Morgunblaðið - 11.07.1991, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 11.07.1991, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991 Miðbærinn: Fjórar göt- ur endur- nýjaðar VEGFARENDUR um Fischer- sund hafa eflaust orðið varið við mikiar gatnaframkvæmdir þar í sumar. Sigurður Skarp- héðinsson, aðstoðargatnamála- stjóri, segir að þessar fram- kvæmdir séu liður í áætlun um endurnýjun gatna í Grótaþorpi. í fyrra voru tvær götur, Bratta- gata og Mjóstræti, teknar fyrir en í sumar hefur verið unnið við Gijótagötu og Fischersund. Göt- umar eru teknar upp, allar lagnir eru endurnýjaðar og steinar eru settir í götuna í stað malbiks. Verið er að vinna við endurnýjun lagna í Gijótagötu. Framkvæmd- um við Grótagötu og Fischersund verður lokið me'ð haustinu. VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG, 11. JÚLÍ YFIRLIT: Um 400 km SV af Vestmannaeyjum er 995 mb lægð sem þokast SV, en önnur lægð er við l’rland og hreyfist hún allhratt NV. SPÁ: Norðaustan og austan gola eða kaldi. Dálítil súld um austan- vert landið. Hiti 9-17 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Austan og norðaustan átt. Skýjað um mest allt land og víða þurrt. Helst má þó búast við úrkomu á Suð- austurlandi. Fremur svalt verður í veðri. HORFUR Á LAUGARDAG: Norðlæg og norðaustlæg átt. Skýjað og víða dálítil rigning, síst þó við vesturströndina. Afram verður svalt. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. TÁKN: y, Norðan, ♦ vindstig: Vindörin sýnir vind- A itefnu og fjaðrirnar { V Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. Lét,8kýÍ8ð / / / / / / / Rigning 'ÍáL Hálfskýjsð / / / * / # 'Œkk SkýjaA / * / * Slydda / * / Alskýjað * # * * Snjókoma 1 0 Hrtastig. 10 gráður á Celiius Skúrir — Þoka = Þokumóða ’, ’ Suld CO Mistur —|- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 12 alskýjað Reykjavík 16 mistur Bergen 15 skýjað Helsinki 22 skúr Kaupmannahöfn 21 háffskýjað Narssarssuaq 13 léttskýjað Nuuk 5 jjoka Ósló 23 skýjað Stokkhólmur 19 skýjað Þórshöfn 14 Skýjað Algarve 32 heiðskírt Amsterdam 22 léttskýjað Barcelona 27 heiðskírt Berlín 22 skýjað Chicago vantar Feneyjar vantar Frankfurt 27 léttskýjað Glasgow 18 skýjað Hamborg 21 skýjað London 23 skýjað Los Angeles 18 alskýjað Lúxemborg 26 léttskýjað Madríd 33 heiðskirt Malaga 30 heiðskírt Mallorca 33 léttskýjað Montreal 18 skýjað NewYork vantar Orlando 26 skýjað París 26 skýjað Madeira 22 léttskýjað Róm vantar Vfn 30 skýjað Washington 25 alskýjað Winnipeg 16 léttskýjað Fjámiálaráðherra fund- ar með forystu BHMR FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð- herra átti á þriðjudag óformlegan fund með formanni og fram- kvæmdastjóra BHMR en hann hefur áður átt fund með forystu- mönnum samtakanna, að sögn Páls Halldórssonar formanns BHMR. Lög á kjarasamninga BHMR renna út 1. september og sagði Friðrik að rætt hefði verið um stöðu málsins og ákveðið að halda uppi óformlegum viðræðum á næstunni. Páll sagði að þrátt fyrir þetta séu engar samninga- viðræður í gangi. „Það voru engar ákvarðanir teknar en báðir aðilar vita af því að það er ákveðin óvissa ríkjandi um hvað taki við 1. september. Samkvæmt lögum er gert ráð fyrir því að gamall kjarasamningur rakni upp en þá vaknar spuming um hvaða samningur mun gilda og hvað gerist í framhaldi af því. Eru lögfræðingar að vinna úr því þessa