Morgunblaðið - 07.06.1991, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1991
íþrótta- o g útivist-
ardagxir með fjöl-
breyttri dagskrá
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Akureyrar efnir til útivistardags á
morgun, laugardag, og verður fjölmargt um að vera víða um bæ-
inn, sýningar, íþróttakeppnir, göngu- og hjólreiðaferðir, sigiingar
og kynningar á hinum ýmsu greinum íþrótta.
Dagskráin hefst í göngugötunni og verður gestum boðið í sjóferð.
með ávarpi Sigurðar J. Sigurðs-
sonar formanns bæjarráðs, Blás-
arasveit Tónlistarskólans leikur,
þá verður fimleikasýning, júdó og
keppni í boccia auk keppni á rúllu-
skíðum. Heilsuhlaup Krabba-
meinsfélagsins hefst kl. 12. Dag-
skrá fyrir eldri borgara sem og
allan almenning verður í Kjama-
skógi.
Reiðskólinn kynnir starfsemi
sína að Hamraborgum og þar
verður húsdýrasýning og hestar
til reiðu fyrir börnin. A svæði Létt-
is í Breiðholti verður keppni í
hestaíþróttum á föstudagskvöld
og á laugardag. Keppt verður um
Gullsmíðabikarinn í golfi að Jaðri
um helgina og kynning og kennsla
í golfi verður þar einnig.
Ferðafélag Akureyrar efnir til
gönguferðar upp að Fálkafelli,
suður Löngukletta og niður í
Kjamaskóg kl. 13 á laugardag.
Siglingaklúbburinn Nökkvi
kynnir starfsemi sína við Höepfner
Á Bjargi verðar kynntar ýmsar
íþróttagreinar, vegg- og borðtenn-
is, boccia og fleira og í íþróttahús-
inu við Laugagötu verður kynning
á innanhúss bandy. Ungmennafé-
lag Akureyrar kynnir fijálsar
íþróttir á íþróttavelli og þar verður
einnig keppt í hlaupi.
Á íþróttasvæðum Þórs og KA
verður kynning á starfsemi félag-
anna, knattspyrnuskólum, leikja-
og íþróttanámskeiðum sem þar eru
í gangi. Ókeypis verður í sundlaug-
ar bæjarins, en við sundlaug Akur-
eyrar verða veittar leiðbeiningar í
tennis og upplýsingar um þríþraut.
-V.'V /• -'--V --u
V V-/L ■ g
■' u ■- - í-irAvc-"-: vV
-- -'A,-VtöF
Kaffibrúsakallar
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fremur svalt hefur verið í veðri norðanlands síðustu daga, en þeir Gestur, Kristján og Birgir, starfs-
menn Rafveitu Akureyrar, létu það sem vind um eyru þjóta þó á þá blési að norðan. Tóku brúsa sína og
yljuðu sér á sjóðheitu kaffinu milli þess sem þeir unnu við að færa spennistöð sem verið hefur í bakhúsi
við Skipagötu, en hún verður flutt í hitaveituhúsið.
Meirihlutinn í bæjarstjórn Ólafsfjarðar:
Fyrirlestur
um steralyf
og íþróttir
ARI Jóhannesson, sérfræð-
ingur í innkirtlasjúkdómum,
flytur fyrirlestur um stera-
lyf °S íþróttir annað kvöid,
fösjoidagskvöld, í Félags-
miðstöðinni í Lundarskóla.
Fyrirlesturinn hefst kl.
20.30, en til hans boða
íþróttabandalag Akureyrar,
íþrótta- og tómstundaráð Ak-
ureyrar og Héraðslæknirinn á
Norðurlandi eystra. Fyrirlest-
urinn er öllum opinn, en forr-
áðamenn félaga og stofnana
em sérstaklega hvattir til að
sækja hann.
