Morgunblaðið - 07.06.1991, Page 33
33
Amma lifði einföldu og áhyggju-
lausu lífi nú seinni ár. Hún kunni
að njóta bæði hversdagsleikans og
stóru stundanna í lífinu og undi
glöð við sitt. Þetta eru dýrmætir
eiginleikar sem veittu hamingju og
vellíðan. Amma var heilsuhraust
og hélt starfsorkunni og lífgleðinni
fram á seinustu dagana. Mér fannst
hún aldrei verða gömul, enda naut
hún þess að vera í faðmi fjölskyld-
unnar og á því heimili sem hún
hafði helgað líf sitt.
Mér er nú efst í huga þakklæti
fyrir alla 'hlýjuna og stuðninginn
sem amma veitti mér og okkur öll-
um. Hennar mat á verðmætum lífs-
ins hefur verið ómetanlegt vega-
nesti sem ekki mun gleymast.
Góður Guð geymi ömmu í Hjálm-
holti
Sigríður Björnsdóttir
í dag, föstudag 7. júní, er til
moldar borin frá Hraungerðiskirkju
Guðmunda Guðjónsdóttir.
Mér er mikil hryggð í huga þeg-
ar ég set hér á blað nokkur orð í
virðingarskyni og þökk fyrir að
hafa fengið að kynnast svo yndis-
legri konu eins og Guðmunda var.
Það er sárt til þess að hugsa að
Munda eins og hún var alltaf kölluð
sé farin.
Hún veiktist fyrir rúmum fimm
mánuðum með þeim afleiðingum
að kallið kom. Það er erfitt að sætta
sig við það en það er huggun að
vita að henni verði vel tekið í himna-
ríkinu. Mundu kynntist ég fyrir sex
árum.
Hún reyndist mér yndisleg tengd-
amóðir, og áttum við margar
ánægjustundir saman. Oft kom hún
niður til mín og við spjölluðum sam-
an við kaffibolla. Munda var fædd
15. ágúst 1914, dóttir hjónana
Guðjóns Sigurðssonar bónda í
Hrygg og kónu hans Kristínar Láru
Gísiadóttur. Hún var elst af átta
systkinum, Sigurður, dáinn 10.
september 1988, Gísli, bóndi í
Hrygg, Ásta, búsett í Reykjavík,
Ágúst, bóndi í Hrygg, Pétur, dáinn
1. desember 1990, Guðrún, búsett
í Reykjavík, og Þorgbjörn, bóndi á
Læk. Munda var dugmikil kona,
hún átti marga og góða vini.
Snemma fór hún að hjálpa til við
bústörf heima í foreldrahúsum. Hún
fluttist að Hjálmholti árið 1936 og
fór að búa með Ólafi Ögmundssyni
bónda í Hjálmholti, síðar eigin-
manni, en þau gengu í hjónaband
1. ágúst 1949. Mann sinn missti
hún 15. febrúar 1982. Ólafur missti
heilsuna snemma og var heilsulítill
alla tíð. Munda gekk því bæði í
úti- og innistörf og ól heima þeim
hjónum 9 börn. Tvö dóu á fyrsta
ári en 7 komust til fullorðinsára,
Ágústa, fædd 6. nóvember 1937,
húsfrú í Útihlíð, gift Birni Sigurðs-
syni, þau búa í Úthlíð og eiga 4
börn. Kolbeinn, fæddur 3. júní
1940, býr í Hjámholti, Kristinn,
fæddur 10. mars 1945, bílstjóri,
giftur Guðbjörgu Sigurðardóttur,
þau búa á Selfossi og eiga 3 böm.
Kristín Lára, fædd 4. júní 1946,
bankastarfsmaður, gift Guðmundi
Jónssyni, þau búa á Selfossi og eiga
3 börn, Þormóður, fæddur 26. nóv-
ember 1951, bóndi, giftur Valdísi
Bjarnþórsdóttir, þau búa í Iijálm-
holti og eiga 3 börn. Sigurður,
fæddur 17. september 1953, bóndi
í Hjálmholti, og Bergur Ingi, fædd-
ur 12. júlí 1958, bóndi í Hjálm-
holti. Barnabörnin voru orðin 13
og barnabarnabörn 6.
