Morgunblaðið - 11.07.1991, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 11.07.1991, Blaðsíða 34
, 34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 1991 fclk í f réttum SAMKOMUR American Scandinavian Foundation styrkir fjóra nemendur Þessar hressu kon- ur báru fram veit- ingarnar íklæddar íslenskum búning- um, þær heita f.v., Sigga Nash, Bíbí Sæberg, Kata Warren, ’lris White, Inga Brynj- ólfsson og Ardís Freymóðsson. Félagsskapurinn „Ameriean Scandinavian Foundation“ hélt nýverið samkundu þar sem útlhutað var styrkjum til fjögurra nemenda sem annað hvort eru frá Norðurlöndunum eða nema norræn fræði. Samkoman var haldin í Propoganda Studios í Hollywood, en einn aðaleigandi þeirra, Sigurjón Sighvatsson lánaði húsakynnin og var kynntur sem heiðursgetur á samkomunni. Íslendingurinn Her- mann Stefánsson hlaut styrk til framhaldsnáms í hljómlistarfræði og styrki hlutu einnig John Phillip Blum, Margrethe von Eyben frá Danmörku svo og Jens Miehael Vilhelm Pedersen.. Meðal gesta má nefna Önnu Björnsdóttur sem sýndi við þetta tækifæri kvikmynd sína „Love and War“, en myndin fjallar um íslensk- ar stúlkur sem giftust hermönnum í stríðinu og fluttu vestur um haf. Af öðrum gestum má nefna Höllu Linker, íslenska ræðismanninn og finnska sendiherran Tapio Saare og konu hans. Tvær íslenskar konur eru í stjóm ASF og báru þær hitann og þungan af samkomunni. Veislustjórinn Hazel Sussman og Sigurjón Sighvatsson. F.v. Halla Linker, Jim Koenig og Anna Björnsdóttir. Dr. Sigríður Þ. Valgeirsdóttir ásamt Dr. S.D. Farr deildarforseta. HEIÐUR Dr. Sigríður Þ. Val- geirsdóttir heiðruð Sigríður Þ. Valgeirsdóttir pró- fessor og fýrrverandi forstöðu- maður Rannsóknarstofnunnar upp- eldis- og menntamála, var heiðruð við hátíðlega athöfn í ríkisháskóla New York-ríkis fýrir nokkm. Hún var sæmd heiðursnafnbótinni „Dist- inguished Alumni Award“ og af- hentur verðlaunagripur, sem hvort tveggja er aðeins veitt þeim er lok- ið hafa doktórsprófi við háskólann. Við verðlaunaafhendinguna gat rektor háskólans þess að 1988 hefði háskólinn í fyrsta sinn veitt slík verðlaun til fyrrverandi nemenda skólans fyrir framúrskarandi í starfi og framlag til menningar- og menntamála.. Deildarforseti Ráð- gjafar og Uppeldisfræðideildar af- henti verðlaunin • og gat þess að deildin hefði valið dr. Sigríði sem verðlaunahafa úr hópi eldri nem- enda sem skömðu fram úr. Hún hafi lokið doktórsgráðu við háskól- ann 1974. Síðan hafi framlaghenn- er á sviði kennaramenntunar og prófunarfræði verið frábært. Meðal afreka hennar væri þróun sérstakra hæfileikaprófa á Iandsvísu þar sem hún notar nútíma kenningar á ein- stakan og hugkvæman hátt. Til viðbótar skyjdum hennar sem prófessor við KHÍ og forstöðu- manns Rannsóknarstofnunnar upp- eldis- og menntamála hafi hún og átt stóran þátt í því að safna og skrá sögu íslenskra dansa. Ódýrar og góðar sumarvö Sportjakki kr. 4.900,- Gallaskyrta kr. 2.490,- Gallabuxur kr. 2.990,- PÓSTKRÖFUÞJÓNUSTA Svefnpoki kr. 4.900. I I I | OPNUNARTIMI Mánudag — föstudag frá kl. 13—18. Laugardag frá kl. 10—14. I " I I I I Einnig: 0 Kakhibuxur 0 Flónelsskyrtur 0 Herrapeysur 0 Sportúlpur 0 Vindsett 0 Regnsett 0 Hettubolir 0 Terylinebuxur 0 Sokkar 0 Húfur 0 Rifflaðar flauelsbuxur 0 WAX jakkar 0 Stígvél 0 Bakpokar 0 Töskur 0 Útilegugræjur 0 O.m.fl. ALLT Á FRÁBJERU VERÐI uós ■*- NfBTUWbGUH HLMitfkmu Nýbýlavegi 4 (Daibrekkumegin), Kópavogi, símar 91-45220

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.