Morgunblaðið - 07.06.1991, Qupperneq 44
- svo vel
sétryggt
SJQVAOÍoALMENNAR
FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1991
VERÐ I LAUSASÖLU 100 KR.
•Y
Seðlabankinn:
Húsbréf teljast lausa-
fé innlánsstofnana
SEÐLABANKINN hefur ákveðið að húsbréf teljist til lausafjár inn-
lánsstofnana á sama hátt og spariskírteini ríkissjóðs, en húsbréf
töldust ekki áður til hæfra eigna gagnvart lausafjárhlutfalli. Að
sögn Yng^va Arnar Kristinssonar hjá Seðlabankanum mun þessi breyt-
ing greiða fyrir því að bankar og aðrar innlánsstofnanir eigi hús-
bréf eða eignist slík bréf.
Yngvi Örn sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að breytingin
á reglum um lausaijárhlutfall inn-
lánsstofnana felist í því að húsbréf
fá sömu stöðu í reglunum og spari-
skírteini ríkissjóðs. „Það þýðir að
húsbréf og spariskírteini upp að 2%
af ráðstöfunarfé teljast að fullu til
hæfra eigna gagnvart lausaijár-
hlutfalli, og að 50% þar umfram.
Þetta er ákveðið- fram til áramóta
á þessu stigi,“ sagði hann.
„Þetta þýðir það að eigi bankarn-
ir húsbréf, þá munu þau teljast til
hæfra eigna og uppfylla lausafjár-
hlutfallið annað hvort að öllu leyti
séu þau innan þessara 2% marka,
annars að hálfu leyti, þannig að
þetta mun vafalaust greiða fyrir
því að innlánsstofnanir eigi eða
haldi þeim húsbréfum sem þær
eignast. Enda er tilgangurinn sá
öðrum þræði og að hinum þræðin-
um að tryggja ákveðna jafnstöðu
milli spariskírteina og húsbréfa,"
sagði Yngvi Örn Kristinsson.
Reykjavíkurflugvöllur:
Lækjartorg blómum skreytt
Morgunblaðið/Sverrir
Stjúpum og öðrum sumarblómum var komið fyrir á Lækjartorgi í gær til þess að gleðja vegfarendur.
Stjórn LÍN ákveður nýjar úthlutunarreglur:
Grunnlán námsmanna
verða lækkuð um 17%
Í5TJÓRN Lánasjóðs íslenskra
iiámsmanna samþykkti á fundi
í gær með atkvæðum fulltrúa
ríkisvaldsins nýjar úthlutunar-
reglur fyrir Lánasjóðinn. Þær
fela meðal annars í sér að fram-
færslugrunnur námslána er
V estur-Landeyjar:
Stórbruni í
hlöðu og fjósi
STÓRBRUNI varð í hlöðu á bæn-
um Akurey í Vestur-Landeyjum
—mn kl. 19 í gærkvöldi. Hlaðan
varð alelda á örskömmum tíma
og brann allt hey sem í henni
var, tvö til þrjú þúsund baggar.
Hlöðuþakið féll og skemmdir
urðu einnig á þaki fjóss sem er
sambyggt hlöðunni og viðbyggðum
skúr við hlöðuna.
Slökkviliðið á Hvolsvelli og Hellu
á ails sex slökkvi- og dælubílum
barðist við eldinn, en svo hagar til
að skammt frá bænum rennur læk-
ur sem slökkviliðið nýtti sér.
Slökkvistarf gekk greiðlega en vakt
var höfð við hlöðuna í nótt. Ekki
vitað um upptök eldsins.
Á Akurey búa bræðurnir Bjarg-
mundur og Haraldur Júlíussynir
félagsbúi og var Bjargmundur við
mjaltir þegar fjósið fylltist reyk.
„Við vorum að mjólka þegar allt
fyiltist af reyk. Við rétt náðum að
koma kúnum út áður en kófið var
-»^rðið kæfandi," sagði Bjargmund-
skertur um 16,7%, jafnframt að
svonefnt tekjutillit lækkar úr
75% í 50% og að námsmenn sem
búa í foreldrahúsum fá 70% lán
í stað 50% láns áður.
Hinar nýju úthlutunarreglur
öðlast gildi þegar menntamálaráð-
herra hefur staðfest þær og undir-
ritað reglugerð þar að lútandi.
Lækkun grunnframfærslu um
16,7% þýðir, að lán til einstaklings
sem býr í leiguhúsnæði lækkar úr
um 55 þúsund krónum á mánuði
í rúmar 46 þúsund krónur.
Breytingin á tekjutilliti þýðir,
að lán skerðast vegna tekna náms-
manna um 50% í stað 75% skerð-
ingar áður.
