Morgunblaðið - 22.08.1991, Page 32

Morgunblaðið - 22.08.1991, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1991 * * Minning: Lilja Þórðardóttir hárgreiðslumeistari Fædd 15. janúar 1911 Dáin 13. ágúst 1991 í dag er elskuleg systir mín, Lilja Þórðardóttir, til moldar borin, en hún lést 13. þessa mánaðar á Elli- heimilinu Grund þar sem hún hafði dvalist við nokkum heilsubrest um þriggja ára skeið. Lilja var fædd í Reykjavík 15. janúar 1911. Foreldrar hennar voru Þórður Magnússon bókbindari (f. 1881), sem lengi starfaði hjá ísa- fold, og kona hans, Guðrún Magn- úsdóttir (f. 1891). Bjuggu þau í Ofanleiti (nú Ingólfsstræti 7A), húsi sem reist var 1896 og stendur enn. Önnur börn þeirra voru: Páll verslunarmaður (f. 1907), Magnús starfsmaður Gasstöðvarinnar á sín- um tíma (f. 1915) og Geir (f. 1926), bókbindari og verkstjóri hjá Frjálsri fjölmiðlun, sá er þetta ritar og lifir einn systkinanna. Mikill harmur var kveðinn að ijöl- skyldunni þegar móðir okkar, Guð- rún, lést af barnsförum árið 1929, 38 ára gömul. Lilja, sem þá var aðeins 18 ára, tókst á hendur það -erfíða hlutverk að annast heimilið. Var hún systkinunum og föður okk- ar hin mesta stoð og stytta og sýndi þann dug og seiglu sem í henni bjó þrátt fyrir ungan aldur. Annað áfall henti fjölskylduna þrem árum síðar þegar elsti bróðirinn, Páll, lést af völdum umferðarslyss. Árið 1937 giftist Lilja Ragnari Þórarinssyni húsasmíðameistara og var heimili þeirra alla tíð á Túngötu 36 í Reykjavík. Þau eignuðust einn son, Þóri (f. 1938), sem nú er bóka- ?j;örður í Háskólabókasafni. Kona hans er Guðríður Magnúsdóttir, skrifstofustjóri, og eiga þau saman tvö böm: Ingibjörgu og Ragnar. Áður en Lilja kynntist Ragnari hafði hún eignast soninn Gunnar (f. 1932) með Snorra Halldórssyni. Gunnar ólst upp hjá föðurömmu sinni, Sigríði Bjarnadóttur, mikilli sómakonu. Gunnar Snorrason er kunnur verslunarmaður og atvinnu- rekandi hér í bæ. Kona hans er Jóna Valdemarsdóttir og eiga þau fjögur börn: Önnu Lilju, Sigurð, Brynju og Ástu. Barnabörn þeirra eru orðin sjö talsins. Lilja bjó manni sínum hlýlegt og smekklegt heimili. Þau hjónin voru vinmörg og því var gestkvæmt hjá þeim fyrr á árum. Þangað var gott að koma og þar mætti manni vel- vild og gestrisni í ríkum mæli. Lilja missti mann sinn árið 1971. Við Lilja áttum tvær hálfsystur, dætur Þórðar. Það voru þær Hulda, er lengi starfaði í bókbandi Hóla í Reykjavík, og Fríða, sem ung flutt- ist til Kaupmannahafnar og giftist þar Christian Lindhard. Hélt Lilja ævinlega góðum vináttutengslum við þær systur, en þær létust fyrir nokkrum árum. Lilja lærði hárgreiðsluiðn á yngri árum þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Árið 1940 setti hún, ásamt Kristínu Lárusdóttur, á stofn hárgreiðslu- stofuna Lilju í Templarasundi 3. Ráku þær hana í þrjú ár, en árið 1944 keypti góð vinkona hennar, Sigríður Bjamadóttir, stofuna og starfrækir hana enn í dag. Það mun hafa verið litlu síðar að Lilja fór ásamt ágætri vinkonu sinni, Magnþóru Magnúsdóttur, að aðstoða við hárgreiðslu hjá Leikfé- lagi Reykjavíkur. Frá því um 1950 tók hún við þessu starfi hjá félaginu og hafði það með höndum til ársins 1980. Vinnuherbergi leikara undir svið- inu í Iðnó var skemmtilegur vinnu- staður. Eftir meira en 30 ára