Morgunblaðið - 04.06.1991, Síða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 1991
HATIÐAHOLD A SJOMANNADAGINN
Vígsla færeyska sjómannaheimilisins:
Var gefið nafnið Sjó-
mannaheimilið Örkin
FÆREYSKA sjómannaheimilið
var vígft sl. sunnudag og hlaut það
nafnið Sjómannaheimilið Örkin.
150 géstir, íslendingar og Færey-
ingar, voru við vígsluathöfnina og
kom 20 manna hópur frá Færeyj-
um í þeim erindagjörðum. Jákup
Kass, sóknarprestur í Nessókn í
Færeyjum, vígði kirkjuna, en hann
er jafnframt formaður sjómanna-
trúboðsins í Færeyjum.
Fyrir framan Sjómannaheimilið í
Skipholti blöktu fánar Færeyja og
Islands við hún. Athöfnin hófst með
því að færeyskir sálmar voru sungn-
ir og flutti Johann Olsen sjómanna-
trúboði ræðu, en hann er sá sem
veitt hefur heimilinu forstöðu og
verið aðaldriffjöðurin í langri bygg-
ingarsögu heimilisins. Hann lætur
nú af störfum við heimilið en við
tekur Símin Hansen og kona hans
Elín, en þau eru frá Skopun.
Um kvöldið var opið hús í Örkinni
og kom þangað margt fólk. Johann
Olsen sagði í samtali við Morgun-
blaðið að nafn heimilisins væri sótt
til Gamla testamentisins, þar sem
Ljósmynd/Kristinn Martein Petersen.
Fánar blöktu við Sjómannaheim-
ilið Örkina í Skipholti.
segði frá Örkinni hans Nóa. Sjó-
mannaheimilið væri eins og Örkin
hans Nóa að því leyti að hún var
ekki smíðuð fyrir neina sérstaka
dýrategund. Eins er Sjómannaheim-
ilið Örkin fyrir alla sjómenn frá öllum
löndum.
Við vígsluathöfnina færði Óskar
Vigfússon formaður Sjómannasam-
bandsins kveðjur þess og peninga-
gjöf. Hann benti á að vígsla heimilis-
ins bæri upp á fejómannadaginn og
árnaði heimilinu og forráðamönnum
þess heilla í starfi.
Smábátahöfn vígð í Vogum
MIKIL þátttaka var við hátíðar-
höld sjómannadagsins í Vogum,
sem fram fóru í hátíðarveðri,
hægum vindi og steikjandi hita.
Hátíðarhöldin hófust á skemmti-
siglingu um Stakksfjörð á Þuríði
Halldórsdóttur GK í boði útgerðar-
innar og áhafnar skipsins.
Flotbryggjur fyrir smábáta voru
formlega teknar í notkun. Við það
tækifæri flutti Jóhanna Reynisdóttir
sveitarstjóri ávarp, og lýsti fram-
kvæmdum og Guðmundur í. Ágústs-
son formaður félags smábátaeigenda
tók til máls og þakkaði fyrir framtak-
ið. Séra Bragi Friðriksson sóknar-
prestur vígði síðan höfnina og flutti
blessunarorð. Flotbryggjumar við
smábátahöfnina í þessum áfanga eru
alls 13. Höfninni hefur verið gefið
nafnið Jónsvör eftir Jóni H. Kristj-
ánssyni heitnum, fyrrum formanni
félags smábátaeigenda. sem var aðal
baráttumaðurinn fyrir gerð smábáta-
hafnarinnar.
Guðmundur í. Ágútsson klippti á
borða til merkis um það að smábáta-
höfnin Jónsvör væri formlega tekin
í notkun.
- E.G.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Séra Bragi Friðriksson blessar smábátahöfnina Jónsvör í Vogum.
Verð með ísetningu
60 AH kr. 4.800,-
• EINHOLTI 6 •SÍMI 618401
Stykkishólmur:
Góð þátttaka í hátíðarhöldunum
Stykkishólmur.
