Morgunblaðið - 07.06.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1991
19
Umhverfisverkefni á veg-
um ungmennafélaganna
Aðildarfélög Ungmennafélags
Islands munu, um næstu helgi,
hefja viðamikið umhverfisvernd-
arverkefni sem ber heitið Fóstur-
börnin. Verkefnið felst í því að
hvert ungmennafélag tekur að
sér umhverfisvernd á vissu svæði
og tekur það í fóstur ef svo má
að orði komast. Ætlunin er að
verkefnið standi að minnsta kosti
yfir í þrjú ár en markmið þess
er að efla alhliða umhverfisvernd
Skagafjörður:
Vísitasíu biskups að \júka
BISKUP íslands, herra Ólafur Skúlason, Iýkur nú um helgina vísít-
asíu sinni í Skagafjarðarprófastsdæmi, sem hófst á Sauðárkróki
þann 26. mai síðastliðinn.
Biskup vísiteraði Hofskirkju og
Garfarkirkju í gær og hitti sóknar-
fólk að máli og í dag, föstudag 7.
júní, heimsækir biskup söfnuði
Hvammskirkju og Ketukirkju á
Skaga.
I vísitasíunni í Skagafjarðarpró-
fastsdæmi heimsækir biskup alla
söfnuði prófastsdæmisins, 21 að
töiu. Þá predikar biskup í 28 guðs-
þjónustum og helgistundum.
t Með biskupi í för er eiginkona
hlans, frú Ebba Sigurðardóttir, og
þþ. einnig prófastur Skagfírðinga,
sqra Hjálmar Jónsson á Sauðár-
kiióki.
Arne Noe-Nygárd
prófessor látínn
á íslandi.
Ungmennafélögin eru 245 talsins
og hafa um 45.000 manns innan
sinna vébanda. Að sögn Guðrúnar
Sveinsdójtur verkefnisstjóra hafa
nú þegar 200 félög skráð sig til
þátttöku og valið sér „fósturbarn.“
Hveiju félagi er í sjálfsvald sett
hvernig umhverfisverkefni það tek-
ur að sér en algengt er að félög
sjái um gróðursetningu á ákveðnu
svæði, fjöruhreinsun eða hreinsun
meðfram vegarkafla. Af hálfu
UMFÍ er mikil áhersla lögð á að
átakið standi ekki einungis þessa
helgi, heldur sjái hvert félag áfram
um sitt svæði.
Ungmennaféiögin hafa gengið til
samstarfs við fjölda aðila sem tengj-
ast verkefninu á einn eða annan
hátt. Landgræðsla ríkisins hefur
veitt ungmennafélögum fræðslu auk
þess sem hún leggur fram áburð
og grasfræ til allra félaga sem
hyggja á landgræðslu vegna átaks-
ins. Auk þess hafa Náttúruverndar-
ráð, Ferðamálaráð, Skógrækt ríkis-
ins og ýmsar sveitarstjómir veitt
ungmennafélögunum lið vegna
verkefnisins.
Morgunblaðið/Sverrir
Áhugasamir vegfarendur virða fyrir sér gömlu munina.
Uppboð á gömlum
íslenskum munum
70 íslenskir munir frá 1750 til 1900 verða boðnir upp á vegum
Klausturhóla í Norræna húsinu á sunnudaginn klukkan 17.00. Marg-
ir munanna eru eldhúsáhöld og verkfæri.
Meðal þeirra muna, sem boðnir söðull og strokkar. Á uppboðinu
verða upp á sunnudaginn, eru askur verða einnig yngri munir. Má þar
frá 1860, ljósberi frá 19. öld, kola- nefna straujárn, kaffikvöm og
töng, ristlur, netanál úr beini, kven- vöflujárn.
ARNE Noe-Nygárd, prófessor í
jarðfræði við Kaupmannahafnar-
háskóla, er látinn á 83. aldursári.
Arne Noe-Nygárd var mikill Is-
landsvinur og kom margoft til lands-
ins. Fyrstu rannsóknarför sína hér-
lendis fór hann ásamt Jóhannesi
Askelssyni, Pálma Hannessyni og
fleirum árið 1936 og rannsakaði þá
vegsummerki Grímsvatnagossins
1934. Hann var einn aðalhvatamað-
ur að stofnun Norrænu eldfjalla-
stöðvarinnar í Reykjavík, en hún var
sett á stofn 1973, og fyrsti stjómar-
formaður stöðvarinnar.
Seinast kom Arne Noe-Nygárd
til Islands árið 1989 og hélt þá er-
indi á 100 ára afmælishátíð Nátt-
úrufræðistofnunar Islands og Hins
íslenska náttúrafræðifélags. Hann
var formaður Sáttmálssjóðsins í
Kaupmannahöfn 1965-1982 og fé-
lagi í Vísindafélagi Islendinga. Hann
var sæmdur stórriddarakrossi Hinn-
ar íslensku fálkaorðu árið 1978.
Arne Noe-Nygárd var prófessor
við Kaupmannahafnarháskóla
1942-1978. Hann var virkur í
dönsku andspymuhreyfingunni og
meðlimur í Frelsisráði Dana. Um
tíma sat hann í stjórn Carlsbergs-
sjóðsins. Eftir hann liggur fjöldi rit-
gerða um eldfjallafræði og berg-
fræði auk tveggja kennslubóka í
jarðfræði og alþýðlegra bóka um
viðfangsefnið.
Útför Ame Noe-Nygárd verður
gerð í dag.
ÖRUGGUR EINIBÍIIJNN HÉRLENDIS
& AFLMIKILL MEÐ ÖRYGGISPÚÐA í STÝRINU
í Chevrolet Corsica LT fer saman styrkur,
öryggi og hagstœtf verð. Þessi rúmgóði
fjögurra dyra lúxusvagn sameinar kosti
fjölskyldubíls og sporfbíls.
Hann er aflmikill, innrétting vönduð og
farþegarýmið er sérstaklega styrkt.
’Nýskráning. skráningarmerki og ryðvöm eru ekki innifálin
í verðinu.
Auk þess er Chevrolet Corsica LT eini
bíllinn á markaðnum sem er útbúinn
með öryggispúða í stýrinu, sem blœs
út við högg og veitir bílstjóranum vernd.
Hann er sjálfskiptur, framhjóladrifinn,
hljóðlátur og verðið er ótrúlega hag-
stœtt fyrir alvöru amerískan fólksbíl.
kr. 1.375.000 staðgr.*
HÖF0ABAKKA 9 112 REVKJAVIK SIMi 91-670000 og 674300