Morgunblaðið - 04.06.1991, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1991
ERTU MEÐ SKALLA?
HÁRVANDAMÁL?
I Aðrir sætta sig ekki við það!
Af hverju skyldir þú gera það?
Fáðu aftur þitt eigið hár, sem vex eðlilega
Sársaukalaus meðferð
Meðferðin er stutt (1 dagur)
Skv. ströngustu kröfum banda
n'skra og þýskra staðla
Framkvæmd undir eftirliti og stjórn
sérmenntaðra lækna
Upplýsingar hjá EURO CLINIC Ltd.
Ráðgjafastöð, Neðstutröð 8, Póshólf 111
202 Kópavogi - Sími 91-641923
á kvöldin - Sími 91-642319.
Lifsvon lýðræðis
í Austur-Evrópu
eftir Margréti
Haraldsdóttur
Vikuna 21. apríl til 26. apríl var
haldin ráðstefna í London um „Fram-
tíð Evrópu“. Ráðstefna þessi var
haldin á vegum BAGYP (The British
Atlantic group of young politicians)
og sátum við Davíð Stefánsson,
formaður SUS, ráðstefnuna á vegum
Varðbergs. Þarna voru samankomnir
stjórnmálamenn frá 27 löndum víðs-
vegar úr Evrópu, USA og Kanada,
til að ræða framtíð Evrópu með til-
liti til breyttra aðstæðna. Kastljósinu
var sérstaklega beint að samskiptum
yesturlanda við Austur-Evrópuríkin.
Ymsir þekktir stjórnmálaleiðtogar
ávörpuðu þingið, s.s. Douglas Hurd,
utanríkisráðherra Bretlands, Lech
Walesa, forseti Póllands, og Edward
Heath, fyrrv. forsætisráðherra, og
hluti hópsins fór í heimsókn í Rothsc-
hild & sons, þar sem Tony Alt, fram-
kvæmdastjóri, lýsti vandamálum sem
fylgja einkavæðingu í Austur-Evr-
ópu.
Þrennt var athyglisverðast sem
fram kom á þinginu. Það var í fyrsta
lagi umræðan um uppbyggingu efna-
hagskerfis Austur-Evrópu og þau
vandamál sem þessar þjóðir eiga við
að etja. í öðru lagi framtíð NATO
og fyrirkomulag varna í Evrópu. í
þriðja lagi það sem snertir okkur
mest, en það er staða Islands á al-
þjóðavéttvangi og ákall Austur-Evr-
ópuríkjanna um hjálp og samvinnu.
Það er Ijóst að efnahagur Austur-
Evrópuríkjanna er í molum. Þetta
fólk sem hefur brotist undan járn-
greip kommúnismans og er að feta
sig í átt til lýðræðis þarf að takast
á við gífurlega efnahagserfiðleika.
Iðnaður og viðskipti eru lífæð hverr-
ar þjóðar og tækifæri til að ræða
þessi málfni geta verið mikilvæg
aðstoð við að þróa nýtt efnahag-
skerfi. Því þarf að örva skoðana-
skipti milli þessara landa um við-
skipti, efnahag og félagsleg málefni.
Við erum fyrsta kynslóðin í Evrópu
sem ekki hefur háð stríð sín á milli.
Okkar verkefni er að viðhalda friðn-
um og þróa samskipti á milli landa
með það í huga að Evrópa geti virk-
að sem ein heild í samfélagi þjóð-
anna.
Uppbygging efnahagskerfis
Austur-Evrópu
Þróunin í Austur-Evrópu er líkleg-
ast eitthvert mesta breytingarskeið
sem mín kynslóð mun lifa að sjá.
Þau vandamál sem Austur-Evrópu-
ríkin eru að kljást við núna eru í
stuttu máli þessi:
1. Hin nýju stjómvöld taka við
stjómkerfi sem hreinlega virkar ekki.
Embættisstofnanir em staðnaðar,
alla skilvirkni vantar og sérfræðingar
eru fáir. Bankakerfið virkar ekki af
sömu ástæðum og peningamarkaður
er ekki til. Menn geta tekið skynsam-
legar ákvarðanir á þingi, en fram-
kvæmdin stoppar í kerfinu. Stjóm-
sýslan er tóm skel, sbr. Sovétríkin
og Rúmeníu.
