Morgunblaðið - 17.09.1991, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1991
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Haustið heldur innreið sína
Þegar sumri hallar og kólnar í veðri eru hlífðarfötin og húfurnar teknar fram, eins og sjá má á þessum
börnum sem ljósmyndari Morgunblaðsins myndaði á einum af leikvöllum bæjarins.
Svipuð hótelnýt-
ing og síðasta ár
FJÖLDI gistinátta hefur verið svipaður á hótelum á Akureyri í
sumar og í fyrrasumar. Júlímánuður var nokkru lakari en áður en
í ágúst var nýting betri. Bókanir skiluðu sér misvel. Lausaumferð
ferðamanna og veitingasala í tengslum við hana var á flestum
hótelum minni en verið hefur. Hátt verð á mat og veitingum er
talið standa ferðamálum á Islandi fyrir þrifum.
Gunnar Karlsson, hótelstjóri á
Hótel KEA sagðist ekki geta kvart-
að undan sumrinu. Gistinýting á
hótelinu á sumarmánuðunum
þremur, júní, júlí og ágúst, hefði
verið ágæt. Júlí hefði verið nokkru
slakari en í fyrra, en þá hefði að
vísu verið metár. Ágúst hefði hins
vegar komið betur út en áður. Á
hótelinu væru útseld gistiherbergi
á Hótel KEA frá áramótum til
ágústloka 7,8% fleiri en á síðasta
ári.
Gunnar sagði að hótelið treysti
sífellt í minna mæli á lausagist-
ingu, reksturinn byggðist mest á
föstum bókunum og þær hefðu
skilað sér mjög vel. Hins vegar
hefði þeSs orðið áberandi vart að
umferð hefði verið mun minni en
í fyrra þegar mið væri tekið af
veitingasölu. í sumar hefði þessi
umferð verið minni en áður, ekki
síst vegna þess hve veður hefði
verið gott víða um land og íslend-
ingar af þeim sökum ferðast minna
en ella. Veður réði ferðamanna-
straumi Islendinga, en meginíjöidi
ferðamanna á hótelum væru út-
lendingar í skipulögðum hópferð-
uðu við væntanlegan gestafjölda,
en þegar til kastanna kæmi yrðu
alltaf einhverjar leiðréttingar og
breytingar.
Rafn sagðist hafa orðið þess
mjög var hjá gestum að þeim
blöskraði verð á mat og veitingum
á íslandi og að hans dómi stæði
þetta verðlag ferðaþjónustu á ís-
landi stórlega fyrir þrifum.
Snæbjörn Vilhjálmsson á Hótel
Stefaníu sagði að þar hefði orðið
nokkur aukning frá í fyrra. Að
vísu hefðu bókanir hópa frá ferða-
skrifstofum brugðist óvenjumikið
en hins vegar hefði lausaumferð
verið miklu meiri en búast hefði
mátt við.
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar:
Rekstri rækjuverksmiðju
um.
Guðrún Gunnarsdóttir, hótel-
stjóri á Hótel Norðurlandi, sagði
sumarið í heild ekki lélegra en í
fyrra. Búist hefði verið við tölu-
verðri aukningu, en hún hefði ekki
skilað sér. Bókanir hópa hefðu í
vor verið gífurlega miklar en þegar
leið að ferðamannatímanum hefðu
afbókanir streymt að. Útlendingar
hefðu í stórum stíl hætt við að
koma til landsins. Guðrún sagðist
hafa rætt við ferðaskrifstofur er-
lendis og þar fengið þær upplýsing-
ar að fólk hefði verið hrætt við að
hreyfa sig og ferðast, jafnvel inn-
anlands. Það virtist eiga jafnt við
sum Breta, Þjóðveija, Frakka og
ítali.
Guðrún sagði að gestir á hótel-
inu væru á sumrin að mestu út-
lendingar í hópum en á vetuma
væri mest um Islendinga að ræða.
Rafn Kjartansson, hótelstjóri á
Hótel Eddu, sagði að þar hefði
gistinýting verið mjög svipuð og í
fyrra, en nýting miðað við verð-
bólgu væri lakari en á síðasta ári.
Slakastir hefðu verið nokkrir góð-
viðrisdagar í júlí. Ágúst hefði hins
vegar reynst dijúgur. Hann sagði
að rúmlega helmingur gesta væru
útlendingar og ekki hefði orðið
vart afbókana umfram það sem
venjulegt mætti telja. Ferðaskrif-
^stofur létu bóka fyrirfram og mið-
hætt og hún tekin niður
REKSTRI rækjuverksmiðju í Ólafsfirði hefur verið hætt og hún tek-
in niður. Fáist viðunandi tilboð verður hún seld, en að öðru leyti
hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvað við hana verður gert.
Rækjuvinnsla hefur ekki verið í gangi í Ólafsfirði frá því í nóvember
á siðasta ári. Aukin áhersla verður lögð á að vinna frystan fisk hjá
Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar í framtíðinni. Auk frystihúss og rækju-
verksmiðju hefur HÓ einnig rekið loðnuverksmiðju og svo verður
einnig áfram.
