Morgunblaðið - 17.09.1991, Page 4

Morgunblaðið - 17.09.1991, Page 4
4 «ct aMawiM'Tiaí' tt íttit)anTn.(Tt5t<J GTPtA tflvntnflnM MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1991 - Landsvirkjun: Ný tillaga að línuleið frá Fljótsdalsvirkjun Fyrri tillaga auglýst um mánaðamót Landsvirkjun hefur að undanförnu látið kanna nýja tillögu að línu- leið Fljótsdalslinu. Línuleiðin fylgir fyrri tillögu Landsvirkjunar að Þríhyrningsvatni, þar er stefnan tekin norðvestur og farið yfir Jök- ulsá á Fjöllum norðan við Ferjufell, leiðin liggur siðan suðvestur í Suðurárhraun þar sem hún samlagast að nýju fyrri tillögu. Agnar Olsen, forstöðumaður verkfræðideildar, segir að búið sé að kanna leiðina lauslega og skrifa greinargerð sem rædd verði á fundi Lands- virkjunar, Náttúruverndarráðs og Skipulags ríkisins í lok mánaðar- ins. Um mánaðamótin verður komið upp auglýsingum á fyrri tillögu Landsvirkjunar á línuleið í 7 sveitarfélögum sem linan færi um. Fjórar tillögur að linuleið. Línustæði A með byggðlínu og línustæði B. Línustæði C, sem auglýst verður um næstu mánaðarmót, og njýja tiilaga Landsvirkjunar, línustæði E. Agnar sagði að með nýju tillög- unni, sem nefnd hefur verið línu- stæði E, væri verið að koma til móts við ýmis sjónarmið. „Við kom- um til dæmis til móts við þá sem eru mótfallnir því að spilla Jökul- dalsheiði með nýrri línuleið," sagði Agnar. Fram kom að Landsvirkjun- armönnum litist illa á að fylgja byggðalínu (línustæði A) en önnur línuleið (línustæði B) færi yfir Veggjastykki þar sem væru mikið um gjár auk þess sem línan væri í mikilli hæð og þveraði Suðurá. Greinargerð Landsvirkjunar um nýju tillöguna að línuleið verður rædd á fundi Landsvirkjunar- manna, Náttúruvemdarráðs og Skipulags ríkisins í lok mánaðar- ins. Tillagan gerir ráð fyrir 10-12 km lengri línuleið en fyrri tillaga Landsvirkjunar. Sigurður Thoroddsen, aðstoðar- skipulagsstjóri, sagði að undirbún- ingur við auglýsingu tillögu Lands- virkjunar (línustæði C) væri hafmn og auglýsingamar sennilega komn- ar upp í 7 sveitarfélögum um mán- aðamót. Tillögumar hanga upp í sveitarfélögunum í 6 vikur en eftir þann tíma hafa menn 2 vikur til viðbótar til þess að skila athuga- semdum til hreppsnefnda. Hrepps- VEÐUR ÍDAGkl. 12.00 / HeimikJ: Veöurstofa íslanós (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær) VEÐURHORFURIDAG, 17. SEPTEMBER YFIRLIT: Um 400 km suövestur af Reykjanesi er 992 mb lægð sem þokast norður en fyrir norðaustan land er 1.013 mb hæð. Skammt suðvestur af Færeyjum er 988 mb lægð á leið norðaustur. SPÁ: Suðaustanátt um allt land, sumstaðar allhvöss við suður- ströndina, en hægara annars staðar. Að mestu þurrt norðan- og norðvestanlands, en annars staðar rigning. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Norðvestan- og norðanátt, víða all- hvöss vestantil á landinu, skúrir vestanlands og á annesjum norðan- lands, en að mestu þurrt annars staðar. Hiti 8 til 9 stig. HORFUR Á FIMMTUDAG: Sunnan- og suðaustan kaldi um suðvest- an- og vestanvert landíð, en hægviðri í öðrum landshlutum. Lítílsh áttar súld eða rigning á annesjum suðvestanlands, en að mestu úrkomulaust annars staðar. Hiti 6 til 7 stig. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. **■ TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað A Skýjað É|f|k Alskýjað / Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■J 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus y Skúrir * V H — Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —|- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyrl s skýjað Reykjavík 10 skýjað Bergen 12 skýjað Heisinkl 17 léttskýjað Kaupmannahöfn 18 skýjað Narssarssuaq 3 súld Nuuk 3 súld Osló 16 hálfskýjað Stokkhólmur 17 léttskýjað Þórshöfn 10 rigrímg Algarve 31 léttskýjað Amsterdam 17 þokumóða Barcelona 27 þokumóða Berlin 22 skúr á s. klst. Chicago 22 rigning Feneyjar 27 heiðskirt Frankfurt 23 skýjað Glasgow 19 skýjað Hamborg 17 skýjað London 19 alskýjað Los Angeles 17 þokumóða Lúxemborg 23 skýjað Madríd 29 hálfskýjað Malaga 28 léttskýjað Mallorca 28 léttskýjað Montreal 19 þoka NewYork 23 þokumóða Orlando 25 mistur París 23 skýjað Madeira 24 skýjað Róm 26 léttskýjað Vín 20 rigning á s. klst. Washington 24 þokumóða Winnipeg 10 alskýjað nefndir fjalla