Morgunblaðið - 11.07.1991, Síða 34
, 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991
fclk í
f réttum
SAMKOMUR
American Scandinavian Foundation
styrkir fjóra nemendur
Þessar hressu kon-
ur báru fram veit-
ingarnar íklæddar
íslenskum búning-
um, þær heita f.v.,
Sigga Nash, Bíbí
Sæberg, Kata
Warren, ’lris
White, Inga Brynj-
ólfsson og Ardís
Freymóðsson.
Félagsskapurinn „Ameriean
Scandinavian Foundation“
hélt nýverið samkundu þar sem
útlhutað var styrkjum til fjögurra
nemenda sem annað hvort eru frá
Norðurlöndunum eða nema norræn
fræði. Samkoman var haldin í
Propoganda Studios í Hollywood,
en einn aðaleigandi þeirra, Sigurjón
Sighvatsson lánaði húsakynnin og
var kynntur sem heiðursgetur á
samkomunni. Íslendingurinn Her-
mann Stefánsson hlaut styrk til
framhaldsnáms í hljómlistarfræði
og styrki hlutu einnig John Phillip
Blum, Margrethe von Eyben frá
Danmörku svo og Jens Miehael
Vilhelm Pedersen..
Meðal gesta má nefna Önnu
Björnsdóttur sem sýndi við þetta
tækifæri kvikmynd sína „Love and
War“, en myndin fjallar um íslensk-
ar stúlkur sem giftust hermönnum
í stríðinu og fluttu vestur um haf.
Af öðrum gestum má nefna Höllu
Linker, íslenska ræðismanninn og
finnska sendiherran
Tapio Saare og konu
hans. Tvær íslenskar
konur eru í stjóm
ASF og báru þær
hitann og þungan af
samkomunni.
Veislustjórinn Hazel Sussman
og Sigurjón Sighvatsson.
F.v. Halla Linker, Jim Koenig og
Anna Björnsdóttir.
Dr. Sigríður Þ. Valgeirsdóttir ásamt Dr. S.D. Farr deildarforseta.
HEIÐUR
Dr. Sigríður Þ. Val-
geirsdóttir heiðruð
Sigríður Þ. Valgeirsdóttir pró-
fessor og fýrrverandi forstöðu-
maður Rannsóknarstofnunnar upp-
eldis- og menntamála, var heiðruð
við hátíðlega athöfn í ríkisháskóla
New York-ríkis fýrir nokkm. Hún
var sæmd heiðursnafnbótinni „Dist-
inguished Alumni Award“ og af-
hentur verðlaunagripur, sem hvort
tveggja er aðeins veitt þeim er lok-
ið hafa doktórsprófi við háskólann.
Við verðlaunaafhendinguna gat
rektor háskólans þess að 1988 hefði
háskólinn í fyrsta sinn veitt slík
verðlaun til fyrrverandi nemenda
skólans fyrir framúrskarandi í starfi
og framlag til menningar- og
menntamála.. Deildarforseti Ráð-
gjafar og Uppeldisfræðideildar af-
henti verðlaunin • og gat þess að
deildin hefði valið dr. Sigríði sem
verðlaunahafa úr hópi eldri nem-
enda sem skömðu fram úr. Hún
hafi lokið doktórsgráðu við háskól-
ann 1974. Síðan hafi framlaghenn-
er á sviði kennaramenntunar og
prófunarfræði verið frábært. Meðal
afreka hennar væri þróun sérstakra
hæfileikaprófa á Iandsvísu þar sem
hún notar nútíma kenningar á ein-
stakan og hugkvæman hátt.
Til viðbótar skyjdum hennar sem
prófessor við KHÍ og forstöðu-
manns Rannsóknarstofnunnar upp-
eldis- og menntamála hafi hún og
átt stóran þátt í því að safna og
skrá sögu íslenskra dansa.
Ódýrar og góðar sumarvö
Sportjakki
kr. 4.900,-
Gallaskyrta
kr. 2.490,-
Gallabuxur
kr. 2.990,-
PÓSTKRÖFUÞJÓNUSTA
Svefnpoki
kr. 4.900.
I
I
I
| OPNUNARTIMI Mánudag — föstudag frá kl. 13—18. Laugardag frá kl. 10—14.
I "
I
I
I
I
Einnig: 0 Kakhibuxur 0 Flónelsskyrtur 0 Herrapeysur 0 Sportúlpur 0 Vindsett 0 Regnsett 0 Hettubolir 0 Terylinebuxur
0 Sokkar 0 Húfur 0 Rifflaðar flauelsbuxur 0 WAX jakkar 0 Stígvél 0 Bakpokar 0 Töskur 0 Útilegugræjur 0 O.m.fl.
ALLT Á FRÁBJERU VERÐI
uós
■*-
NfBTUWbGUH
HLMitfkmu
Nýbýlavegi 4 (Daibrekkumegin), Kópavogi, símar 91-45220