Morgunblaðið - 07.06.1991, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1991
§5
félk í
fréttum
FLUG
Sjúkraflug
í svartaþoku
Pétur Jónsson, flugmaður hjá
leiguflugi Vals Andersen,
flaug nýlega sjúkraflug frá Eyjum.
Svartaþoka var í Eyjum þegar
flogið var og skyggni ekki nema
um 50 metrar.
„Það var síðdegis beðið var um
flug vegna bráðatilfellis, og sjúkl-
ingurinn varð að komast undir
læknishendur i Reykjavik,“ sagði
Pétur. „Það var ekki viðlit fyrir
nokkra vél að lenda í Eyjum enda
skyggnið ekki nema um 50 metr-
ar. Við ákváðum að fara í flugið
enda hægt að fljúga neyðarflug
við þessar aðstæður. Þokan var
ansi mikil og maður sá vart á
milli brautarljósanna. Við höfðum
því bíla sitt hvoru megin við braut-
ina sem lýstu með háu ljósunum
svo auðveldara væri að stilla sig
af á brautinni. Flugið gekk vel
enda hægviðri og þetta var ekki
neitt hættuspil en það er ljóst að
ef vélin hefði ekki verið til taks í
Eyjum þá hefði sjúklingurinn ekki
komist til Reykjavíkur því það var
ekki viðlit að lenda.“
Pétur segir að vélin sem kom
til landsins í byijun mars sé vel
tækjum búin og því sé hægt að
flúga við skilyrði sem' þessi. „Við
erum nú reyndar að fá enn meiri
tækjakost í hana því Kiwanisklúb-
burinn Helgafell er að gefa GPS-
staðsetningartæki í hana,“ sagði
hann.
Pétur sagði að vélin væri búin
að fara í 12 sjúkraflug á þeim
tveimur og hálfa mánuði sem hún
hefði verið í Eyjum og í tvö skipti
hefðu þeir farið í loftið i neyðar-
flug þegar ekki hafi verið viðlit
að lenda sökum veðurskilyrða.
Grímur
Pétur Jónsson, flugmaður.
Danir varpa af sér vetrardrunganuin.
KJÖTKVEÐJA
Danir varpa af sér
vetrardrunganum
Danir hafa fyrir nokkrum ámm
tekið upp á þeim sið Suður
Ameríkubúa, sérstaklega
Brasilíumanna, að halda
kjötkveðjuhátíð í höfuðborginni
Kaupmannahöfn. í mailok getur
orðið býsna heitt í Köben og þá
gefur litaskrúðið og
kroppasýningin Rio lítt eftir og
altalað er að minna fer fyrir
glæpum og mannvígum heldur en
í Ameríku, enda fátæktin og
eymdin til muna minni á
norðurslóð.
Danir segja að ástæðan fyrir því
að þeir halda kjötkveðjur sé
einungis til þess að varpa af sér
drunganum eftir veturinn og
fagna ljósinu og sumrinu. Þeim
henti ágætlega sambataktar og
tilheyrandi. Danskir
fréttaskýrendur segja að
karnivalið í ár hafi verið
einstaklega vel heppnað enda hafi
verið um 20 gráðu hiti og fleiri
með í leiknum en nokkru sinni
fyrr. Sögðu dönsk blöð að Köben
hefði „soðið“.
innkaupastjórar
SÓL-
GLERAUGU
Otrúlegt úrval
af dömu-, herra-,
unglinga- og
barnasólgleraugum.
Einnig skíðasólgleraugu.
Frábært verð
HOLLENSKA
VERSLUNARFÉLAGID
Borgartúni 18
Siini 61 88 99 Fax 62 63 55
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4500 0005 3774
4507 4500 0017 8092
4507 4300 0012 4759
4543 3700 0000 2678
4543 3700 0003 6486
4543 3700 0005 1246
4548 9000 0031 6002
Afgreiösiulóik vinsamiegast takiö ofangreind
kort úr umferö og sendiö VISA íslandi
sundurklippt.
VEROLAUN kr. 5000,-
fyrir að klúfesta kort og visa á vágest.
1 ÍSLAND
Höfðabakka 9 • 112 Reykjavfk Simi 91-671700 J
Ítökum" uppT da"g"nýjar" g lœs i le gar"VÖRU R! i
0 Gallabuxur 0 Waxjakkar 0 Veiðivesti
kr. 2.990,- kr. 5.900,- kr. 2.990,-
0 Polobolir 0 Riflaðar OT-bolirí Allt ú fróbæru verði
i sumarlitum flauelsbuxur sumarlitum 0 Gallaskyrtur PÓSTKRÖFU-
kr. 1.190,- kr. 1.990,- kr. 490,- kr. 1.590,-________________________________________þjonusta
Einnig:
0 Kakhibuxur 0 Flónelsskyrtur 0 Herrapeysur 0 Sportúlpur 0 Vindsett 0 Regnsett 0 Hettubolir 0 Terylinebuxur 0 Sokkar
0 Húfur 0 Joqqinqqallar 0 Skór 0 Stiqvél 0 Svefnpokar 0 Bakpokar 0 Töskur 0 Útileiquqræiur 0 O.m.fl._
OPNUNARTÍMI Mánudng — föstudag frá kl. 13—18. Laugardag frá kl. 10—14.
0
1 SKODA H TOYOTA
V ^DALBREKKA
L
Hagvöxtur framtíðar er í lækkuðu vöruverði á hagkvæmum góðum vörum
Nýbýlavegi 4 (Daibrekkumegin), Kópivogi, símar 91-45220
ALLIR
geta verið meó
í heilsuhlaupi
Krabbameinsfélagsins
8. júni
ili
ALÞJÓÐA
LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