Morgunblaðið - 28.07.1991, Blaðsíða 29
MÖRGCMBÍiAÐIB ATVINNHðUUIyCSMÁ ÍlMAlQIIR !2K.\ 'JÚLÍ'-1991
^9
KENNSLA
Strathclyde háskólinn
Ef þú hyggur á nám í viðskiptafræðum, þá
ættirðu að kynna þér Strathclyde háskólann
í Glasgow. Viðskiptafræðideild Strathclyde
háskólans er ein sú stærsta í Evrópu. Þar
bjóðast nemendum fjöldi námsleiða og þeir
hafa möguleika á að velja saman þær grein-
ar, sem áhugi þeirra stendur til.
Strathclyde háskólinn útskrifar nemendur
með bachelors gráðu (First degree Program-
mes) í sex námsgreinum:
* Viðskiptafræði, með möguleika á að sér-
hæfa sig í einni eða tveimur af eftirfarandi
námsgreinum:
Upplýsingatækni
Lögfræði
Stjórnsýslufræði
Markaðsfræði
Stærðfræði
Stjórnmálafræði
Sálfræði
Bókhaldi
Stjórnun
Verslunarrétti
Hag- og félagssögu
Hagfræði
Fjármálum
Landafræði
Samskiptum á vinnumark. Ferðaþjónustu
* Hótel- og veitingarekstur
* Viðskipta- og tækninám
* Alþjóðaviðskipti og tungumál
* Borgarskipulag
* Lögfræði
Með eðlilegri námsframvindu tekur þrjú ár
að fá „Pass degree“ en fjögur ár að fá „Hono-
urs degree".
Við bjóðum einnig upp á framhaldsnám
(Masters Degrees) ítuttugu greinum, þ.ám.:
* MBA
* MBA með áherslu á Evrópumál
* Alþjóðamarkaðsfræði
* Hótelstjórnun
* Ferðaþjónustu
* Fjármálum
* Upplýsingastjórnun
* Aðgerðarannsóknum
* Rekstrarhagfræði (byrjar 1992)
* Borga- og svæðaskipulagi
* Stjórnun starfsmannamála
Strathclyde háskólinn var stofnaður skv.
konunglegri stofnskrá og hefur aflað sér virð-
ingar og viðurkenningar um allan heim sem
afbragðs menntastofnun.
Næsta skólaár byrjar 26. sept. 1991
Við veitum fúslega ailar nánari upplýsingar
um Strathclyde háskólann og einstakar
námsgreinar. Skrifaðu okkur á ensku og
taktu fram hvar áhugasvið þín, sem tengjast
náminu, liggja. Við sendum þér upplýsingar
um hæl.
Keith Ingham,
Department of Economics,
University of Strathclyde,
Glasgow G4 OLN, United Kingdom,
Fax: (41) 552 5589
TILBOÐ - ÚTBOÐ
Forval - hugbúnaður
Innkaupastofnun ríkisins, f.h. dómsmála-
ráðuneytisins, mun á næstunni þjóða út
meðal valinna verktaka að undangengnu
forvali, framleiðslu á notendahugbúnaði fyrir
aðfaragerðir. Verklok eru áætluð í maí 1992.
Þeir hugbúnaðarframleiðendur, sem hug
hafa á að gera tilboð í þetta verk, geta sent
inn óskir um það ásamt þeim upplýsingum,
sem farið er fram á í forvalsgögnum.
Forvalsgögn verða afhent frá og með mánu-
deginu 29. júlí nk. á skrifstofu vorri, Borgar-
túni 7, og skal skilað inn á sama stað eigi
síðar en þriðjudaginn 13. ágúst nk.
IIMIMKAUPASTOFIMUIM RÍKISIIMS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK_
Útboð
Skóli í Þykkvabæ
Djúpárhreppur í Rangárvallasýslu óskar eftir
tilboðum í byggingu og fullnaðarfrágang
skólahúss í Þykkvabæ.
Húsið er á einni hæð, um 400 fm að grunn-
fleti, steinsteypt, með léttu þaki og einangr-
að að utan.'
Útboðsgögn verða afhent frá og með mánu-
degi 29. júlí hjá VST hf., Ármúla 4, Reykjavík,
og hjá Páli Guðbrandssyni, oddvita Djúpár-
hrepps, Hávarðarkoti í Þykkvabæ.
Skilatrygging er kr. 25,000.-
Tilboð verða opnuð 15. ágúst kl. 14.00.
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf
Ármúli 4, 108 Reykjavik
Sími: (91) 69 5000 Simabréf: (91) 69 5010
Tilboð
Tilboð óskast í neðangreindar bifreiðar, sem
skemmst hafa í umferðaróhöppum:
Tegund Árgerð
1. Datsun Applause 1990
2. Honda Civic 1.5 1985
3. Mazda 626 GT 2000 1988
4. Mazda 626 2000 GLX 1986
5. Mazda 323 1300 1987
6. Skoda 323 1500 1983
7. Daihatsu Cap van 1986
8. Volvo station 1978
9. Fiat Uno 1988
10. Fiat Uno 1984
11. Datsun King Cap 4WD 1983
12. Lada Samara 1988
13. W. Golf 1985
14. Susuki Swift 1985
15. Ford Escort 1981
16. Opel Ascona 1983
17. Honda Sport400 F mótorhjól 1976
Bifreiðarnar verða til sýnis á Hamarshöfða
2, 110 Reykjavík, sími 685332, mánudaginn
29. júlí frá kl. 12.30 til 16.30.
