Morgunblaðið - 04.06.1991, Qupperneq 55
iíC&GtíNBLÁÐÍá'-ÞkíÐJUÍít/A^ljK'4,-JÚNÍ 1991
55
Jón O. Halldórs-
son - Minning
Guð blessi þá sem henni stóðu næst
og hún bar fyrir bijósti.
Sigurður Sigurðarson,
Selfossi.
Ingibjörg Árnadóttir var fædd í
Koliabúðum 5. nóvember 1897 og
lést í sjúkrahúsinu á Blönduósi 30.
maí 1991.
Hún var gift Jóni Daðasyni, f.
31. maí 1899, og eignuðust þau
eina dóttur barna, Ólínu Kristínu
Jónsdóttur, en hún er kona undirrit-
aðs.
Kynni okkar Ingibjargar eru orð-
in löng og náin því að árið 1955
kom ég að Miðhúsum. Ingibjörg var
drengur góður, vel greind og föst
í skapi. Hún hafði alla þá kosti sem
prýða mega hverja konu.
Ingibjörg gekk í húsmæðraskól-
ann á ísafirði. Var ráðskona á
Bændaskólanum á Hólum í Hjalta-
dal. Ráðskona á Lágafelli hjá Thor
Jensen og svo rak hún matsölu í
Reykjavík.
Árið 1938 flyst hún að Brands-
stöðum í Reykhólasveit með manni
sínum og dóttur og þau búa þar í
eitt ár og flytja þá að Miðhúsum
sem varð heimili þeirra æ síðan.
Ingibjörg var verkadijúg og
verkhyggin og fyrir utan hið dag-
lega amstur hafði hún mikinn
áhuga á allskonar menningarmál-
um. Skógrækt og skrúðgarðarækt
var stór þáttur í tómstundaiðju
hennar og vann hún með öðru góðu
fólki brautryðjendastarf í skógrækt
á Barmahlíð. Hún var vakandi og
sofandi á meðan kraftar entust í
að koma upp skrúðgarði á Reykhól-
um. Á Reykhólum sá hún framtíð
byggðarlagsins.
Ingibjörg var félagshyggjukona
og var lengi formaður kvenfélagsins
Liljunnar og í stjórn Sambands
breiðfirskra kvenna. Kirkjumál lét
hún sig mikið varða enda trúkona.
Hún var með gott veganesti frá
móður sinni, Kristínu Hallvarðs-
dóttur, og uppeldisforeldrum sínum,
þeim séra Jóni Þorvaldssyni og Ól-
ínu Snæbjarnardóttur á Stað á
Reykjanesi. Hún var lengi hér í
sóknarnefnd og lagði fram krafta
sína kirkjunni til stuðnings. Þó að
skoðanir hennar á trúmálum væru
ákveðnar og skírar, þá umbar hún
skoðanir annarra með prýði.
Ingibjörg var minnug og óljúg-
fróð og því var gott að leita til
hennar ef sækja þurfti í sjóð liðins
tíma. Alla tíð var það gamla og hið
nýja jafn ferskt í huga hennar.
Þegar litið er til baka þá er það
lán hveijum manni að hafa átt góða
tengdamömmu, en ekki er það síður
mikilvægt að börnin hafi eignast
góða ömmu, sem þerraði tár og
uppfræddi og hvatti.
Aðeins ein stutt saga í lokin til
þess að sýna hve fórnfús og velvilj-
uð hún var. Það var um haust og
aldur Ingibjargar var farinn að
nálgast sjöunda tuginn. Ekki hafði
ég gefið mér tíma til þess að sækja
heim bernskuslóðir. Um þetta var
rætt og voru þá 10 til 12 kýr í fjósi
og ef við hjón færum þá væri eng-
inn til þess að mjólka, því að hand-
rrijaltir voru aflagðar. Þegar ég er
að mjólka eitt kvöldið kemur Ingi-
björg út í fjós og segir, kenndu
* mér á mjaltavélarnar og hjálpuð-
umst við að um kvöldið og morgun-
inn eftir þá kom Ingibjörg og mjólk-
aði kýrnar hjálparlaust. Að loknum
mjöltum sagði Ingibjörg að nú væri
okkur ekki til setunnar boðið. Við
skyldum bara drífa okkur strax af
stað austur á land. Hún gæti vel
mjólkað með vélunum í nokkra
daga. Ingibjörg virtist eiga ráð við
flestum vanda.
Nú eru leiðarlok. Ég vil nota
tækifærið og þakka öllu því góða
fólki sem leit til hennar og gladdi
í veikindum hennar. Systkinabörn-
um hennar ber að færa sérstakar
þakkir fyrir ræktarsemina. Þakkir
viljum við hjón færa starfsfólkinu
á sjúkrahúsunum á Akranesi og á
Blönduósi fyrir góða aðhlynningu
og læknum í Búðardalslæknishéraði
og héraðshjúkrunarkonu okkar fyr-
ir gott starf nú sem endranær.
Einnig eru sjúkraflutningamönnum
færðar þakkir. Víst er að góð kona
er gengin eftir langa og starfsama
ævi.
