Morgunblaðið - 17.09.1991, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1991
Óbreytt verð í þrjú ár!
Hækkar 15. október.
Myndatökur frá kr. 7.500,00 innifalið 6 myndir 9x12
cm og 2 stækkanir 20 x 25 cm.
Ljósmyndastofumar:
Bama og fjölskylduljósmyndir Armúla 38 sími
6-77-6-44
Ljósmyndastofan Mynd Hafnarfirði sími 5-42-07
Ljósmyndatofa Kópavogs sími 4-30-20
ÓSLITIÐ EFNI
ALLAN SÓLARHRINGINN
Fréttir, íþróttir, framhaldsþættir,
fræðslumyndir, getrauna- og
leikjaþættir, barnaefni, bíómyndir,
heilsurækt, matreiðsla,
náttúrulífsmyndir, „sápuóperur",
tónlistarmyndbönd ofl. ofl.
HEILDARLAUSN
á móttöku gervihnattasendinga
Heimilistæki hf. hefur hafið sölu á nýju kerfi sem heitir 7V 2000
til móttöku á gervihnaftasendingum, fyrir einstaklinga, fjölbýli,
hótel og stofnanir.
IrtVwwww traustur búnaöur fyrir íslenskar aöstæöur.
#1iVWWWW leitaðu upplýsinga hjá okkur um gervihnatta-
sjónvarp - við vitum allt um málið.
—■ Heimilistæki hf —
|. | Tæknideild, Sætúni 8 SÍMI6915 00 ezmmmmmm
WHHKKM (/foe*m,$ueáyia/t£e^ósaMHýyuM, HHBHi
„Þetta kemur okk-
ur ekkert við“
eftir Lárus H. Blöndal
Inngangur
I mars sl. og nú í sumar varð
vart við jarðskjálfta í Hveragerði
og nágrenni. Við íslendingar og þá
sérstaklega Hvergerðingar og ná-
grannar vorum óþyrmilega minntir
á þessa ógn náttúruaflanna. í
tímans rás höfum við aðlagað okkur
að beiska hlutanum í mikilli fjöl-
breytni móður náttúru s.s. jarð-
skjálftum, eldgosum, fárviðrum og
snjóflóðum. Þrátt fyrir það blundar
með mörgum okkar sá möguleiki
að náttúruhamfarir séu á næsta
leiti, eins og kom fram í svari eins
viðmælanda fréttamanns i Hvera-
gerði: „Eg hélt að hinn stóri væri
kominn." Fólk, sem á einn eða ann-
an hátt er minnt á mögulegar hætt-
ur, er gjarnan meira á varðbergi
gagnvart þeim. Það gerir þá e.t.v.
einhverjar fyrirbyggjandi ráðstaf-
anir, hugleiðir viðbrögð sín og ann-
arra við hugsanlegum válegum at-
burðum og tekur meira mark á við-
vörunum um hættur. Rannsóknir
sýna, að vissir félagslegir og sál-
fræðilegir þættir geta hindrað fólk
í að bregðast við válegum atburðum
á rökrænan og skynsaman hátt.
Hér á eftir verður fjallað um þrjá
slíka þætti, þ.e. félagslegar aðstæð-
ur, viðb'rögð við miklu álagi og
ákveðinn þankagang. Skoðum fyrst
þann síðastnefnda nánar.
Hvernig hugsum við?
Fólk virðist oft hagnýta sér eins
konar „vitrænan sparnað", þ.e. hafi
það t.d. myndað sér ákveðna skoðun
á einhveiju er tilhneiging til að
halda í hana. Og ekki bara það.
Sterkrar tilhneigingar gætir til að
vega og meta allar nýjar viðeigandi
upplýsingar á þann hátt að þær
falli að tiltekinni skoðun. Þetta er
gjaman skoðað í ljósi þess hversu
ógnvekjandi það getur verið að lifa
við óvissu og óöryggi. Óljósar upp-
lýsingar varðandi mat á áhættu eru
t.d. þekktur streituvaldur. Til að
komast hjá óvissunni grípur fólk
iðulega til lausna, sem það þekkir
og er öruggt með, þrátt fyrir að
þær geti verið óskynsamlegar og
haft afdrifaríkar afleiðingar. Þá
hafa aðstæður sem framkalla mikla
streitu augljós áhrif á hugsanagetu
fólks. Hæfnin til þess að meðtaka,
vinna úr og meta upplýsingar skerð-
ist. Hugsunin verður gjarnan
ósveigjanlegri og það dregur úr
getu einstaklingsins til að leysa
vandamál og að átta sig á því hvað
máli skiptir. Annað sem getur haft
áhrif á áhættumat er að treysta um
of eigin mati á yfírvofandi hættu.
Lárus H. Blöndal
„ Annað sem getur haft
áhrif á áhættumat er
að treysta um of eigin
mati á yfirvofandi
hættu. Slíkt virðist vera
býsna algengt, og eru
sérfræðingar þar ekki
undanskildir. Oft ger-
um við okkur einfald-
lega ekki grein fyrir
því, hversu lítið við vit-
um.“
Slíkt virðist vera býsna algengt, og
eru sérfræðingar þar ekki undan-
skildir. Oft gerum við okkur einfald-
lega ekki grein fyrir því, hversu lít-
ið við vitum. Erfitt getur því orðið
að átta sig á því hve miklar upplýs-
ingar þarf til að geta metið sem
best aðsteðjandi vanda. Það er jú
forsenda markvissra viðbragða.
