Morgunblaðið - 22.08.1991, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.08.1991, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1991 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík' Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Valdaránið mistókst g~^ orbatsjov átti afturkvæmt til Ijr Moskvu vegna Jeltsíns og bar- áttu hans. Forseti Sovétríkjanna stendur í mikilli þakkarskuld við for- seta Rússlands. Gorbatsjov tók aftur við embætti sínu sem hann var stjómskipulega og löglega kosinn til. En valdið er nú í höndum Jeltsíns sem sótt hefur það til fólksins, bæði í fijálsum kosningum þegar hann hlaut hreinan meirihluta atkvæða og á örlagastund í valdaráninu. Því má ætla að Gorbatsjov verði fremur táknlegur forseti en valdamaður. En vel má vera að hann eigi eftir að sigra í frjálsum kosningum eins og Jeltsín og efla þannig áhrif sín. Hann verður að sætta sig við aukin áhrif lýðræðissinna og jafnframt er ástæða til að ætla að sambandssátt- málinn muni auka fullveldi lýðveld- anna í enn ríkara mæli en Gorbatsjov ætlaðist til áður en hann var svo rækilega minntur á tilvist harðlínu- aflanna og nauðsyn þess að hafa fólkið með sér. Sterkasti stjórnmálamaður Sovét- ríkjanna er hins vegar Borís Jeltsín og hann sem Rússlandsforseti er nú í lykilstöðu. Miðstjórnarafl Sovétríkj- anna hefur nú í meira mæli en nokkru sinni verið flutt til rússneska lýðveldisins, a.m.k. um skeið eða þangað til landið hefur jafnað sig eftir átökin. Mikið veltur því á sam- starfi Gorbatsjovs og Jeltsíns sem fram til þessa hafa verið keppinautar en Jeltsín hefur þó oft lýst því yfir að Gorbatsjov sé löglegur handhafí forsetaembættis Sovétríkjanna og styður hann sem slíkan. Gorbatsjov hefur ekki viljað viðurkenna sjálf- stæði Eystrasaltsríkjanna, en Jeltsín hefur veitt þeim stuðning og lýst yfir að rétt sé að stefna að sjálf- stæði þeirra. Það ætti að vera okkur íhugunarefni og ástæða til að fylgja Jeltsín í þeim efnum. Það er augljóst að Gorbatsjov verður að laga hugmyndir sínar að þessari staðreynd. Myndir frá Moskvuborg í gær sem sýndu skriðdreka Rauða hersins á leið út úr borginni vekja óumræðilega gleði í hjörtum þeirra sem á horfðu. Stórsókn hersveita valdaránsklík- unnar á þinghús Rússlands sem búist var við í fyrrinótt varð aldrei. Flótti er brostinn í lið neyðarnefndarinnar. Margt bendir til að úrslitum hafi ráðið óbifandi baráttuvilji Jeltsíns og hugrekki Moskvubúa sem fylktu sér um þinghús rússneska sambandslýð- veldisins þrátt fyrir útgöngubann. Orð Jeltsíns, sem hefur orðið tákn- gervingur andspyrnunnar við aftur- haldið í Sovétríkjunum, bera vitni miklu baráttuþreki: „Ekki skrifa minningarorð um okkur strax. Við erum ekki fallnir enn.“ Sjálfur sagð- ist Jeltsín telja að símtöl sín við Bush Bandaríkjaforseta og Major forsætisráðherra Bretlands hefðu átt þátt í að koma í veg fyrir að Kreml- arklíkan blési til stórsóknar á þing- húsið. RússneSku þmgméhnirnir bjugg- ust við hinu versta. „Ég sé elda, blossa, urmul af fólki, fjölda götuvígja, mikið ... mikið af öllu. Og mikinn reyk,“ sagði óðamála starfs- maður þingsins í samtali við Morgun- blaðið í fyrrinótt. Hann og félagar hans höfðu búist til vamar í þinghús- inu. „Menn eru að útbúa bensín- sprengjur. Hermennirnir, sem veija bygginguna, liggja á gólfinu með skammbyssur og Kalasníkov-riffla og miða á dyrnar. Það era byssu- menn á hverri hæð.