Morgunblaðið - 11.07.1991, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991
Miðbærinn:
Fjórar göt-
ur endur-
nýjaðar
VEGFARENDUR um Fischer-
sund hafa eflaust orðið varið
við mikiar gatnaframkvæmdir
þar í sumar. Sigurður Skarp-
héðinsson, aðstoðargatnamála-
stjóri, segir að þessar fram-
kvæmdir séu liður í áætlun um
endurnýjun gatna í Grótaþorpi.
í fyrra voru tvær götur, Bratta-
gata og Mjóstræti, teknar fyrir
en í sumar hefur verið unnið við
Gijótagötu og Fischersund. Göt-
umar eru teknar upp, allar lagnir
eru endurnýjaðar og steinar eru
settir í götuna í stað malbiks.
Verið er að vinna við endurnýjun
lagna í Gijótagötu. Framkvæmd-
um við Grótagötu og Fischersund
verður lokið me'ð haustinu.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 11. JÚLÍ
YFIRLIT: Um 400 km SV af Vestmannaeyjum er 995 mb lægð sem
þokast SV, en önnur lægð er við l’rland og hreyfist hún allhratt NV.
SPÁ: Norðaustan og austan gola eða kaldi. Dálítil súld um austan-
vert landið. Hiti 9-17 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Austan og norðaustan átt. Skýjað um
mest allt land og víða þurrt. Helst má þó búast við úrkomu á Suð-
austurlandi. Fremur svalt verður í veðri.
HORFUR Á LAUGARDAG: Norðlæg og norðaustlæg átt. Skýjað
og víða dálítil rigning, síst þó við vesturströndina. Afram verður
svalt.
Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN: y, Norðan, ♦ vindstig: Vindörin sýnir vind-
A itefnu og fjaðrirnar
{ V Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.
Lét,8kýÍ8ð / / / / / / / Rigning
'ÍáL Hálfskýjsð / / / * / #
'Œkk SkýjaA / * / * Slydda / * /
Alskýjað * # * * Snjókoma
1 0 Hrtastig.
10 gráður á Celiius
Skúrir
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Suld
CO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 12 alskýjað
Reykjavík 16 mistur
Bergen 15 skýjað
Helsinki 22 skúr
Kaupmannahöfn 21 háffskýjað
Narssarssuaq 13 léttskýjað
Nuuk 5 jjoka
Ósló 23 skýjað
Stokkhólmur 19 skýjað
Þórshöfn 14 Skýjað
Algarve 32 heiðskírt
Amsterdam 22 léttskýjað
Barcelona 27 heiðskírt
Berlín 22 skýjað
Chicago vantar
Feneyjar vantar
Frankfurt 27 léttskýjað
Glasgow 18 skýjað
Hamborg 21 skýjað
London 23 skýjað
Los Angeles 18 alskýjað
Lúxemborg 26 léttskýjað
Madríd 33 heiðskirt
Malaga 30 heiðskírt
Mallorca 33 léttskýjað
Montreal 18 skýjað
NewYork vantar
Orlando 26 skýjað
París 26 skýjað
Madeira 22 léttskýjað
Róm vantar
Vfn 30 skýjað
Washington 25 alskýjað
Winnipeg 16 léttskýjað
Fjámiálaráðherra fund-
ar með forystu BHMR
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð-
herra átti á þriðjudag óformlegan
fund með formanni og fram-
kvæmdastjóra BHMR en hann
hefur áður átt fund með forystu-
mönnum samtakanna, að sögn
Páls Halldórssonar formanns
BHMR. Lög á kjarasamninga
BHMR renna út 1. september og
sagði Friðrik að rætt hefði verið
um stöðu málsins og ákveðið að
halda uppi óformlegum viðræðum
á næstunni. Páll sagði að þrátt
fyrir þetta séu engar samninga-
viðræður í gangi.
„Það voru engar ákvarðanir
teknar en báðir aðilar vita af því
að það er ákveðin óvissa ríkjandi
um hvað taki við 1. september.
Samkvæmt lögum er gert ráð fyrir
því að gamall kjarasamningur rakni
upp en þá vaknar spuming um
hvaða samningur mun gilda og
hvað gerist í framhaldi af því. Eru
lögfræðingar að vinna úr því þessa
stundina. Fráfarandi ríkisstjórn
setti lög á þennan kjarasamning
vegna þess að hann var ekki í sam-
ræmi við aðra kjarasamninga í
landinu. Ég er því að gera mér
vonir um að fyrir þennan tíma verði
samningsaðilamir búnir að semja
um að fara í samningsgerðina með
öðrum hætti en hingað til hefur
verið gert,“ sagði Friðrik.
