Morgunblaðið - 11.07.1991, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JULI 1991
Sprenging í
höfuðstöðvum
heimavarnar-
liðs Eistlands
Moskvu. Reuter.
SPRENGJA sprakk í höfuðstöðv-
um eistneska heimavamarliðsins
seint á þriðjudag. Stjórnvöld i
Eistlandi telja að hún hafi verið
sprengd í þeim tilgangi að grafa
undan trausti Míkhaíls Gorbatsj-
ovs Sovétleiðtoga fyrir fund leið-
toga sjö helstu iðnríkja heims
sem hefst í næstu viku.
Sprengjan eyðilagði byggingu
heimavamarliðsins í Tallinn, höfuð-
borg Eistlands, að sögn talsmanns
utanríkisráðuneytisins, Tiit Pruuli.
Prauli sagði ennfremur að utanrík-
isráðuneytið liti svo á að sprengju-
árásin væri „ein af mörgum vand-
lega tímasettum ögrunum" sem
spilla eiga fyrir G-7-fundinum sem
haldinn verður í London. Þar hittir
Gorbatsjov leiðtogana og mun
væntanlega falast eftir stuðningi
þeirra við umbótastefnu sína. Þeir
munu hins vegar vilja fá staðfest-
ingu á því að Gorbatsjov sé alvara
með að koma á markaðskerfi.
Ljósmyndir
sýna undan-
brögð Iraka
Washington. Reuter.
BANDARÍKJAMENN eiga ljós-
myndir af íröskum hermönnum
þar sem þeir eru að grafa og
fela búnað til að auðga úran i
leynilegri herstöð skammt frá
Bagdad. Voru þær teknar úr
njósnahnetti í síðustu viku að því
er segir í bandaríska dagblaðinu
Washington Times.
Blaðið hefur upplýsingarnar eftir
ónefndnum heimildamönnum innan
bandarísku leyniþjónustunnar en
þeir segja, að á myndunum sjáist
hermennimir vera að grafa nokkra
stóra seguldiska. Eru þeir taldir
vera úr svokölluðum „kalutron",
sams konar búnaði og Bandaríkja-
menn notuðu á dögum síðari heims-
styijaldar við smíði fyrstu kjarn-
orkusprengjunnar.
Blaðið hefur það eftir einum
starfsmanni leyniþjónustunnar, að
írökum sé ekki enn farið að skiljast
hve fullkominn bandaríski njósna-
búnaðurinn er, og annar segir, að
þeir hafi gripið til alls konar bragða
við að fela kjamabúnað, efna- og
sýklavopn og Scudflaugar. Þá væri
listinn yfir kjamabúnað, sem írakar
hefðu afhent sl. mánudag, allsendis
ófulinægjandi.
Mannréttindaverðlaun Evrópuþingsins:
Stj ómarandstöðu-
leiðtogi í Búrma fær
Sakharov-verðlaunin
Aung San Suu Kyi á einum hinna fjölmennu útifunda sinna í Búrma
nokkru áður en hún var handtekin sumarið 1989.
Strasbourg. Reuter.
EVRÓPUÞINGIÐ veitti í gær
leiðtoga stjórnarandstöðunnar í
Búrma, Aung San Suu Kyi,
mannréttindaverðlaun sín sem
kennd eru við sovéska eðlisfræð-
inginn og andófsmanninn Andrej
Sakharov.
Það var 13 ára gamall sonur
verðlaunahafans sem veitti verð-
laununum viðtöku, en þau eru að
andvirði um 18.000 Bandaríkjadala
(um 11 milijóna ÍSK). Aung San
Suu Kyi leiddi stjómarandstöðu-
flokkinn Lýðræðissinnuðu þjóðar-
fýlkinguna til stórsigurs í kosning-
unum í Búrma í maí á síðasta ári.
