Morgunblaðið - 11.07.1991, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JULI 1991
S^RPA
gámastöd
dasís. rwna ö ,w»Hfl-fl^r
lri'M: »00 « kl. 2?oO
S‘ny'tíí!íj;i un svajötö
<*.} tlokk-ö tcxp i ■etöíj^nvJ- o;»nv>
F^{j*ö MöiKNr^jum 8**kW*»
Wíesw ijkimasföö tn
Najali jafAv^stippw
Mótfíka *p*«f:W «y f GUFUfíiSf
Morgunblaðið/Sverrir
Halldór Sigurðsson umsjónarmaður gámasvæðis Sorpu í Garðabæ, við hrúgu af drasli sem skilin
var eftir framan við hliðið.
Garðabær:
Rusli sturtað við gámastöð
UNDANFARNA morgna hafa starfsmenn við hina nýju gámastöð
Sorpu í Garðabæ orðið fyrir heldur óskemmtilegri reynslu. Fram-
an við gæsluhúsið hefur verið losað rusl yfir nóttina og hafa
starfsmenn eytt drjúgum tima í að flokka hrúguna og hreinsa.
„Þessu rusli er hrúgað upp
framan við skiltið sem á stendur
að opið sé á hverjum degi nema
á stórhátíðum, frá kl. 10 að
morgni til kl. 22 að kvöldi,“ sagði
Halldór Sigurðsson umsjónarmað-
ur á svæðinu. „Hver sem hér er
að verki hlýtur því að koma á
nóttunni. Vil ég beina þeim til-
mælum til hans að hafa samband
við okkur og er ég alveg til með
að hliðra til og hafa opið lengur
ef hann lætur vita af sér. Þetta
er hins vegar ófært. Við höfum
lagt metnað okkar í að halda
svæðinu snyrtilegu og gróðursett
í kring en svo ganga menn svona
um. Eg er að kanna hvort ekki
er að fínna ákvæði í lögum um
sektir fyrir sóðaskap en vonandi
er þetta einangrað fyrirbæri."
Réttargeðdeild að Sogni:
Bogi Th. Melsted
réttargeðlæknir kall-
aður til ráðgjafar
Staða „sérfræðings“ auglýst í stað yfirlæknis
BOGI Th. Melsted, yfirlæknir á réttargeðsjúkrahúsinu í Vastervik
i Svíþjóð, mun koma hingað til lands síðar í mánuðinum og verða
heilbrigðisyfirvöldum til ráðuneytis um undirbúning að starfsemi
réttargeðdeildar að Sogni, sem stofnsetja á í haust. Að sögn Ólafs
Ólafssonar landlæknis mun Bogi hafa hér stutta viðdvöl, en til
greina kemur að hann verði hér síðar um lengri tíma.
Að sögn landlæknis hefur Bogi
verið yfirlæknir í Vástervik í fimm-
tán ár og tekið á móti mörgum
geðsjúkum afbrotamönnum frá Is-
landi, sem ékki hefur verið unnt
að meðhöndla á viðeigandi stofnun
hér heima. Bogi hefur komið til
íslands af og til, litið á sjúklinga
og tekið með sér til Svíþjóðar.
Bogi mun ræða við heilbrigðis-
yfirvöld og gefa góð ráð varðandi
starfsemi meðferðardeildarinnar að
Sogni. „Ef með þyrfti, telur hann
sig geta komið hingað um lengri
tíma,“ sagði Ólafur Olafsson. Hann
sagði að ekki hefði verið rætt um
að Bogi tæki að sér starf yfirmanns
á Sogni, en það er nú laust til
umsóknar eftir að Lára Halla
Maack réttargeðlæknir sagði upp
starfi sem yfirlæknir réttargeð-
deildarinnar. „Bogi verður okkur
aðeins til ráðgjafar," sagði Ólafur.
Yfirmannsstaða á Sogni hefur
nú verið auglýst í blöðum. Stöðu-
heitinu hefur verið breytt úr yfír-
lækni í „sérfræðing í geðlækningum
fyrir heiibrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið“, eins og það er orðað
í auglýsingunni. Þar segir jafnframt
að lækninum sé ætlað að annast
umsjón með ósakhæfum afbrota-
mönnum og jafnframt að sinna
geðlæknisþjónustu í fangelsum
landsins. Umsóknarfrestur er til 5.
