Morgunblaðið - 17.09.1991, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 17.09.1991, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐÍÐ &RIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1991 11 Dalasýsla: Hundrað ára vígsluafmælis- Staðarfellskirkju minnst Hvoli, Saurbæ. 100 ÁRA víglsuafmælis Staðarfellskirkju í Dölum var minnst sunnu- daginn 1. september sl. Hátíðarguðsþjónusta fór fram í kirkjunni kl. 2. e.h. og var hún fjölsótt. Þar prédikaði biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, og sóknarpresturinn, sr. Ingiberg J. Hannesson, þjónaði fyrir altari. Fimm aðrir prestar voru við- staddir kirkjuathöfnina, en að henni lokinni var samkoma í fé- lagsheimilinu á Staðarfelli þar sem á borðum voru rausnarlegar veit- ingar í boði sóknamefndar. Þar flutti sóknarpresturinn ágrip af sögu kirkjunnar í hundrað ár og ræður fluttu auk hans sr. Þórir Stephensen, er áður þjónaði Stað- arfellskirkju um skeið svo og sr. Rögnvaldur Finnbogason auk bisk- upsins herra Ólafs Skúlasonar. Var dagurinn í heild mjög ánægjulegur og komu margir að til að gleðjast með sóknarfólki í tilefni dagsins. Veðrið var tiltölu- lega hliðhollt þó vætusamt væri þessa daga, þá skein sólin um miðjan daginn og varpaði geislum sínum yfir staðinn eins og til að árétta birtu og fegurð hins skæra ljóss í bland við döggina, sem líf- snæringu gefur. Og við vitum að hvort tveggja er jafn mikilvægt til vaxtar og þroska í mannlífinu. Staðarfellskirkja var vígð 11. október 1891, teiknuð og byggð af Guttormi Jónssyni frá Hjarðar- holti fyrir forgöngu Hallgríms Jónssonar, er þá var bóndi á Stað- arfelli. Hún hefur verið sóknar- kirkja æ síðan og þjónar sóknar- fólki, svo og þeim, er á Staðarfelli búa, en þar var í áratugi rekinn húsmæðraskóli og nú starfar þar meðferðarheimili á vegum SÁÁ, og lætur að líkum, að kirkjan er sótt af mörgum, og hafa sumir sagt að hún sé e.t.v. með mest notuðu kirkjum landsins, enda eiga þangað margir erindi, sem á staðn- um dvelja og eru að reyna að ná tökum á lífi sínu og byggja það upp. Þá er horft til þess máttar, sem einn getur bjargað þegar mik- ið liggur við og er grundvöllur þess, að menn öðlist rétta trú á lífíð og tilveruna og sæki þangað Staðarfellskirkja. =VAPLEX= TREFJAGIPSPLÖTUR ÁVEGGI, LOFTOGGÓLF KANTSKURÐUR SEM EGG ÖRUGGTNAGLHALD A BRUNAFLOKKUR VIÐURKENNT AFELDVARNA- EFTIRLITI RÍKISINS HOLLENSK GÆÐAVARA Þ.ÞORGRÍMSSON&CO ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640 þann kraft sem dugar til eflingar sálar og anda í uppbyggingarstarf- inu. Staðarfellskirkja hefur verið vel við haldið, og undanfarið hafa far- ið fram nokkrar lagfæringar á kirkjunni og hún öll máluð að utan. Þá var settur ljóskross á gafl for- kirkjunnar og er hann gjöf frá systkinunum frá Breiðbólsstað þeim Guðbjörgu, Friðjóni, Sigur- björgu, Sturlu og Halldóri, til minningar um foreldra þeirra. Þá var vígður í hátíðarguðsþjón- ustunni nýr hökull og stóla, er var gjöf til kirkjunnar frá héraðssjóði prófastsdæmisins. Þessi minning- ardagur kirkjunnar var mönnum greinilega hvatning til að hlúa að kirkju sinni og minnast með þakk- læti og gleði þeirrar þjónustu sem þeir hafa þar notið í gegnum tíðina. - IJH. Að lokinni hátíðarguðsþjónustu í Staðarfellskirkju. í fremri röð frá vinstri: Sr. Þórir Stephensen, Helga Steinarsdóttir Hvoli, sr. Ingi- berg J. Hannesson Hvoli, biskupsfrú Ebba Sigurðardóttir og biskup- inn, herra Olafur Skúlason, Kristín Thorlacius og sr. Rögnvaldur Finnbogason Staðastað. Aftari röð: Sr. Hreinn Hákonarson Laugar- gerði, Anna Nilsdóttir og sr. Friðrik J. Hjartar Ólafsvík og sr. Jens H. Nielsen Búðardal. Einstakt tilboð Prenthraði: Gæðaletur: Leturgerðir: Leturstærðir: Pappírsfærsla: Pappírsgangur: Litir: 225 stafir/sek 12CPI 45 stafir/sek 12CPI 5 grunnleturgerðir 10, 12, 17, 20 s/t Vals og pinnar Að aftan og neðan 7 litir (litaborði fylgir) í upphafi skólaárs eru margir nemendur að leita sér að góðum tölvum og prenturum. Úrvalið er mikið og erfitt um val. En nú er tækifærið til að eignast hraðvirkan, hljóðlátan, vandvirkan og fjölhæfan prentara. Því í september bjóðum við einn vinsælasta prentarann frá STAR á frábæru verði, en það er LC-200 ritvinnsluprentari. Við viljum sérstaklega benda á þann möguleika að hægt er að prenta liti og einnig að vera með 2 gerðir pappírs í prentaranum í einu (Paper Park). Kr. 26.700,- (Stgr. m/VSK, gildir aðeins ef pantað er í september). Hafið samband við okkur eða einhvern söluaðila okkar: Einar J. Skúlason.........Reykjavík Tölvutæki - Bókval........Akureyri Prentverk Austurlands.....Egilsstöðum Tölvutækni..................Reykjavík ÖRTÖLVUTÆKNI Tölvukauphf. Skeifunni 17 sími 687220 fax 687260

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.