námsefnis-
útgáfu. Liðir 1-4 gætu allir verkað
hvetjandi á ýmsa aðila í þjóðfélag-
inu til að snúa sér að námsefnisút-
gáfu fyrir grunnskóla. Hyggilegast
væri að byrja á því að beina al-
mennum útgefendum að útgáfu á
hliðar- og ýtarefni en láta Náms-
gagnastofnun um viðameiri verk-
efni, grunnnámsefni og raðútgáfur.
Kennarar gætu síðan að eigin
frumkvæði eða að beiðni Náms-
gagnastofnunar séð um að semja
verkefni og kennsluleiðbeiningar.
6) Útboð. Þá kemur til greina
að Námsgagnastofnun „bjóði út“
námsgagnagerð. Stofnunin gæfi
út námsmarkmið og verklýsingar,
tilgreindi kvaðir og óskaði eftir
verðtilboðum. Mat á námsefni verði
í höndum Námsgagnastofnunar
eða viðurkenningarnefndar.
Allar þessar hugmyndir miðast
að því að nemendur í grunnskóla-
námi eigi kost á góðu og nútíma-
legu námsefni. Námsgagnastofnun
þarf á stuðningi að halda. Með því
að dreifa námsgagnaframleiðslunni
í landinu gæti Námsgagnastofnun
smám saman beint kröftum sínum
í auknum mæli að tilteknum verk-
efnum sem hingað til hafa heldur
setið á hakanum:
* Greiningu og rannsóknum á
þörfum grunnskóla fyrir náms-
efni.
* Undirbúningsvinnu vegna
námsefnislýsinga.
* Skipulagningu á úthlutun og
dreifingu námsefnis — innkaup
frá almennum útgefendum.
* Tilraunakennslu og mati á náms-
efni.
Menn hljóta að viðurkenna að
það sýnist heldur öfugsnúið að
bókaþjóðin mikla geti ekki haldið
uppi öflugri námsbókaútgáfu fyrir
grunnskólanemendur, hvorki hjá
ríkinu né almennum útgefendum.
Við íslendingar verðum að taka
á þessum málum. Þetta er ekki
aðeins spumingin um hvort við vilj-
um hafa betri skóla — þetta er
miklu alvarlegra en það: Við hrein-
lega verðum að auka veg menntun-
ar hér á landi til að geta keppt við
nágrannaþjóðir okkar á ýmsum
sviðum í síbreytilegum heimi. í
grunnskólanum hefst skólagangan
og þar er mikilvægt að vel sé að
verki staðið. Við verðum að bjóða
börnum okkar upp á betri skóla.
Vönduð námsgögn eru mikilvægur
liður í skólastarfi. Þau auðvelda
góðum kennara að halda uppi góðri
kennslu.
Höfundur er grunnskólakennari
og námsefnishöfundur.
t
'Jríiim/ili
VORLINAN
Embfa
STRANDGÖTU 29, HAFNARFIRÐI
pJtrgmwð
” Meira en þú getur ímyndad þér!
HREINT GÓLF
HREINAR HEND'
búnaður þýðir að:
Ö Aldrei þarf að dýfa hendi í gólíþvottavatnið.
Ó Aldrei þarf að snerta blauta eða óhreina moppu.
U Moppan dregur betur í sig og skolast betur en áður þekktist.
U Moppuplatan gefur jafnari þrýsting á gólf og þrífur
betur en plötulausar moppur.
H Moppuvindan er úr ryðfríu stáli. Moppan er ekki tekin af
plötunni til að vinda hana. Hún vindur alltaf jafn vel, óháð hæð
og kröftum þess sem notar hana.
B JANI-JACK ræstivagninn er settur saman úr einingum.
Fjölmargar tegundir mismunandi búnaðar er hægt að fá.
Sameiginlegt öllum Jani-Jack vögnum frá okkur eru stór hjól
úr efni sem ekki skilur eftir sig för á gólfi, jafnvel þó sterkar
sápublöndur séu á því.
Þrátt fyrir alla þessa fullkomnun kostar
búnaðurinn ekki meira en annar
IBESTAI
NÝBÝLAVEGI 18. KÓPAVOGI.
sími 641988
HAFNARGÖTU 61. KEFLAVÍK sími 92-14313