Morgunblaðið - 22.08.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.08.1991, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B 188. tbl. 79. árg. FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Míkhaíl Gorbatsjov gengur niður landganginn frá flugvél sinni við komuna til Moskvu, ásamt konu sinni Raísu og barnabarninu Oksönu. TASS/Reuter Valdaránstilraun harðlínumanna mistókst: GORBATSJOVAFTUR VW VÖLD í SOVÉTRÍKJUNUM Sovétforsetinn kom aftur til Moskvu í gærkvöld - Jeltsín hylltur fyrir hug- rekki og staðfestu - Varaforseti Ukraínu varar við nýrri sókn harðlínuaflanna vill gera aðra valdaránstilraun, jafn- vel þegar í nótt, og hún yrði mun hættulegri. Þing Lettlands lýsti yfir fullu sjálfstæði landsins í gær, síðast þjóð- þinga Eystrasaltslandanna þriggja. Vopnaðir menn réðust á verði við þinghúsið í Vilnius, höfuðborg Lithá- ens, í gærkvöldi og særðu tvo, að sögn talsmanns þingsins. Einn árás- armannanna/láðist og reyndist vera félagi í sérsveitum sovéska innanrík- isráðuneytisins. Sjá ennfremur fréttir og grein- ar á bls. 2, 16-23 og baksiðu og forystugrein á miðopnu. íuusivvu. neuiei. TILRAUN harðlínuaflanna í Sovétríkjunum til að ræna völdum virtist runnin út í sandinn í gær, aðeins um 60 klukkustundum eftir að fyrst var frá því skýrt að Míkhaíl S. Gorbatsjov forseti hefði vikið fyrir Gennadíj Janajev varaforseta. í nótt var skýrt frá því að einn samsæris- manna, Vladímír Krjútjskov, yfirmaður öryggislögreglunn- ar, KGB, hefði verið handteldnn. Gorbatsjov hélt flugleiðis frá Krímskaga í gærkvöldi og lenti í Moskvu Jkl. rúmlega 11 að íslenskum tíma. Áður hafði hann sent frá sér yfirlýs- ingu um að hann hefði valdataumana á ný í sínum höndum. Borís Jeltsín, forseti Rússlands, var ákaft hylltur heima fyrir og er- lendis fyrir staðfestu sína andspænis valdaræningjunum. George Bush Bandaríkjaforseti sagði hann hafa sýnt fádæma hugrekki og rússneski forsetinn hlyti að uppskera mikla virðingu á alþjóðavettvangi fyrir vik- ið. Ekkert var vitað með vissu um afdrif félaganna í valdaránsklíkunni að Kijútjskov frátöldum en saksókn- ari Sovétríkjanna skýrði frá því í gærkvöldi að mennirnir yrðu dregnir fyrir rétt. Stuðningsmenn Jeltsíns rifu ekki niður víggirðingar við rússneska þinghúsið í gær, að sögn vegna ótta við frekari árásir. „Ég verð ekki viss fyrr en aftökusveitin er búin að skjóta þessa þorpara," sagði Konst- antín Kobets, hershöfðingi og for- maður varnarmálanefndar Jeltsíns. „Hér er allt með kyrrum kjörum í augnablikinu, en Útvarp Rússland sendir stöðugt út tilkynningar, þar sem fólk er beðið um að fara ekki heim, lieldur halda kyrru fyrir við húsið,“ var svarað er Morgunblaðið náði í upplýsingaþjónustu rússneska þinghússins um miðnætti. Varaforseti Úkraínu varaði menn við og sagði að þótt tilraun áttmenn- inganna hefði mistekist hefðu harðlínuöfl ekki gefist upp. Hann sagði að Rauði herinn myndi ef til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.