Morgunblaðið - 17.09.1991, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1991
3
Eitt af stærri
hlaupum í Súlu
- segir Exjólfur Hannesson á Núpsstað
HLAUP hófst í Súlu um kl. 13 síðastliðinn sunnudag og stóð það enn
í gær, að sögn Eyjólfs Hannessonar á Núpsstað. Eyjólfur sagði í gær
við Morgunblaðið að mikið vantaði enn upp á að hlaupinu væri lok-
ið, en það hefði byrjað að minnka í ánni strax á sunnudag um sjö-
leytið.
Eyjólfur sagði að hlaupið hefði
engin spjöll unnið, þetta væri svipað
hlaup og áður, en þó með þeim
stærri. Eyjólfur er á níræðisaldri
og er fæddur og uppalinn á Núps-
stað sem er spölkorn frá ánni.
Að sögn Odds Sigurðssonar jarð-
fræðings hjá Orkustofnun stendur
hlaupið óvenjulega stutt yfir að
þessu sinni. Menn frá Vatnamæl-
ingum fóru austur að Súlu í fyrra-
kvöld en þegar þeir komu var hlaup-
inu að mestu lokið. „Þetta er ekki
eins og Súluhlaup eru vön að vera.
Þau standa yfirleitt yfir í tvo daga
en ég hef engar skýringar á þessu,“
sagði Oddur. Hann sagði að hlaup
hefði komið í Súlu upp úr miðjum
ágústmánuði en lítið orðið úr því
vegna jakastíflu sem myndaðist í
mynni Grænalóns. Hann sagði að
fátt væri vitað um hlaupið þar sem
engir síritar væru í ánni. Ekki væri
hægt að mæla með sírita þar sem
vatnsborðið í ánni hækkar ekki
heldur grefur hún sig dýpra í far-
veginn.
„Fyrir mér er þetta óskýrt mál.
Það koma tvö hlaup í sumar og
bæði eru þau lítil. Ég man ekki til
þess að tvö hlaup hafi orðið á sama
sumri. En vegna þess að það eru
engir síritar þá gætu hlaup farið
fram hjá okkur,“ sagði Oddur.
♦ ♦ ♦
Tveir í gæslu
vegna nauðgunar:
Sent eftir 3.
manninum
TVEIR bandarískir varnar-
liðsmenn af Keflavíkurvelli
hafa verið úrskurðaðir í allt
að tíu daga gæsluvarðhald,
en þeir eru grunaðir um að
hafa nauðgað íslenskri konu
frá Keflavík inni á vallarsvæð-
inu, ásamt þriðja varnarliðs-
manninum. Sá kom til lands-
ins í gær og hefur lögreglan
krafist að hann verði úrskurð-
aður í samsvarandi gæslu-
varðhald og hinir tveir.
Lögreglan í Keflavík, sem fer
með rannsókn málsins, varðist
allra frétta. Hún lét senda eftir
þriðja manninum til Banda-
ríkjanna og kom hann til lands-
ins i gærmorgun.
Skemmdarverk
í kirkjugarði
SKEMMDIR voru unnar á kross-
um og hróflað við legsteinum í
gamla kirkjugarðinum við Suð-
urgötu um síðustu helgi.
Þetta er í þriðja sinn á þremur
árum sem skemmdir eru unnar í
garðinum. Engar skemmdir voru
unnar á leiðum en hróflað við leg-
steinum og tijágróður og krossar
voru skemmdir.
Starfsmenn kirkjugarðsins hafa
af og til verið við gæslu í kirkjugarð-
inum um nætur einmitt vegna slíkra
skemmdarverka.
Morgunblaðið/Ingvar
Hjól og bíll skella saman á Miklubraut
Bifreið og reiðhjól skullu saman á gatnamót-
um Miklubrautar og Grensásvegar síðdegis í
gær. Tveim bílum var ekið samsíða suður
Grensásveg til að beygja austur Miklubraut
og kvaðst bflstjórinn á vinstri akrein hafa
gefið hinum gætur og því ekki séð hjólreiða-
manneskjuna fyrr en um seinan. Hún kom
Grensásveg úr gagnstæðri átt og var að fara
yfir Miklubraut þegar áreksturinn varð. Bfl-
stjórinn af miðreininni ók í burtu af slysstaðn-
um. Hjólreiðakonan meiddist á öxl og var flutt
á Slysadeild.