Herforingjaklíkan sem fer með völd
í Búrma kom í veg fyrir að hún
gæti myndað ríkisstjórn. Árið 1989
settu yfirvöld hana í stofufangelsi
og manni hennar og tveimur sonum
þeirra er meinað að heimsækja
hana. Maður hennar hélt tilfinn-
ingaþrungna ræðu við athöfnina í
gær og sárbændi stjórnvöld í Búrma
að leyfa honum og sonum þeirra
að heimsækja hana.
Við athöfnina tók talsmaður
bresku utanríkisþjónustunnar til
máls og fagnaði verðlaunaveiting-
unni. Hann beindi síðan máli sínu
til yfirvalda í Búrma og skoi'aði á
þau að endurskoða skammarlega
afstöðu sína og leysa Aung San Suu
Kyi úr haldi og leyfa fjölskyldu
hennar að heimsækja hana. Hann
sagði að utanríkisþjónustan væri
stórhneyksluð á þeim mannrétt-
indabrotum sem viðgengjust í
Búrma.
Evrópubandalagið:
Bændur bregðast ókvæða
við niðurskurðartillögum
strasbourg, Amsterdam, London. Reuter. semda sem settar höfðu verið fram hátt.
BÆNDUR í mörgum evrópskum
löndum hafa brugðist mjög illa
við áætlun framkvæmdastjórnar
Evrópubandalagsins (EB) um
niðurskurð í landbúnaði og minni
niðurgreiðslur. Áætlunin, sem
kennd er við Ray MaeSharry sem
fer með landbúnaðarmál innan
framkvæmdastjórnarinnar, var
samþykkt á þriðjudag. COPA-
samtökin, sem eru þrýstihópur
bænda innan EB, sögðu áætlun-
ina vera gallaða og hefðu bænd-
ur fulla þörf á því háa verði sem
þeir fengju greitt nú. Ef útflutn-
ingsbætur yrðu lækkaðar gætu
landbúnaðarafurðir frá EB ekki
lengur keppt á heimsmarkaði.
MacSharry hafði með áætlun
sinni reynt að taka tillit til athuga-
við fýrri áætlun af Bretum, Dönum
og Hollendingum en fyrstu viðbrögð
benda samt sem áður til þess að
bændur geti ekki sætt sig við tillög-
umar.
Talsmaður hollensku bændasam-
takanna sagði hinn fyrirhugaða nið-
urskurð eiga eftir að koma sérstak-
lega illa við hollenska bændur.
Formaður bresku bændasam-
takanna sagði það vera „viðbjóðs-
legt“ að tillögur sem myndu valda
gífurlegúm skaða um alla Evrópu
ættu eftir að auka byrðarnar sem
lagðar væra á skattgreiðendur.
Áætlun framkvæmdastjórnarinnar
sagði hann eiga eftir að gera út
um bresk íjölskyldubýli. Þá væri
verið að refsa þeim bændum sem
framleiddu á sem hagkvæmastan
Alan Gillis, formaður írsku
bændasamtakanna, sagði Mac-
Sharry vera að eyðileggja sameigin-
lega landbúnaðarstefnu bandalags-
ins án þess að gera tilraun til þess
að ríku löndin innan EB bættu tjón-
ið. Þá jafngiltu tillögurnar einnig
uppgjöf gagnvart Bandaríkjamönn-
um í GATT-viðræðunum.
Ed Madigan, nýskipaður land-
búnaðarráðherra Bandaríkjanna,
sagði að nú virtust loks vera líkur
á því að EB tæki upp stefnu varð-
andi útflutningsbætur sem auðveld-
ara væri að sætta sig við.
Á mánudaginn fundar Mac-
Sharry með landbúnaðarráðherrum
EB í Brassel en þeir verða að sam-
þykkja áætlun hans eigi hún að
taka gildi.
Japan:
Launalækk-
un í yfir-
bótaskyni
Tókýó. Reuter.