Munda var alltaf létt í skapi og
var mikið fyrir ijölmenni. Það var
henni alltaf tilhlökkunarefni þegar
fjölskyldan kom saman á jóladag
og skemmti sér og drakk kaffi sam-
an. Var alltaf mikið fyrir þessum
degi haft enda voru allir glaðir og
kátir.
Munda var gestrisin kona, hún
var hlýleg og vildi öllum gera gott.
Hún var félagslynd og var virk fé-
lagskona í kvenfélaginu. Eg kveð
Mundu með sárum söknuði og
þakka henni fyrir góðar stundir.
Ég á margar yndislegar minningar
um hana áfram.
Megi Munda hvíla í friði, og guð
blessi minningu hennar.
Valdís Bjarnþórsdótlir
MORGUNBLAÐIÐ FÖ8TUDAGUR [7. JÚNÍ 1991
Adolf V. Theódórs-
son málari - Minning•
Fæddur 30. október 1914
Dáinn 23. apríl 1991
Góður vinur minn, Adolf Valdi-
mar Theódórsson, er látinn. Hann
andaðist 23. apríl síðastliðinn eftir
erfiða sjúkdómslegu og var jarð-
settur 3. maí.
Kynni okkar hófust árið 1930,
er hann hóf nám í málaraiðn hjá
sama meistara og ég var við nám
hjá, Guðbergi Johannssyni. Hann
var nokkuð umsvifamikill málara-
meistari á þess tíma mælikvarða
og hafði því oft allmikla vinnu,
þó kreppan heijaði á þennan ára-
tug.
Við Adolf urðum fljótt góðir
vinir og seinna bættust tveir góðir
nemar í hópinn, þeir Magnús heit-
inn Sæmundsson og Bjarni Karls-
son. Þessi hópur ásamt nokkrum
sveinum átti eftir að vinna saman
svo til samfleytt í þtjú ár. Það var
oft glatt á hjalla í þessum góðra
drengja hópi. Adolf var yngstur
okkar, glæsilegur ungur maður,
fríður sýnum og vel að manni.
Hann lauk námi á tilsettum tíma
árið 1934. Að námi loknu vann
hann hjá ýmsum málarameistur-
um og þótti jafnan vandvirkur og
góður fagmaður. Um nokkurra ára
skeið vann hann á skiltavinnustofu
Augusts Hákansson, sem var á
sínum tíma ein þekktasta skilta-
vinnustofa borgarinnar. Það er
ekki á allra færi að vera fjölhæfur
í skiltamálun. Þar þarf bæði næmt
auga og styrka hendi og það hafði
hann.
Á seinni árum vann hann mikið
að málun á Keflavíkurflugvelli.
Samstarfsmenn hans þar minnast
hans með söknuði sakir mann-
kosta og vandaðrar framkomu á
alla lund.
Adolf gekk í Málarasveinafélag-
ið árið 1934, en tók lítinn þátt í
félagsmálum. Það var annað sem
heillaði þennan unga mann, en það
var hljómlistin. Jafnframt málar-
Arni Þ. Kristjáns-
son - Kveðja
Sárt þótti okkur að heyra um
veikindi Árna en við bjuggumst
ekki við að heyra þessa sorgar-
frétt að kveldi 29. maí sl.
Þegar við vorum kornung var
farið reglulega í Austurbæjarbíó,
það varð að vana að ganga þar
inn og út, okkur fannst við eiga
þetta með honum, þannig var
framkoma Árna, enda kölluðum
við hann frænda. Það var þá þeg-
ar við hlökkuðum svo mjög til jól-
anna að við biðum eftir því að
koma á Bugðulæk.