8,7% verðhækkun dilkakjöts
þrátt fyrii’ meiri niðurgreiðslur
Grundvallarverð til bænda hækkar um 10,63%
SMASOLUVERÐ dilkakjöts
hækkaði í gær úr 425 krónum
kílóið í 462 krónur, eða um 8,7%,
og er þá miðað við 1. flokks dilka-
kjöt í 2. verðflokki í ósundurtekn-
um heilum skrokkum. Á fundi
fimmmannanefndar í gær var
ákveðin 4,5% hækkun slátur- og
heildsölukostnaðar frá því í fyrra-
haust, samkvæmt ákvörðun sex-
mannanefndar hækkar verðlags-
grundvöllur sauðfjárafurða um
10,63% miðað við 1. september
síðastliðinn. Fyrir síðustu helgi
var útlit fyrir að smásöluverðið
myndi hækka um 15-20%, en ríkis-
stjórnin ákvað þá að auka niður-
greiðslur um tæplega 22 krónur
á kíló frá því sem verið hefur, eða
um 10%.
Miðað við svipaða innanlandssölu
dilkakjöts og var á síðasta verðlags-
ári, eða um 8.300 tonn, þá nemur
aukning niðurgreiðslna á framleiðsl-
una í haust um það bil 150 milljónum
króna á ársgrundvelli. Þar af má
Textavarp:
íslenskir broddstafir sjást ekki
T í stað Þ, D í stað Ð og % kemur í stað Æ
Tilraunasendingar RÚV á textavarpi hafa leitt í ljós, að ís;
lensku broddstafirnir sjást ekki né bókstafirnir Þ, Ð, Y og Æ. í
þeirra stað verður notast við T í stað Þ, D í stað Ð, og % í stað
Æ. Sérstakan búnað þarf til að ná íslensku bókstöfunum en þau
tæki sem lengst hafa náð nema alla bókstafi nema Y.
Hörður Vilhjálmsson settur út- hér. Hvort hann hefur verið hann-
varpsstjóri segir að innflytjendur
sjónvarpstækja hafí haft góðan
fyrirvara um væntanlegar útsend-
ingar á textavarpi en að þeir hafi
sennilega ekki brugðist eins fljótt
við og æskilegt hefði verið. Út-
sendingar hófust í ágúst en ætlun-
in er að hefja útsendingu í tilraun-
askyni á vísi að textavarpi í lok
september á 25 ára afmæli sjón-
varpsins.
Til að ná íslensku stöfunum
þarf að setja sérstakt spjald í
tækin og er kostnaður vegna
nauðsynlegra breytinga talinn
vera á milli 5 til 10.000 krónur
fyrir tækið. Að sögn Eyjólfs Valdi-
marssonar tæknistjóra sjónvarps-
ins, em móttakarar sjónvarps-
tækjanna misjafnlega þróaðir til
að taka á móti textavarpi. „Elstu
móttakarar sýna alla stafi nema
íslensku broddstafína og auk þess
Þ, Ð og Æ,“ sagði hann. „Þá
ræðst það einnig af umboðsmönn-
um hvaða textabúnaður er seldur
aður fyrir eitthvert ákveðið mark-
aðssvæði og oft er það tilviljun
hvaða tæki lenda hér. Sum geta
verið með spönsk tákn og þá hafa
sumir sérhljóðar kommu. Eftir því
sem búnaðurinn þróast á næstu
árum aukast líkur á að íslensku
stafirnir verði með. Fullkomnustu
tæki ráða nú þegar við alla stafina
nema Ý, en Philips mun ætla að
taka bókstafinn inn á næstunni.
