Morgunblaðið - 07.06.1991, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1991
ATVINNIIA UGL YSINGAR
Veitingahúsið
Naustið hf.
Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir að
ráða starfsfólk í eftirtalin störf:
1. Matsvein til afleysinga í júlímánuði.
2. Aðstoðarfólk í eldhús.
3. Aðstoðarfólk við framreiðslu í sal.
Upplýsingar aðeins veittar á staðnum milli
kl. 17-19.
RESTAURANT
Tækjamaður
- sumarafleysing
Óskum eftir manni á steypudælu strax.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
13. júní merktar: „P - 8888“.
Ritari
Laus er staða ritara (100% starf) í viðskipta-
ráðuneytinu. Skilyrði er að viðkomandi hafi
gott vald á íslensku, ensku, dönsku, og rit-
vinnslukerfinu Orðsnilld (Word perfect).
Umsóknir sendist viðskiptaráðuneytinu fyrir
föstudaginn 14. þ.m. ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf.
Viðskiptaráðuneytið, 5. júní 1991.
Ritari
Við leitum að starfskrafti sem getur hafið störf
sem fyrst. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálf-
stætt og geta haft frumkvæði í starfi.
Starfið ferlst m.a. í:
Ritvinnslu (WP), innlendar og erlendar
bréfaskriftir, og skjalavörslu.
Viðkomandi starfskraftur þarf að hafa
reynslu á þessu sviði og æskilegt er að við-
komandi sé með stúdentspróf.
Vegna mikilla erlendra samskipta er mjög
góð enskukunnátta skilyrði.
Umsóknir óskast sendar til auglýsingadeildar
Mbl. merktar: „S - 7876“ fyrir 10. júní.
Tækjamaður
- sumarafleysing
Óskum eftir vönum manní á traktorsgröfu
strax.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
13. júní merktar: „T - 8853“.
Járnsmiðir
- vélvirkjar
Óskum eftir að ráða til starfa nú þegar járn-
smiði og vélvirkja vana dieselvélaviðgerðum.
Upplýsingar í síma 52015 milli kl. 10 og 13.
Skipalón hf.,
Hafnarfirði.
Kennarar - kennarar
Grunnskóli Bolungarvíkur auglýsir eftir kenn-
urum sem hér segir:
1. Almenn kennsla í 1.-7. bekk (nokkrar
stöður).
2. íþróttir (1 staða).
3. Mynd- og handmennt (1-11/2Staða).
4. Tónmennt (hálf staða).
5. Heimilisfræði (Vz-^hsXaða.
6. Samfélagsgreinar í 8.-10. bekk.
7. Enska í 7. og 8. bekk.
8. Sérkennsla (2/3Staða).
Ágæt vinnuaðstaða fyrir kennara í nýju hús-
næði. - Fyrsta flokks aðstaða til kennslu í
leikfimi og sundi. - Bæjarstjórn útvegar
kennurum húsnæði og stillir leigu í hóf. -
Flutningsstyrkur og staðaruppbót.
Upplýsingar hjá skólastjóra í símum 94-7288
og 7249.
Skólanefnd.
FJÓRDUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
A AKUREYRI
Sérfræðingur í geðlækningum óskast til
starfa á geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri frá 15. september 1991.
Um er að ræða afleysingastöðu til 15. júní
1992, sem hugsanlega verður framlengd.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí 1991.
Umsóknir um stöðuna sendist Sigmundi
Sigfússyni, yfirlækni geðdeildar F.S.A., og
gefur hann allar nánari upplýsingar.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Frá
Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkurumdæmis
Við Öskjuhlíðarskóla eru lausar stöður kenn-
ara til sérkennslu yngri barna.
Umsóknarfrestur er til 20. júní.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Einar
Hólm Ólafsson, í síma 689740.
Fræðslustjóri Reykjavíkurumdæmis.
Kennarar
Heiðarskóla í Leirársveit vantar 3-4 kennara.
Ódýrt húsnæði, frír hiti. Tilvalið fyrir hjón.
Einsetinn grunnskóli, mötuneyti, sundlaug,
íþróttahús og góður leikvöllur.
