Morgunblaðið - 11.07.1991, Side 17
17
STERKU PLASTl
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991
upphafi. Hún hvatti til málefna-
legra umræðna um Evrópumálin
og sagði síðan: „Þær umræður
mega aftur á móti hvorki byggjast
á hræðslu við einangrun né útlend-
inga, ekki á sleggjudómum um að
menn séu annað hvort heimóttar-
legir einangrunarsinnar eða land-
sölumenn og ekki á vanþekkingu
á því sem vinnst og því sem tapast
í þessum samningum og á kostum
og göllum Evrópubandalagsins.
Umræða af því tagi getur hæglega
leitt til þess að áður en við er litið
sé búið að skipta þjóðinni upp í
tvær fylkingar sem ekki séu í kall-
færi hvor við aðra og láti því duga
að munda vopn sín og verjur.
Umræðan um herstöðvarmálið og
Nato ætti að vera okkur víti til
varnaðar."
Umræðurnar um varnarmálin
hafa af hálfu andstæðinga varnar-
stefnunnar ekki snúist um gildi
þess að ísland sé varið og þá stað-
reynd að með þátttöku okkar í
NATO hefur tekist að tryggja frið
og skapa forsendur fyrir lýðræðis-
þróun i Mið- og Austur-Evrópu,
svo að vitnað sé til orða Havels,
forseta Tékkóslóvakíu. Umræður
andstæðinganna hafa snúist um
menningarlega hættan, landsölu
og kjamorkuógn. Ef umræðurnar
um evrópska efnahagssvæðið snú-
ast ekki um gildi þess að samið
sé um aukið frelsi í viðskiptum og
komið á fót stofnunum til að
tryggja þetta frelsi í framkvæmd,
eru þær að fara í sama fárveg og
umræðurnar um varnarmálin. Eini
munurinn er sá, að kommúnistar
koma ekki lengur við sögu með
hið dulda markmið sitt að tengja
okkur á einn eða annan hátt
Moskvuvaldinu.
Þeir sem vilja að aðild Islands
að Evrópubandalaginu verði á dag-
skrá í umræðum um þátttöku í
evrópska efnahagssvæðinu verða
fyrir vonbrigðum og geta auðveld-
lega talið sér trú um að eitthvert
feimnismál sé til umræðu. Þessir
menn róa einfaldlega á vitlaus mið.
Samningur um evrópskt efna-
hagssvæði liggur ekki fyrir en þó
hafa verið stofnuð samtök gegn
honum á opinberum fundi í Reykja-
vík og hafin er söfnun undirskrifta
gegn hinum ógerða samningi. Eru
slík vinnubrögð til marks um að
málefni skuli ráða ferðinni?
I ræðu sinni á stofnfundinum
sagði Ingibjörg Sólrún einnig: „Ég
hef eytt talsverðum tíma í að kafa
í málið og tel mig samt ekki komna
til botns í því. Það er líka til marks
um stærð þessa máls að við sem
tölum á þessum fundi gerum ekki
mikið meira en að gára yfirborð-
ið.“ Þótt menn hafi ekki komist til
botns í máli og geri ekki mikið
meira en gára á því yfirborðið,
stofna þeir samtök gegn málefn-
inu. Er það til marks um einlægan
vilja til málefnalegra umræðna?
Höfundur er þingmaður fyrir
Sjálfsteeðisflokkinn í Reykjavík.
GARÐHUSGOGN'
STÓRGLÆSIŒGT
URV
Öll okkar garðhúsgögn eru buin til
úr plasti, sem má vera úti í öllum veðrum
SAMTALS
11 HLUTIR
Settið: Sívalt borð str. 85x150 cm
\ 4 háir stólar - stillanlegt bak
fei 4 stólasessur. Dd
v í Sólhlíf með fæti —
Kringlótt borö + 4 stólar
Borcf 90 cm f þ vermál.
<290,•
BoroT 85x140 cm
S^5.m
STÓLASESSUR
f. hærri stól:
fJægri stól:
>31RÚMFATA-
LAGERINN
fM-
'U29&
® Skeifan 13 Auðbrekku 3 óseyri 4 ®
® Reykjavík Kópavogi Akureyri
J ÞAÐ ER BARA BÆJARLEIÐ I BORGARNES V
VIÐ
Komið við í einni glæsilegustu
þjónustumiðstöð landsins,
Opið frá kl, 8-23,30 alla daga.
Kjörbúð með miklu matvöruúrvali - Veitingasalur -
Greiðasala - Olíu- og bensínsala - Útibú Sparisjóðs
Mýrasýslu - Upplýsingamiðstöð ferðamanna - Úrvals
snyrtiaðstaða með skiptiborði fyrir kornabörn.
KAUPFELAG BORGFIRÐINGA - OLIUFELAGIÐ HF.
éImsM*
I wJÍ
f - .•.-' ■ ; •
r