Alþýðublaðið - 24.02.1959, Síða 1
★ ★★★★
Þetta er
hann Haraldor
Jafnmargir og allt árið sem lei.
FIMMTÍU og fjórir dagar
eru liðnir af árinu 1959. Þess-
ir dagar hafa þó þeigar krafizt
mikilla mannfórna af íslenzku
þjóðinni. 58 manns hafa beð-
SVIPMYNDIR
AFSJÓNUM
Myndasmiðurinn kærir
sig ekki um að láta nafns
síns getið. En myndirnar
segja sína sögu úr lífi ís-
lenzkra sjómanna. Þess
vegna hefur Alþýðublað-
ið ánægju af að birta
þær. Og er ekki eins og
sá með gogginn segi á
neðstu myndinni; „Ójá,
þetta er oftastnær kalsa-
samt“.
ið bana af ýrniss konar slys-
förum og er það jafnmargt og
allt síðasta ár, 1958.
Sjóslys og drukknanir hafa
svipt 44 menn lífi á tímabil-
inu frá síðustu áramótum eða
lielmingi fleiri en allt síðasta
ár, en þá fórust 22 menn af
þeim sökum.
Einn hefur beðið bana í
umferð'arslysi í ár, en 16 á síð
astliðnu ári öllu.
Níu banaslys eru skráð hjá
Slysavarnafélaginu af ýmsum
öðrum orsökum það sem af er
árinu, þar af fjórir ungir
menn í flugslysi. Árið 1958
eru 20 taldir hafa beðið bana
af slysförum ýmissa orsaka.
Er talan því þegar orðin jafn-
há og eftir allt árið sem leið.
Þessar slySfarir samsvara
því hlutfallslega, að Banda-
ríkjamenn misstu um 60 þús-
und mannslíf á sama tíma, þar
eð þeir eru rúmlega þúsund
sinnum fleiri en Islendingar.
Pasternak
UPI. — Ég tek ekki aftur
eitt orð af því, sem ég
skrifaði í Doktor Sívagó
og það' gleður mig að bók
mín skuli vera lesin um
heim allan, sagði Nóbels-
verðlaunahöfundurinn
Boris Pasternak í viðtali
við bandarískan blaða-
mann fyrir skömmu.
— Með hverri kynslóð
verða að vera menn, sem
segja sannleikann og
túlka hann eins og hann
er í raun og veru. Doktor
Sívagó er ekki pólitísk
bók og átti ekki að vera,
en í augum Soyétstjórn-
arinnar eru allar bækur,
sem ekki þjóna sovétá-
róðrinum, pólitískt nei-
kvæðar. Því hefur verið
haldið fram, að sænska
akademían hafi valið bók
mína í pólitískum til-
gangi. Ég ætti manna
bezt að vita, að akademí-
an var að meta lifsverk
skálds.
40. árg. — Þriðjudagur 24. febrúar 1959 — 45. tbl.
Þjóðleikhúsið hleypig
nýju barnaleikriti af stokk-
unum næstk. fimmtudag.
Hér er Haraldur Björns-
son, eins og hann kemur
fram í leikritinu. Það er
reyndar íslenzkt, og nán-
ar segir frá því á 12. síðu.
lundurdufl í
vörpuna
í FYRRINÓTT fékk togar-
inn Svalbakur tundurdufl í
vörpuna og fór með það inn til
ísafjárðar. Þangað fór svo
læzluflugvélin Rán með tund-
urduflasérfræðing landhelgis-.
gæzlunnar, Gunnar V. Gísla-
son, skipstjóra, er gerði duflið
óvirkt. •
0éð.i?r afii iandheliisbrgóli
EINS og kunnugt er hafa
brezku herskipin hér við land
undanfarið haldið uppi tveim-
ur verndarsvæðum fyrir Aust-
urlandi, til ólöglegra veiða fyr-
ir brezku togarana. Mjög lítil
veiði hefur verið á þessum slóð
um og fáir togarar nema mjög
langt utan fiskveiðimarkanna.
Nú hefur hins vegar sú breyt
ing orðið á svæðunum, að þau
hafa verið flutt sunnar, þannig
að annað er frá Ingólfshöfða að
Hrollaugseyjum, og hitt frá
Stokksnesi að Papey. í gær-
morgun vom 5 togarar á fyrr-
nefnda svæðinu og 3 á hinu
síðara. Svæðanna gæta 3 til 4
brezkir tundurspillar og auk
þess er þar birgðaskip. A.*"i var
góður hjá sumum skipanna.
Alls munu vera um 30 brezkir
togarar fyrir suðausturlandi,
langflestir á svonefndum Kidn-
ey banka ,sem er lahgt undan
landi. Annars staðar við ísland
hefur brezku togaranna, hins
vegar ekki orðið vart.
(Tilkynning frá
Landhelgisgæzlunni).
ÍJNDANFARIN ár liafa sölu
samtök fiskframleiðenda feng'
ið sívaxandi kvartanir erlend'
is frá, vegna gallaðrar franv
leiðslu, sem oftast hefur mátt
rekja til lélegs eða
skemmds hráefnis. En aðalor-
sökin fyrir þessu er breytt veiði
tækni, þ.e.a.s. aukin netaveiði.
Þetta ástand í fiskframleiðslu
okkar er því alvarlegra, vegna
jafnvel þess að helztu keppinautar okk
ar á heimsmarkaðinum leggja
nú allt kapp á að vanda fram-
leiðslu sína.
Með hliðsjón af þessum stað-
reyndum skipaði sjávarútvegs-
málaráðuneytið á s. 1. hausti 6
manna nefnd samkvæmt marg-
endúrteknum tilmælum frá
samtökum sjávarútvegsins, til
þess að kanna, hvort æskilegt
væri að stofna til mats á nýj-
um vinnslufiski. Nefnd þessi,
sem kallast Ferskfisknefnd,
skilaði síðan áliti, þar sem lagt
var til, að stofnað yrði til eftir-
lits á þessari vertíð með nýjum
bátafiski.
Ráðuneytið fól síðan nefnd-
-inni að hefja slíkt eftirlit til
reynslu. Rannsóknastofa Fiski-
félags íslands fer með yfir-
stjórn þess og er eftirlitið þeg-
ar hafið í helztu verstöðvum.
REGLUR UM NETAFJÖLDA.
Eitt af því, sem nefndin lagði
til, var að settar yrðu ákveðn-
ar reglur um þann netafjölda,
sem vertíðarbátar mættu hafa
í sjó. Óhóflegur netafjöldi er að
Framhald á 2. síðu.
Fæddi barn
ÞAÐ vildi til hér í
Reykjavík í fyrrinótt, að
kona nokkur fæddi barn
í sjúkrabifreið.
Var konan á leið til
fæðingarheimilis Guðrún
ar Halldórsdóttur er fæð-
inguna bar að höndum.
Fór allt vel þrátt fyrir erf
iðar aðstæður, enda fékk
konan skömmu síðar
nauðsynlega aðhlynningu
á fæðingarheimilinu.