Morgunblaðið - 07.06.1991, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1991
13
* Rekstur Áhaldahússins dreginn
saman.
* Félagsleg þjónusta minnkuð veru-
lega.
* Fjárveiting Vinnuskólans lækkuð
um 13 m.kr.
* Nauðsynlegu viðhaldi fasteigna
ekki sinnt.
* Fargjaldastyrkur námsmanna
stórlækkaður.
* Verklegar framkvæmdir nánast
engar.
Afleiðing slíkra vinnubragða birt-
ist á fjölmörgum sviðum bæjarfé-
lagsins í dag. Bráðnauðsynlegar
framkvæmdir vegna vatnsveitu og
skólpútrásar verða að víkja. Marg-
háttuð félagsleg þjónusta við unga
sem aldna er sko'rin niður. Viðhald
fasteigna bæjarins stórlega vanáætl-
að og nánast engar verklegar fram-
kvæmdir í bænum. Nýlega framlagð-
ir ársreikningar Hafnarfjarðar fyrir
árið 1990 staðfesta að öllu leyti það
sem sjálfstæðismenn sögðu fyrir síð-
ustu bæjarstjómarkosningar um
fjármálastjórn bæjarins og Alþýðu-
flokksmeirihlutinn hafði neyðst til
að viðurkenna með framlagningu
fjárhagsáætlunar fyrir árið 1991.
Höfundur er viðskiptafræðingur
ogbæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.
einn verið á framfæri foreldranna.
Nýju reglumar kveða nefnilega á um
að t.d. reykvískur námsmaður, sem
á foreldra í Reykjavík, fái lán eins
og hann búi í heimahúsum, en þau
lán nema 34.000 kr. á mánuði. Með
þessu er gert ráð fyrir að allir reykv-
ískir háskólanemar eigi nógu efnaða
foreldra til að þeir geti haldið þeim
uppi með fæði og húsnæði. Þeir sem
ekki eiga fjársterka bakhjarla, og
þurfa að sjá fyrir sér sjálfír, en eiga
foreldra í Reykjavík fá þannig 34.000
krónur í lán.
Menntastefna Sjálf-
stæðisflokksins
Það er athyglisvert hvað Sjálf-
stæðisflokkurinn er fjandsamlegur
námsmönnum. Síðasta skerðing
námslána var gerð í menntamálaráð-
herratíð Sverris Hermannssonar, og
á undan honum hafði Ragnhildur
Helgadóttir einnig lækkað lánin.
Þeim skerðingum skilaði Svavar
Gestsson til baka. Síðan gerist það
að sjálfstæðismenn komast aftur í
stjóm, og ekki líða nema fáeinar vik-
ur þar til menntamálaráðherra og
fjármálaráðherra sjálfstæðismanna
hafa enn rekið hnífinn í bakið á
námsmönnum. Þess ber einnig að
geta að í Sjálfstæðisflokknum em
margir sem vilja torvelda stúdentum
að stunda háskólanám með því að
taka upp hæstu nafnvexti á lánin,
eða með því að afnema lánakerfið
og taka upp skólagjöld.
Stefna Sjálfstæðisflokksins í
menntamálum er skýr: flokkurinn
vill afnema jafnrétti til náms. Sjálf-
stæðismenn ætla að sjá til þess að
þeir einir geti stundað háskólanám
sem eiga efnaða aðstandendur sem
styðja við bakið á þeim. Við þessu
verða námsmenn að bregðast.
Höfundur er heimspekinemi í
Háskóla íslands.
WIKA
Allar stæröir og geröir
itooteiiyiiw iJjémssisw & ©® M.
'esturgötu 16 - Simar 14680-132«
Sterkur og tæknilegur
nú á frábæru verði
VMna nýrra og hagstæðra samninga viS fram-
leioendur FIATAGRI getum viS nú boöiö hann á
geysilega hagstæðu verði.
FIATAGRI hefur undanfarin ár veriö mest selda
dráttarvélin í Evrópu.
FIATAGRI er einstaklega lipur og hannaður með
notandann í huga, húsiö er þægilegt, öruggt og
mjög vel hljóðeinangrað, með stórum gluggum
sem gefa mikla vfirsýn. Sætið er þæailegt með
örmum og er stiílanlegt eftir þörfum nvers og
eins, stýrio sömuleiðis. Auðvelt er að komast
að öllum stjórntækjum sem gerir gæfumuninn
á löngum vinnudegi.
Vökvalyftukerfi FIATAGRI er ótrúlega fjölbreytt,
lipurt og þolir langa og mikla notkun við
erfiðustu skilyrði.
FIATAGRI er einn ódýrasti kosturinn í
V-Evrópskum dráttarvélum því tæknibúnaður
er meiri en í sambærilegum vélum. Til að mynda:
* Bremsur á öllum hjólum..
* "High speed" gírkassi, samhæfóur og gírstöng
staðsett hægra megin við ökumanninn.
* 40 km. hámarkshraði.
Veltistýri með hæðastillingu.
Vendigír.
Hafið samband við sölumenn okkar,
umboðsmenn um land allt.
* Vélar með fjórhjóladrifi
FIATAGRI 70-90 DTC fjórhjóladrifinn 70 hestöfl.
Verð kr. 1.580.000.
FIATAGRI 80-90 DTC fjórhjóladrifinn 80 hestöfl.
Verð kr. 1.650.000.
I
NÝR DAGUR AUGL ÝSINGAST0FA