Morgunblaðið - 17.09.1991, Side 27

Morgunblaðið - 17.09.1991, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1991 27 Landsbanki vimiur að breyt- ingu á mati á veðhæfni eigna ísafirði. BANKASTJÓRN og bankaráð Landsbankans funduðu nýlega á ísafirði og skoðuðu jafnframt nokkur stærstu viðskiptafyrirtæki hans á norð- anvérðum Vestfjörðum. Að sögn formanns bankaráðs eru fiskvinnslu- stöðvar hér mjög vel búnar og hér er rekinn inikill og blómlegur fisk- iðnaður og því sé ekki óeðlilegt þótt bankinn láni verulegar upphæð- ir hingað umfram innlán, en af 4,7 milljarða útlánum bankans á Vest- fjörðum koma 1,7 milljarðar af innlánsreikningum Vestfirðinga. Þessar upplýsingar komu fram á lánshæfnieinstaklingaogfyrirtækja blaðamannafundi sem bankastjórn hélt, ásarrit formanni bankaráðs, Eyjólfi K. Siguijónssyni. Þar kom einnig fram að bankinn er nú að breyta mati á veðhæfni eigna úr ákveðnu hlutfalli af bruna- bótamatsverði, sem er náiægt bygg- ingarkostnaðarverði, í hlutfall af markaðsverði eftir sjálfstæðu mati bankans. Þessi breyting rýrir mjög þar sem fasteignaverð er lágt eins og víðast á Vestfjörðum, en er nauð- synlegt að sögn bankastjóranna til að tryggja hagsmuni bankans. Landsbankinn er nú með 5 af- greiðslustaði á Vestfjörðum, á Isafirði, Bíldudal, Tálknafirði, Pat- reksfirði og í Króksfjarðarnesi. Króksíjarðarnes er þó ekki tekið inn í samantekt bankans yfir starfsem- ina á Vestfjörðum. Útibúið á ísafirði er lang stærsti afgreiðslustaðurinn, en á síðasta ári unnu þar 23 menn og voru lánaðir út 3,8 milljarðar, en innlán numu 1,3. Á seinasta ári var einungis eitt útibú á Vestfjörðum með hærri innlán en útlán, en það var útibú Samvinnubankans á Pat- .reksfirði þar sem innlán námu 200 milljónum, en útlán einungis 88. Samvinnuútibúið á Patreksfirði var sameinað Landsbankaútibúinu á þessu ári. Markaðshlutdeild Landsbankans í útlánum á Vestfjörðum er mjög há eða 63,6% allra útlána í bankakerf- inu. Islandsbanki og 5 sparisjóðir eru því með 36,4%, Landsbankinn Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Bankastjórn Landsbankans ásamt formanni bankaráðs og útibússljór- anum á ísafirði. Frá vinstri: Birgir Jónsson útibússtjóri, Sverrir Hermannsson bankastjóri, Eyjólfur K. Sigurjónsson formaður bank- aráðs, Björgvin Vilmundarson bankastjóri og Halldór Guðbjarnason bankastjóri. er hins vegar með lægra hiutfall innlána eða 47,9%. Samtals voru útlán banka og sparisjóða 7,5 millj- arðar á Vestfjörðum á síðasta ári en heildarinnlán 3,6 milljarðar. Það kom fram á fundinum að hlutfall innlána af útlánum hefur lækkað Krýsuvíkurskólinn: Kaþólski biskupinn blessar kapelluna KAÞÓLSKI biskupinn á íslandi, séra Alfred Jolson, blessaði á fimmtudag kapelluna í Krýsuvíkurskóla við hátíðlega athöfn, að viðstöddum sjúklingum, Ieiðbeinendum og forráðamönnum Krýsu- víkursamtakanna. Athöfnin fór fram að ósk banda- rísks leiðbeinenda, Tyron J. Me- Ginnis, sem starfað hefur í Krýsu- vík undanfarna tvo mánuði, en hann er kaþólikki. Auk þess er annar leiðbeinandi og einn sjúkl- ingur kaþólskir. Eftir að starfsemi Krýsuvíkursamtakanna komst af stað í skólahúsinu í Krýsuvík í sumar hafa verið þar í meðferð 13 sjúklingar, sem ánetjaðir hafa verið eiturlyfjum, en nú em átta í meðferð. Stór þáttur í meðferð- inni er trúin, og því hefur kapell- an, sem vígð var fyrir 4 áram, verið mikið notuð til bæna- og guðsþjónustuhalds. Því þótti til- hlýðilegt að fá einnig blessun ka- þólska biskupsins vegna þeirra aðstæðna sem hafa skapast. Kr. Ben. Frá athöfninni í kapellunni á fimmtudag. Biskupinn er annar frá hægri á myndinni, og hægra megin við hann er aðstoðarprestur hans, sr. Patrick Breen. síðasta áratuginn. En Eyjólfur K. Siguijónsson formaður bankaráðs sagði að með tilliti til hins háa hlut- falls sjávarútvegs og fiskiðnaðar í atvinnustarfsemi á Vestfjörðum vildi bankinn stuðla að sterkari stöðu þeirra greina hér og því væri þetta hlutfall ekki óeðlilegt, enda væri Landsbankinn lang stærsti lánveit- andi í_ sjavarútvegsgreinum á land- inu. Á ísafirði er skipting útlána bankans þannig að 53% fara til sjáv- arútvegs 14% til einstaklinga, 10% til iðnaðar 8% í landbúnað, 7% í verslun og þjónustu og 8% í annað. Bankinn bauð starfsmönnum og viðskiptavinum bankans til hófs í stjórnsýsluhúsinu, þar afhenti for- maður bankaráðs Ísaíjarðarkaup- stað að gjöf málverk eftir Kristján H. Magnússon og Menntaskólanum á ísafirði manntöfl. Ólafur Helgi Kjartansson, forseti bæjarstjórnar, tók við málverkinu og gat helstu æviágripa listamannsins sem var fæddur á ísafirði og gat sér á stuttri ævi orðstír bæði austan hafs og vest- an. Björn Teitsson skólameistari, tók við manntöflunum úr hendi Eyjólfs og má segja að þau komi að mjög góðum notum ef dregið verður úr kennslu við skólann í vetur vegna síðbúinna sparnaðaráforma mennta- málaráðherra. - Úlfar TEFAL Umboösmenn um land allt. B R Æ Ð U R N I R ORMSSON HF Lágmúla 8. Sími 38820 Afbragbstæki fyrir öll eldhús! Við kynnum ykkur Tefal, framleiðanda framúrskarandi eldhústœkja. Hér eru viðurkennd tæki á ferðinni, fallega hönnuð, bæði fjölhæf og auðveld í notkun. Tefal er í dag með söluhæstu framleiðendum á sviði smærri heimilistækja og leiðandi í hönnun þeirra ogþróun. Lítið inn hjá okkur og kynnið ykkur linuna frá Tefal. Með þessum tækjum verða eldhússtörfin tilhlökkunarefni!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.