Morgunblaðið - 28.07.1991, Qupperneq 40
Grunnur Bðgglapóstur
Landsbanki Mk Islands , Banki allra landsmanna um allt lond PÓSTUR OG SÍMI
MORGUNBLAÐIÐ, ADALSTRÆTl 6. 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HA FNA RSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Minnkandi þátttaka í verkalýðsfélögum OECD- landanna
Næstflestir félagar í verka-
lýðsfélögum eru á Islandi
Minni þáttaka í þjónustugreinum en iðngreinum
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
Möguleikar
á aukinni
dúntekju
ÁRNI Snæbjörnsson, hlunninda-
ráðunautur Búnaðarfélags ís-
lands, telur að töluverðir mögu-
leikar séu á að auka dúntekju hér
á landi. Bæði megi stunda dún-
tekju víðar en nú er gert og auka
hana þar sem hún er fyrir.
Árni segir, að milli 1870-1930
hafi að jafnaði verið tekin allt að
4.000 kíló af æðardúni á hverju ári.
Dúntekjan hafi síðan minnkað veru-
lega og útflutningur hafi verið um
2.000 kíló milli 1940-1986. Síðan þá
hefur verið stöðug aukning og á
síðasta ári voru 3.100 kíló flutt út.
Hann segir að landið hljóti að bera
sömu framleiðslu eins og milli 1870-
1930 og þess vegna séu greinilegir
útþenslumöguleikar í greininni.
Að sögn Árna hefur Þýskaland
ávallt verið stærsti útflutningsmark-
aður Islendinga fyrir æðardún en á
síðustu 3-4 árum hafi orðið aukning
á útflutningi til Japans.
Sjá bls. 18: „Grunnur að búsetu
býsna víða“.
Olía lak í
höfnina á
Eskifirði
HUNDRAÐ til tvöhundruð lítrar
af svartolíu láku í höfnina á Eski-
firði í fyrrinótt þegar verið var
að dæla um borð í togarann Jón
Kjartansson.
Að sögn Kristins Aðalsteinsson-
ar, umboðsmanns Skeljungs á Eski-
firði, er ekki vitað hvað olli lekan-
um. Oiíuleiðslan er um tveggja ára
gömul og liggur undir steinsteypu.
Síðdegis í gær var ætlunin að brjóta
upp steypuna til að kanna orsakir
þessa óhapps.
Kristinn segir að líklega hafi far-
ið milli 100 og 200 lítrar af olíu í
höfnina. Greiðlega hafi gengið að
hreinsa hana upp og hafi til þess
verið notaður flotteinn og dælubíl.
Tekist hafi að ná lang mestum hluta
hennar upp og hafí því verið lokið
snemma í gærmorgun.
Að sögn Halldórs Gunnarssonar
í Holti, formanns markaðsnefndar
Félags hrossabænda, er áætlaður
útflutningur á pístólukjöti til Japans
um 100 tonn til áramóta. Pístólu-
kjöt er af afturparti skrokksins.
Segir Halldór að staðið hafi yfír
samningaviðræður við umboðs-
menn japanskra fyrirtækja og nú
I SKYRSLU um þátttöku í verka-
lýðsfélögum OECD-landanna,
sem nýlega hefur verið birt á
vegum OECD, kemur fram að
Island er í næstefsta sæti, næst
á eftir Svíþjóð, hvað snertir aðild
að verkalýðsfélögum. Þrátt fyrir
að vinnandi mönnum í OECD-
liggi fyrir pöntun frá einum aðila
um rúmlega 1 tonn á viku út ágúst
og frá öðrum aðila um 10 til 15
tonn, sem koma til afhendingar 10.
ágúst.
Halldór segir, að hækkandi verð
á fitusprengdu pístólukjöti í Japan
greiði nú í fyrsta sinn hátt flutn-
ingsverð með flugi til Japans og
löndunum hafi fjölgað, minnkaði
þátttakan í verkalýðsfélögum
þeirra. Þetta eru lönd Vestur-
Evrópu, Japan, Bandaríkin,
Kanada, Nýja-Sjáland og Ástr-
alía. Árið 1975 voru 37% vinn-
andi manna meðlimir áður-
nefndra félaga, en þrettán árum
auk þess fullt grundvallarverð, sem
gæti skilað sláturhúsakostnaði, yf-
irverði til bænda og að auki því að
hægt verði að lækka verð á fram-
pörtum, sem eftir væru, til að stuðla
að sölu þeirra innanlands.