veru þar hafði Lilja margs að minnast: skemmtilegra atvika, hnyttinna til- svara og margja mætra manna. Var það henni mikil gæfa að fá að starfa með því yndislega fólki sem þarna var og eiga vináttu þess. Hún lagði alúð í starf sitt, lét sig ekki vanta í vinnu og var komin manna fyrst á vettvang hvert vinnukvöld til að skipuleggja hlutina. Var við brugðið hve hún rækti starf sitt af mikilli kostgæfni og trúmennsku. Lilja var kona hjartahlý og hjálp- söm. Mörgum þótti því gott að leita til hennar. Barnabörnin voru henni mikils virði og hjá henni áttu þau iðulega gott skjól. Hún var höfðingi í lund og kappkostaði að vera frem- ur veitandi en þiggjandi. Og ófáar eru þær konur sem notið hafa greið- vikni hennar þegar lagfæring hár- greiðslunnar var annars vegar. Ég kveð hjartkæra systur mína hinstu kveðju. Blessuð sé minning hennar og megi góður Guð greiða henni veg inn í nýjan og bjartari heim. Því segi ég með orðum sr. Valdemars Briem: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Geir Þórðarson Kveðja frá Leikfélagi Reykjavíkur Við fráfall Lilju Þórðardóttur koma upp í hugann minningar frá árum Leikfélags Reykjavíkur í Iðnó. Þar starfaði Lilja sem hárgreiðslu- meistari Leikfélagsins í áratugi við vinnuskilyrði sem í rauninni voru algjörlega óviðunandi. Kjallarinn í Iðnó, búningsher- bergi leikara, hefur aldrei verið aðlaðandi vistarvera — og langt undir lágmarkskröfum sem gerðar eru til aðbúnaðar á vinnustað. En hún Lilja hárgreiðslukona var ein- stök og átti sinn stóra þátt í því að gera kjallarann að þeim stað sem við minnumst nú með ákveðnum söknuði þrátt fyrir allt. Hvert einasta sýningarkvöld var Lilja mætt í kjallarann á undan öll- um öðrum, búin að hella upp á könnuna og tók á móti manni með sínu þægilega viðmóti og skemmti- legum athugasemdum um eitt og annað. Og þegar hún lét af störfum, eftir að hafa verið í hugum margra samgróin Leikfélaginu áratugum saman, vissum við sem höfðum ver- ið henni samferða að kjallarinn yrði aldrei aftur hinn sami. Leikfélag Reykjavíkur á tilveru sína ekki hvað síst að þakka starfs- fólki eins og Lilju Þórðardóttur, hárgreiðslumeistara, sem vann sín störf á bak við tjöldin í Iðnó við hinar erfíðustu aðstæður. Við Leik- félagsmenn minnumst hennar með sérstakri hlýju og innilegu þakklæti. Sigurður Karlsson Þegar við eldumst fer hann að stækka hópur vinanna kæru sem farnir eru frá okkur yfír í heiminn bjarta þar sem réttlætið býr. Við eldri leikararnir hjá Leikfé- lagi Reykjavíkur njótum nú ekki lengur umönnunar og kærleika kon- unnar sem var okkur öllum svo mikils virði. Þegar ég stilli huga minn til baka og reyni að gera mér grein fyrir hvað það var í fari henn- ar Lilju, hárgreiðslukonunnar okkar í Iðnó sem gerði það að verkum, að nú þegar við heyrum andlát hennar, langar okkur aðeins til að taka hana í fangið í heimi hugans, og hvísla í eyra hennar: Þakka þér fyrir Lilja, þú ókrýnda drottning kjallarans í Iðnó. „Hann var góður þessi,“ mundi Lilja þá segja og líklega mundi hún losa sig hæglátlega úr þessu tilfínn- ingasama faðmlagi, því hún var ekkert mikið fýrir faðmlög hún Lilja. Ég man satt að segja eftir því að hún sagði mér einu sinni að sér leiddist allt svoleiðis. Samt var öll hennar nærvera eins og eitt stórt faðmlag. Ég