Þrír aðalfulltrúar leggja til
að bæiarsijóra verði sagt upp
ÞRÍR aðalfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Ólafsfjarðar
leggja til að bæjarstjóra Ólafsfjarðar, Bjarna Kr. Grímssyni, verði
sagt upp störfum. Fjórði fulltrúinn, sem er forseti bæjarstjórnar,
er erlendis og leggja fulltrúarnir þrír til að þetta mál verði afgreitt
á lokuðum bæjarstjórnarfundi er hann snýr til baka. Bæjarmálaráð
Sjálfstæðisflokksins í Ólafsfirði gerði á fundi sínum á mánudag
samþykkt, um starfslok bæjarstjórans í Ólafsfirði, Bjarna Kr. Gríms-
sonar, og var samþykktin var gerð með 7 atkvæðum og einn sat
hjá. Voru Bjarna boðnir tveir kostir varðandi starfslokin, en hann
hnfnaði báð-
bæjarstjóm, Kristín Trampe, Sig-
urður Björnsson og Þorsteinn Ás-
geirsson, leggja til að honum verði
sagt upp störfum. „Slíka ákvörðun
viljum við ekki taka að oddvita
Sjálfstæðisflokksins og forseta
bæjarstjómar fjarstöddum, en
hann er erlendis. Við munum því
leggja til, strax og hann er kominn
heim, að boðað verði til lokaðs
bæjarstjórnarfundar til að taka
ákvörðun í málinu,“ segir í tilkynn-
ingunni. Þar er jafnframt hörmuð
sú fjölmiðlaumræða sem orðið hef-
ur um málið og kemur fram að
bæjarfulltrúar flokksins muni ekki
ræða við fréttamenn um málið fyrr
en það er til lykta leitt.
Bæjarmálaráð Sjálfstæðis-
flokksins í Ólafsfirði sendi frá sér
tilkynningu í gær, þar sem þetta
kemur fram. Ástæður þess að
meirihlutinn í bæjarstjóm Ólafs-
flarðar gerði þessa samþykkt em
ekki tilgreindar í tilkynningunni
og vildu aðilar málsins ekki tjá sig
þar um.
Þeir kostir varðandi starfslok er
bæjarstjóra vom boðnir vom ann-
ars vegar að segja upp starfí sínu
og vinna uppsagnarfrestinn, 6
mánuði án skerðingar á starfs-
sviði, og hins vegar að starfa sem
bæjarstjóri í eitt ár og starfssvið
hans þrengt, á þann hátt að form-
aður bæjarráðs og forseti bæjar-
stjórnar kæmu í auknum mæli
fram fyrir hönd bæjarins, á-svipað-
an hátt og gildir á Akureyri.
í tilkynningu bæjarmálaráðs
kemur fram að bæjarstjóri hafí
hafnað báðum þeim starfslokum
sem honum vom boðnir og munu
aðalfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
Sumarsýmng opnuð í
íþróttahöllinni í dag
Samanburður á verði matvöru í Manchester og á Akureyri:
Verðmunur 200 til 700%
MISMUNUR á verði á einu kílói af hamborgnrum annars vegar
í Manchester i Englandi og hins vegar á Akureyri er 764%, en
þar ytra kostaði kílóið af þessari vörutegund 102 krónur í apríl
síðastliðnum, en 881 krónu á Akureyri. Þetta kemur fram í
verðsamanburði á matar- og drykkjarvöru sem gerður var á
þessum tveimur stöðum og Neytendafélag Akureyrar hefur
sent frá sér. Félagið fékk í hendur lista yfir verð á ýmsum
vörutegundum frá Michael Clarke tónlistarkennara á Akureyri,
sem nú dvelur í Manchester, og gerði af því tilefni könnun á
verði samskonar eða sambærilegra vara á Akureyri. Verðmunur
á þessum stöðum ér yfirleitt á bilinu frá 200 til 700%.
Fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Vilhjálmi Inga Ámasyni
formanni Neytendafélags Akur-
eyrar að tildrög þessa verðsam-
anburðar séu sú, að á liðnum
vetri hafí Michael Clarke haft á
orði, að fjögurra manna fjöl-
skylda sem notaði um 70 þúsund
krónur til matarkaupa á Islandi
þyrfti um 20 þúsund til samskon-
ar innkaupa í Englandi. Hann
hafi síðan sent heim verðlista frá
matvöruverslunum í Manchester
og Neytendafélagið í framhaldi
af því kannað verð á sömu, eða
„sambærilegum" vörum á Akur-
eyri.
