Morgunblaðið - 17.09.1991, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1991
Nýr hrossakj ötsmarkaður opnast í Japan:
Bændur fá 22 þús-
und kr. fyrir hrossið
Skrokkarnir úrbeinaðir og aðeins
fluttir út helstu vöðvar af afturhluta
Sauðárkróki.
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfi-ystihúsanna hefur gengið frá samningi um
sölu á verulegu magni af hrossakjöti á Japansmarkað fyrir Slátur-
samlag Skagfirðinga á Sauðárkróki. Skrokkarnir eru úrbeinaðir
og aðeins fluttir út helstu vöðvarnar úr afturparti hrossins.
Að sögn Gísla Halldórssonar
framkvæmdastjóra Slátursamlags-
ins, komu fýrir nokkru fulltrúar
japönsku kaupendanna og kynntu
sér aðstæður hjá Slátursamlaginu,
sýndu heimamönnum hvemig þeir
vildu að kjötið væri úrbeinað og
frágengið og undirskrifuðu samn-
inga um kaupin.
I byrjun sagði Gísli að frá Slát-
hvemig þyrfti að ganga frá og
meðhöndla kjötið eða hversu hátt
verð fengist fyrir það.
Sýni verða send út á næstunni.
Gísli sagði þetta dæmi allt í fmm-
skoðun, en Ijóst að ef af kaupunum
yrði væri um verulegt magn af
kjöti að ræða.
- BB
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Yfirvinnubann sjómanna á kaupskipum skollið á
firvinnubann Siómannafélatrs Revkiavíkiir skall á í crvpr en hað trilriir á kannskiniim í heimahöfnnr
Yfirvinnubann Sjómannafélags Reykjavíkur skall á í gær, en það gildir á kaupskipum í heimahöfnum.
Yfirvinnubannið hefur það í för með sér að kaupskip geta ekki látið úr höfn á tímabilinu 17-08 virka daga né
á laugardögum og sunnudögum. Það kemur til með að raska verulega áætlunum skipafélagnna, en mörg skip
í áætlunarsiglingum hafa lagt úr höfn seint á kvöldin. Myndin var tekin af Laxfossi í Hafnarfjarðarhöfn í
gær, en hann var þá nýkominn til hafnar.
f
í
ursamlaginu færi um eitt tonn af
kjöti á viku, en síðan tvöfaldaðist
magnið og vildu japönsku kaup-
endurnir fá kjöt allt til áramóta
og jafnvel lengur. Magni Þór Geirs-
son sölustjóri hjá SH sagði að 35
hross þyrfti vikulega í þessa
vinnslu eða alls um 1.000 hross á
an.
Gísli sagði að ekki væri vitað
enn sem komið er hversu mörg
Spánverjar halda enn fast
við kröfu um veiðiheimildir 1
hross væri hægt að fá til slátrun-
ar, en markaður virtist nægur og
væru þeir Slátursamlagsmenn
þessa dagana að þreifa fyrir sér
með að fá hross til slátrunar frá
Húsavík og verið væri að kynna
málið í Eyjafirði, en reynt yrði að
fá hross af öllu Norðurlandi til
þess að svara kröfum þessa nýja
markaðar.
Virðist sem loks hilli undir að
bændur fái nokkuð fyrir hrossa-
kjötið, en lengi hefur varla fengist
verð fyrir kjötið sem greiddi slátur-
kostnað, en nú greiðir Slátursam-
lagið bændum 22 þúsund krónur
fyrir hvert hross, fast verð, og er
það uppgert innan mánaðar. Er
þetta 8-10 þúsund kr. hærra verð
en fengist hefur fyrir sölu á aftur-
pörtunum í heilu lagi á Japans-
markað.
Þá sagði Gísli einnig að nú væri
hugsanlegt að Sölumiðstöðin hefði
fundið enn einn kaupanda í Japan
sem vildi kaupa bæði lamba- og
ærkjöt, en enn væri ekki vitað
SPÁNVERJAR halda enn fast við kröfu um að veiðiheimildir í lög-
sögu EFTA-ríkja komi á móti tollfijálsum markaðsaðgangi fyrir
sjávarafurðir á evrópsku efnahagssvæði. Þetta kom fram í viðræðum
Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra við Pedro Solbes Mira
sjávrútvegsráðherra Spánveija og hann segir að fundur þeirra hafi
valdið sér vonbrigðum.
teldum okkur vera að semja við
Evrópubandalagið sem heild, en ekki
einstök ríki þess og við gætum ekki
hagað okkar afstöðu með tilliti til
hagsmuna einstakra EB-ríkja. Það
er vitaskuld ekki varlegt að dæma
heildarafstöðuna eftir samtal við
fulltrúa einnar ríkisstjórnar," sagði
Þorsteinn Pálsson.