ágúst, en staðan veitt frá 1. sept-
ember.
Fjármálaráðherra segir stefna í a.m.k. 25 milljarða halla á ríkissjóði:
Athugað verður að taka upp
gjöld fyrir opinbera þjónustu
I undirbúningi að segja upp ríkisáskrift dagblaða
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð-
herra segir að uppsafnaður halla-
rekstur og skuldbindingar ríkis-
sjóðs sem komi að óbreyttu til
greiðslu á næstu árum þýði að
útgjöld ríkisins umfram tekjur
verði a.m.k. 25 milljarðar kr. Ráð-
herra segir að allar leiðir séu
opnar varðandi sparnað og niður-
skurð í ráðuneytunum og meðal
þess sem sé á borðinu sé að taka
gjöld af opinberri þjónustu við
neytendur og færa rekstrarverk-
efni út á markaðinn. Hugmyndir
eru m.a. uppi um að taka upp
skólagjöld. Þá er í undirbúningi í
fjármálaráðuneytinu að segja upp
ríkisáskrift dagblaða.
Strandasýsla:
Fiskeldisfyrirtæki:
28 umsóknir um 300
millj. fjárhagsaðstoð
ALLS bárust 28 umsóknir frá að viðhalda sem flestum greinum
fiskeldisfyrirtækjum um fjár- fiskeldis, hafbeit, strandeldi og
hagsaðstoð þá sem ríkisstjórnin kvíeldi," sagði hann aðspurður um
ákvað í síðasta mánuði að veita úthlutunarreglur starfshópsins.
nokkrum fyrirtækjum til að við-
halda þekkingu og þróunarstarfi
í greininni. Samtals verður út-
hlutað 300 milljónum kr. í formi
verðtryggðra lána sem bera 5%
vexti, en eru afborgunarlaus
fyrstu 5 árin. 150 millj. á þessu
ári og afgangurinn á því næsta.
Ingimar Jóhannsson, fiskifræð-
ingur hjá Byggðastofnun, sem er
formaður starfshóps sem annast
úthlutun lánanna, segir að ákvörð-
un um hvaða fyrirtæki fái aðstoð
verði tekin í byrjun næstu viku en
óvíst hversu mörg þau verða. Talað
hefði verið um 3-5 fyrirtæki upp-
haflega en þau gætu orðið fleiri.
„Við lítum fyrst og fremst á eig-
infjárstöðu fyrirtækjanna og
lausafjárstöðu þeirra. Ennfremur
hvort fyrirtækin séu með fram-
leiðslu í gangi og er lögð áhersla á
„Vandinn er svo stór að hann verð-
ur ekki leystur með hefðbundnum
hætti, svo sem með því að kroppa í
útgjöld og hækka skatta. Það verður
að takast á við kerfislæg vandamál
og spyrja grundvallarspurninga eins
og þeirra, hvort þeir sem njóta vissr-
ar opinberrar þjónustu greiði ein-
hvern hluta kostnaðar við þá þjón-
ustu sem þeir njóta, og þá undan-
skil ég ekki menntamálin og heil-
brigðismálin. Jafnframt verður að
gæta þess að það bitni ekki á þeim
efnaminni," segir Friðrik.
„Hver ráðherra fyrir sig mun skila
útfærðum hugmyndum sem skila
þeim árangri sem um var beðið um
næstu mánaðamót. Þegar það liggur
fyrir mun ríkisstjómin taka ákvarð-
anir um til hvaða aðgerða verður
gripið. Þessi mál eru því núna á
ábyrgð einstakra ráðuneyta," segir
hann.
Friðrik sagði aðspurður að nú
væri í skoðun að segja upp ákveðnum
fjölda dagblaða en í tíð síðustu ríkis-
stjórnar hefði af pólitískum ástæðum
verið brugðið á það ráð að auka
kaup ríkisins á dagblöðum. „Fjár-
málaráðuneytið myndi því ekki
standa straum af þeim kostnaði en
ríkisstofnanir sem vilja haida áfram
blaðakaupunum verða að gera það á
eigin kostnað og spara önnur útgjöld
á móti,“ sagði hann.
