Morgunblaðið - 22.08.1991, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 22.08.1991, Blaðsíða 7
7 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1991 Skaftárhlaupið meira að vöxtum en 1989 Súluhlaup stöðvast vegna klakastíflu SKAFTÁRHLAUP það er lauk fyrir skemmstu var meira að heildarmagni en hlaupin sem urðu 1986 og 1989, þrátt fyrir að hámarksvatnsflæði þeirra hlaupa hafi verið þó nokkru meira en hámark hlaupsins nú. Súluhlaupið sem var að hefjast á föstudag en stöðvaðist vegna klakastíflu hefur ekki Iátið frekar á sér kræla, og er jafn- vel talið úr sögunni í bili. Meðfylgjandi línu- og súlurit sýna annarsvegar þróun hlaupa 1986, 1988 og 1991, en heildar- magn hlaupa frá 1955 hins vegar. Á súluritinu má sjá stærðarmun hlaupa úr eystri- og vestari Skaft- árkatli, en lægi-i súlurnar tilheyra hlaupum úr vestari katlinum, sem er mun minni en sá eystri. Á línuritinu má sjá að hámarks- flæði hlaupsins 1986, sem var svip- að og hámarksflæði 1989, eða milli 1.200 og 1.300 rúmmetrar á sekúndu, er þó nokkru meira en hlaupsins nú, en hámark þess var 1.140 rúmmetrar á sekúndu. Hins vegar voru upphaf og endir þeirra hlaupa sneggri en nú varð. LÍÐAN Norðmannsins sem fannst meðvitundarlaus við Hótel Island aðfaranótt sl. laugardags hefur eitthvað skánað, samkvæmt upp- lýsingum gjörgæsludeildar Borg- arspítalans. Enn hefur ekkert komið fram sem varpað getur ljósi á atburði næturinnar, en jafnvel er talið að maðurinn hafi fallið í jörðina. Maðurinn fannst meðvitundarlaus við austurenda Hótel íslands aðfara- Nú berast víða að fréttir af ágætri laxveiði, til dæmis frá Laxá í Leir- ársveit sem hefur verið með nokk- uð eðlilegt vatnsmagn siðasta hálfa mánuðinn eða svo. Þar hefur verið rifandi veiði að undanförnu. Þar eru nú komnir vel á sjöunda hundrað laxar á land og sjö stanga holl sem var nýverið í ánni fékk um 90 laxa. Síðasta holl í Laxá í Leirársveit fékk um 90 fiska. Gott vatn er nú í ánni og mikill lax. Lax er og kominn inn I vötn og veiðst hefur í stubbun- um tveimur Selós og Þverá. Góð veiði í Norðurá Stjórn Stangaveiðifélags Reykja- víkur var að koma úr Norðurá og fékk 69 laxa. Þá voru komnir um 1200 laxar úr ánni í heild, þar af 1020 af aðalsvæðinu, en afgangurinn ýmist af „efri dalnum" eða úr Stekknum. Jón Gunnar Borgþórsson framkvæmdastjóri SVFR sagði að menn hefðu séð mikið af laxi víða í ánni. Víða væri mikill fiskur á óvenjulegum stöðum, jafnvel á nótt sl. laugardags og reyndist hann hafa höfuðkúpubrotnað. Honum er haldið í öndunarvél en samkvæmt upplýsingum gjörgæsludeildar er líðan hans betri. Maðurinn var með landa sínum umrætt kvöld en leiðir þeirra höfðu skilið. Síðast sást til hans inni á veit- ingastaðnum með íslendingi en að sögn RLR gat hann engar upplýs- ingar veitt um atvikið. hrygningarstöðvum þar sem hann er ekki vanur að vera á þessum tíma sumars. „Fyrsti heili dagurinn gaf 45 laxa. Þá var úrhellisrigning og rok og menn þrömmuðu alla ána og reyndu alls staðar, t.d. bæði með túpum og spón á lítið reyndum svæð- um. í ljós kom að það var nóg af laxi. Halldór Þórðarson fékk til dæm- is 5 fiska í Glitstaðahyljum sem lítið höfðu verið reyndir áður. í aflanum voru upp í 14 punda fiskar og ekki mikið af 3 og 4 punda smælki,“ sagði Jón Gunnar. Sogið mjög gott í vikubyijun voru komnir 215 lax- ar af svæðum SVFR í Soginu. 89 úr Alviðru, 66 úr Ásgarði, 34 úr Bíldsfelli og 36 úr Syðri Brú. Svæðin hafa gefið samanlagt 150 stórbleikj- ur og 220 til viðbótar hafa verið skráðar í skýrslur á silungasvæðinu í Ásgarði. September er ævinlega mjög góður í ánni og þá veiðast gjarnan stærstu laxarnir. Hér og þar... Á þriðjudag voru komnir 106 lax- ar úr Gljúfurá, 5 löxum meira en allt síðasta sumar. Talsvert er af laxi í ánni. Enn koma nýrenningar í ána. Miðfjarðará hefur gefið yfir 800 laxa, meiri veiði en allt síðasta sum- ar, en þar er veitt til 9. september. Stendur áin sig einna best stóru ánna í Húnavatnssýslum. Um þetta leyti fer netaveiðin aftur í gang í Hvítá í Borgarfirði, en að undanförnu hefur veiðst á köflum ágætlega og æ fleiri veiðistaðir fund- ist. Einn þeirra hefur verið sýnu best- ur, Þvottaklöpp fyrir neðan Grímsár- ós. Skaftárhlaup 1991,1988 og 1986 (ænnsii í m3/sek.) Upphafstímar hlaupanna felldir saman m3/sek. I j/\ \r Skaftárhlaup sumarið 1991 111 \—yr Skaftárhlaup veturinn 1986 600 sumarið 1988 •1 0 1 2 3 4 6 6 7 8 9 dagar10 Líðan Norðmannsins betri JUKKUR, DREKATRÉ, BURKNAR, KAKTUSAR OG ALLAR POTTAPLÖNTUR Jukkur ca 35sm Jukkur ca 45sm Jukkur ca 60sm .USVÖWPU* i7b\andaðit vendu Aður Burknar 4^7. Kaktusar, margar teg. 49^: Þykkblöðungar, margar teg. 279r- Fikus Benjamini ca. 60sm. £§37. Madagaskarpálmar jFHk- Flöskuliljur jfá9;- Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.