Páll sagði að viðræðurnar hefðu
verið á almennum nótum. Samning-
ar renni út í lok ágúst og þrátt
fyrir bráðabirgðalögin séu veiga-
mikil atriði enn í gamla kjarasamn-
ingnum varðandi launaleiðréttingu
BHMR. „Ég tel nokkuð ljóst að
þessar greinar samningsins gildi
áfram því ella yrði enginn samning-
ur í gildi," sagði Páll.
Siglufjörður:
Skarðs-
vegur fær
fólksbílum
Siglufjörður.
UNNIÐ hefur verið að við-
■gerðum á Skarðsvegi og er
hann nú fær fólksbílum.
Siglufjarðargöng verða lok-
uð frá 15. júlí fram í septem-
ber vegna viðgerða og þurfa
bílar að aka um Siglufjarðar-
skarð á meðan.
Vegagerðarmenn hafa
síðustu daga unnið að því að
gera við spmngur og yfirfara
Skarðsveg sem ekki hefur verið
notaðir í fjöldamörg ár. Nú er
hins vegar þörf á því að opna
veginn því ákveðið hefur verið
að ganga frá Siglufjarðar-
göngunum og fóðra þau að inn-
an.
Göngin verða lokuð frá 15.
júlí fram í september en opnað
verður um þau tvisvar á dag
fyrir stóra bfla.
- Matthías.
Heildverslunin Hagur hf.
tekin til gjaldþrotaskipta
HLUTAFÉLAGIÐ Hagur hf. heildverslun hefur verið tekið til gjald-
þrotaskipta en aðaleigandi þess er Ólafur H. Jónsson. Meðal eigna
félagsins var 63,9 milljóna króna hlutur í Stöð 2 en hluti hans var
seldur Kaupþingi í desember og í mars keyptu aðrir hluthafar það
sem eftir var af hlutafé í eigu Hags.
Meðal annarra eigna hlutafélag- ið til gjaldþrotaskipta á þriðjudag,
ins um tíma voru reiðhjólaverslunin að svo stöddu, en sagði að eignir
Örninn, verslunin Vesturröst og þess væru ýmis konar lausafé og
Hummelbúðin en fyrirtækin voru
seld á síðasta ári. Samkvæmt árs-
reikningi síðasta árs var félagið
1 rekið með um 43 milljóna króna
tapi, að sögn Páls A. Pálssonar
hrl. bústjóra. Hann vildi ekki tjá
sig um fjárhag búsins, sem var tek-
viðskiptakröfur.
Undir bústjórann heyrir einnig
þrotabú Skóhússins H.J. Sveinsson
hf., einnig í eigu Ólafs H. Jónsson-
ar, en rekstrartap þess á liðnu ári
nam 10,7 milljónum króna.
Óvenjuhár vatnshiti
hamlar laxveiðum
m'' •
Kjarrá 23ja stiga heit í vikubyrjun
Laxveiðin hefur ekki gengið sem skyldi það sem af er sumri
og er kennt um miklum hlýindum, þurrkum og í kjölfarið á því
vatnsleysi í ám. í hitunum að undanförnu hefur það gerst að
vatnshitinn hefur orðið óveiyulega hár. Þannig var Kjarrá 23ja
stiga heitt í vikubyrjun og það fréttist að Grimsá hefði verið
um eða yfir 20 stig. Elliðaárnar hafa mest mælst 18 til 20 stig.
Lax er lítið á ferðinni og tekur grannt og illa í svona hita.
Þrátt fyrir þessa miklu hita
þykir vera talsvert af laxi í borg-
fírskum ám og lax er alltaf að
ganga. Þverá og efri hluti hennar
Kjarrá höfðu til dæmis gefíð 550
laxa á hádegi í gær. Að sögn
Jóns Ólafssonar, eins af leigutök-
um' svæðisins, veiddust 32 laxar
síðasta sólarhringinn í beinu
framhaldi af því að vatnshitinn
lækkaði úr 23 stigum í 10 stig.
„Þetta er mjög gott hjá okkur
og Þveráin ásamt Kjarrá eru lan-
gefstar það sem af er sumri,“
sagði Jón í samtali við Morgun-
blaðið í gærdag.