Guð blessi minningu hennar.
Sveinn Guðmundsson
Fæddur 28. ágúst 1921
Dáinn 29. maí 1991
Þann 29. maí lést elsku afi okk-
ar, Jón Óskar Halldórsson. Afi var
mjög góður maður og ávallt reiðu-
búinn að hjálpa ef með þurfti. Hann
var gjafmildur og ófáir eru þeir
hlutir, sem hann lét af hendi rakna.
Hann var léttur í lund og átti það
til að stríða okkur systkinunum.
Við búum í sama húsi og afi og
amma, og vorum því vön að sjá þau
á hverjum degi, en nú er afi ekki
lengur hjá okkur. Við eigum eftir
að sakna hans mikið.
Á hveijum degi fór afi út að
ganga um nágrennið, og alltaf var
hann léttur og hress. Daglega fór
hann einnig til gamals frænda síns
og bar mikla umhyggju fyrir hon-
um. Okkur fannst afi alltaf bera
mikla umhyggju fyrir öðrum.
Sumarið 1988 fórum við ásamt
afa og ömmu og foreldrum okkar
til Þýskalands. Þessi ferð er okkur
mjög minnisstæð, vegna þess að
hún var fyrsta utanlandsferð afa
og ömmu. Afi minnist þessarar
ferðar mjög oft, og dreymdi um að
komast í aðra slíka ferð. En nú er
hans hinsta ferð hafin og við stönd-
um eftir og eigum yndislegar minn-
ingar um góðan afa.
Við biðjum Guð að blessa hann
og varðveita og þökkum fyrir þær
stundir sem við áttum með honum.
Hrefna Katrín, Óskar, Reynir,
Eiríkur Bergur og Heiðdís Rós.
Okkur langar til að minnast
tengdaföður og afa, Jóns Óskare
Halldórssonar, er lést 29. maí sl.
Jón Óskar var alltaf kallaður
Óskar, og í okkar huga var hann
afi Óskar, hann var sá besti afi sem
nokkurt barn gat átt. Barnabörnin
eru orðin sextán, krökkunum fannst
öllum gaman að koma til afa og
ömmu, enda eru móttökurnar á
Laugarásvegi alltaf góðar. Afi
Óskar tók á móti krökkunum með
bros á vör, og auðvitað stríddi hann
þeim í leiðinni og hafði gaman af.
Þær voru ekki ófáar ferðirnar með
afa Óskari í strætó niður í bæ, tii
að gefa öndunum eða bara til að
skoða mannlífið, oftast var keyptur
ís í leiðinni eða jafnvel farið á kaffi-
hús, og þá var nú gaman.
Amma og afi gættu Hrefnu litlu
fyrir okkur í fimm ár og var það
góður tími. Þegar ég kom að sækja
Hrefnu iitlu eftir vinnu, þá sátu hún
og afi Óskar saman og mauluðu
eitthvert nammið, því það var ekki
erfitt fyrir litla stelpu, að lauma
lítilli hendi í þykkan og hijúfan lóf-
ann hans afa, og segja: „Afi, eigum
við kannski að labba út í sjoppu?“
Auðvitað stóðst afi þetta ekki og út
í sjoppu var haldið, og komið til
baka með nammi í poka. Eitt sinn
kom ég að sækja Hrefnu litlu, og
sagði við Óskar afa: „Afi, stelpan
er bara þrigja ára og það er búið
að gera við þtjár tennur, hún má
ekki fá svona mikið nammi.“ Næsta
dag kom ég að sækja Hrefnu, þá
var mín manneskja brosandi út að
eyrum með tyggjó, afi brosti og
sagði: „Það er allt í lagi þetta er
sykurlaust tyggjó." Eftir það átti
afi tyggjó, og auðvitað sykurlaust.
Svona var afi Óskar.
Elsku amma Líng, okkur tekur
sárt að hugsa til þess að afi Óskar
er ekki lengur hjá okkur, en þið
áttuð góðar stundir saman, og þú
átt allar þínar minningar. Við viljum
þakka afa Óskari fyrir allt sem
hann hefur geit fyrir okkur.
Við kveðjum afa Óskar.
Gugga og Hrefna Líneik
í dag, þriðjudaginn 4. júní, verð-
ur til moldar borinn tengdafaðir
minn, Jón Óskar Halldórsson.
Óskar, eins og hann var alltaf
kallaður, fæddist í Reykjavík, sonur
hjónanna Halldórs Jónssonar og
Jónínu Guðrúnar Hannesdóttur,
sem lengst af bjuggu á Nönnugötu
5. Óskar var einn af sex börnum
þeirra hjóna, þijú eru látin en eftir
lifa Halidór, Sigurhans og Sigríður.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför
OTTÓS J. GUNNLAUGSSONAR
listmálara.
Jón Gunnlaugsson, Þórhalla Gunnlaugsdóttir,
Börkur Karlsson, Gunnlaugur Guðmundsson,
Oktavía Guðmundsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför
ÞURÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Tjarnarbóli 14,
Seltjarnarnesi.