Við getum sagt til um hvaða
tákn eiga að koma í stað þeirra
bókstafa sem ekki era fyrir hendi,
T í stað Þ, D í stað Ð og A eða E
í staðin fyrir Æ eða %. Þetta höf-
um við sagt, þannig að fólk sem
á tæki með þessum takmörkunum
á að geta nýtt sér útsendingam-
ar. Það á að vera læsilegt en það
þarf að læra að lesa þetta í upp-
hafi.“
Eyjólfur sagði að mönnum hafi
komið á óvart hvað það eru fá
tæki sem eru tilbúin að taka á
móti íslensku stöfunum. Lagfæra
fullkomnu textvvarpi mi veljá um
800 sidur *f texta eda ainfolaum
Qrafiskum upplysinaumi
* 24 linur, 40 stafir í línu
* 8 litir x fargrunni og 8 x bakgrunni
TVOFOLÐ H'/iD, BLIKKANDI TEXTI
r sru synair fxsstir t*ir
moguleiksr s*m textavarpid bydur
i madferd t*xt«.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sýnishorn af tilraunaútsendingu frá textavarpi RÚV. Eins og sjá
má er d í stað ð, brodd vantar yfir broddstafi og % merki er í
stað æ.
þurfi hugbúnað í sumum nýrri
tækjanna svo að þau geti tekið á
móti sendingum. „Þetta er stig
sem við urðum að fara í gegn-
um,“ sagði hann. „Það var ekki
um annað að ræða. Fólk varð að
fá að reyna hvað tækin réðu við
og um leið að aðstoða þá sem
þurfa að breyta sínum tækjum.
Við erum að koma á kerfi sem
ætlunin er að reka í áratugi."
gera ráð fyrir að 50 milljónir komi
til greiðsiu á þessu ári, en um 100
milljónir á því næsta. Niðurgreiðslur
á dilkakjöt í 2. verðflokki nema nú
tæplega 237 krónum á kíló, en þær
voru áður 215 krónur.
• Á fundi sexmannanefndar á
sunnudaginn var ákveðið að hækka
verðlagsgrandvöll sauðfjárafurða um
10,63% frá því sem hann var í desem-
ber 1989, en grandvallarverð til
bænda hefur verið óbreytt síðan þá.
Grundvallarverð á kjöti í 2. verð-
flokki, sem er um 75% framleiðslunn-
ar, hækkar úr tæplega 395 krónum
í 438,31 krónu fyrir hvert kíló, en
fyrir kjöt í úrvalsflokki hækkar
grundvallarverðið úr 414,69 kr. í
460,22 kr. Launaliður verðlags-
grundvallarins hækkar um 12,8%,
en af öðrum kostnaðarliðum hækkar
áburður um 18,3%, og ýmis gjöld,
eins og til dæmis tryggingar, fast-
eignaskattur og aðstöðugjald, hækka
um 13%. Kostnaður vegna flutninga
eykst um 10,5%, kjamfóður um 6,1%
og rekstrarvörar um 3,3%. Kostnað-
ur vegna véla lækkar hins vegar um
3,2%, og sömuleiðis lækkar kostnað-
ur vegna þjónustu um 2,4% og við-
halds um 5,7%.
Á fundi fimmmannanefndar í gær
var ákveðið að hækka slátur- og
heildsölukostnað um 4,5%, en honum
til viðbótar kemur 12 kr. verðmiðlun-
argjald á hvert kíló, sem er óbreytt
frá því fyrra. Samtals nemur þessi
kostnaður 152,95 kr. á kíló, sem er
um 4,2% hækkun frá því í síðustu
sláturtíð. Samkvæmt ákvörðun
fimmmannanefndar er hámarkssmá-
söluverð með virðisaukaskatti á kjöti
í 2. verðflokki í ósundurteknum heil-
um skrokkum nú 462 krónur á kíló,
en það var áður 425 krónur, og nem-
ur hækkunin 8,7%. Smásöluverð á
kjöti í úrvalsflokki hækkar úr 439
krónum kílóið í 477 krónur. í söiu-
verð kjötsins hefur verið reiknað með
endurgreiðslu virðisaukaskatts,' sem
nemur 8,45% af niðurgreiddu heild-
söluverði. Smásöluálagning á kjöti í
2. verðflokki hækkar úr 31 krónu í
33,70 krónur, eða um 8,7%, og virðis-
aukaskattur hækkar úr 83,54 krón-
um í 90,82 krónur á kíló.