“ Úti fyrir vora tugþúsundir al- mennra borgara reiðubúnar að veija nýfengið frelsi. Hver og einn í mann- þrönginni tilbúinn að veija þing- húsið. „Nóttin mun skera úr um margt,“ sagði Kíríll Alexandrovítsj stúdent en hann var á leið niður að þinghúsi er Morgunblaðið ræddi við hann. Þótt kona hans væri að falli komin bjóst hann til að hlýða kalli Jeltsíns og Popovs borgarstjóra um að andæfa hernum sem nálgaðist. „Ég vona að þegar barnið okkar fæðist höfum við sigrast á harðlínu- mönnunum," sagði þessi unga hvunndagshetja. Eins er athyglisvert að valdaklíkan virðist hreinlega ekki hafá ráðið yfír hemum eða sérsveitum KGB. Enda hefði það verið kaldhæðnislegt að sömu mennirnir og kusu Jeltsín í forsetakosningum réðust nú á hann af fullum þunga. Var lýðræðið eftil vill búið að festa svo djúpar rætur í Rússlandi að það yrði ekki upprætt? Yfírlýsingar neyðamefndarinnar svokölluðu til sovésku þjóðarinnar sýndu hvert stefndi. Það átti að ein- angra Sovétríkin, hafna erlendri að- stoð og setja endapunkt við slökunar- stefnu Gorbatsjovs. Shevardnadze, fyrrum utanríkisráðhema, spáði því að þessu myndi fylgja nýtt kalt stríð enda trauðla hægt að ímynda sér að þeir afvopnunarsamningar sem Gorbatsjov hafði undirritað væra í anda hernaðarklíkunnar sem reyndi misheppnað valdarán. Nú þegar valdaránstilraun harð- línumannanna hefur verið hrandið vakna spumingar um hver áhrif hún hafí á framtíð Sovétríkjanna. Það er líklegt að þessi fjörbrot fortíðar, eins og komist var að orði í forystugrein í Morgunblaðinu í gær, eigi eftir að leiða til þess að frelsis- og lýðræði- söflunum vaxi fiskur um hrygg. Rússar hafa nú fengið tækifæri til að sýna í verki hvar hugur þeirra stendur. Við höfum séð hvernig þjóð- ir Austur-Evrópu sem áratugum saman voru undir járnhæl kommún- ismans risu upp og gerðu sínar syngj- andi byltingar. Gorbatsjov ætlaði hins vegar að bylta sínu þjóðfélagi ofan frá en áhugaleysi almennings í Sovétríkjunum stakk alltaf í augu. Nú fékk rússnesk alþýða tækifæri til að rísa upp og feykja burt harðlínuklíkunni og þá hlýddu menn kallitiu. Jurkans utanríkisráðherra Lett- lands spáir því að Gorbatsjov sé bú- inn að vera: Við höfum nóg af lýð- ræðissinnum sem geta leitt Sovétrík- in, sagði hann og átti þá fyrst og fremst við Jeltsín. Tíminn verður að leiða í ljós hvort þessi spásögn er rétt en víst er að einstakur söguleg- ur viðburður eins og andóf Rússa í Moskvu og Leníngrad í fyrrakvöld mun skipta sköpum fyrir sögulega þróun til viðkunnanlegri samskipta stórveldanna, slökunar og þá ekki síst bættra-kjaraí kjölfar fijáls mark- aðar í Sovétlýðveldunum. Allt bendir til að vofa Stalíns hafí verið kveðin niður. Það gerði fólkið sjálft. Hikandi samsærismenn réðu ekki við kröfur þess um frelsi og lýð- ræði. Og hermenn hlustuðu á þessar kröfur samlanda sinna. Kannski réð það úrslitum, auk hetjulegrar fram- göngu Jeltsíns og samheija hans. Sextíu stunda fæði hríðir nýs alþjóðal