Fimmtugasti sjómannadagur-
inn sem hér hefur verið haldinn
var hátíðlegur í Stykkishólmi
síðastliðinn sunnudag og öll
þessi ár hefur ekki einn einasti
fallið úr. Sama formið að mestu
leyti allan tímann og góð þátt-
taka og aldrei betri en nú, enda
verið að minnast merks áfanga
og þá var nú veður ekki ama-
legt. Formaður sjómannadags-
ins í Stykkishólmi var Viðar
Björnsson skipstjóri og hafði
duglegan herskara með sér.
Hátíðahöldin hófust með göngu
í kirkju kl. .11 þar sem sr. Gísli
Kolbeins prédikaði og kór kirkj-
unnar söng.
Eftir hádegi fóru svo fram há-
tíðahöld á íþróttavellinum og þar
safnaðist að múgur og margmenni
og mikið hlaupið og keppt. Þaðan
var svo gengið í skrúðgöngu til
hafnarinnar með Lúðrasveit
Stykkishólms í broddi fylkingar en
stjórnandi hennar nú er Daði Þór.
Landhelgisgæslan og olíuskipið
Kyndill heiðruðu sjómenn með
næveru skipa sinna og var það
ánægjuauki dagsins. Þegar að
höfninni kom var stefnt að smá-
bátahöfninni, sem er ein ágætasta
sinnar tegundar og þar voru ýmis-
konar þrautir og sund.
Fánar blöktu við hún um alla
höfn og allan bæ og setti það mik-
inn svip á. Um kvöldið var há-
tíðinni haldið áfram á hótelinu og
félagsheimilinu, með borðhaldi,
gamanvísum og fleiri atriðum og
svo auðvitað dansi á eftir. Að allra
dómi var þetta ein mesta þátttaka
sem verið hefur hingað tiL
- Arni.
Morgunblaðið/Árni Helgason
Mikið var um að vera við höfnina í Stykkishólmi á sjómannadaginn.
Margir Suðurnesjamenn lögðu leið sína niður að höfn á sunnudaginn.
Blíðuveður og góð aðsókn
Keflavík.
SJÓMANNADAGURINN var
haldinn hátíðlegur í Keflavík
venju samkvæmt, en að þessu
sinni var veður óvenju gott
miðað við síðustu ár. Hátíðar-
höldin hófust við minnismerki
sjómanna þar sem íslenski
fáninn var dreginn að húni og
síðan var haldin sjómanna-
messa í Keflavíkurkirkju. Eftir
hádegi var farið i skemmtisigl-
ingu með börn og að því Ioknu
fóru fram hin hefðbundnu hát-
íðarhöld við höfnina.
Hátíðarræðuna flutti Snorri
Gestsson formaður skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Vísis og
minntist hann sérstaklega Kristj-
áns Ingibergssonar skipstjóra,
fyrrum formanns félagsins, sem
lést í fyrra. Snorri sagði að stofn-
aður hefði verið minningarsjóður
í nafni Kristjáns sem hefði látið
björgunarmál mikið til sín taka
og væri hlutverk sjóðsins að
styrkja björgunar- og slysavarnir.
Um hagsmunamál sjómanna
sagði Snorri að afnema þyrfti olíu-
skattinn og koma þyrfti í veg fyr-
ir brask með kvóta eins og nú
ætti sér stað í miklum mæli.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Þeir komu hnífjafnir í mark í stakkasundinu eftir mikla og
skemmtilega keppni. Svanur H. Árnason til vinstri og Jóhann
Öm Ingason til hægri, en óvenju góð þátttaka var í greininni
að þessu sinni. Keppt hefur verið um bikarinn sem Jóhann Örn
heldur á síðan 1933.
Jón Rúnar Árnason formaður
Vélstjórafélags Suðurnesja heiðr-
aði þijá aldraða sjómenn, Her-
mann Helgason, Jóhann Dalberg
Sigurðsson og Sigurð Finnboga-
son. Þá fór fram kappróður, reip-
tog, tunnuhlaup, stakkasund og
koddaslagur. Einnig kom þyrla
frá vamarliðinu á Keflavíkurflug-
velli og sýndi björgun úr sjó.
BB