Morgunblaðið - 26.07.1991, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 26.07.1991, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1991 15 Ljósmynd/ Þorsteinn Signrðsson Ratsjárturnarnir á Straumnesfjalli sumarið 1960. I stærri kúlunni var aðalratsjárloftnetið sem snerist í láréttum fleti, en hæðarratsjá í þeirri minni. í stjómstöðvarbyggingunni til vinstri sátu bandarísku hermennirnir og rýndu í skjáina. Kristbjarnar. Að vetrinum voru einnig oftast nokkrir menn í stöð- inni sem sáu um snjóruðning og drógu björg í bú á stórum sleða sem dreginn var af jarðýtu og var þetta oft eina farartækið sem fært var á fjallið sökum snjóa og veðurs. Jón Vagnsson frá Látrum, Kristján Lyngmó á ísafirði og Einar Jónsson og Halldór Þorvaldsson úr Reykja- vík höfðu þetta verkefni með hönd- um lengst af. Starfsemi ratsjárstöðvarinnar á Straumnesíjalli var hætt sumarið 1960. Þess misskilnings gætir oft að stöðin hafi verið orðin úrelt og annars konar tækni tekin við. Hið rétta er hins vegar að árið 1960 var ákveðið að leggja niður starf- semi stöðvanna á Stokksnesi og Straumnesfjalli sökum kostnaðar og erfiðleika samfara úthaldi á rúm- lega eitt hundrað manna liði á hvor- um stað við erfiðar aðstæður á af- skekktum stöðum með tilliti til þess að á þessum tíma var engin umferð sovéskra flugvéla á þessu_ svæði, ólíkt því sem síðar varð. Á sama tíma var bandaríski fiotinn að taka við stjórn varnarliðsins á Islandi og hefja starfrækslu ratsjárflugvéla á svæðinu. Tækjabúnaður stöðvanna á Langanesi og Miðnesheiði var endurnýjaður og þeim einkum ætlað að sjá um ratsjáreftirlitið á jörðu niðri. Á Straumnesfjalli og Stokksnesi voru fáeinir íslenskir og bandarískir eftirlitsmenn um veturinn er héldu húsum heitum og gættu tækja og búnaðar sem þeið niðurrifs á kom- andi sumri. í janúar 1961 gerði mikið óveður á Norðurlandi sem reif uppblásnu hlífðarkúluna utan af öðru ratsjárloftnetinu á Heiðar- fjalli á Langanesi og feykti henni á haf út, í meira eða minna heilu lagi. Við þetta urðu skemmdir á loftnetinu sem varð til þess að her- sveit sú er starfrækti stöðina var flutt í skyndi til Stokksness og hóf aftur starfsemi þeirrar stöðvar sem staðið hefur óslitið síðan. Stöðin á Heiðarfjalli var starfrækt sem fjar- skiptastöð til ársins 1970 er henni var endanlega lokað og hún rifín. Vorið 1961 var hafist handa við að rífa stöðina á Straumnesfjalli ásamt mannvirkjum á Látrum. Bandaríski flugherinn afsalaði sér stöðinni og öllu því sem henni fylgdi að Látrum í hendur íslenska ríkisins og sá Sölunefnd vamarliðseigna um verkið. Því miður virðast engar kvaðir varðandi umgengni á svæð- inu hafa fylgt, eða þeim ekki sinnt, enda litlar áhyggjur manna af um- hverfisspjöllum á svo afskekktum stöðum á þessum tíma. Leit því allt svæðið út eins og eftir loftárás \ mörg ár eftir þessar aðgerðir. Á síðasta áratug veitti Sala varnarl- iðseigna fé til þess að hreinsa mætti til á Látrum. Þar eð álíka tækjabúnaði og notaður var við að flytja og reisa steinhúsin á fjallinu var ekki lengur til að dreifa þegar farið var að rífa stöðina standa þau þar enn. Allt lauslegt, innanstokks sem utan, var þó fjarlægt og sums staðar beitt stórvirkum tækjum á húsin til þess að bijóta sér leið að dýram tækjum sem ná þurfti út. Þannig var á einum stað farið inn í gegnum vegg á jarðýtu og snúið við á