Viðtal við Thomas Ries, sérfræðing norska hersins í vamarmálum FÆÐINGIN gekk vonum framar. sextíu klukkustunda hríðum og f er umræðuefni Thomasar Ries, norska hersins í varnarmálum og við Morgunblaðið í gærkvöld. „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem rússneskur eða sovéskur her hefur tekið þátt í valdaráni. Dæmi um það eru þegar Stijeltsíj-deildin í lífverði Péturs mikla reyndi að steypa honum, en honum tókst að hrinda þvf. Sömu sögu er að segja af Katrínu miklu sem var gift tsar- inum, sem var óvinsæll meðal margra háttsettra manna, meðal annars innan hersins. Það var ein- mitt herinn sem steypti tsarinum og kom Katrínu til valda. Lítill stuðningur hers Að þessu leyti passar valdaránið á mánudag inn í mynstrið. Málið er hins vegar það að hér var alls ekki um að ræða valdarán á vegum hersins, því þeir sem að því stóðu voru ekki lengur fulltrúar hers eða öryggislögreglu, þeir áttu svo til engan stuðning þar — þetta voru síðustu leiðandi harðlínumennim- ir,“ segir Ries. Illa skipulagt — Hyernig fóru þá áttménning- arnir að því að leggja á ráðin um valdaránið fyrst þeir höfðu svona lítinn stuðning? „Eg held að þetta hafí verið mjög illa skipulagt. Maður spyr sjálfan sig hvers vegna þeir hafi ekki tryggt sér meiri stuðning. Annað hvort hafa þeir verið hræddir við að ræða þetta of mikið fyrirfram, Sex ára meðganga sem endar með æðingu nýs þjóðskipulags í austri virts fræðimanns og sérfræðings málefnum Sovétríkjanna, í viðtali og reiknað með meiri stuðningi þegar valdaránið væri orðið að veruleika. Hinn möguleikinn er sá, að þeir hafí hreinlega ekki áttað sig á að mótstaðan yrði jafn mikil og hún varð. Það vekur nokkra undrun að hermenn undir stjóm Púgos, sem réðust á Eystrasaltsríkin í febrúar, vom ekki notaðir á sama hátt í Moskvu — þá á ég sérstaklega við fallhlífarhersveitimar. Þegar litið er aftur má samt sjá tvö dæmi um valdarán þar sem notast var við mjög lítinn herstyrk. í annað skiptið þegar Khrústsjov var steypt 1964, og svo eftir lát Stalíns, þegar þurfti að losa sig við Beríja, yfírmann öryggislögregl- unnar. Þar var um að ræða eins könar valdarán, aðeins var treyst á . örfáar lykilpersónur, hershöfðingja og eina eða tvær herdeildir. Þeir tóku Beríja, stungu honum í fang- elsi og sögðu að hann væri veikur. í þá daga var svona lagað mögu- legt, en nú hafa áttmenningarnir ef til vill ekki reiknað með Svona öflugri andstöðu almennings, þó að það sé alls ekki fullnægjandi skýr- ing.“ — Hvers vegna tókst þetta ekki betur en raun bar vitni? „Þetta minnir kannski helst á reyfara, en það má hugsa sér að Jeltsín og Gorbatsjov hafí orðið áskynja um fyrirætlanir áttmenn- Thomas Ries inganna en leyft þeim að fram- kvæma valdaránið og undirbúið sig í samræmi við það. Hvað vissu Jeltsín og Gorbatsjov? Þetta er ein möguleg skýring á hvers vegna þeim tókst svona illa að beita hemum fyrir sig. Tilgang- ur Gorbatsjovs og Jeltsíns með þessu hefði þá vitanlega verið sá að losa sig við alla harðþnumennina á einu bretti. Þetta er hins vegar fremur ósennileg skýring þó að hún sé skemmtileg. Ástæðumar til þess eru fyrst og fremst að þetta hefði verið mjög hættulegur leikur og