Morgunblaðið - 07.06.1991, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ .1991
ííeHAARO
„ ÍmyncLabu þér bara, a&'eg sé. p/ 'zza.
a.fkeyLtu mlg systur m\nnL. "
Ég hef enga trú á því að Drengurinn er fundinn og
hjón api hvort eftir öðru ... er hér hjá okkur á stöðinni
HÖGNI HREKKVÍSI
Þessir hringdu ...
Hraðakstur í íbúðahverfura
Móðir hringdi:
„Því miður er það svo að þrátt
fyrir hraðatakmörk, sem eru t.d.
30 km. á klst. í Vesturbænum,
stunda sumir hraðakstur og skapa
með því mikla hættu. Börn eru
að leik daglangt í góða veðrinu
og þó fylgst sé með þeim vökulum
augum er alltaf hætt við að þau
leggi leið sína út á götuna þegar
minnst varir, t.d. í eltingaleik við
bolta eða leikfang. Þetta ættu
ökumenn að hafa hugfast og aka
ætíð varlega í íbúðahverfum.“
Læða
Hvít, brún og svört læða sem
nýlega gaut þremur kettlingum
er í óskilum í suðurbænum í Hafn-
arfírði. Eigandi hennar er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
652082.
DBS hjól
15 gíra DBS ijallahjól, rautt
og svart með tösku og flösku-
grind, hvarf frá Álfheimum 54
aðfaranótt sunnudagsins 2. júní.
Vinsamlegast hringið í síma
35287 eftir kl. 19 ef það hefur
fundist.
Kettlingar
Fjórir fallegir 'kettlingar fást
gefins. Upplýsingar í síma 53918
eftir kl. 20.
Ákeyrsla
Keyrt var utaní bláan Subaru
station bíl sem stóð fýrir utan
Suðurlandsbraut 14, Bifreiðar og
landbúnaðarvélar, á mánudag
milli kl. 18 og 19. Við ákeyrsluna
myndaðist stór dæld í framhurð.
Vitini að ákeyrslunni eru vinsam-
legast beðin að hringja í síma
38955.
Hjól í óskilum
Bleikt kenhjól fannst við
Grandaveg. Eigandi hafí samband
í síma 675684.
Alexandra er týnd
Alexandra er grá angórulæða
sem fór frá heimili sínu að Jófríð-
arstaðavegi 15, Hafnarfírði, fyrir
nokkru. Hún er vel merkt með
rauða ól og bjöllu og er fólk í
nágrenninu beðið um að athuga
hvort hún gæti hafa lokast ein-
hvers staðar inni, t.d. í bílskúr.
Eins hafí einhver orðið fyrir því
að keyra á hana er viðkomandi
beðinn að láta að láta vita í síma
54848.
Samkeppnin
um fiskinn
Hin mikla mergð sjófugla sem
er hér við land sýnir að lífríki hafs-
ins umhverfis landið er í góðu lagi.
Stór hluti af þessum fuglum lifir á
seiðum en aðrir képpa við fískinn
um alls konar átu sem er að finna
í hafínu. Spuringjn er hvort ekki
væri rétt að gera ráðstafanir til að
fækka sumum þessara fugla eða
nytja þá meira en gert hefur verið,
því þeir taka vissulega sinn toll og
rýra kvótann að sama skapi. Sama
er að segja um sel og sumar hval-
tegundir - þessi dýr ættu ekki að
fá að fjölga sér takmarkalaust því
þau éta árlega þúsundir tonna af
físki. Samkeppnin um fiskinn er
mikil því það er takmarkað magn
sem í sjónum er eins og við höfum
áþreifanlega fengið að vita.
Sjómaður
Hringar
Hinn 28. maí tapaði ég fjórum
hringum á Landsbókasafninu,
tveimur gullhringum, einum gull-
og silfurhring frá Halldóri og einum
gullhring með dökkfjólubláum
steini með litlum perlum í kring.
Þessi hringur er erfðagripur, trúlof-
unarhringurinn hennar ömmu
minnar, og vantaði eina perlu í
hringinn auk þess sem brotið er úr
steininum. Sá sem getur veitt ein-
hveijar upplýsingar um hringana
eða vill koma þeim til skila er vin-
samlegast beðinn að hringja í mig
í síma 30599 eða koma þeim til
lögreglunnar.
Ingunn Sighvatsdóttir
Víkveiji skrifar
að hefur eflaust fleirum en
Víkveija brugðið í brún þegar
Verðlagsstofnun kynnti verðkönn-
un á áfengi á veitingastöðum. Þessi
könnun staðfesti þá tilfinningu sem
gestir veitingahúsanna höfðu, þ.e.
að áfengi hefur hækkað langt um-
fram verðhækkanir frá ÁTVR. Sér-
staklega hafa hækkanir á bjór ver-
ið ósvífnar og er nú svo komið að
bjórverð er hvergi hærra á byggðu
bóli, að því talið er.