gólfinu og út sömu leið. Stigahlíð/Bolafjall Eftirlit með ferðum flugvéla fer enn fram með ratsjám í flugvélum og á jörðu niðri. Með stöðugt auk- inni umferð flugvéla um loftvarnar- svæði íslands á undanförnum 30 árum er þörfin á ratsjárstöðvum á norðanverðu landinu löngu orðin brýn. Ekki hefur þó orðið úr fram- kvæmdum aftur á þessu sviði fyrr en nú, að tæknin leyfir starfrækslu nýrra stöðva með takmörkuðum mannafla til daglegs viðhalds. Nýja stöðin á Bolaijalli, sem taka á í notkun í vetur, verður af þessari gerð og verða ratsjármerkin send varnarliðinu og Flugstjórnarmið- stöðinni í Reykjavík til úrlestrar og notkunar við eftirlit og stjórnun flugumferðar á svæðinu. Höfundur bjó ásamt fjölskyldu sinni að Látrum á þeim tíma er ratsjárstöðin á Straumnesfjalli var íbyggingu ogrekstri. Hann hefur kynntsérsögu og umsvif erlendra herja á íslandi. Ljósmynd/Kristbjörn H. Eydal Jarðýtur voru gjarna einu farartækin sem fært var á Straumnes- fjall að vetrinuin. Fór þá ein fyrir og ruddi leiðina en önnur fylgdi eftir og dró fólk og varning á sleða. Leiðin rudd í fjallinu ofan við Látra. Frægt er afrek Jóns Vagnssonar frá Látrum er hann lét sig hafa það að aka jarðýtu afturábak niður snarbratta hlíðina og niður á jafnsléttu eftir að hafa farið útaf veginum við snjómokstur. Ólafsvík: Nýr veitingastaður Ólafsvík. NÝVERIÐ opnuðu hjónin Arn- ljótur Arnarsson og Agla Egils- dóttir veitingastað í gistiheimil- inu Höfða í Olafsvík og fá Ólafs- víkingar og aðrir gestir að njóta ljúffengra kræsinga i fallegu umhverfi. Er staðurinn einnig með vínveitingaleyfi. Mikið kapp var lagt til að gera staðinn sem huggulegastan og vora það að mestu iðnaðarmenn hér úr bæ sem unnu að lagfæringu staðar- ins og fórst þeim það mjög vel úr hendi. Alls era starfsmenn sex talsins og er Ingólfur Ingvarsson mat- reiðslumeistari staðarins. - Alfons Morgunblaðið/Alfons Finnsson Starfsfólk Höfða, frá vinstri; Annette, Thelma, Sigurbjörg, Arnljótur og Ingólfur. ■ DAGANA 25.-28. júlí verður stærra samkomutjald hvítasunnu- manna reist við Laugarnesskóla. Tjaldsamkomur safnaðarins í Reykjavík hafa sett svip á borgina í mörg ár og mikill fjöldi borgarbúa hefur lagt leið sína á samkomurn- ar. Eins og fyrr mun léttur og lífleg- ur söngur vera áberandi á samkom- unum. Þar munu gestir frá Hol- landi og Kanada einnig taka þátt. Ræðumenn auk gestanna verða Hafliði Kristinsson, forstöðumað- ur Fíladelfíusafnaðarins, Guðni Einarsson, framkvæmdastjóri Fíladelfíu-forlags, og G. Theódór Birgisson, æskulýðsleiðtogi. Tjald- ið rúmar 400 manns í sæti og er upphitað. Allir era hjartanlega vel- komnir á samkomumar, sem verða hvert kvöld, frá fímmtudegi til sunnudags og hefjast klukkan 20.30. Til að komast með strætis- vögnum að tjaldinu, er fólki beint á leiðir 4 og 5. Honda f91 CMc Sedan 16 ventla Verð frá kr. 1.090 þús. GLi-special GREIÐSLUSKILMÁLAR FYRIR ALLA. ÍHONDA VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., S(MI 689900 Borgarkringlan, sími 67 99 55 Svisslendingar hafa áratugum saman verið heimsþekktir fyrir gæðavörur sem endast. Eins og RAICHLE gönguskórnir. RAICHLE setur þægindi og öryggi göngumannsins í öndvegi. Hjá RAICHLE eru gæðin Nr.1. RAICHLE NEPAL er gerður úr Regatta nautshúð og Gore-Tex.® Með vatnsheldri tungu og Vibram sóla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.