Rækjuverksmiðjan var sett upp
fyrir nokkrum árum í frystihús
Magnúsar Gamalíelssonar hf., en
við sameiningu frystihúsanna í
Ólafsfirði fyrir tveimur árum var
hún seld til Hraðfrystihúss Ólafs-
fjarðar. Verksmiðjan var nánast ný,
hafði tvær pillunarvélar og þar
störfuðu um tuttugu manns þegar
best lét. Ólafsfjarðarbátar hafa um
800 tonna rækjukvóta, en auk þess
var unnin í verksmiðjunni innflutt
rækja. Rækjuvinnsla var þó ekki
stöðug í verksmiðjunni árið um
kring.
Jóhann Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Ólafsfjarðar sagði að rækja hefði
ekki verið unnin í verksmiðjunni frá
því í nóvember á síðasta ári og því
ylli einkum lágt verð. Hið lága verð
sem fengist hefur fyrir rækju und-
anfarin misseri sem og að fyrirtæk-
ið á engan rækjukvóta skiptu mestu
um að ákveðið var að hætta rekstri
verksmiðjunnar og taka hana niður.
Heimabátar hafa verið í viðskiptum
við rækjuverksmiðjuna, en Jóhann
sagði að nú hefði vinnslan í auknum
mæli færst út á sjó, sem einnig
hefði haft áhrif á þá ákvörðun að
hætta starfsemi hennar.
Jóhann sagði að áherslubreyting-
ar yrðu í rekstri Hraðfrystihúss
Ólafsfjarðar og yrði í framtíðinni
aukin áhersla lögð á frystingu, en
í húsakynnum rækjuverskmiðunnar
verður sett upp flæðilína, sem vænt-
anlega verður komin í notkun fyrir
jól.
Skerðing aflaheimilda á þessu
kvótaári hefur í för með sér að
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar fær að
líkindum um 10-12% minni afla en
að jafnaði áður og sagði Jóhann
að þeirri skerðingu yrði mætt með
auknum kvótakaupum sem og
lengri fríum. Fyrirsjáanlegt væri
að jólafrí starfsmanna yrði í lengra
lagi og eflaust yrði einnig lokað
vegna sumarleyfa næsta sumar.
„Þessari skerðingu verðum við að
mæta með því að auka verðmæti
hráefnisins og uppsetning flæðilín-
unnar er einn liður í því,“ sagði
Jóhann.
Hraðfiystihús Ólafsijarðar hefur
rekið loðnuverksmiðju samhliða
frystihúsinum og rækjuverksmiðj-
unni og sagði Jóhann að engin
áform væru uppi um að hætta þeim
rekstri. „Við ætlum okkur að vera
áfram með í þeim slag. Það hafa
verið brædd bein í verksmiðjunni
að undanförnu og gengið ágætlega
þar.“
Ók á rúmlega eitt hundr-
að km hraða innanbæjar
UNGUR ökumaður tvöfaldaði
leyfilegan hámarkshraða er
hann ók bifreið sinni um Þór-
unnarstræti, en hann mældist á
rúmlega 100 kílómetra hraða.
Nokkrir voru teknir fyrir of
hraðan akstur á Akúreyri um
helgina, en ökumaðurinn ungi ók
sýnu hraðast, á rúmlega 100 kíló-
metra hraða innanbæjar. Hann
var sviptur ökuleyfi á staðnum.
Þá var einn tekinn fyrir meinta
ölvun við akstur um helgina og
fjórir gistu fangageymslur lög-
reglunnar.
Bíll valt út af veginum skammt
vestan við Bakkasel á Öxnadals-
heiði, en tilkynnt var um óhappið
til lögreglunnar á Akureyri kl.
rúmlega 7 á laugardagsmorgun.
Ökumaður var einn á ferð og slapp
ómeiddur, en bifreiðin skemmdist
talsvert.
• • /
Oryrkjabandalag Islands:
Ferðum strætis-
vagna verði fjölgað
;Á FUNDI stjórnar Öryrkjaband-
alags Islands sem haldinn var 10.
september sl. var samþykkt eftir-
farandi ályktun:
„Stjórn Öryrkjabandalags ís-
Iánds beinir þeim eindregnu tilmæl-
um til borgarstjórnar Reykjavíkur
að fjölgað verði ferðum strætis-
vagna frá því sem nú er. Sú ákvörð-
un að fækka ferðum vagnanna um
vetrarmánuðina stríðir gegn hags-
munum fjölda öryrkja, aldraðra,
barna og skólafólks sem eiga engra
annarra kosta völ en nýta sér ferð-
ir strætisvagnanna. Stjórn Öryrkja-
bandalags Islands bendir jafnframt
á að með þvi að fækka ferðum er
vegið mjög að kjörum fjölmenns
hóps borgarbúa.
Ályktunin hefur verið send borg-
arstjórn Reykjavíkur og stjórn
Strætisvagna Reykjavíkur.
Skákskól-
inn fær
bókagjöf
Við setningu Skák-
skóla Islands, á
fyrsta starfsári
skólans, færði
Sverrir Hermanns-
son bankastjóri
Landsbanka ís-
lands, skólanum að
gjöf safn skákbóka.
Samkvæmt upplýs-
ingum frá Skák-
sambandinu er þeg-
ar fullskipað í tvo
flokka.