Morgunblaðið - 28.07.1991, Blaðsíða 4
ERLEIMT
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1991
|
i
Fundur Bush og Gorbatsjovs:
Efnahagsmálin Moskvubúum
ofar í huga en leiðtogafundur
Moskvu. Frá Ólafi Þ. Stephensen, blaðamanni Morgunblaðsins.
UNDIRBÚNINGUR fyrir fund þeirra Míkhaíis Gorbatsjovs, forseta
Sovétríkjanna, og George Bush Bandaríkjaforseta er í fullum gangi
hér í Moskvu. I gær var verið að fægja rúður, helluleggja og mal-
bika við fyrirhugaða blaðamannamiðstöð í Metsdúna Rodnaja-hótel-
inu. Meðal Moskvubúa ríkir hins vegar ekkert leiðtogaæði, á borð
við það sem greip íslendinga þegar Gorbatsjov og Reagan hittust í
INNLENT
Viðkvæm
staða í EES
samningum
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðehrra segir að takist
ekki samningar milli EFTA og EB
um Evrópskt efnahagssvæði fyrir
næstu mánaðamót verði áform um
það lögð á hilluna. Uffe Elle-
mann-Jensen utanríkisráðherra
Danmerkur, sem var í opinberri
heimsókn hér á landi í vikunni til
viðræðna við Jón Baldvin segir að
semjist ekki fyrir 1. ágúst náist
samningar síðar. Hann segir Dani
styðja k'röfu EFTA-ríkjanna um
frjálsan markaðsaðgang allra sjáv-
arafurða að Evrópumarkaði en
upplýsingar frá embættismönnum
Evrópubandalagsins höfðu bent til
hins gagnstæða.
Burger King hættir við
íslenskan þorsk
Bandaríska veitingahúsakeðjan
Burger King hefur í hyggju að
hætta að kaupa íslenskan þorsk
af Iceland Seafood í lok ágúst
vegna hás verðs á þorski miðað við
verð á Alaska-ufsa. Könnun sem
fyrirtækið hefur gert sýnir að við-
skiptavinir Burger King gera engar
athugasemdir þegar þeim er borinn
Alaska-ufsi í stað íslensks þorsks.
Burger King er stærsti kaupandi
unninna afurða Iceland Seafood.
Mulroney millilenti
Brian Mulroney forsætisráð-
herra Kanada, hafði ásamt fjöl-
skyldu sinnu um klukkustundar
viðdvöl á Keflavíkurflugvelli á mið-
vikudag og átti þá viðræður við
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra.
ERLENT
Sovéskir
kommúnist-
ar falli frá
marxisma
Miðstjórnar-
fundur Sov-
éska kommún-
istaflokksins
var haldinn á
fimmtudag og
föstudag. Þar
lagði Míkhaíl
Gorbatsjov
Sovétforseti fram tillögur um
breytta stefnuskrá fiokksins þar
sem gert er ráð fyrir því að hann
nálgist jafnaðarstefnuna. í setn-
ingarræðu sinni neitaði Gorbatsj-
ov hins vegar að að þetta þýddi
fráhvarf frá sósíalisma heldur
væri verið að snúa baki við hinum
hráa marx-Ienínisma. Miðstjóm-
armennirnir tóku vel í tillögur
forsetans, en fyrirfram var búist
við andstöðu harðlínumanna.
írakar hunsuðu lokafrestinn
Að sögn
Bandaríkja-
stjórnar hafði
Saddam Hus-
sein íraksfor-
seti ekki lagt
fram fullnægj-
andi upplýs-
ingar um
kjamorkuvinnslu í írak áður en
frestur sá sem öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna veitti honum
rann út á fímmtudag. Bandaríkin
höfðu hótað hernaðaraðgerðum
ef upplýsingarnar bærust ekki
fyrir þann tíma, en drógu nokkuð
í land með það og sögðu að ekki
myndi ráðist í tafarlausar aðgerð-
ir.
Þrír slösuðust í flugslysi
Þrír menn slösuðust, enginn
þeirra lífshættulega, er lítil einka-
flugvél brotlenti skömmu eftir flug-
tak skammt frá flugvelinum við
Mývatn síðdegis á fímmtudag. Að
sögn sjónvarvotts drapst á hreyfli
vélarinnar skömmu eftir flugtakið.
Stefnt að álverssamningum
12. ágúst
Stefnt er að undirritun sam-
komulags um byggingu og rekstur
nýrrar álbræðslu á Keilisnesi í
Reykjavík þann 12. ágúst næst-
komandi. Van der Ros, fram-
kvæmdastjór Hoogovens, hol-
lenska álfyrirtækisins, segist telja
ólíklegt að nokkuð óvænt geti kom-
ið upp sem fresti undirritun sam-
komulagsins.
Lánskjaravísitala afnumin?