2. Hagkerfið þarf að breytast.
Koma þarf á einkavæðingu. Tony
Alt. framkvæmdastjóri Rothschild &
sons, sagði að einkavæðing í Austur-
Evrópu myndi taka mun lengri tíma,
en upphaflega var áætlað. Það þyrfti
að byggja upp ákveðinn grundvöll
fyrst, s.s. skilvirkt embættiskerfi,
bankakerfí, fjármagnsmarkað og
þjálfa fólk. Ekkert af þessu er fyrir
hendi. Vonbrigði fólksins eru mikil,
því að menn höfðu ímyndað sér að
einkavæðingin tæki 3-5 ár.
Þetta er þyrnum stráð braut um
táradal, t.d. kostar þessi breyting
mikið atvinnuleysi.
Við fall kommúnismans hefur
komið í ljós að Austur-Evrópa á langt
í land með að ná Vesturlöndum í
iðnþróun, hagvexti og viðskiptum.
Fijáls verslun verður ekki komið á
án þess að blóðtaka verði einhvers
staðar. Það tekur tíma að ná jafn-
vægi á markaði. Það þarf að skapa
viðunandi skilyrði fyrir fyrirtækin
svo menn fáist til að fjárfesta og
flytja inn fjármagn.
3. Menningarsamfélagið, s.s.
frjálsir fjölmiðlar, kirkjan, þrýstihóp-
ar o.s.frv. það þarf að byggja upp
að nýju. Þetta er t.d. óleyst vanda-
mál í Rúmeníu og mun valda pólitísk-
um óstöðugleika í langan tíma.
Á meðan Austur-Evrópuríkin lutu
alræði kommúnismans var unnið
kerfísbundið að því að brjóta niður
menningarsamfélag þessara ríkja.
Mörg ár mun taka að vinna upp aft-.
ur það sem tapast hefur.
4. Fall kommúnismans veldur
tómarúmi sem erfítt er að fylla.
„Sviknum brann í brjósti hatur,
bauðst oss kannski skjól og matur.“
Menn verða að hafa í huga að stund-
um voru menn að mótmæla fram-
kvæmd kommúnismans en ekki hug-
sjóninni sjálfri. Tilhneiging er til að
fylla þetta tómarúm með öfga-
kenndri þjóðerniskennd, kirkjuríki
eða ofurtrú á lausnum Vesturlanda.
Dæmi um þetta er að til eru þeir sem
halda að öll vandamál megi leysa
með kenningum Hayeks og Fried-
mans. Þetta er hættulegt því að ef
vel á að vera þarf að skoða aðstæður
á hveijum stað og vinna út frá þeim
möguleikum sem til eru hverju sinni,
t.d. er ekki hægt að einkavæða í einu
vettvangi landbúnað sem er á frum-
stigi hvað varðar framleiðslu og
tækni.
Þegar V-Evrópa var í rúst eftir
seinni heimsstyijöldina fengum við
aðstoð til að verða bjargálna (Mars-
hall-áætlun eftirstríðsáranna). Hið
sama þarf nú að gera fyrir A-Evrópu
ef ríkin eiga að komast í gegn. Lönd
eins og Rúmenía og Pólland hafa
auðlindir, eru auðug af landgæðum
og eiga að hafa möguleika á að ná
sér á strik og ná sömu efnahagslegu
festu og Vesturlönd, þ.e. ef þau fá
aðstoð til að komast yfír byijunarerf-
iðleikana.
Varnir Evrópu og
framtíðarhlutverk NATO
Þegar menn eru að velta fyrir sér
öryggiskerfí í Evrópu eru það tvær
spurningar sem brenna á mönnum.
1. Spurning um öryggi hvers lands
fyrir sig.
2. Spurning um öryggi Vestur-
landa og hefðbundna samvinnu
þeirra á milli.
Æskilegast væri ef hægt er að
þróa samvinnu sem nær til allra
Evrópulanda. Vert er að hafa í huga
að efnahagsleg uppbygging er for-
senda fyrir jafnvægi í alþjóðasam-
skiptum.
Douglas Hurd sagði að stóra
spumingin væri hvernig ætti að skip-
uleggja vamir Evrópu. Svarið væri
að á þessu þyrfti að taka með sam-
vinnu allra hlutaðeigandi aðila, ræða
málið og komast að sameiginlegri
niðurstöðu sem allir gætu sætt sig
við. Mikilvægur þáttur í öryggismál-
um væri efnahagsleg samvinna á
Nú gefur VISA
greldslukorfid
þitf f/opnað"
þér dlyr I
bókstaflegri
merkingu
orösins
Fáðu þér AMDI aðgangskerfi og þú
getur notað VISA greiðslukortið þitt
sem lykil. Sjón er sögu ríkari, hafðu
samband við sölumenn VARA og
fáðu nánari upplýsingar.