var 11 ára gömul þegar ég kom í Iðnó í fyrsta skipti. Eg var í mínu fínasta pússi, með tilheyr- andi slöngulokka í hárinu sem magnaðir voru fram með sjóðandi heitu krullujárni. Ég vissi ekki þá sem ég sat í grænu plusssæti, stjörf af fínheitum, hvað ég átti oft eftir að sitja undir einmitt slíkum jámum í þessu töfrahúsi en það var ekki fyrr en mörgum árum seinna, að ég sat niður í svokölluðum „almenn- ingi“ og hendurnar sem þar beittu krullujárninu af undraverðri fími, vom hendurnar hennar Lilju minnar. Krullujárnið bókstaflega dansaði í höndum hennar, hún dró það sjóðandi heit undan kaffikönn- unni sem stóð á heitri rafmagns- hellu á borðinu við spegilinn. Þá sneri hún því fímlega nokkra hringi í loftinu, blés síðan á það og stakk því síðan í hár mitt og hóf samræð- ur kvöldsins. Og samræður okkar Lilju hófust reyndar alltaf á sömu setningunni. Einhverra hluta vegna bytjuðu þær alltaf með því að Lilja spurði: „Hvernig hefur hún tengda- móðir þín það?“ Þegar ég var búin að segja henni allt um heilsufar þeirrar tengdamóður sem við átti í það skipti, og Lilja var búin að lýsa því yfír að ég ætti svo sæta tengda- t Sonur minn og bróðir, BERGSTEiNN THEÓDÓR ÞÓRARINSSON, Hásteinsvegi 22, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju föstudaginn 23. ágúst kl. 14.00. Anna Halldórsdóttir, Ásta Þórarinsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GEORG HÓLMBERGSSON, Dalbraut 25, lést þann 13. ágúst sl. Útförin hefur farið fram i kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð. Sigríður Jónsdóttir, Ingibjörg Georgsdóttir, Þórir Guðmundsson, Sigriður Bachmann, Matthías Magnússon, Guðmundur Þórisson, Ingi Þór Þórisson, Magnús Þórir Matthíasson. ERFIDRYKKJUR Tökum að okkur erfidrykkjurfyrir allt að250 manns. Verð frú kr. 830. - Upplýsingar í síma 11440 eða á staðnum. Hótel Borg Útför t ELÍSABETAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Hnífsdal fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 26. ágúst kl. 13.30. Þórhallur Már Sigmundsson, Guðmundur Samúelsson, Anna Lilja Gestsdóttir, Sigriður Sigmundsdóttir. Ástkær eiginkona t mín og móðir okkar. FANNEY JÓNASDÓTTIR, Álfheimum 9, lést 19. ágúst. Jónas R. Jónasson og dætur. t Ástkær sonur okkar, faðir og bróðir, GÍSLI RAGNAR EINARSSON, Álfhólsvegi 89, Kópavogi, sem andaðist á heimili sínu 16. ágúst, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 23. ágúst kl. 10.30. Þórhildur Gísladóttir, Einar Kjartansson, Arna Viktorfa Gísladóttir, Margrét Bragadóttir, Fríða Björk Einarsdóttir, Kjartan Júlíus Einarsson. móður. Þá var lítil tregða á að fínna umræðuefni. Þá var malað um alla heima og geima allt fram á síðustu krullu. Og alltaf fannst mér jafn hressandi og gaman að tala við Lilju. Hún hafði mjög ákveðnar og afdráttarlausar skoðanir og þessar skoðanir voru aldrei eins og allra hinna. Ég man eitt vorið sagði hún mér að hún væri nýkomin úr heim- sókn í sumarbústað. „Ó,“ sagði ég upphafín. „Var ekki yndislegt að koma svona upp í sveit og njóta náttúrunnar?" „Nei,“ sagði Lilja, „ég veit ekkert leiðinlegra en njóta náttúrunnar, hvað þá að vera að flækjast upp í sveit.