Við þökkum liðnar stundir.
Systir okkar, Sigríður og maður
hennar Anton, sem nú búa í
Bandaríkjunum senda frænku
sinni og frændum samúðarkveðj-
ur.
Systkinin Haukanesi 16.
t
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÞORSTEINU HELGADÓT i JR.
Kristþór B. Helgason, Kristín I. Benediktsdóttir,
Birgir Helgason,
Valdimar Helgason, Margunnur Kristjánsdóttir,
Kristín S. Helgadóttir, Árni Njálsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GÍSLÍNU HELGU MAGNÚSDÓTTUR
Hrefna Birgitta Bjarnad., Björn Ottó Halldórsson,
Laufey K. Kristjánsd. Miljevic, Stanko Miljevic,
Helga Elísabet Kristjánsd., Aðalsteinn Sigurhansson,
Heiðrún Lára Kristjánsd., Guðmundur Guðmundsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÞÓRUNNAR SIGURÐARDÓTTUR.
Páll Jónsson,
Amalía Svala Jónsdóttir, Sigurður Karl Sigurkarlsson,
Sindri Karl Sigurðsson,
Þórunn Sigurðardóttir,
Anna Sigríður Sigurðardóttir.
anámi stundaði hann nám í hljóð-
færaleik og lék hann á saxófón.
Reyndar var hann einnig liðtækur
við píanóið. Hann lék síðan í mörg-
urn hljómsveitum, m.a. á Hótel
íslandi sem þá var og í Alþýðuhús-
inu.
Á þessum æskudögum okkar
vorum við Adolf nánir vinir. Hann
var skákmaður góður og tefldum
við töluvert mikið saman. Það
verður að segjast að oftar en ekki
fór hann með sigur af hólmi; „mát
góði“!
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu biaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Við vorum ellefu ungir menn
sem stofnuðum saman klúbb er
við nefndum Kippan ellefu. Tak-
mark klúbbsins var að halda hóp-
inn og efla góða vináttu, hittast
heima hjá einhverjum okkar eða
hittast niðri á Hotel íslandi, en
þar áttum við sérstakt borð og
komum þar oft saman. Tveir úr
hópnum voru góðir hagyrðingar
og ortu mikla drápu um meðlim-
ina.
Adolf var fremstur í tónlistinni,
hann samdi lag sem hann nefndi
Kippu. '’sinn og var oft spilaður á
Hotel Iuandi og var þá óspart stig-
inn dans af þessum kátu ungu
mönnum. Þetta voru góðir dagar
sem gaman er að minnast. Ég er
þakklátur fyrir að hafa átt vináttu
Adolfs og minnist hans með sökn-
uði.
Ég votta eiginkonu hans, Guð-
nýju Elínborgu Guðjónsdóttur,y
dætrum hans og öðrum ástvinum
innilega samúð.
Blessuð sé minning hans.
Sæmundur Sigurðsson málari
LP þakrennur
fylgihlutirhlutir
LP þakrennukerfiö frá okkur er
heildarlausn. Nýösterkt,
fallegt, endist og endist.
Verðið kemur þér á óvart.
Leitið upplýsinga
BLIKKSMIÐJAN
m
SMIÐSHÖFÐA 9
112 REYKJAVÍK
SiMI: 91 -685699
Hádegisverður á Hótel Holti
Á Hótel Holti verður í sumar tilboð í hádeginu. sem
samanstenduraf forrétti. aðalrétti ogeftirrétti, sem hver
og einn velur af seðli dagsins.
Uval skemmtilegra fiskrétta.
HOLTSVA GNINN
Úr Holtsvagninum bjóðum við
grísahrygg með puru
ásamt forrétti og eftirrétti
VerÖ kr. 995,-
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur á
viðráðanlegu verði, án þess að slakað sé á í gæðum.
Bergstaðastræti 37, Sími 91-25700
CHÁTEAUX.