Löngunin
leiddi til
handtöku
MAÐUR á fimmtugsaldri var
handtekinn í verzlun í Mjódd-
inni á þriðjudag eftir að hafa
veitt ungri stúlku eftirför.
Eftir yfirheyrslur var mann-
inum komið á geðdeild
Landspítalans.
Málsatvik voru þau að mað-
urinn og stúlkan urðu samferða
í strætisvagni. Stúlkan tók eftir
því að maðurinn starði á hana
mikið og lengi. Þegar hún fór
úr vagninum á skiptistöðinni í
Mjódd elti maðurinn hana.
Stúlkan fór inn í verzlun, enn
með manninn á hælunum.
Henni þótti nóg um og kailaði
á lögregluna, sem brá skjótt við
og fjarlægði. manninn.
Á lögreglustöðinni gaf mað-
urinn þá hreinskilnislegu skýr-
ingu á eftirförinni að í strætis-
vagninum hefði löngun sín til
kvenna gert ærlega vart við sig
og orðið svo óbærileg að hann
hefði ákveðið að ná tali af stúlk-
unni.
Listamiðstöð að Korpúlfsstöðum:
Fimm arkitektar ráðnir
FIMM arkitektastofur hafa verið ráðnar til að gera tillögu um skipu-
lagningu rýmis í væntanlegri listamiðstöð á Korpúlfsstöðum. Hefur
Korpúlfsstaðanefnd samþykkt að tilnefna til verksins: Albínu og
Guðfinnu Thordarson, Arkþing, Guðmund Jónsson, Sigurð Harðar-
son og Vinnustofu arkitekta sf. Ráðgert er að framkvæmdir hefjist
á næsta ári.
Á Korpúlfsstöðum er ætlunin að
komið verði fyrir listasafni Errós,
listasafni Reykjavíkur, bókasafni á
listasviði, tónlistar-, leiklistar- og
ráðstefnusai, vinnustofum fyrir list-
greinar, rými fyrir veitingarekstur,
safni um sögu Korpúlfsstaða og
Thors Jensen o.fl. Miðað er við að
arkitektarnir skili tillögum sínum
1. október næstkomandi og mun
Korpúlfsstaðanefnd þá taka
ákvörðun um framhald verksins.
Grútur veldur fugladauða
NOKKUÐ þétt breiða af hvítum grútarflekkjum liggur á sjónum
við strendur Bolungarvíkur í norðri til Reykjanesshyrnu i suðri á
Ströndum. Óvíst er hvað grúturinn nær langt út á haf en sjómenn
urðu varir við hann 12 mílur frá landi á mánudaginn. Hvorki er
vitað hvaðan grúturinn kemur né um hvers konar grút er að ræða.
Sams konar flekkja hefur orðið vart úti fyrir Húnaflóa. Nokkrir
fuglar a.m.k. hafa drepist af völdum grútarins.
„Grúturinn minnir á lint tyggi- 30 cm langa og handleggsbreiða.
gúmmí,“ sagði Vilmundur Hansen, Breiðurnar eru misþéttar en menn
fréttaritari Morgunblaðsins í Tré- í Reykjarfirði segja að þar líkist
kyllisvík. „Hann liggur í flekkjum grúturinn mest snjókomu. Ég veit
sem eru allt frá því að vera litlar
kúlur upp í mun stærri flekki, um
til þess að hér hitaði kona grútinn
og líktist hann þá ijóma.“
Vilmundur sagði að óvenjumikið
af fiðri og fjöðrum væri i sjónum
sem hugsanlega stafaði af því að
fuglinn hefði reynt að hreinsa af
sér grútinn. Sagði hann að menn
hefðu orðið varir við að fuglar á
túnum í Ingólfsfirði klóruðu sér
ákaft eins og þeir vildu ná grútnum
af sér. Nokkuð er um dauða æðar-
unga í fjörunni. Þeir eru hreinir
af grút en getgátur eru um að
þeir hafi étið hann og drepist af því.