RYUTARO Hashimoto, fjármála-
ráðherra Japans, bað í gær landa
sína afsökunar á að hafa ekki
fylgst betur með framferði fjög-
urra verðbréfafyrirtækja, sem
orðið hafa uppvís að ýmsu mis-
jöfnu. Þá ákvað hann einnig að
lækka launin sín um 10% næstu
þrjá mánuði.
Þegar upp komst um verðbréfa-
fyrirtækin, þau höfðu hyglað út-
völdum viðskiptavinum og lánað
glæpasamtökum fé, varð verulegt
verðfall í kauphöllinni í Tókýó en
þegar fréttist af yfirbótaræðu ijár-
málaráðherrans tóku menn gleði
sína á ný. Hækkuðu þá verðbréfin
og voru loks hærra skráð en áður
en hneykslið varð opinbert.
Hashimoto sagði, að með því
lækka við sig launin um 10% í þijá
mánuði væri hann að refsa sjálfum
sér fyrir þá yfirsjón sína og ráðu-
neytisins að hafa ekki áttað sig á
framferði fyrirtækjanna fyrr en nú
alveg nýlega. í japönskum blöðum
segir hins vegar, að ráðherrann og
hans menn hafi vitað af þessu öllu
í febrúar fyrir hálfu öðru ári. Manna
á milli sé fjármálaráðuneytið raunar
oft kallað „miðborgarútibú" eins
verðbréfafyrirtækjanna fjögurra.
Makindalegur melónusali
Reuter
Vatnsmelónusali fær sér hér blund í vegarkanti í Peking í gær og hjólreiðamenn sem eiga leið hjá skotra
kankvísir augunum til hans. Meðan uppskeratmi vatnsmelóna stendur yfir koma sölumennirnir til höfuð-
borgarinnar og gista á götunni við hlið vöru sinnar uns allt er selt..
Suður-Afríka:
Bandaríkjaforseti af-
léttir viðskiptabanni
Washington, Jóhannesarborg. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti aflétti í gær viðskiptabanni á
Suður-Afríku sem sett var 1986. Douglas Hurd, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði á ferð sinni um Suður-Afríku í gær að ríki heims-
ins ættu að viðurkenna að aðskilnaðarstefnan væri að líða undir lok
og láta af refsiaðgerðum.
Bush sagði á fréttamannafundi
í gær að öllum skilyrðum Banda-
ríkjastjórnar fyrir að aflétta bann-
inu væri nú fullnægt, þ.á m. lausn
pólitískra fanga. „Á síðustu tveimur
árum höfum við orðið vitni að gjör-
breytingu á ástandinu í Suður-
Afríku. Ég trúi því staðfastlega að
þessari þróun verði ekki snúið við“,
sagði hann. Hann sagðist hafa talað
við Nelson Mandela, forseta Afríska
þjóðarráðsins, í síma og sagt honum
frá ákvörðun sinni. Hann sagðist
einnig ætla að ræða við F.W. de
Klerk, forseta Suður-Afríku, í dag,
fimmtudag. Bush lét ekki uppi hver
viðbrögð Mandela vora, en Áfríska
þjóðarráðið telur að enn séu þúsund
pólitískir fangar í haldi í landinu.
Cyril Ramaphosa, framkvæmda-
stjóri Afríska þjóðarráðsins sagði í
gær að aðgerðir Bandaríkjastjórnar
væru ótímabærar. De Klerk, aftur
á móti, fagnaði þeim og sagði að
þetta myndi leiða til mikils fjörkipps
í efnahag landsins.
Douglas Hurd hefur verið á ferð
um Suður-Afríku síðustu daga.
Hann sagði á fréttamannafundi í
gær að aflétta bæri refsiaðgerðum
gegn landinu. „Það er kominn tími
til að leggja til hliðar þau úreltu
rök sem standa að baki refsiaðgerð-
um“, sagði hann. Hann bætti því
við að engin nauðsyn væri lengur
á því að halda blökkumönnum í
sárri fátækt með baráttu gegn að-
skiínaðarstefnunni að yfirskyni.