Lán til nemenda í foreldrahús-
um verða 70% af grunnframfærslu
í stað 50% áður. Jafnframt var
ákveðið að ganga hart eftir því
að námsmenn sanni leigugreiðslur,
ef þeir búa í leiguhúsnæði, til að
þeir fái óskert lán.
Hámarksþak er sett á lán til
námsmanna vegna skólagjalda.
Samanlögð lán vegna skólagjalda
geta numið allt að 27 þúsund
Bandaríkjadollurum, eða jafngildi
þeirrar upphæðar í annarri mynt.
Þessi upphæð svarar til rúmlega
1.650 þúsunda íslenskra króna.
Steingrímur Ari Arason.fulltrúi
fjármálaráðherra í stjórn LÍN, seg-
ir að eftir þessar breytingar hafi
áætluð útlán sjóðsins lækkað úr
rúmlega 4 milljörðum króna i
3,3-3,4 milljarða á ársgrandvelli.
Hann segir að eftir sem áður vanti
um 500 milljónir króna til viðbótar
frá ríkinu til þess að sjóðurinn
geti staðið undir skuldbindingum
sínum. Ríkisframlagið á árinu er
um 1.700 milljónir króna sam-
kvæmt fjárlögum.
Litlu munaði að Fokker
rækist á farþegasalinn
BILUN varð í stýriskerfi og hemlabúnaði Fokker-vélar Flugleiða sem
var á leið til Egilsstaða í gær. Flugstjóri vélarinnar varð var við
bilunina skömmu fyrir flugtak, vélin var komin út á flugbraut þeg-
ar hann sneri henni aftur til flugstöðvarbyggingarinnar. Litlu mun-
aði að vélin rækist á farþegasal flugstöðvarbyggingarinnar á Reykja-
víkurflugvelli vegna þess hve erfiðlega gekk að stýra henni.
Þær upplýsingar fengust hjá
Flugleiðum að um smávægilega
bilun hefði verið að ræða. Vélin
var sett inn í skýli til athugunar
og önnur vél flaug með farþegana
til Egilsstaða. 20 mínútna bið varð
á fluginu.
Flugstjórinn varð var við bilun
í nefhjólsstýri þegar hann var að
undirbúa flugtak. Auk þess hafði
loft farið af hemlakerfinu. Nokkur
ótti greip um sig meðal gesta í flug-
stöðvarbyggingunni þegar vélinni
var ekið nálægt henni, en að sögn
starfsmanns Flugleiða var aldrei
nein hætta á ferðum.
Loft hafði lekið af loftkerfi
hemlabúnaðarins, og að sögn
starfsmannsins verða slíkar bilanir
stundum í Fokker-vélunum, eink-
um að vetrarlagi. í vélinni er ann-
að hemlakerfi sem notað er í slíkum
tilfellum.
Jámsteypa stefnir Alþingi
Neitar að greiða reikning fyrir gerð skjaldarmerkis Islands
JARNSTEYPAN hf. hefur
stefnt Alþingi fyrir að greiða
ekki reikning, að upphæð kr.
1.098.508 frá fyrirtækinu
vegna vinnu við gerð skjaldar-
merkis Islands sem setja átti á
svalir Alþingishússins.
Það var Hörður Siguijónsson
frummótasmíðameistari sem vann
öll mót vegna verksins samkvæmt
beiðni húsameistara ríkisins.
Hann segir að efri mörk munnlegs
viðmiðunargrundvallar hafi verið
1.100 þúsund en vinna við mótin
hafi farið fram úr viðmiðuninni
og starfsmönnum húsameistara
ríksins hafi verið kunnugt um það
á meðan hann vann við verkið.
„Starfsmenn húsameistara
fengu upplýsingar frá mér eftir
því sem verkinu miðaði og þeir
stöðvuðu ekki verkið og sögðu að
ég færi ekki það mikið fram úr
viðmiðuninni að það yrði nokkur
fyrirstaða," segir Hörður.
Húsameistari telur tímakaup
Harðar vera of hátt og reiknar
út að verkið eigi að kosta kr.
477.621. Þessu vilja Hörður og
Járnsteypan ekki una og hafa því
stefnt Álþingi.
Hörður hefur þegar greitt kr.
muiguuuiauiu; oi^. uuua.
Hörður Sigurjónsson frummótasmíðameistari við skjaldarmerkið
sem Alþingi neitar að greiða fyrir.
205.878 í ríkissjóð, sem er virðis-
aukaskatturinn samkvæmt reikn-
ingi þeim sem hann sendi Járn-
steypunni, en allir hans reikningar
fara í gegnum skrifstofu fyrirtæk-
isins.
Alþingi sendi Járnsteypunni
tæplega 500 þúsund króna ávísun
sem sögð er fullnaðargreiðsla
miðað við útreikninga húsameist-
ara. Járnsteypan ætlar ekki að
innleysa ávísunina og hefur lög-
maður fyrirtækisins stefnt Al-
þingi.