“ Og síðan var hlegið dátt, þangað til Lilja fór að gráta, en hún var ein af þessum skemmtilegu manngerðum sem fá alltaf tár í augun þegar mikið er hlegið. Og oft hafði ég hana grun- aða um að koma með þessar óvenju- legu yfírlýsingar sínar, bara til að fá mig til að hlæja. „Almenningurinn“, lágreista kjallaraherbergið í Iðnó, þar sem Lilja ríkti við spegilinn stóra, hefur sjálfsagt hlotið nafn sitt af því að gengið er inn í öll búningsherbergi leikara úr þessu miðherbergi og eru búningsherbergin eins og dilkar í rétt út frá almenningnum. Og þar inni í örlitlu búningsherbergjunum sátu hinir leikararnir og förðuðu sig og biðu eftir því að komast að í stólinn til Lilju. Oft gerðist það, ef hláturgusurnar frá speglinum henn- ar Lilju urðu háværar og hjartan- legar, þá var öllum sjö dyrum bún- ingsherbergjanna svipt upp á gátt til að enginn missti nú af neinu. Eða einhveijir leikarar höfðu orðið ósammála uppi á sviði og komu svo eins og ískaldir stormsveipir niður í almenning, þar sem einhver sat undir krullujárninu hennar Lilju. Þessir ofsareiðu leikarar brunuðu svo framhjá henni og hurfu hver í sitt herbergi og tveimur hurðum var skellt af slíku afli að krullujárn- ið fór að nötra í höndum Ljlju. Eft- ir örskamma stund opnuðust svo aðrar dyrnar og eitthvað gott og krassandi var sagt, síðan skellt aft- ur. í sömu svifum opnast hinar dyrnar með gusti og einhver öskrar: Að hinn skuli ekki halda ... o.s.frv. Síðan _skellur hálfu fastar en sá fyrri. Ómögulegt er að skilja hvern- ig litlu hurðirnar þoldu allar þessar sviptingar. Svo fór að ijúka úr krull- unum hjá Lilju. Sem auðvitað átt- aði sig snarlega og kippti tryllitæk- inu úr sviðnuðu hárinu, vingsaði því í nokkra hringi í loftinu, stakk því síðan undir kaffikönnuna og sagði: „Hafiði það nú hálft annað takk.“ En það var orðatiltæki sem Lilja notaði alltaf þegar mikið gekk á. Undir smærri uppákomum heyrð- ist stundum hljóðlega sagt frá speglinum stóra: „Ég á ekki krónu.“ Hún elskaði að gera okkur leik- konurnar fínar, þessi hjartagóða drottning kjallarans í Iðnó. Og hún tók alltaf mjög nærri sér ef við áttum að leika einhveijar ljótar druslur. „Viltu vera svona?“ spurði hún áhyggjufull og mundaði járnið góða. Henni fannst við ekkert er- indi eiga upp á leiksvið nema með volga krullu við vangann. Hún vandi okkur fljótt af öllu veikinda- væli, því ef leikari kvartaði undan þrota í hálsi eða hitaslæðingi, þá dreif hún í okkur skeið af hreinu spritti. Þetta var slíkur viðbjóður á bragðið, að þótt Lilja fullvissaði okkur um að þetta mundi hjálpa báru flestir sína hálsbólgu í hljóði til að sleppa við sprittskammtinn. Eins og Lilja elskaði okkur og annaðist eins og bömin sín, þá nennti hún aldrei að koma og horfa á okkur uppi á sviði, henni leiddust svo leikrit. En henni þótti gaman að hlusta á okkur syngja í gegnum hátalarakerfið. Svo upp á sviðið máttum við fara í baráttuna Lilju- laus. Og áfram höldum við að troða lífsleiðina án þessarar elskulegu vinkonu. En aldrei mun ég ganga framhjá Iðnó öðruvísi en óska þess að nú gæti ég augnablik horfíð aft- ur í tímann, skotist niður í kjallara, sest í stólinn hjá henni Lilju og feng- ið að hlægja með henni örlitla stund, áður en hún mundi horfa á mig áhyggjufull, munda járnið og spyija: „Ætlarðu að fara svona út í lífið?“ ( ( < I ( ( ( ( ( ( ( í í Guðrún Ásmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.