um athugasemdimar, þá fara þær fyrir Skipulag ríkisins og umhverfismálaráðherra sem staðfestir línuleiðina endanlega. Tillaga Landsvirkjunar verður einnig auglýst í Lögbirtingarblað- inu og fleiri dagblöðum. Síðumúli 2: Tjón vegiia vatnsleka * Töluvert vatnstjón varð í Síðumúla 2 þegar hosa af kaldavatnskrana 1 í einu fyrirtækjanna í húsinu losnaði og vatn flæddi um allt húsið. Hosa losnaði af kaldavatnskrana í setningarfyrirtæki á annarri hæð og vatn lak yfir í sex önnur fyrir- tæki á báðum hæðum hússins. Lek- inn uppgötvaðist þegar árvökull gæsluvörður frá Securitas hf, sem átti leið fram hjá um kl. 5.30 á sunnudagsmorgunin, sá að eitthvað var athugavert og lét vita. Hallur Leopoldsson, fram- kvæmdastjóri auglýsingaskrifstof- unnar Argus á efri hæð hússins, sagði vatnið hefði verið farið að renna niður stiga af efri hæðinni, út um útidymar og niður beygjuna að Ármúla þegar komið hefði verið að húsinu um kl. 6 . Þá hefðu | slökkviliðsmenn verið búnir að skrúfa fyrir inntakið í húsinu en síðar hefði verið komist að upptök- um lekans í litlu framköllunarher- bergi í setningarfyrirtæki á hæð- inni. Töluverðan tíma tók að dæla vatni úr húsinu en Hallur sagði að unnið hefði verið í fyrirtækinu á mánudag. Hann sagði að ekki væri búið að meta tjónið enda væri ekki vitað hvort skipta þyrfti um teppi eða hversu tjón á innveggjum væri mikið. Þá benti Hallur á að ekki væri vitað um hversu mikið tjón á alls kyns smáhlutum væri að ræða. Víetnömsku flóttamennirnir: Sumir hafa náð góð- | um tökum á íslensku - segir Hólmfríður Gísladóttir FJÓRIR víetnamskír flóttamenn komu hingað til lands 5. septem- ber. Alls hafa því 30 Víetnamar komið til landsins í ár, eða sami fjöldi og í fyrra, en stjórnvöld ákváðu árið 1989 að á tímabilinu 1990 til 1992 yrði tekið á móti 60 víetnömskum flóttamönnum. Hólmfríður Gísladóttir, sem annast málefni flóttamannanna fyrir hönd Rauða kross Islands, segir að fólkinu, sem hingað kom í fyrra, hafi almennt vegnað vel og nokkrir úr hópnum frá því í sumar hafi þegar náð ótrúlega góðum tökum á íslenskunni. Karlmennirn- úyhafi allir fengið vinnu en konurnar eigi erfiðara með að komast ut á vinnumarkaðinn, þar sem erfiðlega gangi að tryggja börnun- um dagvistarrými. Samkvæmt ákvörðun stjórn- valda komu 30 víetnamskir flótta- menn hingað til lands í fyrra. í vor og sumar komu 26 til viðbótar og þann 5. september komu þeir 4 síðustu úr hópnum. Hólmfríður Gísladóttir segir að almennt hafi fólkinu, sem hingað kom í fyrra, vegnað vel, enda sé þetta duglegt fólk og sparsamt. Hún segir að allir karlmennimir sem hingað hafa komið í ár hafi fengið vinnu og þegar séu tvær kvennanna líka komnar út á vinnumarkaðinn. Ekki hafi verið vandi að útvega fólkinu vinnu heldur hafi atvinnurekendur haft samband við Rauða krossinn og óskað eftir starfsmönnum. Þeir sem hafi ráðið Víetnamana hafi verið það ánægðir, að þeir hafi verið tilbúnir til að taka við fleirum. „Okkur finnst mikilvægt að kon- uraar vinni úti,“ segir Hólmfríður. „Það er nauðsynlegt að þær fái þannig tækifæri til að kynnast þjóðfélaginu með sama hætti og karlmennimir, en loki sig ekki af í sínum gamla hugarheimi meðan karlmennirnir laga sig að íslensku samfélagi. Hins vegar er við erfið- leika að stríða hvað barnagæsl- una varðar. Við höfum ekki enn fengið dagvistarrými fyrir börn- in þó að starfsfólk Dagvistar bama hafi sýnt okkur mikinn velvilja og þau séu þar á for- gangslista.“ Hólmfríður segir að í hópi Víet- namanna séu 12 böm. Þar af séu 6 um það bil eins og hálfs árs gömul, 3 um það bil fjögurra ára og 3 séu komin á grunnskólaald- ur. Það sé afar mikilvægt að þau komist inn á dagvistarstofnanir til að þau eigi auðveldara með að til- einka sér íslenskuna. Foreldrarnir fái tilsögn í málinu á námskeiðum, sem skipulögð séu af Náms- flokkum Reykjavíkur og njóti meðal annars aðstoðar frá Ví- etnömunum sem komu hingað 1979 en það verði einnig að tryggja að börnin nái að tileinka sér tungumálið áður en þau hefji skólagöngu. Að sögn Hólmfríðar gengur fólkinu misvel að læra íslensku en nokkrir úr hópnum sem hing- að kom í sumar hafi náð ótrú- lega góðum árangri. Þar sé einkum um að ræða fólk, sem hafí áður lært einhver önnur Evr- ópumál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.