Helstu fjarlægðir: Reykjavík 95 km,
Akranes 19 km,
Borgarnes 25 km.
Hafið samband við Birgi í síma 93-
38926/38920 eða Rúnar í síma 38927.
Skólanefnd.
Siglufjörður
Blaðberar óskast í Suðurgötu.
Upplýsingar hjá umboðsmanni ísíma 71489.
fktargimMiiMfr
Ferðaskrifstofa
vill ráða starfskraft vanan farseðlaútgáfu til
sumarstarfa.
Umsóknir sendist á auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „F -3942“, fyrir kl. 17.00 í dag.
Organisti
Söfnuður á Stór-Reykjavíkursvæði óskar að
ráða organista til starfa.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Organisti - 7875“ fyrir 12. júní
1991.
KVÓTI
Kvóti: Fiskur - rækja
Til sölu varanlegur kvóti frá næsta kvótaári.
Þorskur 125 tonn, ýsa 20 tonn, grálúða 11
tonn og skarkoli 8 tonn. Auk þess ca 100
tonn af rækju þessa árs.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Kvóti - 13146“ fyrir 12. júní.
TIL SÖLU
Til sölu
Af sérstökum ástæðum er til sölu ný Case
580K 4x4 Turbo traktorsgrafa á aðeins kr.
3.220 þús. + vsk.
Flytjum inn nýjar og notaðar vinnuvélar og
varahluti í vinnuvélar.
Markaðsþjónustan,
sími 26984, fax 26904.
Pallhús á japanska pick-up bíla með öllum
búnaði. Verð 530 þús.
Pallhús á bandaríska pick-up bíla með öllum
búnaði. Verð 550 þús.
Dieselvélar 6,2 lítra, 6,9 lítra, 7,3 lítra.
Væntanlegar.
Vörubílskrani, árg. ’87, 13 T/M.
Hagstætt verð.
Vörubíll Toyota Dyna 200 með krana.
Verð 680 þús.
Vörubíll Toyota Dyna 100, árg. ’87.
Verð 720 þús.
Vörubíll Nissan Homer, árg. '81.
Verð 540 þús.
Pick-up bíll Toyota Hilux, árg. '86.
Verð 1180 þús.
Nissan Patról, árg. ’87, ekinn 40 þús. km.
Verð 1820 þús.
Willys ca-2, hækkaður, árg. ’46.
Einnig nokkur fjórhjól og vélsleðar
á hagstæðu verði.
Tækjamiðlun íslands,
Bíldshöfða 8,
sími 674727 frá kl. 9-17
og 17678 frá kl. 17-21.
Garðplöntusala
ísleifs Sumarliðasonar, Bjarkarholti 2, Mos-
fellsbæ, auglýsir fjölbreytt úrval af rósum,
runnum, sumarblómum, fjölærum plöntum,
skógarplöntum og stórum trjám af blágreni,
sitkagreni og stafafuru á frábæru verði.
Upplýsingar í síma 667315.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Nauðungaruppboð
Þriðja og síðasta sala verður á neðangreindum eignum í Ólafs-
firði og fer fram á eignunum sjálfum miðvikudaginn 12. júní 1991.
Kl. 13.00 Vesturgata 1, efri hæð og ris, Ólafsfirði, þingl. eigandi
Friðgeir Jóhannesson.
Uppboðsbeiðendur eru Tryggingastofnun ríkisins, Magnús M.
Norðdahl hdl., Ingólfur Friðjónsson hdl. og Ólafur B. Árnason hrl.
Kl. 14.00 Hrannarbyggð 13, Ólafsfirði, þingl. eigandi Gunnólfur Árna-
son.
Uppboðsbeiðendur eru Ólafur B. Árnason hrl. og Tryggingastofnun
riksins.
Kl. 14.30 Kirkjuvegur 15, efri hæð, Ólafsfirði, talin eign Þrúðar M.
Pálmadóttur.
Uppboðbeiðendur eru Árni Pálsson hdl., Ólafur B. Árnason hrl.,
Ásgeir Thoroddsen hrl., Ólafsfjarðarkaupstaður og Byggingasjóður
ríkísins.
Bæjaiiógetinn i Óiafsfirði.