Hann segir, að Flugfax hf. hafi
áður séð um flutningana til Japans,
en ekki sé alveg ljóst hvernig þau
mál verði leyst nú, en fyrirtækið
hefur fengið greiðslustöðvun. Eins
sé ekki víst að hægt verði að út-
vega nægan fjölda sláturhrossa í
ágúst og séu bændur því sérstak-
lega beðnir um að skrá sláturhross
hjá sláturhússtjórum eða trúnaðar-
mönnum Félags hrossabænda.
seinna, eða 1988, voru þeir að-
eins 28%.
Verkalýðsfélögin eiga sterkustu
ítökin á Norðurlöndum. I Svíþjóð
er þátttakan langmest, um 84%, á
íslandi um 76%, í Danmörku um
73%, í Noregi um 71% og í Finn-
landi er hlutfallið um 56%. Frakk-
land er neðst á listanum með um
7% þátttöku. Tölurnar frá íslandi
eru frá 1989, en hinar frá 1990.
í skýrslunni er reynt að skýra
minnkandi þátttöku á ýmsan hátt,
bæði fyrir einstök lönd en einnig
fyrir löndin í heild. Minni aðsókn
er til dæmis talin bein afleiðing
þess að þjónustugreinar hafa vaxið
mun örar en iðngreinar. Meðal fólks
í þjónustugreinum, sem margar
hveijar eru nýjar, er langt í frá
sama hefðin fyrir verkalýðsbaráttu
og í iðngreinum, sem verkalýðsbar-
áttan er sprottin úr. í Svíþjóð og
Danmörku er hægt að tala um
næstum 100% þátttöku í iðnaðar-
greinum, meðan aðeins um þriðj-
ungur vinnandi fólks í ýmsum þjón-
ustugreinum er skráður í verkalýðs-
félög.
Bent er á að á 8. áratugnum,
þegar verðbólga var ör í flestum
OECD-löndum, hafi fólk gengið í
verkalýðsfélög til að vernda kaup-
mátt launa. Betri efnahagur 9. ára-
tugarins hafi hins vegar dregið úr
áhuganum á verkalýðsfélögunum.
Lítil þátttaka í Frakklandi er skýrð
með fylgistapi kommúnista, sem
stjórna stærstu verkalýðshreyfing-
unni þar og að þar séu verkalýðsfé-
lög í harðvítugri andstöðu við at-
vinnurekendur, sem leiði til að
margir kjósi að halda sig fyrir utan
félögin.
Mjög mikil
aðsókn að
sundstöðum
AÐSÓKN að sundstöðum á höfuð-
borgarsvæðinu hefur verið mjög
mikil í sumar. Hjá öllum sundstöð-
um er Morgunblaðið hafði sam-
band við hafði orðið aukning í
aðsókn í sumar miðað við sama
tíma í fyrra.
22.000 sundgestir komu í nýju
sundlaugina í Kópavogi í júní og er
það 122% fleiri en komu í sund í
gömlu laugina á sama tíma í fyrra.
I Sundlaugunum í Laugardal voru
gestir í júní 67.400 en voru um
60.000 í fyrra. Það sem af er júlí
hafa 43.200 gestir komið í Laugar-
dalslaugina en í fyrra komu alls
70.000 gestir í júlí. I Sundlaug Fjöl-
brautaskóla Breiðholts kom 32.921
gestur í júní en í fyrra voru gestir
í júní 31.363 og í Sundlaug Seltjarn-
amess voru gestir í júní í ár 19.820
en á sama tíma í fyrra voru gestir
um 18.900.
0
Utflutningur á hrossakjöti:
Samningar um sölu á einu
tonni í hverri viku til Japans
10 til 15 tonn til afhendingar 10. ágúst
FELAG hrossabænda og Goði hf. hafa gert samninga við aðila í
Japan um sölu á rúmlega 1 tonni af hrossakjöti, einkum pístólukjöti,
á viku út ágúst. Einnig liggur fyrir pöntun á 10 til 15 tonnum, sem á
að afhenda 10. ágúst. Frekari útflutningur er á dagskrá og er áætl-
að að útflutningurinn til áramóta geti numið allt að 100 tonnum.