Tilboðum sé skilað fyrir kl. 16.30 sama dag.
© TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF
Útboð
Akstur almenningsvagna
Almenningsvagnar bs. óska eftir tilboðum í
akstur strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu frá
1. mars 1992 til 1. júlí 1997. Um er að ræða
reglubundinn akstur frá kl. 7.00 til kl. 1.00 að
jafnaði. Eftirtaldar leiðir eru boðnar út, sem
saman mynda samtals fimm verkeiningar:
1. Hraðleið 120, Hafnarfjörður - Reykjavík,
um Hafnarfjarðarveg
Hraðleið 121, Hafnarfjörður - Reykjavík,
um Hafnarfjarðarveg
Hraðleið 140, Hafnarfjörður - Reykjavík,
um Reykjanesbraut
2. Hverfaleið 41 í Hafnarfirði
• Hverfaleið 42 í Hafnarfirði
3. Hverfaleið 31 í Garðabæ
Hverfaleið 33 í Bessastaðahreppi
4. Hverfaleið 21 í Kópavogi
Hverfaleið 22 í Kópavogi
Hverfaleið 23 í Kópavogi
Hverfaleið 24 í Kópavogi
(kvöld- og helgidagar)
5. Hverfaleið 51 í Mosfellsbæ
Hraðleið 150, Mosfellsbær - Reykjavík
Á öllum þessum leiðum er gert ráð fyrir stór-
um vögnum (70-80 farþega) á annatímum
yfir vetrarmánuðina.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Al-
menningsvagna bs., Hamraborg 12, Kópa-
vogi, 3. hæð milli kl. 9-T2 virka daga, gegn
5.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila inn í síðasta iagi 6. sept-
ember 1991 kl. 13.00 á skrifstofu Almenn-
ingsvagna bs. þar sem þau verða opnuð að
viðstöddum bjóðendum.
Til sölu fasteignir á
Eskifirði, Vík í Mýrdal
og Þorlákshöfn
Kauptilboð óskast í eftirtaldar húseignir:
Túngata 1, Eskifirði, neðri hæð, stærð íbúð-
ar 283 m3 , brunabótamat kr. 5.123.000,-
Eignin verður til sýnis í samráði við Sigurð
Eiríksson, sýslumann, Eskifirði, sími:
97- 61230.
Víkurbraut 21A (sláturhús), Vík í Mýrdal,
stærð eignar 5105 m3 , brunabótamat kr.
26.636.000,-. Til sýnis í samráði við Sigurð
Gunnarsson, sýslumann, Vík í Mýrdal, sími:
98- 71176.
Unubakki 42-44 (frystihús), Þorlákshöfn,
stærð hússins 10061 m3, brunabótamat kr.
100.174.000,-. Húsið verður til sýnis í sam-
ráði við Hallgrím Sigurðsson, Þorlákshöfn,
sími: 98-33586.
Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá ofangreind-
um aðilum og á skrifstofu vorri. Tilboðum sé
skilað til skrifstofu vorrar, Borgartúni 7,
Reykjavík fyrir kl. 11.00 þann 8. ágúst 1991.
IIMIMKAUPASTOFIMUIM RÍKISIIMS
________BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK__
ÚtboÓ
Húsnæðisnefnd Blönduóssbæjar óskar eftir
tilboðum í byggingu parhúss við götuna
Skúlabraut 6 þar á staðnum.
Húsið er 202 m2að grunnfleti og um 661 m3.
Verkið tekur til ailrar vinnu við gröft á grunni,
uppsteypu og frágang utan húss sem innan
svo og frágang lóðar. Sökklar og botnplata
hafa þegar verið steypt.
Verkið skal hefjast í september nk. og
verktími verður 15 mánuðir.
Útboðsgögn verða afhent væntanlegum
bjóðendum á skrifstofu Blönduóssbæjar á
Blönduósi og hjáTæknideild Húsnæðisstofn-
unar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, frá
og með þriðjudeginum 30. júlí 1991.
Skilatrygging fyrir útboðsgögn er kr. 20.000,-
Tilboðin verða opnuð á sömu stöðum þriðju-
daginn 13. ágúst 1991 kl. 14.00 stundvíslega
að viðstöddum þeim bjóðendum er þess
óska.
F.h. húsnæðisnefndar Blönduóssbæjar,
Tæknideild húsnæðisstofnunar.
J3L HUSNÆÐISSTOFNUN
U&3 RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK ■ SÍMl - 696900
Q! ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í
einangraðar stálpípur, Preinsulated Steel
Pipes.
Helstu magntölu eru:
2848 m af DN 900 mm stálpípum í DN 1100
mm plastkápu.
2800 m af DN 800 mm stálpípum í DN 1000
mm plastkápu.
1744 m af DN 700 mm stálpípum í DN 900
mm plastkápu
auk tengistykkja.
Pípurnar skal afgreiða á tímabilinu febrúar
til júlí 1992.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudag-
inn 24. september 1991 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjtivegi 3 Simi 2S800