ósennilegt að hann hefði gengið upp en maður veit aldrei. Það er eigin- lega undariegt hversu illa áttmenn- Sovéski herinn og valdaránstilraunin: Hershöfðingjar geta ekki lengur reitt sig á hollustu undirmanna NEYÐARNEFNDIN sem tók völdin í Sovétríkjunum á mánudag og virðist hafa gefið valdadrauma sína upp á bátinn er þetta er skrifað gaf út yfirlýsingar sem áttu að réttlæta valdaránið. Þar var lögð áhersla á þrennt sem hefði hvatt þá til aðgerða. Í fyrsta lagi brýn nauðsyn á að koma í veg fyrir efnahagslegt hrun, þörfin á að varð- veita stjórnmálalega einingu ríkisins og landamæri þess og loks þörf- in á að treysta á ný „stolt og heiður hins sovéska borgara.“ Tvö síðar- nefndu atriðin eru sovéska hernum mikið áhyggjuefni. Sérhver her lítur ávallt á sig sem mikilvægasta vörð ríkisvaldsins og landsvæð- anna sem það ræður yfir. Ein algengasta ástæðan sem nefnd er til fyrir herforingjabyltingum er sú að valdaræningjarnir teyi sig eygja hættumerki í þessum efnum fyrir ríkið. Leiðtogar Rauða hersins hafa án vafa talið mikla hættu á ferðum f þessari viku vegna yfirvofandi und- irskriftar á nýjum sáttmála um tengslin milli stjórnvalda í Moskvu og einstakra lýðvelda. í sáttmálan- um er m.a. kveðið á um aukið fuli- veldi einstakra lýðvelda. Margir töldu hættu á að með undirrituninni yrði því óbeinlínis slegið fostu að ékki yrði komist hjáþví að uppreisn- arlýðveldin sex er neita staðfastlega að undirrita nokkurt samkomulag en vilja fullt sjálfstæði, þ. e. Eystra- saltslöndin þijú ásamt Georgíu, Armeníu og Moldovu, myndu á end- anum yfirgefa Sovétríkin. Að nokkru leyti voru það svipaðar til- slakanir lýðveldisstjómarinnar á Spáni á fjórða áratugnum gagnvart sjálfstæðishreyfingum Katalóníu- nianna og Baska sem urðu til þess að FranciSco Franco herhöfðingi hóf uppreisn árið 1936 er endaði með einræði hans. „Gínea vopnuð kjarnorkuflaugnm" Stjórnendur Rauða hersins hafa ávallt haft einfalda viðmiðun þegar þeir hafa metið hvernig háttað væri stolti og heiðri Sovétborgar- ans; þeir hafa talið að stærð og álit hersins í þjóðfélaginu og út á við væri besti mælikvarðinn. So- véskir hershöfðingjar fóru ekki í grafgötur um það í kalda stríðinu að það var hernaðarmáttur landsins sem stóð undir virðingu þess á al- þjóðavettvangi. Það getur verið að þeir hafi ekki tautað fyrir munni sér háðslega lýsingu á Sovétríkjun- um sem oft heyrðist á Vesturlönd- um — „Gínea vopnuð kjarnorku- flaugum“ - en þeir vissu að banda- rískir ráðamenn óttuðust ekki efna- hagslegan mátt Sovétmanna. Þeir óttuðust langdrægu kjarnorkuvopn- in og sovésku stríðsvélina í Austur- Þýskalandi. Ekkert benti til þess að valdaræningjarnir í neyðar- nefndinni hefðu í huga að rjúfa samningaviðræður við Vestuiveidin ,um takmörkun vígbúnaðar. Samit er Ijóst að þessir sainningar háfa orðið til þess að lækka risið á Rauða hernum og sama er að segja um brottflutning sovéskra heija frá nýfijálsu löndunumí Austur-Evr- ópu. Það sem er eftir af þeim heij- um er að mestu á þýsku landi og á að vera á braut í síðasta lagi 1994. Engir Sovéthermenn eru eft- ir í Ungveijalandi, örfáir í Tékkósló-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.