Niðurstaðan virðist staðfesta
að tvisvar til þrisvar sinnum dýr-
ara sé að kaupa í matinn á Akur-
eyri en í Manchester. „Við neyt-
endur getum því staldrað við og
spurt okkur að því hvort þessi
mikli verðmunur er nauðsynleg-
ur,“ segir í tilkynningu Vilhjálms
Inga, en hann bendir á að virðis-
aukaskattur sé greiddur af mat-
vöru á íslandi en ekki Englandi.
Það skýri hins vegar einungis
25% verðmun, afgangurinn fari
í milliliði.
Ein vörutegund, strásykur, var
ódýrari á Akureyri en í Manc-
hester eða sem nam 22% og seg-
ir Vilhjálmur Ingi að ef hægt sé
að flytja hann til landsins og
selja lægra verði en á Englandi
hljóti slíkt hið sama að gilda um
aðrar vörur. „Til þess að það
verði, þarf að lækka hömlulitla
álagningu hjá hinum ýmsu milli-
liðum, því það eru aðallega þeir
en ekki verslanir sem spenna
verðið upp,“ segir í tilkynningu
Neytendafélagins.
FIMMTÍU aðilar taka þátt í sýn-
ingu sem opnuð verður í Iþrótta-
höljinni á Akureyri í dag kl. 17.
Á sýningunni, sem ber yfir-
skriftina Sumarsýning, verða
kynntar vörur framleiddar í
bænum og þjónusta sem í boði
er. Flestir þátttakendur í sýn-
ingunni eru aðilar á Akureyri.
Ómar Pétursson framkvæmda-
stjóri sýningarinnar sagði að gest-
ir ættu að geta fengið góða mynd
af því sem framleitt er í bænum
sem og þeirri þjónustu sem þar
er veitt.
Sýningin verður formlega opnuð
kl. 17 í dag, Haraldur Sumarliða-
son formaður Landssambands iðn-
aðarmanna flytur ávarp, en Heim-
ir Ingimarsson formaður atvinnu-
málanefndar opnar síðan sýning-
una. Sýningin verður opin til kl.
Ferming
á
22 í kvöld og um helgina frá kl.
10 til 22.
Tískusýningar verða í gangi
sýningardagana og brugðið verður
á leik, þar sem dregnir eru út
ákveðnir gestir á sýningunni og
þeim gefinn kostur á að snúa
lukkuhjóli og vinna sér inn ein-
hvem glaðning. Þá munu sýninga-
raðilar bjóða upp á vörukynningar
og getraunir í básum sínum.
Fermingarguðsþjónusta verð-
ur í Bægisárkirkju sunnudaginn
9. júní kl. 13.30. Fermdar verða:
Ásdís Ármannssdóttir, Myrkár-
bakka, Hörgárdal.
Sólveig Halla Kristjánsdóttir,
Lönguhlíð, Hörgárdal.
Fínar línur
gjaldþrota
Tískuverslunin Fínar línur við
Skipagötu hefur verið úrskurðuð
gjaldþrota, en það var gert að
kröfu Akureyrarbæjar og inn-
heimtumanns ríkissjóðs.
Eyþór Þorbergsson fulltrúi hjá
bæjarfógetaembættinu á Akureyri
sagði að stjórn félagsins hefði selt
innréttingar, tæki og lager fyrir-
tækisins þann 17. maí síðastliðinn,
eða fyrir rúmum hálfum mánuði og
því væri þrotabúið eignalaust, en
verslunin er enn opin.
Verslunin var úrskurðuð gjald-
þrota að kröfu Akureyrarbæjar
vegna vangoldinna skulda við bæj-
arfélagið og einnig að kröfu inn-
heimtumanns ríkissjóðs.