„Við áttum viðræður um stöðuna
í Evrópubandalagssamningunum og
ég gerði honum þar glögga grein
fyrir okkar afstöðu. Hann fór yfír
málið frá þeirra bæjardyrum séð og
satt best að segja fannst mér hann
neikvæðari en ég átti von á. Fyrst
og fremst kom mér á óvart að hann
skyldi enn halda uppi kröfunni um
aðgang að fískimiðum en það gerði
hann mjög ákveðið. Þá gerði hann
ekki mikið úr samningstilboði Norð-
manna frá í sumar,“ sagði Þorsteinn
Pálsson þegar Morgunblaðið ræddi
við hann um fund þeirra Mira á
Spáni í síðustu viku.
Þorsteinn sagði að sjávarútvegs-
ráðherra Norðmanna, Oddrunn Pett-
ersen, hefði einnig rætt við Mira á
Spáni en þar var stóð yfír fundur
40 sjávarútvegsráðherra víðsvegar
að úr heiminum. Á þeim fundi hefði
spænski sjávarútvegsráðherrann
talað á svipuðum nótum.
Þegar slitnaði upp úr samningum
EFTA og Evrópubandalagsins í
sumar, aðallega vegna ósamkomu-
lags um sjávarútvegsmál, var talið
að Spánverjar væru búnir að sætta
sig við þá niðurstöðu sem fólst í til-
boði Norðmanna. Tilboðið gerði m.a.
ráð fyrir að auka hlut Spánveija í
veiðiheimildum Evrópubandalagsins
í norskri lögsögu. Þegar Þorsteinn
var spurður, hvort viðræður hans
við spænska sjávarútvegsráðherr-
ann gæfu tilefni til að endurmeta
stöðu Evrópuviðræðnanna svaraði
hann að þama væri aðeins um full-
trúa einnar ríkisstjómar innan Evr-
opubandalagsins að ræða.
„Ég tók það skýrt fram, að við
Starfsfólki Freyju á
Suðureyri sagt upp
„ÞAÐ er varúðarráðstöfun að segja starfsfólki Freyju upp, skipið
er innsiglað og frystihúsinu berst lítill afli,“ segir Guðmundur Malm-
quist forstjóri Byggðastofnunar. Hlutafjársjóður stofnunarinnar er
stærsti hluthafi í Fiskiðjunni Freyju á Suðureyri. Guðmundur segir
menn vona að unnt verði að endurráða fólkið.
Konunglega fílharmóníuhlj ómsveit-
í Lundúnum:
m
Flutt verður verk
eftir Askel Másson
KONUNGLEGA fílharmóníusveitin í Lundúnum flytur í lok mán-
aðarins tónverk eftir Áskel Másson. Það verður flutt í þekktu
tónleikahúsi þar í borg, Fairfield Hall í Croydon, undir stjórn
Adrians Leaper. Einleikari með um áttatíu manna hyómsveit
verður ung skosk listakona, Evelyn Glennie. Áskell kallar verk
sitt Konsertþátt fyrir litla trommu og hljómsveit. Hann kveðst
ekki vita til þess að Konunglega fílharmóníusveitin hafi áður flutt
tónsmíð eftir ísiending.
„Mig langar að fara til London
og tala við Evelyn," segir Áskell,
„hún hefur sýnt verkum mínum
mikinn áhuga og slegið trommuna
í Konsertþættinum á tvennum
tónleikum á Englandi í sumar.
Efnisskrá Fílharmóníusveitarinn-
ar er aimennt skipulögð langt
fram í tímann og eiginlega bendir
stuttur fyrirvari nú til þess að
einleikarinn hafí óskað sérstak-
lega eftir flutningi þessa verks.
Hana langar að flytja meira eftir
mig, í Bretlandi og Ástralíu og
við þurfum að ræða það. Það hef-
ur líka komið til tals að bjóða
Evelyn að koma til íslands og
leika með Sinfóníuhljómsveit-
inni.“
Evelyn Glennie er 26 ára göm-
ul. Hún er heymarlaus en leikur
engu að síður af snilld á slag-
verkshljóðfæri. Glennie hefur sér-
hæft sig í hljóðfærinu marimba.