Viðbrögð við miklu álagi
Viðbrögð okkar við mjög miklu
álagi, s.s. náttúruhamförum, má til
einföldunar skipta í of lítil eða of
mikil viðbrögð. Umfjöllun fjölmiðla
hefur því miður m.a. skapað þá
mynd að ofsahræðsla sé mjög al-
geng viðbrögð fólks við vá. í einni
rannsókn kom t.d. í Ijós, að átta
af hveijum tíu héldu að ofsa-
hræðsla væri aðalvandamálið við
náttúruhamfarir og stórslys. Slíkt
er ekki tilfellið. Fólk heldur yfirleitt
ró sinni og bregst skynsamlega við.
Ofsahræðsla brýst út helst við að-
stæður, þar sem fólk upplifír veru-
lega lífshættu og þarf að beijast
um mögulegar útgönguleiðir, sem
eru um það bil að lokast. Þá getur
mikil óvissa um yfirvofandi hættu
og hvernig hún kunni að þróast ýtt
undir of mikið viðbrögð. Sama gild-
ir ef upplýsingar eru óljósar og
mótsagnakenndar t.d. um umfang
hamfaranna eða hvernig bregðast
skuli við hættunni.
Of lítil viðbrögð geta verið fólgin
í afneitun á yfirvofandi hættu eða
hættu sem í raun er til staðar.
Hver þekkir ekki viðbrögð eins og
„þetta er ekkert alvarlegt", „það
gerist ekkert hérna“ eða „þetta
kemur okkur ekkert við?“ Vegna
þessa er m.a. ekki tekið-mark á
viðvörunum sem gefnar eru og beð-
ið er alveg þangað til ljóst er að
hætta er á ferðum. Sumir halda
kyrru fyrir á hættusvæðunum, þrátt
fyrir að hættan sé augljós. Stérkrar
tilhneigingar gætir sem sagt til að
afneita eða vanmeta mögulega ógn
af náttúruhamförum eða slysum.
Gildir það bæði fyrir einstaídinga
og stærri hópa eða samfélagsheild-
ir. Slík tilhneiging getur hindrað
nægilegan undirbúning og viðbún-
að.
Félagslegar aöstæður
Þá eru viðbrögð við válegum at-
burðum m.a. háðar félagslegum
aðgerðum, t.a.m. hvernig nágrann-
ar, vinir og fjölskyldan bregðast
við. Ákvörðun um brottflutning af
slysstað er t.d. iðulega tekin sam-
eiginlega af slíkum hópum. Aðvör-
un um vá fyrir dyrum kallar á veru-
leg viðbrögð ef hún er styrkt félags-
lega. Upplýsingar frá fjölmiðlum
um náttúruhamfarir fá oft merk-
ingu og öðlast rhikilvægi í samtölum
og samskiptum fólks. Fjölskyldan
hefur mikla þörf fyrir að sameinast
við válega atburði. Fólk bíður oft
með aðgerðir s.s. brottflutning af
hættusvæði, þar til talið er að
öryggi allra fjölskyldumeðlimanna
sé staðfest. Það fer jafnvel aftur inn
á hættusvæðið, ef óvissa ríkir um
einn eða fleiri fjölskyldumeðlimi.
Mikilvægi undirbúnings
Sterk tengsl eru á milli góðrar
þjálfunar í því hvernig bregðast
skal við vá og skynsamlegra við-
bragða í válegum aðstæðum. Lítil
þekking, reynsla og undirbúningur
eykur möguleikana á því að við
grípum t.d. til hegðunar sem við
þekkjum — án tillits til þess hvort
hún sé skynsamleg eða ekki. Þá er
lítt undirbúnu fólki hættara við að
láta undan stjóm annarra þegar
válegir atburðir eiga sér stað. Við
slíkar aðstæður getur nánast hver
sem er orðið stjórnandi. Sé hann
hæfur er það til góðs. Afleiðingarn-
ar geta aftur á móti orðið hörmuleg-
ar, ef stjórnandinn er vanhæfur.
Okkar eigin undirbúningur
Lítum okkur nær. Hvað með
okkar eigin undirbúning gagnvart
náttúruhamförum, slysum eða
óhöppum utan heimilis eða í heima-
húsum? Vitum við t.d. að á síðum
966 til 976 í símaskránni eru grein-
argóðar leiðbeiningar Almanna-
varna ríkisins um viðbrögð við vá?
Höfum við gert einhveijar ráðstaf-
anir á eða við heimili okkar, t.d.
varðandi bruna, rafmagn, geymslu
lylja eða yfirbreiðslu yfír heita potta
eða ker? Að sjálfsögðu getum við
ekki stöðugt verið að hugsa um
allar mögulegar hættur í umhverfí
okkar. Við gemm þá sennilega ekk-
ert annað. Staðreyndin er hins veg-
ar sú að tiltölulega lítinn tíma þarf
til að gera tilhlýðilegar ráðstafanir
um mögulegar hættur. Það getur
skipt sköpum — er það ekki næg
ástæða?
Skrifstofutækni
Fyrir aðeins kr. 5.000" á mánuði.
Námið kemur að góðum notum í atvinnuleit. Einungis
eru kenndar námsgreinar sem nýtast þegar út á
vinnumarkaðinn er komið. Til dœmis:
Bókfærsla
Tölvubókhald
Ritvinnsla
Tollskýrslugerð
Verslunarreikningur
Verðiö miðast við skuldabréf lil tvcggja ára. ^
Tölvuskóli Islands
Sími: 67 14 66, opið til kl. 22
►
>
i
|
í
\
\
j
Höfundur er sálfræðingur og
starfnr sj&lfstætt.