Álagning á áfengi var undir verð-
lagsákvæðum allt til 1. október
1989 en var þá gefín fijáls. Hug-
myndin að baki þeirri ákvörðun var
auðvitað sú að skapa samkeppni
milli staðanna. Það hefur ekki orðið
raunin heidur hafa veitingamenn
notað frelsið til að auka eigin gróða
margfalt. Til dæmis hefur flaska
af bjórnum Egils Gulli hækkað um
23,5% að meðaltali á veitingahúsun-
um frá marz 1990 til apríl 1991, á
sama tíma og útsöluverð frá ÁTVR
hefur hækkað um 5,8%. Síðan
könnunin var gerð hefur bjór hækk-
að um rúm 3% nú í maí en sumir
veitingamenn notuðu tækifærið og
hækkuðu flöskuna af bjór úr 400 í
450 krónur eða um 12,5%!
Neytendur eiga ekki nema eitt
svar við þessari okurverði, þ.e. að
hætta að sækja staðina nema verð-
lagning verði eðlileg. Víkveiji er
þess fullviss að ef einhveijir veit-
ingastaðir riðu á vaðið og stórlækk-
uðu verðið myndi það strax spyij-
ast út og staðirnir fyllast út úr
dyrum. Menn hafa reynsluna af því
hvemig Bónus kom á matvöru-
markaðinn með stórlækkað verð og
náði strax verulegri fótfestu.
Spurningin er bara sú hvaða veit-
ingastaður verður fyrstur.
xxx
Víkveija dagsins er það ómælt
tilefni til pirrings og önug-
heita í garð Gjaldheimtunnar í
Reykjavík með hvaða hætti hún sér
sig knúna til róttækra ráðstafana
til þess eins að knýja á um inn-
heimtu opinberra gjalda, sem í van-
skil eru komin. Nú er það svo að
skuldarar geta einfaldlega ekki allt-
af staðið í skilum á gjalddaga og
komast því í vanskil með gjöld.
Víkverji játar fúslega að vera í þeim
hópi og varð hann að láta síðustu
greiðslu fasteignagjaldanna sitja á
hakanum, þegar ráðist var á reikn-
ingasúpuna. Þetta eru ekki ný
tíðindi og verða ekki í framtíðinni.
En Gjaldheimtan í Reykjavík hefur
önnur og róttækari viðbrögð við
vanskilum, en til dæmis bankar og
lánastofnanir, þegar um vanskil er
að ræða. Hjá slíkum stofnunum er
látið nægja að senda skuidurum
áskorun um greiðslu, ítrekun og
þess háttar, og svo bara haldið
áfram að reikna dráttarvextina
margumtöluðu, sem eru jú gullnám-
a sem slíkar stofnanir sækja í til
launamannsins. Þetta nægir Gjald-
heimtunni ekki, óekki!
Galdheimtan sendir skuldaranum
ábyrgðarsendingu í hraðpósti, til
þess að koma hótun sinni á fram-
færi. Hvers eiga slíkir skuldarar að
gjalda, sem fá gula hótunarmiðann
í póstkassann, þar sem byijað er á
að skamma viðkomandi fyrir það
að hafa ekki verið heima, þegar
þessi heimsins þýðingarmesta send-
ing skyldi afhendast. Auk þess er
syndaselnum greint frá því að með
símtali sé hægt að gera aðra tilraun
til þess að fá sendinguna langþráðu
afhenta við útidyrnar, gegn auka-
gjaldi að vísu, ella verði viðkomandi
að vitja hennar í pósthús hverfisins.
xxx
Hvað skyldu svo þessar bráða-
aðgerðir Gjaldheimtunnar
kosta? Svona hraðábyrgðarsending-
ar eru margfalt dýrari en venjuleg
póstþjónusta. Hjá Pósti og síma
fékk Víkveiji þær upplýsingar að
svona sending kostar hvorki meira
né minna en 314 krónur. Sundurlið-
að greiðir Gjaldheimtan (að lokum
við gjaldendur) 200 krónur fyrir
hraðsendinguna, 88 krónur fyrir
ábyrgðina og 26 krónur fyrir bréfið
sjálft. Starfsstúlkan í póstútibúinu
yppti öxlum í samúðarskyni þegar
Víkveiji lét í ljós reiði sína í garð
Gjaldheimtunnar og sagði: „Við
erum með þúsundir svona um-
slaga!“