Einar Oddur Kristjánsson, for-
maður VSÍ, segir að tímabært sé
að afnema lánskjaravísitölu í kjölf-
ar skynsamlegra kjarasamninga í
haust sem tryggi áframhaldandi
stöðugleika 'þjóðfélaginu. Davið
Oddsson forsætisráðherra segir
að náist að tryggja stöðugleika til
lengri tíma í samningum séu vísi-
tölur og vísitölubinding ekki heilag-
ar kýr. Örn Friðriksson formað-
ur Máls- og skipasmóiðasam-
bands íslaands segir nauðsynlegt
að afnema sjálfvirkni milli launa
og lánskjaravísitölu en síðustu sex
mánuði hefur lánskjaravísitalan
hækkað um 10,6% miðað við heilt
ár en framfræðsluvísitalan um
8,9%.
S-Afríkustjórn studdi
Inkatha og andstæðinga
SWAPO
Um síðustu helgi komst upp
að S-Afríkustjóm hafði stutt Ink-
atha-frelsisflokk Zúlúmanna fjár-
hagslega um nokkurra ára skeið,
en Inkatha er einn helsti andstæð-
ingur Afríska þjóðarráðsins. Einn-
ig kom í ljós að stjórnin hafði
veitt sjö flokkum í Namibíu fjár-
hagsaðstoð til að koma í veg fyr-
ir að SWAPO-hreyfíngin, sem
barðist lengi fyrir sjálfstæði
landsins frá S-Afríku, kæmist til
valda. Nokkrir ráðherrar í ríkis-
stjóminni era viðriðnir málið og
lagt hefur verið hart að þeim að
segja af sér.
Auknar líkur á
friðarráðstefnu
Israelar sögðust á miðvikudag
vera bjartsýnir um að brátt yrði
efnt til ráðstefnu um frið milii
Arabaríkjanna og Israels, en enn
var deilt um hvetjir verða fulltrú-
ar Palestínumanna. Á fímmtudag
gerðu Bandaríkjamenn þó samn-
ing við ísraela um að engir Pal-
estínumenn frá Austur-Jerúsalem
verði þar.
Enn barist í Jugóslavíu
I síðustu viku féllu um 40 manns
í bardögum milli Serba og Króata
í Júgóslavíu. Ekki virðist friður á
næsta leiti og leiðtogar lýðveld-
anna ásaka hverjir aðra hatramm-
lega um að eiga sök á ástandinu.
Jeltsín bannar starfsemi
kommúnista
Borís Jeltsín, forseti Rúss-
lands, bannaði um síðustu helgi
starfsemi kommúnista í fyrirtækj-
um í landinu. Gorbatsjov tók
banninu illa og taldi það auka
spennu í Sovétríkjunum.
Höfða árið 1986.
Sumt fólk, sem blaðamaður
Morgunblaðsins ræddi við á götum
Moskvu í gær, vissi ekki einu sinni
að fundurinn stæði til. Aðrir sögð-
ust ekki hafa mikinn áhuga á hon-
um. „Af hveiju ættu þessir karlar
að koma mér við?“ sagði einn. „Ég
hef bara áhyggjur af efnahags-
ástandinu, að hafa i mig og á.“
Háskólastúdent var spurður
hvort hann vonaði að Bush til-
kynnti að Bandaríkjamenn ætluðu
að veita Sovétríkjunum aukna efna-
hagsaðstoð. „Það skiptir ekki máli,“
sagði hann. „Auðlindirnar eru í
okkar eigin landi. Ég hef enga trú
á amerískri hjálp, við verðum að
nýta auðlindimar sjálf."
Ung stúlka sagði að hún teldi
fundinn engu máli skipta fyrir efna-
hag Sovétríkjanna, en hins vegar
væri hann gagnlegur fyrir öryggi
þeirra, af því að þar ætti að skrifa
undir samning um fækkun kjarna-
vopna. „Það er gott ef það á að
fækka vopnunum, en ég hef samt
meiri áhuga á að eitthvað gerist
sem bætir efnahaginn," sagði hún.
George Bush mun koma til
Moskvu seint á mánudagskvöld og
búa á Spatov-setrinu, embættisbú-
stað bandaríska sendiherrans. Á
þriðjudag mun hann fara út á með-
al almennings í Moskvu. Á miðviku-
daginn fundar Bush með sovézkum
kaupsýslumönnum og síðar um
daginn verður START-samningur-
inn um fækkun langdrægra kjarna-
vopna undirritaður í Vladímírskíj-
salnum í Kreml. 1. ágúst lýkur
Bush heimsókn sinni eftir stutta
heimsókn til Kiev í Úkraínu.
Ráðstefnan um Miðausturlönd:
Fyrsta skrefið stigið á
þymum stráðum vegi
ÖLL sólarmerki benda til að
innan nokkurra mánaða takist
að ná þvi langþráða markmiði
að samningaráðstefna verði
haldin um framtíðarskipan
mála í Miðausturlöndum. Yitz-
ak Shamir, forsætisráðherra
ísraels, hefur kúvent og dregist
á að samþyklqa aðild ísraels
að slikri ráðstefnu þó svo að
hún verði haldin undir hand-
leiðslu Sameinuðu þjóðanna.