Hrafnhildur Ólafsdóttir,
Sigrún Ólafsdóttir,
Eggert Ólafsson, Hulda Eggertsdóttir,
Örn Ólafsson, Sigrún Pálsdóttir,
Sigurður Ólafsson, Ingibjörg Hjartardóttir.
t
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför eiginmanns míns, fööur, fósturföður,
tengdaföður og afa,
SVEINS H. VALDEMARSSONAR,
Heiðarbæ 9,
Reykjavík.
Elísabet Jónsdóttir,
Sólveig Sveinsdóttir, Benedikt Þ. Ólafsson,
Valdemar Sveinsson,
Ingi Geir Sveinsson, Særún H. Ragnarsdóttir,
Berglind Sveinsdóttir,
Haukur Sveinsson,
Hinrik J. Þórisson,
Kristín Þórisdóttir, Vincent Newman
og barnabörn.
Hvern hefði grunað, þegar
tengdaforeldrar mínir komu hress
og kát úr sólarlandaferð, að hann
yrði allur aðeins þrem vikum síðar.
Fréttin um lát hans kom eins og
reiðarslag þótt vitað væri að hnn
gengi ekki heill til skógar.
Óskar var vel liðtækur í fótbolta
á yngri árum, enda hafði hann alla
tíð brennandi áhuga fyrir íþróttum.
Barnabörnin voru Óskari sérlega
hugleikin og bar hann velferð þeirra
mjög fyrir bijósti og fylgdist vel
með þeim í leik og starfi.
Jólaboðin hjá ömmu og afa á
Laugarásvegi voru tilhlökkunarefni
allra í fjölskyldunni, þannig leið
BLOM I BLIÐU OG STRIÐU
^67 U 70
Kransar • Krossar
• Kistuskreytingar
Símaþjónusta - kreditkortaþjónusta -
sendingarþjónusta
þeim vel, að hafa allan hópinn sinn
í kring um sig.
Óskar var góður maður og greið-
ugur, okkur tengdabörnunum tóku
þau hjón sem sínum eigin og betri
og umhyggjusamari tengdaforeldra
var ekki hægt að hugsa sér.
Óskar kvæntist eftirlifandi konu
sinni, Hrefnu Líneik Jónsdóttur frá
Seljanesi, þann 14. febrúar 1948
og eignuðust þau fimm börn. Þau
eru Halidór vélstjóri, kona hans er
Helga Björnsdóttir og eiga þau þijú
börn; Stefán vélstjóri, kona hans
er Arnfríður Hansdóttir og þau eiga
tvö börn; Svavar trésmiður, kona
hans er Guðný Eiríksdóttir og þau
eiga fimm börn; Nína Sólveig sjúkr-
aliði, iiennar maður er Kristján
Bergsson og eiga þau ijögur börn;
Jón Hrafn málari, kona hans er_
Guðbjörg Guðmundsdóttir og eiga
þau tvö börn.
Mikill er missir tengdamóður
minnar því samhentari hjón var var
varla hægt að hugsa sér. Ég minn-
ist Óskars með virðingu og þakk-
læti. Elskulegri tengdamóður minni
og öllum ástvinum Óskars votta ég
mína innilegustu samúð.
Helga Björnsdóttir
BLÓM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími689070.
t
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÁRNI ÞORGRÍMUR KRISTJÁNSSON
fyrrv. forstjóri,
Bjarmalandi 1,
verður jarðsetturfrá Bústaðakirkju miðvikudaginn 5. júnikl. 13.30.
Sigríður Sveinbjarnardóttir,
Árnbjörg Árnadóttir,
Sigrún E. Árnadóttir, Eggert Atlason,
Kristján Árnason, Sigríður Þórhalisdóttir
og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð-
arför
ÁRMANNS JAKOBSSONAR
frá Tálknafirði,
Álftahólum 4.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar Krabbameinsfé-
lagsins.
Jóndís Einarsdóttir,
Jónína Vigdís Ármannsdóttir, Einar Brandsson,
Jakob Einar Ármannsson, Guðjóna Ólafsdóttir,
Erla Svandís Ármannsdóttir, Þórarinn Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Bróðir okkar, mágur og frændi,
VIGFÚS JÓNSSON,
Austurgötu 31,
Hafnarfirði,
verður jarðsuriginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 5. júní
kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd.
steinunn I. jonsdottir,
Magnús Jónsson,
Ásta V. Jónsdóttir,
Sigríður Áslaug Jónsdóttir,
Gunnar Kr. Jónsson,
Jón Gestur Jónsson,
Sigrún Einarsdóttir,
Haukur Jónsson,
Hörður Jónsson,
Einar Þórir Jónsson,
og systkinabörn.
uuujuii oiyuijuiibbuil,
Elin Guðjónsdóttir,
Hermann Björnsson,
Margrét Eyþórsdóttir,
Rósa Arnórsdóttir,
Yngvi Guðmundsson,
Guðný L. Jóhannsdóttir,
Kristin S. Guðmundsdóttir,
Guðrún Magnúsdóttir