Morgunblaðið - 22.08.1991, Page 44
FIMMTUDAGUR 22. AGUST 1991
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Hafnaframkvæmdir og ferjukaup:
Skuldbindingar um-
fram heimilaðar fjár-
veitingar 650 millj.
SKULDBINDINGAR ríkissjóðs vegna hafnaframkvæmda sem fyrr-
verandi ríkisstjórn stofnaði til umfram heimilaðar fjárveitingar nema
nú 650 milljónum króna, að sögn Halldórs Blöndal samgönguráðherra.
„Svo þungur baggi setur okkur í mikinn vanda þegar við erum að
reyna að ná saman endum á samdráttartímum," segir hann.
Stærstu framkvæmdir sem hér um
ræðir eru að sögn ráðherra hafnar-
framkvæmdir í Sandgerði, sem sam-
kvæmt lánsfjárlögum munu kosta
260 milljónir, framkvæmdir við
Hornafjarðarós upp á um 130 millj-
ónir og kostnaður sem hlýst af því
að ekki var hugsað fyrir ferjuaðstöðu
vegna nýs Herjólfs og við kaupin á
Djúpskipinu Fagranesi á ísafirði.
Framkvæmdir við feijubryggju á
Þorlákshöfn vegna siglinga Herjólfs
taka 11 mánuði, að sögn ráðherra
og mun hlutur ríkissjóðs nema um
160 milljónum.
Teknirfyrir
ávísanafals
'ÞRÍR menn voru handteknir
í gær í tengslum við ávísana-
fals. Arvökul afgreiðslu-
stúlka í söluturni í borginni
hafði gert lögreglu viðvart
um að hún teldi sig hafa
tekið á móti falsaðri ávísun.
Maður kom inn í söluturn-
inn, bað um þijár vindlingja-
lengjur og greiddi fyrir þær
með átta þúsund kr. ávísun.
Afgreiðslustúlkan bað hann
um að framvísa bankakorti en
kvaðst maðurinn ekki hafa það
tiltækt. Stúlkan greiddi mann-
inum til baka en hafði sam-
band við lögreglu skömmu
ksíðar og lýsti grunsemdum
sínum. Mennirnir voru síðan
handteknir í húsi og ávísana-
heftið gert upptækt. Mennirnir
voru undir áhrifum áfengis og
hafa komið áður við sögu lög-
reglunnar.
„Hér hefur verið gengið skör
lengra en áður hefur tíðkast," sagði
Halldór. „Stefna okkar er að stöðva
vinnubrögð sem binda ríkinu þá
bagga fyrirfram að ríkissjóður eigi
að standa undir fjármagnskostnaði.
Því hef ég ákveðið að skipa nefnd
til að gera tillögur um skynsamlegri
og árangursríkari vinnubrögð við
hafnaframkvæmdir, að fjármagni
verði framvegis beint á þá staði þar
sem þörfin er brýnust og stuðlað
verði að því, að sveitarfélögin sam-
einist um hafnaraðstöðu, því rekstur
þessara mannvirkja er mikill og
stofnkostnaður sumstaðar yfirþyrm-
andi. Sturla Böðvarsson alþingis-
maður og formaður Hafnasambands-
ins mun hafa forystu í þeirri vinnu,“
sagði Halldór.
Ráðherra sagðist einnig hafa skip-
að nefnd Vestfirðinga til að gera til-
iögur um ferjuaðstöðu við ísafjarðar-
djúp í samráði við hafnarmálastjóra
og Vegagerð ríkisins. Er Auðunn
Karlsson á Súðavík formaður nefnd-
arinnar.
, j"-".
W* -*•
GÆGST UT UMGLUGGA
Igor Krasavín, sendiherra Sovétríkjanna á Islandi:
Lýðræðisumbætur í Sovét-
rfldunum munu halda áfram
„VIÐ fylgjumst grannt með at-
burðum í landi okkar. Við lýs-
um ánægju með yfirlýsingu for-
seta okkar, Míkhaíls Gorbatsj-
ovs, um að hann hafi fulla stjórn
á ástandinu og að sambandið
við landið, sem rofnaði vegna
ævintýramennsku nokkurra
æðstu manna ríkisins, hefur
verið endurnýjað,“ sagði ígor
Krasavín, sendiherra Sovétiúkj-
anna í Reykjavík, er Morgun-
blaðið leitaði álits hans í gær-
kvöldi á atburðum dagsins í
Sovétríkjunum.
Andrúmsloftið við rússneska þinghúsið á miðnætti:
Sigursæl andlit í stað alvar-
legra sem biðu örlaga sinna
segir Stefán L. Stefánsson sendiráðsritari
„ANDRÚMSLOFTIÐ við þinghúsið hefur gjörbreyst á einum sólar-
hring. A þriðjudagskvöldið var fólkið alvarlegt, ákveðið og þögult í
regndrunganum þegar það stóð andspænis skriðdrekunum, en í kvöld
ríkti sigurgleði og bjartsýni, og búið var að skrcyta drekana með blóm-
um. Fólkið sagði mér að þessi stund myndi breyta andrúmsloftinu í
öllum Sovétríkjunum,“ sagði Stefán L. Stefánsson, sendiráðsritari í
Moskvu í samtali við Morgunblaðið seint í gærkvöldi.
