Morgunblaðið - 11.07.1991, Síða 21

Morgunblaðið - 11.07.1991, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAG.UR }1. JULI 1991 21 Reuter Rúmenskur sígaunadrengur fyrir framan tjald fjölskyldu sinnar við borgina Stettin í Póllandi. Tugir sígaunafjölskyldna bíða í námunda við landamærin að Þýskalandi i von um að verða hleypt þangað en Þjóðveijar hafa neitað að taka við þeim. Austur-Evrópa; Sígaunar sæta æ meiri ofsóknum Genf. Reuter. HRUN kommúnismans í Austur-Evrópu hefur leitt til þess að lagaleg staða sigauna þar hefur stórbatnað en hins vegar ber æ meira á ofsóknum á hendur þeim, að því er Nic- olae Gheorghe, leiðtogi Al- þjóðasambands sígauna, sagði á ráðstefnu um málefni þjóðar- brota í Genf í gær. „Við erum höfð til blóra vegna alls sem miður fer í þessum lönd- um á meðan þau ganga í gegnum mikla umbrotatíma í stjórnmálun- um,“ sagði Gheorghe á ráðstefn- unni, sem er haldin á vegum Ráð- stefnunnar um öryggi og sam- vinnu í Evrópu (ROSE). „Sígaunar í mörgum Austur- Evrópuríkjum hafa stofnað eigin stjórnmálaflokka, tekið þátt í fijálsum kosningum og eiga full- trúa á þjóðþingum," sagði Ghe- orghe og bætti við að lagaleg staða sígauna hefði stórbatnað. Hann sagði að árásum á sígauna hefði hins vegar fjölgað stórlega í Rúmeníu, Tékkóslóvakíu, Ung- veijalandi og Póllandi að undan- förnu. Þeim væri kennt um allt sem miður færi, til að mynda svartamarkaðsbrask, vöruskort í verslunum og verðbólgu. „Áður var andúðinni á sígaunum haldið í skefjum,“ sagði hann. „Nú, þeg- ar komið hefur verið á rit- og málfrelsi, lætur fólk hatur sitt í ljós_ á opinskáan hátt.“ Áætlað er að sjö til tíu milljón- ir sígauna séu í Evrópu, þar af 2,3 milljónir í Rúmeníu. Hermenn Saddams; Brenmsteinssýra gegn óbreyttum borgurum París. Reuter. ÞYRLUSVEITIR Saddams Hus- seins íraksforseta úðuðu brenni- steinssýru á íraska borgara að- eins átta dögum eftir að vopna- hléssamningar í Persaflóastríð- inu voru undirritaðir, að því er fram kom í frönsku sjónvarps- stöðinni FR3 í gær. Sjónvarpsstöðin hafði þetta eftir frönskum hermönnum sem fengu fólkið til læknismeðferðar í bænum Salman í Suðvestur-írak. Sýndar voru lýsandi myndir af körlum, konum og börnum með alvarleg brunasár. Ekki var tekið fram hversu margir hefðu látið lífið eða hlotið sár en árásirnar voru gerðar til að kveða niður uppreisnina gegn Saddam strax eftir ósigurinn gegn bandamönnum. Sagt var, að írakar hefðu gert árásirnar strax og þeir voru orðnir vissir um, að þeir mættu nota þyrl- ur en í vopnahlésskilmálunum var þeim bannað að nota aðrar flugvél- ar. „Við horfðum upp á þessi við- bjóðslegu grimmdarverk og skömmuðumst okkar fyrir að geta ekki gripið í taumana. Vopnahlés- skilmálarnir komu í veg fyrir það,“ sagði franski herlæknirinn Jacques Vaquette. Gott grillsumar með Knorr! Klassisk fransk krydderi- blandio^, Pjroven^! Aromat KrydderL Kryddaðu grillmatinn með Knorr og njóttu þess. Sjö kryddtegundir fyrir óteljandi tilefni. ■ BONN - Samkvæmt niðurstöð- um skoðanakönnunar sem birtar voru í Þýskalandi á laugardag myndi ríkisstjóm Helmuts Kohls kanslara falla ef kosið væri nú. Ástæðurnar eru skattahækkanir, ákvörðunin um að flytja stjórnsýslu til Berlínar og óvissan og hræðslan við kostnaðinn sem fylgir samein- ingu þýsku ríkjanna. Niðurstöður könnunarinnar bentu einnig til þess að Jafnaðarmannaflokkurinn (SPD), sem er í stjórnarandstöðu, myndi geta myndað samsteypu- stjórn með samstarfsflokki kristi- legra demókrata (CDU), Fijálsa demókrataflokknum (FDP). ■ BONN - Aðildarþjóðir Comecon, efnahagsbandalags austantjaldsríkjanna sem nú hefur verið lagt niður, skulduðu Austur- Þýskalandi 23,4 milljarða marka (um 756 milljarða ÍSK). Vilja þýsk stjórnvöld að skuldunautarnir standi skil á þessum peningum, en eru þó ekki of bjartsýn á að til þess geti komið. Þýskir embættis- menn hafa þegar haldið tvo fundi með sovéskum starfsbræðrum sínum og telja Þjóðveijarnir að langir og strangir fundir séu fram- undan vegna gjaldeyrisskorts Comecon-ríkjanna fyri’verandi. Þú færð Knorr gæðakryddið úr sérstökum tilboðsstöndum í næstu verslun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.