VISA OG VARI - PÆGINDIOG ÖRYGGI
VARI •S 91-29399
ALHLIÐA ÖRYGGISÞJÓNUSTA SlDAN 1969
Vinningstölur laugardaginn
1. júní 1991
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 3 2.065.233
2. 4a“# 6 108.940
3. 4af5 172 6.555
4. 3af 5 6.922 380
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
10.607.159 kr.
I Ath. Vinningar undir 12.000 krónum eru greiddir út
á Lottó sölustöðum.
Margrét Haraldsdóttir
„íslendingar hafa áunn-
ið sér virðingu á al-
þjóðavettvangi þó smá-
ir séu og eins og einn
Bretinn orðaði það:
„Vel skipulagður rök-
stuðningur með góðu
máli kemur málefni í
gegn hvort sem það
kemur frá stórþjóð eða
smáríki.“
milli landa og heimshluta. Talið er
að ríki Austur-Evrópu muni ganga
í EB um leið og þau hafa náð þeim
efnahagslega árangri sem til þarf.
Sýna þarf minnihlutahópum skiln-
ing og virða sjálfstæði og menningar-
arfleið þeirra. Ekki síst sérstöðu
hvers um sig. Þjóðirnar verða að
skiptast á hugmyndum um gildi, sið-
ferði og síðast en ekki síst hugmynd-
um um réttlæti. Þarna ber að hafa
í huga ólík viðhorf til mannréttinda-
brota.
Lokaniðurstaða ráðstefnunnar var
sú að NATO myndi halda áfram að
gegna ákveðnu hlutverki í framtíð-
inni.
Staða íslands og aðstoð
okkar við A-Evrópu
íslendingar með Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráðherra, í
broddi fylkingar hafa verið leiðandi
í samningaviðræðunum á milli EFTA
og EB um evrópska efnahagssvæðið.
Þó vonir manna hafí minnkað um
að þeir samningar náist eru menn
almennt sammála um að samninga-
viðræðurnar hafi verið gagnlegar á
báða bóga. Þær hafí eflt skilning og
samvinnu milli þeirra ríkja sem
standa að samningunum.
Skýr afstaða okkar íslendinga og
bein afskipti Jóns Baldvins af Eystra-
saltsmálinu hafa vakið gífurlega at-
hygli, ekki síst í A-Evrópu.
Islendingar hafa áunnið sér virð-
ingu á alþjóðavettvangi þó smáir séu
og eins og einn Bretinn orðaði það:
„Vel skipulagður rökstuðningur með
góðu máli kemur málefni í gegn
hvort sem það kemur frá stórþjóð
eða smáríki." íslendingar eru með
háar þjóðartekjur á mann, ómengað
land, hafa aldrei staðið í stríði, en
tekið hiklaust afstöðu með réttlætis-
málum á alþjóðavettvangi. Þessar
staðreyndir valda því að A-Evrópu-
ríkin líta til okkar í von um upplýs-
ingaráðgjöf og stuðning. Þeir vonast
til að við kynnum okkur vandamál
þeirra og leggjum þeim lið á alþjóða-
vettvangi. Islendingar hafa ekki
möguleika á að veita beina efnahags-
aðstoð, en við getum stutt málflutn-
ing þeiiTa og barist fyrir því að þeir
fái efnahagsaðstoð. Einnig að Vest-
urlöndin opni markaði sína meira
fyrir þeim. Svo má hafa skipti á
sendinefndum á milli landa og kynna
hvernig við leysum okkar vandamál
og sjá hvað þeir eru að beijast við.
Ef við aðstoðum þessi lönd þá
höfum við um leið eignast öfluga
bandamenn á alþjóðavettvangi. Svo
getur farið að við neyðumst til að
ganga í EB og talið er líklegt að
A-Evrópuríkin muni ganga í EB
hvert á fætur öðru. Pólland hefur
þegar sótt um aukaaðild. Þá er lífs-
nauðsyn fyrir okkur að eiga bandá-
menn sem skilja sérstöðu okkar og
bera virðingu og traust til íslendinga.
Höfundur erkennnri \ið
Menntaskólnnn við Sund.