Morgunblaðið - 11.07.1991, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JULI 1991
5
San Francisco-óperan:
Magnús Baldvinsson syng-
ur fyrsta hlutverk sitt
MAGNÚS Baldvinsson, bassa-
söngvari, fer með hlutverk
hjónabandsmiðlarans Kezals í
Seldu brúðinni á útitónleikum
San Francisco óperunnar 14. júlí
n.k. Talið er að um 20.000 manns
muni fylgjast með sýningunni.
Selda brúðin er fyrsta óperusýn-
ing Magnúsar við San Francisco-
óperuna. Hann hefur gert eins
árs sanming við óperuna og er
eini samningsbundni íslenski
óperusöngvarinn í Bandaríkjun-
„Óperuhúsið sjálft tekur ekki
nema 3500 manns og því hafa sýn-
ingarnar stundum verið færðar út
undir beran himin á sumrin þegar
aðsókn er mest og stendur þá borg-
in straum af kostnaði við flutning-
ana,“ sagði Magnús Baldvinsson í
samtali við Morgunblaðið.
Næsta hlutverk hans verður í La
Traviata þar sem hann fer með hlut-
verk barónsins. Óperan verður
frumflutt í San Francisco 10. ágúst
Hvítur flekkur
í Rauðarárvík;
Ekki reynd-
ist unnt að
greina efnið
TALIN var ástæða til að kalla
út sérfræðing frá Heilbrigðiseft-
irliti Reykjavíkur síðdegis á
þriðjudag til að taka sýni úr hvít-
um flekk sem myndaðist í Rauð-
arárvík.
Tryggvi Þórðarson, deildarstjóri
umhverfisdeildarHeilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur, sem fór á vettvang,
sagði að hér væri að öllum líkindum
um eitt einstakt tilfelli að ræða.
Sennilega hefði einhver bæjarbúi
losað sig við efnið en ekkert benti
til að hætta stafaði af því. Smám
saman dreifðist flekkurinn og
fjaraði út.
í gær fengust þær upplýsingar
hjá Heilbrigðiseftirlitinu að senni-
lega væri ekki hægt að komast að
því hvaða efni um hefði verið að
ræða með rannsókn því efnið í sýn-
inu væri of þunnt til að hægt væri
að efnagreina það. Málið væri því
úr sögunni ef ekki kæmu til ábend-
ingar frá almenningi um uppruna
efnisins.
en eftir það verður farið með óperu-
uppfærsluna á tónleikaferðalag um
Bandaríkin. Segir Magnús að farið
verði til 50 til 60 borga og ljúki
ferðalaginu um miðjan marsmánuð.
Eftir þann tíma er óákveðið hvað
tekur við hjá Magnúsi.
Hann kvaðst í samtali við Morg-
unblaðið vera afar ánægður með
vistina í San Francisco. Þar væri
mikið um að vera og margir heims-
þekktir óperusöngvarar syngju í
óperuhúsinu. Meðal þeirra sem
hann nefndi voru Pavarotti og Dom-
ingo sem syngur í húsinu í febrúar
á næsta ári.
Vestmannaeyjar:
Nýr sóknarprestur ráðinn
Magnús Baldvinsson bassasöngv-
ari.
V estmannaeyj um.
SÓKN ARNEFND Landakirkju
hefur ráðið séra Bjarna Karlsson
sem sóknarprest við Landakirkju
frá 1. september nk. Bjarni var
eini umsækjandinn um embættið
en séra Kjartan Orn Sigurbjörns-
son, sem verið hefur sóknar-
prestur í Eyjum síðastliðin 16 ár,
er nú á förum.
Bjarni hlaut öll greidd atkvæði
kjörmanna Vestmannaeyjapresta-
kalls og var því réttkjörinn til emb-
ættisins. Bjarni er 27 ára gamall
og hefur undanfarið starfað sem
aðstoðarprestur í Laugarnespresta-
kalli. Eiginkona Bjarna er Jóna
Hrönn Bolladóttir, guðfræðingur.
Séra Kjartan Öm Sigurbjörnsson
sem verið hefur prestur í Eyjum í
16 ár er á förum til Reykjavíkur
þar sem hann mun taka við starfi
sjúkrahúsprests á Landakotsspít-
ala. Kjartan mun kveðja söfnuðinn
við guðsþjónustu sunnudaginn 14.
júlí nk. klukkan tvö eftir hádegi,
og að messu Iokinni býður sóknar-
nefnd söfnuðinum til kaffisamsætis
i Safnaðarheimilinu.
Grímur
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíóum Moggans!
Fornleifanefnd:
Þrjú leyfi til
uppgraftar
Fornleifauppgröftur fer fram
í Viðey, á Granastöðum og Hóla-
seli í Eyjafirði og Hálsi í Borgar-
firði, á þessu sumri og ein um-
sókn uni fornleifauppgröft ligg-
ur fyrir Fornleifanefnd.
í samtali við Sveinbjörn Rafns-
son, formann Fornleifanefndar,
kom fram að nefndin hefði veitt
þijú leyfi til uppgraftar í sumar.
Margrét Hallgrímsdóttir, borgar-
minjavörður, fékk leyfi til að halda
áfram í Viðey, Bjarni Einarsson,
fornleifafræðingur, fékk leyfi til að
grafa á Granastöðum og Hólaseli í
Eyjafirði og Kevin Smith á Hálsi í
Hálsasveit í Borgarfirði. Þar sem
Kevin Smith er útlendingur eru
rannsóknir hans undir eftirliti forn-
leifadeildar Þjóðminjasafns.
Sveinbjörn sagði eina umsókn um
uppgröft liggja fyrir Fornleifa-
nefnd. Hann neitaði að gefa upplýs-
ingar um efni umsóknarinnar.
retland
i
o rga rkri nglu nni
Breskir straumar verða ráðandi í Borgarkringlunni dagana 11.,
12. og 13. júlí nk. Kynntar verða breskar vörur af ýmsu tagi og
verða margar hverjar á sérstöku kynningarverði. íslenskir
leikarar flytja valda k^fla úr verkum Shakespeares og lúðrasveit
leikur létta breska tónlist. Einnig verður sérstök Edinborgar-
kynning ásamt ýmsu öðru.
Nýjabrumið ígarðinum...
...sýningargarður B.M.Vallá verður opinn alla dagana. Þar gætir
sterkra breskra áhrifa sem gleggst má sjá í hinum gullfallegu og
vönduðu Barlow-Tyrie garðhúsgögnum sem þú getur tyllt þér í
með "cup of tea" og talað um veðrið.
Á laugardögum milli kl. 11.00 og 14.00 mun landslagsarkitekt
veita gestum ráðgjöf um gróður og garða og svara fyrirspurnum
þeirra um sama efni. Sérstök athygli skal vakin á því að
sýningargarðurinn verður aðeins opinn til 27. júlí nk.
Verslunargötur Borgarkringlunnar eru
sannarlega þess virði að spássera um
þær, þótt ekki væri nema til þess eins
að hitta vini og kunningja þótt allt
eins sé líklegt að þú gangir beint í
flasið á þekktum breskum
personum.
B.M.VUU
H