Shamir hefur verið ófús til þess
þar sem hann óttast að ísraelar
verði á slíkri ráðstefnu beittir
þvingunum og neyddir til að
afsala sér hluta hernámssvæð-
anna. Það sem réð úrslitum að
Shamir varð að fallast á þát-
töku er vafalaust að Sýrlend-
ingar kváðu upp úr með það á
dögunum að þeir væru til í tusk-
ið og þar með var Shamir nátt-
úrlega ekki stætt á að halda
þvergirðingslegri afstöðu sinni
til streitu.
En samt skyldu menn vera
gætilega bjartsýnir, það eiga
eftir að koma upp mörg atriði sem
menn greinir á um og sumir sér-
fræðingar spá því að ísraelar
muni ekki hika við að draga sig
út úr hugsanlegum viðræðum ef
þeim fínnst að ekki sé nægilegt
tillit tekið til vilja þeirra. Það hef-
ur nú valdið gremju í ísrael að
Farouk A1 Shara, utanríkisráð-
herra Sýrlands, hefur lýst yfír að
hann hafí verið fullvissaður um
það af Bandaríkjamönnum - trú-
lega James Baker - að þeir muni
setja á oddinn að ísraelar skili
herteknu svæðunum. Þetta hefur
hleypt illu blóði í ísraelska ráða-
menn og ekki séð fyrir endann á
hvort þeir koma með mótleik. A1
Shara hefur
gegnt mikil-
vægu hlut-
verki síðustu
mánuði þegar
Baker hefur
verið á Mið-
austurlanda-
ferðum sínum. Sumir staðhæfa
að hann eigi hvað drýgstan þátt
í að Assad forseti ákvað að ganga
til leiks.
Það hefur þótt ámælisvert að
ísraelar krefjast neitunarvalds um
hvaða fulltrúar Palestínumanna
verði á ráðstefnunni. Vegna veikr-
ar stöðu PLO - Frelsissamtaka
Palestínu - eftir Flóastríð er ekki
trúlegt að þeir komi til greina sem
fulltrúar. Það ætti að gera ísrael-
Yitzak_ Shamir, forsætisráð-
herra ísraels.
Farouk A1 Shara, utanríkisráð-
herra Sýrlands.
um hugarhægra en þeir hafa jafn-
an séð rautt og raglast við tilhugs-
unina eina um að opinber fulltrúi
PLO sæti slíka ráðstefnu. En þá
hafa ísraelar sett fram aðra kröfu;
Palestínumenn í Austur-Jerúsal-
em fái ekki að senda fulltrúa. Þar
með mundu tveir áberandi og virt-
ir Palestínumenn, Faisal Husseini
og Hanan Ashrawi, ekki fá að
tala þeirra máli. Þau hafa meðal
annars rætt við James Baker ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna í
ferðum hans til Jerúsalem. Þau
hafa verið ötulir baráttumenn
Palestínumanna á herteknu svæð-
unum. Engin vafí er á því að þau
eru meðal snjöllustu talsmanna
þeirra. Allir
BAKSVIÐ
Eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur
vita að bæði
hafa tengsl við
PLO eins og
raunar á við um
þorra Palestín-
umanna á
hemámssvæð-
um ísraela. Shamir forsætisráð-
herra og David Levy utanríkisráð-
herra hafa sagt að fulltrúar Pa-
lestínumanna á ráðstefnunni verði
að hljóta blessun ísraelsku stjóm-
arinnar og skuli þeir lýsa yfír að
þeir vilji búa í sátt og samlyndi
við ísraela. Það hafa raunar bæði
Husseini og Ashrawi gert marg-
sinnis þó það komi fyrir lítið.
Yitzak Shamir hefur frá því
hann hófst til valda stöðugt hamr-
að á því að hann væri mótfallinn
öllum tilslökunum og hann hefur
aldrei ljáð máls á því að semja
um að Palestínumenn eigi að fá
þó ekki væri nema brot af landi
sínu aftur. Það hefur ráðið ferð
og stefnu Shamirs að honum þyk-
ir ísraelar eigi með réttu tilkall
til Vesturbakkans og það hafí
verið hluti þeirrar gjafar sem guð
gaf gyðingum hér forðum. Sham-
ir hefur væntanlega aldrei trúað
því að hann þyrfti að setjast að
samningaborði um málið. ísra-
elskir harðlínumenn og haukar
töldu að PLO féllust aldrei á að
viðurkenna ísrael og afneita
hryðjuverkum. Þar af leiðandi
kæmi ekki upp sú staða að ísrael-
ar yrðu að raeða við þá. Eftir að
PLO kvaðst viðurkenna tilverurétt
ísraels fyrir tveimur árum svör-
uðu ísraelskir ráðamenn með því
að segja að þetta væri brella og
orðum PLO væri ekki treystandi.
Og þar við sat.
Shamir átti þó varla margra
kosta völ eftir að Sýrlendingar
samþykktu áætlun Bandaríkj-
anna. ísraelska þjóðin hefur beðið
um frið í 43 ár og því var óhugs-
andi annað en stjórnin sýndi lit.
Og það blasa við mörg ljón á veg-
inum sem kann að liggja til sæm-
andi framtíðarskipunar mála í
heimshlutanum. En fyrsta skrefíð
hefur þó verið stigið.
lHHdiiii