Stefán var við rússneska þing-
^isið í gærkvöldi og fyrrakvöld og
sagði að kúvendingin væri algjör.
„Um miðnættið var að hefjast
messa á svölum þinghússins, en
einnig var messað þar síðdegis í
gær,“ sagði hann. „Jeltsín bað fólk
að vera um kyrrt í nótt, því enn
væri hættan ekki að fullu liðin hjá.
Fólkið tók orð hans alvarlega, og
piggnandi mannfjöldinn hjálpaðist
að við að endurbyggja götuvígin
við húsið með strætisvögnum og
blómskreyttum skriðdrekum."
Stefán sagði að í gærmorgun
hefði útlitið ekki verið gott. „At-
burðir þriðjudagskvöldsins sem við
urðum vitni að sátu enn í okkur.
Við fylgdumst grannt með útvarps-
og sjónvarpsfréttum ríkisútvarpsins
hér, og fram undir hádegi að stað-
artíma bárust aðeins fréttir frá
neyðarnefndinni um þann miði!,“
sagði Stefán. Erlendar sjónvarps-
stöðvar nást ekki í íslenska sendí-
ráðinu í Moskvu. „Um hádegisbil
gekk ég ásamt Olafi Egilssyni
sendiherra niður að þinghúsinu. Þar
hafði aftur safnast fjöldi fólks sem
beið átekta líkt og við.“
„Ólafur fór síðan á fund sendi-
herra Norðurlanda í Moskvu, en ég
hélt áfram að skoða ummerki átak-
anna sem urðu við þinghúsið á
þriðjudagskvöld.“
Stefán sagði að stuttu seinna
hefði heyrst til manns með gjallar-
horn. „Múgurinn safnaðist um
manninn, sem hafði þær fréttir að
færa að meðlimir neyðarnefndar-
innar væru að yfírgefa borgina,
líklega á flótta. Andrúmsloftið snar-
breyttist, sumir fóru að fagna, en
aðrir trúðu fréttunum varlega. En
þessar blendnu tilfrnningar breytt-
ust síðan í ósvikna gleði.“
Stefán fór svo aftur til sendiráðs-
ins, setti sig í sambandi við sendi-
herrann og færði honum tíðindin.
Þeir urðu ásáttir um að Stefán leit-
aði staðfestingar á þessum fréttum.
„Upplýsingafulltrúi Jeltsíns tjáði
mér að neyðarnefndin hefði í raun
réttri farið flugleiðis frá Moskvu.
Skömmu eftir þetta átti að hefjast
þingfundur, og stuðningsmenn
Jeltsíns sögðu mér að ef svo færi
að hið íhaldssama Gostel-radio
myndi sjónvarpa frá fundinum væri
það tryggt merki þess að tök neyð-
amefndarinnar væru að gliðna. Það
gekk síðan eftir,“ sagði Stefán enn-
fremur. Nokkru síðar sagði hann
endanlega hafa komið i ljós að
valdaránið hefði farið út um þúfur.
Krasavín sagði að þjóðfélagið
hefði fordæmt aðgerðir þeirra,
sem rændu völdunum í Kreml.
„Samsærið mistókst vegna stað-
festu lýðræðisaflanna í landi okk-
ar,“ sagði hann.
Sendiherrann sagði að sendi-
ráðsmenn gætu nú fylgzt með
sovézka sjónvarpinu og hefðu þar
heyrt yfirlýsingu Gorbatsjovs
lesna upp. „Við höfum ennþá ekki
heyrt hvort Gorbatsjov forseti er
kominn aftur til Moskvu, en það
var gefið til kynna að hann væri
á leiðinni,“ sagði hann.
Krasavin sagði að í símtali við
George Bush Bandaríkjaforseta í
gær hefði Gorbatsjov fullvissað
Bush um að sá ferill, sem hafizt
hefði í Sovétríkjunum með lýðræð-
isumbótum, myndi halda áfram
vegna endurreisnar lýðræðislegra
stjórnarhátta. „Við erum líka afar
ánægðir með að báðir forsetar
skuli hafa orðið sammála um að
halda uppi samskiptum til fram-
búðar og áframhaldandi samvinnu
á öllum sviðum í samræmi við
samninga, sem gerðir hafa verið.
Þetta kom fram í símtali forset-
anna í dag,“ sagði sendiherrann.
Aðspurður hvort hann teldi að
atburðir síðustu daga í Sovétríkj-
unum myndu hraða lýðræðisum-
bótum sagði Krasavín: „Alltént
sýnir yfirlýsing forseta okkar
greinilega að lýðræðisþróuninni
mun miða í áttina.“