stundina. Fráfarandi ríkisstjórn setti lög á þennan kjarasamning vegna þess að hann var ekki í sam- ræmi við aðra kjarasamninga í landinu. Ég er því að gera mér vonir um að fyrir þennan tíma verði samningsaðilamir búnir að semja um að fara í samningsgerðina með öðrum hætti en hingað til hefur verið gert,“ sagði Friðrik. Páll sagði að viðræðurnar hefðu verið á almennum nótum. Samning- ar renni út í lok ágúst og þrátt fyrir bráðabirgðalögin séu veiga- mikil atriði enn í gamla kjarasamn- ingnum varðandi launaleiðréttingu BHMR. „Ég tel nokkuð ljóst að þessar greinar samningsins gildi áfram því ella yrði enginn samning- ur í gildi," sagði Páll. Siglufjörður: Skarðs- vegur fær fólksbílum Siglufjörður. UNNIÐ hefur verið að við- ■gerðum á Skarðsvegi og er hann nú fær fólksbílum. Siglufjarðargöng verða lok- uð frá 15. júlí fram í septem- ber vegna viðgerða og þurfa bílar að aka um Siglufjarðar- skarð á meðan. Vegagerðarmenn hafa síðustu daga unnið að því að gera við spmngur og yfirfara Skarðsveg sem ekki hefur verið notaðir í fjöldamörg ár. Nú er hins vegar þörf á því að opna veginn því ákveðið hefur verið að ganga frá Siglufjarðar- göngunum og fóðra þau að inn- an. Göngin verða lokuð frá 15. júlí fram í september en opnað verður um þau tvisvar á dag fyrir stóra bfla. - Matthías. Heildverslunin Hagur hf. tekin til gjaldþrotaskipta HLUTAFÉLAGIÐ Hagur hf. heildverslun hefur verið tekið til gjald- þrotaskipta en aðaleigandi þess er Ólafur H. Jónsson. Meðal eigna félagsins var 63,9 milljóna króna hlutur í Stöð 2 en hluti hans var seldur Kaupþingi í desember og í mars keyptu aðrir hluthafar það sem eftir var af hlutafé í eigu Hags. Meðal annarra eigna hlutafélag- ið til gjaldþrotaskipta á þriðjudag, ins um tíma voru reiðhjólaverslunin að svo stöddu, en sagði að eignir Örninn, verslunin Vesturröst og þess væru ýmis konar lausafé og Hummelbúðin en fyrirtækin voru seld á síðasta ári. Samkvæmt árs- reikningi síðasta árs var félagið 1 rekið með um 43 milljóna króna tapi, að sögn Páls A. Pálssonar hrl. bústjóra. Hann vildi ekki tjá sig um fjárhag búsins, sem var tek- viðskiptakröfur. Undir bústjórann heyrir einnig þrotabú Skóhússins H.J. Sveinsson hf., einnig í eigu Ólafs H. Jónsson- ar, en rekstrartap þess á liðnu ári nam 10,7 milljónum króna. Óvenjuhár vatnshiti hamlar laxveiðum m'' • Kjarrá 23ja stiga heit í vikubyrjun Laxveiðin hefur ekki gengið sem skyldi það sem af er sumri og er kennt um miklum hlýindum, þurrkum og í kjölfarið á því vatnsleysi í ám. í hitunum að undanförnu hefur það gerst að vatnshitinn hefur orðið óveiyulega hár. Þannig var Kjarrá 23ja stiga heitt í vikubyrjun og það fréttist að Grimsá hefði verið um eða yfir 20 stig. Elliðaárnar hafa mest mælst 18 til 20 stig. Lax er lítið á ferðinni og tekur grannt og illa í svona hita. Þrátt fyrir þessa miklu hita þykir vera talsvert af laxi í borg- fírskum ám og lax er alltaf að ganga. Þverá og efri hluti hennar Kjarrá höfðu til dæmis gefíð 550 laxa á hádegi í gær. Að sögn Jóns Ólafssonar, eins af leigutök- um' svæðisins, veiddust 32 laxar síðasta sólarhringinn í beinu framhaldi af því að vatnshitinn lækkaði úr 23 stigum í 10 stig. „Þetta er mjög gott hjá okkur og Þveráin ásamt Kjarrá eru lan- gefstar það sem af er sumri,“ sagði Jón í samtali við Morgun- blaðið í gærdag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.