Hún flutti í sumar einleikskafla í
Konsertþætti Áskels með Sin-
fóníuhljómsveit Birmingham í
heimaborg sveitarmnar og í
Sheffield. Hún hefur líka víða flutt
einleiksverk Áskels, Prím. Glennie
vill fara með Konsertþáttinn til
Queensland í Ástralíu í mars á
næsta ári og flytja hann í Guild-
ford á Englandi í apríl.
Morgunblaðið/KGA
Áskell Másson tónskáld.
Áskell Másson samdi Konsert-
þáttinn fyrir níu árum og tileink-
aði hann sænskum slagverksleik-
ara, Roger Carlsson. Samsetning-
in lítil tromma og stór hljómsveit
kemur þeim á ývart sem ekki
. þekkja. yerkið.. Áskell .segir það
líklega hið eina þar sem hún er
notuð.
Roger Carlsson frumflutti Kon-
sertþáttinn með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands í Reykjavík 1982.
Síðan hefur hann hljómað víða.
Nefna má tónleika Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Gautaborg þar sem
Carlsson sló trommuna og Finninn
Esa-Pekka Salonen stjórnaði. Þá
hefur verkið verið flutt í Kaup-
mannahöfn af einleikaranum Gert
Mortensen og Konunglegu sin-
. fóníuhljómsveitinnL þar í landi.
Ákvörðun um uppsagnir um 60
manna var tekin á stjómarfundi
hluthafa í Freyju á laugardag. Þar
var jafnframt ákveðið að taka engu
tilboðanna sjö sem bárust í Hlaðs-
vík, útgerðarfélag togarans Elínar
Þorbjarnardóttur sem liggur inn-
sigluð við landfestar. Fiskiðjan á
þorra bréfa í Hlaðsvík, en boðin í
Elínu þóttu öll of lág.
Guðmundur Malmquist segir við-
ræður í gangi um samstarf um
rekstur Freyju; frystihússins og
togarans. Helst sé horft til tveggja
möguleika. Annars vegar að Fáfnir
á Þingeyri komi til samstarfs við
Freyju. Hins vegar að Frosti á
Súðavík og Norðurtanginn á
ísafírði kaupi Freyju með þeim skil-
málum að halda þar fullum rekstri.
Þá segir Guðmundur að enn sé til
athugunar að semja við útgerðarfé-
lagið Hrönn á ísafírði um kaup á
Elínu Þorbjarnardóttur, en Hrönn
myndi nýta kvóta Elínar.
Sveinn Björnsson
forseti ÍSÍ látinn
SVEINN Björnsson, forseti
íþróttasambands íslands, lést í
Reykjavík í gær 62 ára að aldri.
Sveinn fæddist í Reykjavík 10.
október 1928, sonur hjónanna
Björns G. Jónssonar, kaupmanns,
og Ingibjargar Sveinsdóttur. Hann
lauk prófí frá Samvinnuskólanum
1947 og var framkvæmdastjóri
Trípólíbíós frá 1946-1954, er hann
gerðist kaupmaður.
Sveinn starfaði mikið að félags-
málum og gegndi fjölda trúnaðar-
starfa á þeim vettvangi. Hann sat
í stjórn Kaupmannasamtakanna í
10 ár og var þar af varaformaður
í fímm ár. Hann var varaborgarfull-
trúi frá 1974-1982. Hann sat í
stjórn Knattspymufélags
Reykjavíkur í 25 ár, þar af vara-
formaður í 15 ár. Var í stjóm
íþróttaráðs Reykjavíkur frá 1974
þar af formaður í 4 ár. í stjórn
Iþróttanefndar ríkisins og Félags-
heimilasjóðs frá 1969. Varaformað-
ur Ólympíunefndar íslands frá
1973.1 stjórn ÍSÍ frá 1962, varafor-
seti 1972-80 og forseti frá. 1980.
. Forjoaður íþróttahátíðar. ÍSÍ. 1970,.
1980 og 1990. í stjórp landsmálafé-
Sveinn Björnsson
lagsins Varðar í 20 ár, þar af for-
maður í 3 ár.
Fyrri kona Sveins var Áslaug
Jónsdóttir, en hún lést 1960. Þau
eignuðust tvö börn, Björn og
Margréti. Eftiriifandi kona Sveins
er Ragnheiður G. Thorsteinsson.
Þau eignuðust tvo syni, Geir - og
Svein.